Alþýðublaðið - 30.12.1987, Síða 18
18
Miðvikudagur 30. desember 1987
TONLIST
Eiríkur Stephensen
skrifar
VANDAÐUR EINLEIKUR
Kammersveit Reykjavíkur
hefur árlega lífgað uppá
svartasta skammdegið með
veglegum jólatónleikum.
Þessir skammdegistónleikar
voru að þessu sinni helgaðir
ítölsku tónskáldunum og
haldnir í Áskirkju. Fluttir voru
fimm konsertar, og þar af
fjórir einleikskonsertar.
Vivaldi skipaði stærsta
sess á tónleikunum, með tvo
konserta. Annar var konsert í
C-dúr fyrir tvo trompeta,
strengi og continuo, hinn var
konsert í a-moll fyrir fagott,
strengi og continuo. Trompet-
konsert Vivaldis var fluttur af
Lárusi Sveinssyni og Ásgeiri
H. Steingrímssyni á tvo
piccaló trompeta. Konsertinn
er einn af þessum hátíðlegu
trompetkonsertum, og sam-
hljómur trompetanna kom
þessu vel til skila þrátt fyrir
að stíll þeirra sé gjörólíkur.
Fagott konsert Vivaldis var
glæsilega fluttur af Rúnari H.
Vilbergssyni. Rúnar er ekki
lengur bara efnilegur fagott-
leikari heldur mjög góður
„Gullmoli tónleikanna var gitar-
konsert ettir M. Giuliani sem
Arnaldur Arnarson gítarleikari
(að neúán) lék yfirvegaú og tal-
lega. Trompetkonsert Vivaldis (til
hægri) var fluttur af Lárusi
Sveinssyni (lengst til hægri) og
Ásgeiri H. Steingrímssyni og
kom samhljómur trompetanna
verkinu vel til skila,“ skrifar
Eirikur Stephensen m. a. í um-
fjöllun sinni um jólatónleika
Kammersveitar Reykjavíkur.
hljóðfæraleikari, bæði hvað
varðar tækni og túlkun.
Fiðlukonsert Tartini var leið-
inlegasta verk tónleikanna,
bæði fannst mér tónsmlðin
lítt áhugaverð og flutningur
kammersveitarinnar illa gerð-
ur. Laufey Sigurðardóttir sþil-
aði einleik í þessum konsert
og lék hún oft vel en það
vantaði mikið upp á samspil-
ið. Konsert í A-dúr fyrir gítar
og strengi, eftir M. Giuliani,
var gullmoli tónleikanna,
Arnaldur Arnarson gítarleik-
ari lék þennan gítarkonsert
mjög yfirvegað og fallega og
veikir gítarhljómar, sem oft
vilja kafna í sterkum fiðlu-
hljómum skiluöu sér vel í
gegn. Síðasta verk tónleik-
anna var Jólakonsert Man-
fredini sem var afskaplega
hægur og þunglamalegur og
virtist ekki njóta sín sem
skyldi. Tónleikarnir í heild
voru góðir, enda var leikur
einleikaranna vandaður en
hljómsveitin virkaði frekar illa
æfð.
HELMÚT Á MÓTORHJÓLI ER KLASSI
Drap mann með skóflu,
s/h draumur.
Púff, þá eru þessi jól liðin,
liðin tið og heyra nú sögunni
til. Landinn búinn að renna
steikinni, Ijúffengri, niður og
væntanlega búinn að henda
pappírnum utan af gjöfunum
glæsilegur i tunnuna. Sóun.
Islensk plötuútgáfa, sem eitt
sinn stóð á veikum brauðfót-
um hefur sjaldan eða aldrei
verið líflegri en einmitt nú í
ár. Flestir hafa reynt eftir
fremsta megni að vera með í
„flóðinu" en ekki hafa allir
árangur sem erfiði og gæði
og magn fara alls ekki saman
í þessum efnum eins og svo
mörgu öðru.
Allskonar plötur hafa verið
gefnar út; popplötur, rokk-
plötur, þjóðlagaplötur, trúar-
plötur og fleira mætti telja
upp.
Þetta er lítil plata, lítil og
sæt plata frá tríói sem kemur
frá Kópavogi. Trió þetta heitir
þvi óvenjulega en skemmti-
lega nafni s/h draumur. Plat-
an heitir enn óvenjulegra
nafni, drap mann með skóflu.
Hrollvekjandi titill sem vekur
með manni óhugnanlegar
myndir.
Þegar lesendur hafa fengið
nafnið á plötunni uppgefið
ætti aö vera auðvelt fyrir þá
að gera sér í hugarlund
hverskonar plata er hér á
ferðinni. Jú, þetta er hrá og
óhefluð plata sem inniheldur
lögin, Helmút á mótorhjóli,
Bimbirimbirimbamm og Eyði-
mörk. Fyrsta og eina lagið á
hlið eitt, Helmút á mótorhjóli
er nokkurs konar sambland
af uppreisnar og frelsissöng
hins leðurklædda Helmúts
sem er búinn að fá sig full-
saddan af ástandinu og keyr-
ir út i buskann á sjóðheitu
mótorhjólinu. Þetta lag er
með þungum takti þar sem
gott samspil Gunnars bassa-
leikara og Birgis trommuleik-
ara ásamt hvössum og skær-
um gitarleik Guðjóns leggj-
ast á eitt og gera lag þetta
eitt af eftirminnilegri lögum
ársins. Fjölbreytt útsetning
og skemmtilegur söngur
hjálpa líka til. Vinkona min
sagði við mig að Helmút á
mótorhjóli væri alveg eins og
lög ættu að vera. Ég er henni
fyllilega sammála. Helmút er
klassi.
Lögin á hlið tvö eru mun
styttri og af annarri gerð en
Helmút. Fyrra lagið heitri
Bimbirimbirimbamm og fjall-
ar um útskúfaðan dreng í
sjálfsmorðshugleiðingum;
„En nú heng ég bar’undir
pústinu
og geri ekki neitt
sé sjálfan mig í pústinu
ég er Ijótur eins og djöfull
en það gerir ekkert til
því guð gaf okkur Hófí.“
(Bimbirimbirimbamm)
Þetta er hratt og stutt lag í
ætt við pönk. Hratt og hrátt.
Síöara lagið á hlið tvö heitir
svo Eyðimörk. Lag um firr-
ingu nútímalífsins, firringu
hraðans, lífsgæðakapphlaup-
ið. Aðeins þeir hörðustu lifa
af:
„Það er ekkert mál að skríða
yfir eyðimörk ef þú veist af
bar
að leiðarlokum og barinn er
stór
og Ijósin skína og barinn er
stór
og Ijósin skína ef þú skríður
hratt
þá verður allt í fína.“ (Eyði-
mörk)
Hlið þessi (nr. 2) er eins
konar afturhvarf til þeirrar
tónlistar byltingar sem átti
sér stað hér á landi í kringum
1980 þegar hljómsveitir eins
og Vonbrigði, Fræbbblarnir
og Sjálfsfróun voru og hétu.
Maður hélt að svona hlutir
væru ekki gerðir lengur, en
með þessari plötu hefur
hljómsveitin s/h draumur
sannað að svo er ekki. Drap
mann með skóflu er konfekt-
moli fyrir aödáendur neðan-
jarðartónlistar og Ijós í
myrkrinu. Dreymi ykkur vel.
Gunnar H. Ársælsson
Stúdentar
frá Hamrahlíð
Laugardaginn 19. desem-
ber brautskráðust frá
Menntaskólanum við Hamra-
hlíö 74 stúdentar. Við braut-
skráninguna söng kór skól-
ans að vanda undir stjórn
Þorgerðar Ingólfsdóttur og
strokkvartetfélaga í kórnum
flutti jólalög. en kórinn átti
tuttugu ára afmæli nú í haust
og minntist þess með veg-
legum tónleikum í skólanum
22. nóvember sl.
Hæsta einkunn á stúd-
entsprófi hlaut Ragnheiður
Þórarinsdóttir, stúdent af
náttúrufræðibraut.
I ræðu sinni minnti rektor
á að ekki hefur enn verið
reist íþróttahús við skólann.
Einnig minnti hann á vanda
fatlaðra nemenda í hjólastól,
sem alltaf eru nokkrir við
skólann, en þeir komast ekki
leiðar sinnar um allan skól-
ann, m. a. hvorki á bókasafn,
skrifstofu né kennarastofu.
Yoga -
heimspeki
Vasaútgáfan hefurgefið út
bókina „Yoga-heimspeki“ eftir
Ramacharaka í þýðingu
Steinunnar Briem. Hér er um
endurútgáfu að ræða á verki
sem guðspekingar telja eitt
undirstöðuatriði austrænnar
dulspeki. Kom það fyrst út á
íslensku fyrir 26 árum og er
löngu uppselt og ófáanlegt.
í bókinni Yoga-heimspeki
er fjallað í víðri sýn um ýmis
helstu undirstöðuatriði dul-
spekinnar, svo sem þrískipt-
ingu mannsins í líkamlega,
hugræna og andlega eðlis-
þætti. Þar eru útskýrð ýmis
dularfull fyrirbæri eins og
fjarhrif, dulskyggni, mannlegt
segulafl, dulrænar lækningar
og hið svokallaða lífsafl
(prana).
Hinirólíku þættir dulspek-
innar og tilveruhugmyndir
hinnar austrænu speki eru
hér útskýrðir í 14 fyrirlestr-
um, sem kallast Fræðastund-
ir. Bókin er 192 bls., prentuð í
Prentstofu G. Benediktsson-
ar, en Friðrika Geirsdóttir
gerði kápuskreytingu.
Stofnun
Sigurðar Nordals:
DR. ÚLFAR
BRAGASON
RÁÐINN
FORSTÖÐU-
MAÐUR
Stjórn Stofnunar Sigurðar
Nordals hefur ráðið dr. Úlfar
Bragason forstöðumann
stofnunarinnar frá og með 1.
janúar n.k.
Úlfar Bragason er fæddur
árið 1949. Hann lauk B.A.-
-prófi í íslensku og sagnfræði
frá Háskóla íslands árið 1973,
magister-prófi i almennum
bókmenntum frá Oslóarhá-
skóla 1979 og doktorsprófi í
norrænum bókmenntum frá
Kaliforniuháskólanum í
Berkley 1986. Úlfar hefur
kennt við framhaldsskóla,
verið stundakennari við
Kaliforníuháskóla i Berkley
1983-1984 og gistiprófessor í
norsku og forníslensku við
Chicagoháskóla 1986-1987.
Doktorsritgerð hans fjallar
um frásagnarlist í Sturlungu.
Aðrir umsækjendur um
stöðuna voru Ásdís Egils-
dóttir cand.mag., Eirikur
Hreinn Finnbogason cand.
magn. og Gísli Sigurðsson
M.Phil.