Alþýðublaðið - 10.02.1988, Side 3
Miðvikudagur 10. febrúar 1988
3
FRÉTTIR
HÆTTA A KLOFNINGI í VH
Starfsmenn Flugleiða íhuga úrgöngu úr Verslunarmannafélagi Reykjavíkur, effélagið
semur um orlofsferðir við erlent flugfélag.
Stjóm Starfsmannaféiags
Flugleiöa hefur lýst því yfir
aö samningaviðræður þær
sem Verslunarmannafélag
Reykjavíkur stendur í viö
Lion Air í Luxemborg, séu
gróf aðför aö hagsmunum
þeirra rúmlega 500 félags-
mannai j VR sem vinna hjá
Flugleiðum, og þau sjái ekki
ástæöu til aö taka þátt í
félagsskap sem beinlinis
vinni gegn hagsmunum
þessara félagsmanna. Verði
af þessum samningi sé
kominn tími til að VR fólk hjá
Flugleiðum stofni sitt eigið
stéttarfélag.
í samtali við Alþýðublaðið
sagði Margrét Hauksdóttir
varaformaður starfsmanna-
félags Flugleiða að með því
að fá hingað leiguflug fyrir
2500 manns eða 5000 sæti
væri verið að skerða tekju-
möguleika starfsfólks Flug-
leiða sem er í VR. Varöandi
það hvort VR sé ekki einmitt
að vinna fyrir sína félags-
menn með því að reyna að fá
eins ódýrar ferðir og hægt
væri, sagði Margrét að ef það
þýddi minni vinnu fyrir VR
fólk hjá Flugleiðum, þá væri
það ekki þeirra hagur. Að-
spurð sagðist hún ekki
reikna meö aö Flugleiðir
gætu boðið eins lágt fargjald
og nefnt hefur verið í sam-
bandi við samning við Lion
Air. „Maður héldi að 7000
krónur væru langt fyrir neðan
kostnaðarverð."
— Er ekki rétt af VR að
finna ódýrustu ferðirnar fyrir
sitt fólk?
„Það má kannski segja að
það sé skiljanlegt að þeir
geri það, en að okkar mati
eru þeir að berjast gegn
okkar hagsmunum sem erum
líka í VR, það virðist ekki vera
að okkar hagsmunir fari
saman.“
Margrét sagði að ekkert
hafi verið ákveðið um fram-
haldið et VH semur við Lion
Air. Hugmyndir um sérstakt
stéttarfélag innan Flugleiða
hafi oft komið til tals áður,
enda væri starfsfólk þar tölu-
vert sérhæft. Hins vegar •
hljóti allar svona aðgerðir að
hvetja fólk til að athuga þann
möguleika.
Ekki tókst að ná í Magnús
L. Sveinsson formann
Verslunarmannafélags
Reykjavíkur vegna þessa
máls.
Aróður hvalavina gegn íslenskum fiski:
ÁHRIFA EKKI
FARIÐ AÐ GÆTA
— segir forstjóri Coldwater í
Bandaríkjunum.
Bilar halda áfram aö streyma inn í landið þrátt fyrir gifurlegan innflutning í fyrra og hitteðfyrra. Fjöldi bíla biöur
m.a. afgreiðslu á svæði Eimskipafélagsins i Hafnarfirði, þar sem þessi mynd var tekin í gær. A-mynd Róbert.
ÍSLENDINGAR MEÐ
M
BILA-BAKTERIU
úá
Um 24.000 fólksbílar seldust á
Magnús Gústafsson for-
stjóri Coldwater i Banda-
rikjunum segir að engra
áhrifa sé farið að gæta vegna
áróðurs Greenpeacesamtak-
anna, hvorki hjá stærri við-
skiptavinum né hinum al-
menna kaupanda. Nóg fram-
boð sé af fiski hjá flestum og
mikið sé af fiski sem sé lé-
legri en sá íslenski, á mun
lægra verði.
I samtali við Alþýðublaðið
sagði Magnús að engin áhrif
væri að sjá af áróðrinum enn-
þá. „Þeir eru að undirbúa það
að hafa áhrif á stærri við-
skiptavini að kaupa ekki
fslenskan fisk, en það hefur
ekki haft nein áhrif ennþá.“
Að sögn Magnúsar hefur
megináherslan verið lögð á
það af hálfu þeirra hjá Cold-
water, að samkomulag sé á
milli Islands og Banda-
ríkjanna og íslendingar hafi
fallist á það að vísinda-
áætlanir okkar fari fyrir Al-
þjóðahvalveiðiráðið. Varðandi
hinn almenna kauþanda,
Byggðastofnun hefur ekki
tekið til afgreiðslu lánsum-
sókn Helga Þórs Jónssonar
vegna Hótel Arkar. Hann á
eftir að leggja fram ýmsar
upplýsingar sem beðið hefur
verið um. Það mun hafa áhrif
á afstöðu Byggðastofnunar
hvort verið sé að greiða
öllum kröfuhöfum eða bara
þeim sem hafa veðrétt. Hjá
Byggðastofnun eru efasemd-
ir um endurgreiðslugetu
hótelsins á nýju láni.
Hjá Byggðastofnun er
tekið fram að hún sé ekki
vön að greina frá einstökum
Iánsumsóknum, en þar sem
umsækjandinn hafi sjálfur
haft frumkvæðið að því, verði
gerð undantekning.
Hið rétta sé að Helgi Þór
Jónsson hafi sótt um 20 mill-
jón króna lán til Byggða-
stofnunar, en umsóknin ekki
verið afgreidd enn. Til trygg-
ingar láninu bjóði Helgi sam-
hliða veðrétt með Ferðamála-
sjóði og Framkvæmdasjóði
sagði Magnús að aðgerðir
Greenpeace hafi ekki haft
nein áhrif á þá.
Hann sagðist vona að um-
hverfisverndarfólkið féllist á
það að lög og reglur eigi að
gilda og þegar samskipti séu
í lagi á milli þjóða verði málið
leyst á þeim vettvangi. „Við
skulum bara vona að það
komi aldrei til þess að meta
hvaða árangur aðgerðir sem
beinast gegn friðsamlegum
lausnum hafa.“ Það ætti eftir
að koma i Ijós hvað gerist
þegar Japanir fara af stað
með sína vísindaveiðiáætlun.
„Ég býst við að viðbrögðin
gegn henni verði sýnilegri en
gagnvart okkar.“
Varðandi verð og eftir-
spurn, sagði Magnús að nóg
væri af fiski hjá flestum, en
hjá Coldwater vantaði tölu-
vert i ákveðnar pakkningar.
„Það er ansi mikiö af fiski af
lélegri gæðum en við erum
með, á töluvert lægra verði.
Það eru víðsjár i þessum
málurn."
Islands. Vegna beiðninnar
hefur Helgi verið beðinn um
ýmsar upþlýsingar og að
gera grein fyrir þvi til hvers
eigi að nota nýtt lán, og þá
hvernig það muni duga til að
koma kröfum í full skil.
Veruleg áhrif hafi á afstöðu
Byggðastofnunar hvort verið
sé að greiða öllum kröfu-
höfum eða aðeins þeim sem
þegar hafa tryggt sér veðrétt
í hótelinu og lausafé. Stofn-
unin hefur áhyggjur af fjár-
hagslegu tjóni sem iðnaöar-
menn og smærri verktakar í
Hveragerði og nágrenni
kunna að verða fyrir ef Hótel
Örk nær ekki að rétta
greiðslustöðu sína.
Hjá Byggðastofnun eru
efasemdir um endurgreiðslu-
getu þessa fyrirtækis á nýju
láni og það skipti auövitað
meginmáii. Þegar Helgi Þór
hefur lagt fyrir þær uþp-
lýsingar sem beðið hefur
verið um, verður málið lagt
fyrir stjórn Byggðastofnunar.
íslendingar keyptu ails
2806 Lödur á síöasta ári.
Lada hefur síðustu ár verið
ein allra vinsælasta bíl-
tegundin, en hefur nú slegið
öll fyrri met. Af öðrum
tegundum var einnig gífurleg
sala í Toyota, 2320 bílar seld-
ust á árinu og yfir 2000 bilar
seldust af gerðinni Mitsu-
bishi. Þar af seldust 961
Lancer-bílar.
Nokkrar aðrar tegundir
seldust einnig mjög vel á
þessu mikla bílaári, þó ekki
næðu þær 2000-bílamarkinu,
eins og áður nefndar tegund-
ir. Yfir 1000 bílar seldust t.d.
af gerðunum Mazda og
Nissan.
Þessar uþþlýsingar koma
m.a. fram ( skýrslu Hagstofu
Islands um bíla tollafgreidda
í janúar til desember 1987.
Skýrslan er gerð ársfjórð-
ungslega og sýnir viðbót þá
við bílaeign landsmanna sem
verður á hverjum ársfjórð-
ungi.
A árinu 1987 voru fluttir
inn alls 18.081 nýir fólksbílar,
samanborið við 13.352 árið
1986. Innflutningur notaðra
bílajókst einnig gífurlega,
4.494 fólksbilar voru fluttir
inn í fyrra en 1.666 árið á
undan. Alls voru flutt inn
24.485 ökutæki samanborið
viö 15.851 árið 1986.
í árslok 1987 voru 2 ibúar
pr. fólksbíl á íslandi en 1,8 ef
Siðanefnd Blaðamanna-
félags íslands hefur
úrskuröað að fréttaflutningur
Rikisútvarpsins, í frétta-
timum hljóðvarps og þætti
dægurmáladeildar á Rás 2,
þar sem fjallað var um meint
tengsl Stefáns Jóhanns
Stefánssonar, fyrrverandi for-
sætisráðherra og bandarisku
leyniþjónustunnar CIA, hafi
verið alvarlegt brot á siða-
reglum blaðamanna.
Fréttirnar voru byggðar á
síðasta ári
allir bílar eru reiknaðir með.
Sambærilegar tölur fyrir árs-
lok 1986 voru 2,1 og 1,9. Þá
voru tölurnar 1,8 og 1,4 í
Bandaríkjunum, 2,3 og 1,8 i
Kanada og 3,3 og 2,8 í Dan-
mörku svo einhver dæmi séu
nefnd.
upplýsingum norska sagn-
fræðingsins Dags Tangens. í
úrskurði siðanefndar segir,
að I fréttatímum útvarps og
þætti dægurmáladeildar
Rásar 2 hafi 3. grein siða-
reglna verið brotin: „Blaða-
maður vandar upplýsingaöfl-
un sína svo sem kostur er og
sýnir fyllstu tillitssemi í
vandasömum rnálum."
Sem fyrr segir telur siða-
nefndin brotið alvarlegt.
Hótel Örk:
EKKERT LÁN ENNÞÁ
Tangen-málið í hljóðvarpi RUV:
ALVARLEGT BROT
segir í úrskurði siðanefndar
Blaðamannafélags íslands