Alþýðublaðið - 10.02.1988, Síða 6
6
Miðvikudagur 10. febrúar 1988
SMÁFRÉTTIR
ST. JÓSEFSSPÍTALI, LANDAKOTI
Skóladagheimilið Brekkukot
Viltu vinna í notalegu umhverfi á góðum stað í
bænum?
Okkur vantar aðstoðarmann á Skóladagheimilið
Brekkukot. Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma
19600/260 virka daga. Reykjavík 9.02 1988
REYKJMJÍKURBORG |||
Aautevi Sfádcci
Staða safnvarðar við Árbæjarsaf n er laus til umsókn-
ar. Staðan verðurveitt frá 1. mars 1988. Umsækjandi
skal hafa lokið háskólaprófi í þjóðfræði eða á sviði
norrænnar menningarsögu, auk þess væri iðn-
menntun æskileg. Starfsreynsla á minjasöfnum
áskilin. Laun samkvæmt kjarasamningi starfs-
mannafélags Reykjavíkurborgar.
Uþplýsingar um starfið veitir borgarminjavörður í
síma 84412.
Umsókn ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist starfsmannahaldi Reykjavíkurborgar,
Pósthússtræti 9, á eyðublöðum er þar fást fyrir 25.
febrúar 1988.
PÓST- OG
SÍMAMÁLASTOFNUNIN
óskar að ráða
BRÉFBERA
hjá póst- og símstöðvunum í Hafnarfirði og Kópa-
vogi.
Upplýsingar hjá stöðvarstjórum í Hafnarfirði í sím-
um 50555 og 50933 I Kópavogi í síma 41225.
PÓST- OG
SÍMAMÁLASTOFNUNIN
óskar að ráða ^
talsímaverði hjá ritsíma Símstöðvarinnar í Reykja-
vík.
Vélritunarkunnátta áskilin ásamt einhverri tungu-
málaþekkingu.
Upplýsingar veita Ólafur Eyjólfsson og Óli Gunnars-
son í síma 689011.
Frá Lichinga í Mósambik. Þessi litla
stúlka er á flótta undan striðsógnun-
um á svæðinu í kringum Niassa.
Sautján
milljónir nú
þegar
í jólasöfnun Hjálparstofn-
unar kirkjunnar hafa nú bor-
ist tæplega 17 milljónir króna
og hefur stjórn stofnunarinn-
ar þegar ákveóiö hvernig
hluta þess fjár verður varið.
í desember sl. voru sendar
I, 5 milljónir til heimilis fyrir
munaðarlaus börn í Eþiópíu.
Nokkru áður hafði verið send
jafnhá upphæð þannig að
alls eru þetta 3 milljónir.
Heimilið mun að öllum lík-
indum verða tilbúið í vor eða
sumar og mun það hýsa 150
börn.
Stjórn Hjálparstofnunar
kirkjunnar hefur ákveðið að
taka þátt i verkefni í Niassa (
Mósambik, sem áætlað er að
kosti alls um 1,9 milljónir
dollara. Stofnunin tekur þátt í
þessu verkefni ásamt hjálpar-
stofnunum hinna Norðurland-
anna. í Niassa eru nú um
II. 000 manns sem flúið hafa
hungursneyð og stríðsátök.
Fólk þetta býr gjörsamlega
einangrað, án matar og hjálp-
argagna. Til fólksins er ekki
hægt að komast i flugvélum.
Aðstoðin felst í matvæla-
flutningum og hjálp til sjálfs-
hjálpar.
Stjórn Hjálparsveitar kirkj-
unnar hefur ákveðið að ræða
við Lútherska heimssam-
bandið í Genf um aðild að
fiskveiðiverkefni i Massawa í
Eþíópíu. Þar hafa íslenskir
sjómenn m.a. starfað og
kennt. Einnig hefur mikið
magn íslenskra veiðarfæra
og ýmissa tækja verið sent
þangað. Hjálparstofnunin vill
fylgja starfi sínu í Massawa
eftir með því að taka þátt í
fiskveiðiverkefninu á nýjan
leik en nokkurt hlé hefur orð-
ið á starfseminni m.a. vegna
skorts á kennurum úr sjó-
mannastétt.
Kúbanskar
bókmenntir
Pablo Armando Fernándes
skáld frá Kúbu flytur opin-
beran fyrirlestur í boði heim-
spekideildar Háskóla íslands
sunnudaginn 14. febrúar kl.
14.30 í stofu 101 í Odda. Fyr-
irlesturinn fjallar um hlutverk
bókmennta ( kúbönsku sam-
félagi og verður fluttur á
ensku.
Pablo Armando Fernándes
fæddist á Kúbu 1930, en
fluttist til Bandaríkjanna á
unglingsárum sinum og átti
þar heima til ársins 1959 en
þar hófst rithöfundarferill
hans. Þegar hann var kominn
heim til Kúbu vann hann
fyrst við ritstjórn menningar-
timarita, slðan gerðist hann
starfsmaður utanrlkisþjón-
ustunnar og árið 1971 tók
hann við starfi hjá Vísinda-
akademlunni í Havana.
Fernándes hefur gefið út
sex Ijóöabækur, auk fleiri
rita, og hafa Ijóð hans verið
þýdd á mörg tungumál. Fyrir
skáldsöguna Los ninos se
despiden, Börnin kveðja,
hlaut hann bókmenntaverð-
laun Casa de las Americas.
Fyrirlesturinn á sunnudag er
öllum opinn.
Eitt andartak í
umferðinnl getur kostað'
margar andvðkunætur.
UMFERDAR
RAÐ
FLUGMÁLASTJÓRN
ÚTBOÐ VEGNA
FLUGGAGNAKERFIS
Flugmálastjórn hefur leitað tilboóa utanlands í þró-
un fluggagnakerfis. í útboðslýsingum er gert ráð fyr-
irþátttöku íslensks fyrirtækis sem undirverktakavið
gerð hugbúnaðarins.
Hér með er auglýst eftir fyrirtækjum, sem hafa
áhuga á ofangreindu verkefni. Útboðsgögn ásamt
kröfum um hæfni og reynslu þeirra fyrirtækja, sem
koma til greina, fást afhent í afgreiðslu flugmála-
stjórnar, 1. hæð, gegn 10.000 kr. skilatryggingu.
Flugmálastjóri
RARIK
RAFMAGNSVEITUR RÍKISíNS
Rafmagnsveitur ríkisins óskar eftir tilboðum í eftir-
farandi:
RARIK-88001: Nýbygging verkstæðis- og geymslu-
húss í Ólafsvík.
Opnunardagur: Miðvikudagur 24. febrúar 1988, kl.
14:00.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Ramagns-
veitna ríkisins við Sandholt 34, Ólafsvík og Lauga-
veg 118, Reykjavík frá og með miðvikudeginum 10.
febrúar 1988 gegn kr. 5.000 skiltatryggingu.
Tilboðum, skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins, Ólafsvík fyrir opnunartíma og verða þau
opnuð ásama stað að viðstöddum þeim bjóðendum
er þess óska.
Tilboðin séu i lokuðu umslagi, merktu
„RARIK-88001 Húsnæði í Ólafsvík".
ÚTBOÐ
Kvenfélag
Alþýðuflokksins
í Hafnarfirði
Fundur verður haldinn mánudaginn 15. febrúar n.k.
kl. 20.30 í Alþýðuhúsinu Strandgötu.
Gestur fundarins verður Árni Gunnarsson alþingis-
maður.
Umræður um velferðarkerfið og forréttindahópa.
Mætið vel og stundvíslega og takið með ykkur gesti.
Stjórnin
Alþýðuflokksfélag
Húsavíkur
Félagsfundurverðurhaldinn á Hótelinu miðvikudag-
inn 10. febrúar n.k. kl. 20.30
Dagskrá:
1. Inntaka nýrra félaga
2. Fjárhagsáætlun bæjarins
3. Önnur mál.
Stjórnin.
OPIÐ HUS
Miðvikudaginn 10. febrúar n.k. verður
opið hús í Félagsmiðstöðinni Hverfis-
götu 8—10.
Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmála-
ráðherra mætir á fundinn.
Komið, spjallið og spáið í pólitíkina.
Alþýðuflokkurinn