Alþýðublaðið - 10.02.1988, Síða 8
MMBUBUBIfi
Miðvikudagur 10. febrúar 1988
Síld hf á Siglufirði:
FENGU EKKI FRAMLEIÐSLURETT
Rafn Sigurðsson, formaður stjórnar Sölustofnunar Lagmetis segir ekki grundvöll fyrir
fleiri framleiðendur að svo stöddu.
Stjórn Sölustofnunar Lag-
metis tók þá ákvörðun á
stjórnarfundi si. föstudag að
veita Si Id h.f. á Siglufirði
inngöngu í Sölustofnunina.
Hins vegar samþykkti stjórn-
in ekki að fyrirtækið fengi
leyfi til framleiðslu á sildar-
lagmeti er selt yrði til Sovét-
ríkjanna, og er ástæðan
ónógir sölúsamningar. Vegna
þessa er talið um að hátt í 20
manns missi atvinnu á Siglu-
firði.
í samtali við Alþýðublaðið
sagði Rafn Sigurðsson,
stjórnarformaður Sölu-
stofnunar Lagmetis að þeir
teldu ekki fyrirliggjandi sölu-
samninga til að fjölga fram-
leiðendunum. „Það eru nú
þegar þrjár verksmiðjur sem
framleiða síldarafurðir, K.
Jónsson og Co. á Akureyri,
Lifrarsamlag Vestmannaeyja
og Fiskimjölsverksmiðja
Hornafjarðar. Á meðan viö
höfum ekki stærri samninga
teljum við ekki þörf á við-
bótarframleiðendum að svo
stöddu" sagði Rafn.
Á bæjarskrifstofu Siglu-
fjarðar fengust þær upp-
lýsingar að hlutafélagið Síld
Eskifjörður:
ALLT A KAFI
Snjómokstursvélar bœjarins og
Vegagerðarinnar eru í fullri notkun svo til
alla daga.
Undanfarna daga hefur
snjó kyngt niður á Austfjörð-
um og að sögn Bjarna
Stefánssonar, bæjarstjóra á
Eskifirði, hefur ekki snjóað
jafn mikið þar i meira en ára-
tug. Snjóruðningstæki, bæði
frá bænum og Vegagerð
rikisins hafa því verið í fullri
notkun og sagði Bjarni að
þessir dagar hefðu verið
bænum afar dýrir.
„Hér er allt á kafi í snjó og
það segja mér fróðir menn
að ekki hafi kyngt niður
öðrum eins snjó hér síðan
1974, en þá voru mikil snjó-
flóð á Norðfirði" sagði
Bjarni í samtali við Alþýðu-
blaðið. Ástand þetta er búið
að vara í um hálfan mánuð
þótt ekki hafi gert vitlaust
veður fyrr en um seinustu
helgi. Þá var bæði kolófært
og kolvitlaust veður, sagði
Bjarni, það sást jafnvel ekki á
milli húsa.
Snjómagnið í bænum er
svo mikið að aðalvandamálið
er að koma því sem mokað
er, einhversstaðar fyrir. Sagði
Bjarni að bæði hefði verið
farið með snjó niður í fjöru
og niður ( árnar. Þó væri það
ekki heppileg lausn, þar sem
hætta væri á flóðum ef gera
skyldi allsherjar hláku. „Þetta
kostar okkur gífurlega fjár-
muni, áníðslan á tækjunum
er mikil og svo þurfum við að
borga aukamannskap fyrir
vinnu,“ sagði Bjarni.
Vegagerð ríkisins sér síðan
um að halda aðalsamgöngu-
æðinni, Fagradal, færum og
að sögn Bjarna er hann
mokaður á hverjum degi, ef
veður leyfir. í gær var Vega-
gerðin að moka Oddskarðið,
sem liggur frá Eskifirði til
Neskaupstaðar, og sagði
Bjarni snjóinn svo gífurlega
mikinn að búast mætti við að
moksturinn tæki mjög
langan tíma.
í gegnum árin hafa Siglfirðingar framleitt úrval af síldarvörum fyrir bæöi
innlendan og erlendan markað. Meö ákvörðun Sölustofnunar eru hins
vegar likur til þess aö framleiðslu veröi aö mestu hætt á Siglufirði.
h.f. var stofnað nú nýlega og
var stofnféð upp á fimmtíu
þúsund krónur. Meirihlutann,
eða 60% á K. Jónsson og
Co. á Akureyri, Siglufjarðar-
bær, Verkalýðsfélagið Vaka á
Siglufirði og tveir einstak-
lingar í bænum eiga svo sinn
hlutinn hver. Síðan var
ákvæði í stofnsamningi fyrir-
tækisins þess efnis að skil-
yrði fyrir áframhaldandi til-
veru þess væru að Síld h.f.
og K. Jónsson, Akureyri
fengju einkaleyfi á gaffalbita-
framieiðslu fyrir Rússlands-
markað. Sigló h.f. hefur haft
þennan rétt á móti K. Jóns-
syni um nokkurn tíma og ef
það hefði gengið eftir, að
Síld h.f. yfirtæki samninginn,
átti að auka hlutaféð upp (
fimm milljónir. Siðan var
ætlunin að gaffalbitarnir yrðu
framleiddir á Akureyri en K.
Jónsson myndi jafnframt
skuldbinda sig á móti um að
það yrði framleidd ákveðin
afurð úr síldarflökum úr fimm
þúsund tunnum, á Siglufirði.
Út á það átti að tryggja hátt í
20 manns vinnu. En þar sem
stjórn Sölustofnunarinnar
hafnaði þessari beiðni
sögðust viðmælendur Al-
þýðublaðsins á Siglufirði
ekki vita hvert framhaldið
yrði. Meirihlutaeigandinn K.
Jónsson og Co. réði nú öllu.
Kristján Jónsson, verk-
smiðjustjóri K. Jónsson, vildi
hins vegar ekkert tjá sig um
málið við blaðamann í gær-
dag. |
Norður- og Austurland:
HAFÍS NALGAST LANDIÐ
Undanfarna daga hafa
borist fregnir af hafis Uti fyrir
öllu norðanverðu landinu.
Ekki er enn vitað hvað hann
er mikill, en að sögn Eiriks
Sigurðssonar, hjá Veðurstofu
íslands er ísinn nokkuð
dreifður þannig að þó hann
sé á leið til lands er útlitið
ekki mjög svart.
Samkvæmt upplýsingum
frá Veðurstofu íslands, hefur
ekki verið hægt að fljúga yfir
svæðið, þar sem ísinn er,
vegna óhagstæðra skilyrða,
og bíður Landhelgisgæslan
því færis. Fregnir hafa hins
vegar borist frá skipum og
samkvæmt þeim er ís á við
og dreif alveg frá Horn-
ströndum í vestri til svæðis
norður af Langanesi. í gær-
morgun bárust fregnir um
stakan jakavið höfnina í
Grfmsey og um dreifðan ís
og (shrafl 40 sjómílur norður
af Langanesi og er það, það
austasta sem Veðurstofan
hefur frétt af. Einnig er ís á
svæðinu á milli Grimseyjar
og Kolbeinseyjar og norð-
vestan af Kolbeinsey og
norður af Skaga, á milli
Skagafjarðar og Húnaflóa.
Þar er isinn reyndar mjög
langt í burtu, einar 70 sjó-
mílur. „Tölvuspár, sem við
höfum fengið gera ráð fyrir
norðlægum áttum alveg fram
á laugardag, þannig að þetta
mun nálgast landið svona
hægt og rólega. Það er ekki
gert ráð fyrir hvassviðri,
heldur aðeins 4-6 vindstigum
næstu fjóra til fimm dagana,
og það mun taka ísinn þann
tíma að koma til lands,“
sagði Eiríkur. Ekki taldi hann
þó ástæðu til svartsýni því
ísinn væri mjög dreifður. „Þó
er að sjálfsögðu allur varinn
góður, því hann er á leið til
lands," sagði Bjarni.
□ 1 2 3 n 4
5 □
6 □ 7
8 9
10 □ 11
□ 12 ú
13 □ □
Krossgátan
Lárétt: 1 heiðarlegt, 5 sjúkdóm-
ur, 6 hækkar, 7 fljótum, 8 óljósa,
10 eins, 11 afhendi, 12 seöla, 13
víðari.
Lóörétt: 1 hress, 2 dugleg, 3 tón,
4 aldin, 5 öngull, 7 þor, 9 mánuð-
ur, 12 lengdarmál.
Lausn á siöustu krossgátu
Lárétt: 1 brúka, 5 álit, 6 SAS, 7 kg,
8 tuskur, 10 æð, 11 æli, 12 otir, 13
aukið.
Lóörétt: 1 blauð, 2 riss, 3 út, 4
angrir, 5 ástæða, 7 kulið, 9 kæti,
12 ok.
Gengii
Gengisskráning 25. — 8. febrúar 1988
Kaup Sala
Bandaríkjadollar 37,290 37,410
Sterlingspund 65,187 65,396
Kanadadollar 29,427 29,522
Dönsk króna 5,7303 5,7488
Norsk króna 5,7935 5,8122
Sænsk króna 6,1403 6,1601
Finnskt mark 9,0356 9,0352
Franskur franki 6,4827 6,5035
Belgiskur franki 1,0467 1,0501
Svissn. franki 26,7216 26,6076
Holl. gyllini 19,4940 19,5567
Vesturþýskt mark 21,8870 21,9574
itölsk lira 0,02974 0,02984
Austurr. sch. 3,1153 3,1253
Portúg. escudo 0,2684 0,2692
Spanskur peseti 0,3264 0,3274
Japanskt yen 0,28835 0,28928
• Ljósvakapunldar
•RUV • Rás 1
20.35 Nýjasta tækni og vís- indi. Sýnd verður myndin „Orka og Norðurlönd". 20.00 Þorkell Sigurbjörns- son heldur áfram að kynna þjóðinni nútímalist.
• Stöð 2 • RÓT
22.15 Shaka Zulu. Vinsæll framhaldsþátturum berrass- aða Zulu-menn. 22.30 Ungkratarkynnastarf- semi FUJ-félaganna.