Alþýðublaðið - 05.03.1988, Blaðsíða 3
Laugardagur 5. mars 1988
FRETTIR
Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra:
FORSENDUR EFNAHAGS-
ADGERÐANNA EKKI BROSTNAR
— þótt félögin felli kjarasamningana. Telur nýja gengisfellingu þýða lögbindingu launa og
sviptingu samningsréttar.
Frumvarp fjármálaráðherra
til laga um ráðstafanir í rikis-
fjármáfum og lánsfjármálum
1988 var samþykkt i neðri
deild Alþingis í gær. Jón
Baldvin Hannibalsson fjár-
málaráðherra segir við Al-
þýðublaðið, að forsendurnar
fyrir efnahagsráðstöfum rík-
isstjórnarinnar séu ekki
brostnar þótt verkalýðsfélög-
in felli kjarasamning VMSÍ og
SVÍ.
Neðri deild Alþingis sam-
þykkti í gær frumvarp Jóns
Baldvins Hannibalssonar um
ráðstafanir í rlkisfjármálum
og lánsfjármálum 1988. Að
lokinni afgreiðslu málsins
sagði fjármálaráðherra við Al-
þýðublaðið, að forsendur
þeirra efnahagsaðgerða sem
frumvarpið felur í sér séu
ekki brostnar þótt verkalýðs-.
félögin felli kjarasamning VSÍ
og VMSI.
..Þessi lög lýsa almennri
ráðstöfun ríkisstjórnarinnar í
efnahagsmálum og eru sett
til að bæta útflutningsgrein-
arnar og fiskvinnsluna sér-
staklega," sagði fjármálaráð-
herra við Alþýðublaðið, „og
til að hamla gegn viðskipta-
halla og skuldasöfnun."
Fjármálaráðherra sagði að
með þessum aðgerðum væri
verið að færa til fjármagn til
fiskvinnslunnar og útgerðar-
innar sem næmi 3 Vz millj-
arði króna: „Það er hins veg-
ar aðila vinnumarkaðarins að
ná samningum," sagði Jón
Baldvin.
Varðándi kjarasamningana
sem nú eru ýmist felldir eða
samþykktir um land allt,
sagði fjármálaráðherra: „Mér
sýnist þetta skiptast í tvö
horn. Stóru, almennu verka-
lýðsfélögin samþykkja samn-
ingana. Smærri félög úti á
Jón Baldvin: Aukin gengisfelling
getur þýtt lögbindingu launa og
sviptingu samningsréttar.
landi, þar sem fiskvinnslufólk
er yfirgnæfandi fella samn-
ingana. Sum þeirra félaga
stóðu reyndar aldrei að
samningunum eins ogsy'Aög-
in I Vestmannaeyjum og
Höfn í Hornafirði. Mér er
kunnugt um að óánægjan
með útfærslu á samkomulagi
um sveigjanleika vinnutíma
sé ein skýring þess að samn-
ingarnir eru víða felldir. Það
er þvi útlit fyrir að verkalýðs-
félögin verði að setjast aftur
að samningaborðinu."
Aðspurður hvort að nýir
kjarasamningar þýddu aukna
gengisfellingu, svaraði fjár-
málaráðherra, að tekist hefði
verið á um gengisfellingu við
gerð efnahagsráðstafana rikis
stjornarinnar. „Ahrifamiklir
aðilar settu þá fram stífar
kröfur um gengislækkun og
sumir fulltrúar stjórnarand-
stöðunnar tóku undir þær
kröfur. En þessir menn hafa
aldrei fengist til að segja
hvað þeir meina. Það sem
þeir meina, er að þeir þurfi
meiri háttar gengisfellingu
og lögbindingu launa. Það
væri hins vegar skammtíma
fúsk til nokkurra vikna og
hefði þýtt hækkað fiskverð,
hækkuð laun og hækkanir á
erlendum aðföngum. Eftir
nokkrar vikur stæðum við í
sömu sporum. Með beitingu
löggjafans við þessar
aðstæður væri verið að færa
penirrgana frá launþegum til
atvinnurekenda. Þetta vildum
við Alþýðuflokksmenn ekki
og snerumst á sveif með
verkalýðsforystunni geng
gengisfellingu, og höfum
stuðlað að því að laun i fisk-
vinnslunni og annars staðar
hafa hækkað.
Komi til aukinnar gengis-
fellingar, þá kemur upp krafa
um lögbindingu launa og
sviptingu samningsréttar.
Vilja menn það?“ sagði fjár-
málaráðherra.
Heímílístækí
sem bíða ekkí!
isskapm
- ■ ■
•wn a Aii tfii
- ■ 1111 ii ir i 11 ■
1
burrkari
eltlavél
frystikistir
Nú er ekki eftir neinu að bíða, þú verslar í Rafbúð
Sambandsins fyrir 100 þúsund og getur þá keypt
öll heimilistækin í einu, valið sjálfur hvert tæki af
ótal gerðum í pakkann, bætt sjónvarpi, videotæki
eða hrærivél við og skipt greiðslum jafnt niður á
24 mánuði. Engin útborgun og fyrstagreiðslaeftir
einn mánuð. Enginn íslenskur raftækjasali hefur
boðið slík kjör - hvorki fyrr né síðar. Hafðu sam-
band við Rafbúð Sambandsins strax - það er ekki
eftir neinu að bíða.
„ ... TMFÍSÍ
a^þessum kjorumB ^SAMBANDSINS
TAKMARKAÐ
MAGN
ÁRMÚLA3 Simi 687910
oooc oo