Alþýðublaðið - 20.04.1988, Page 1

Alþýðublaðið - 20.04.1988, Page 1
Þorsteinn Pálsson forsœtisráðherra: VERÐUM AD HORFAST f AUGU VIÐ GJÖRBREYTTAR ADSTÆÐUR Forsœtisráðherra segir breytingar í efnahagslífinu alvarlegar. Ríkisstjórnin vinnur að úttekt á stöðu mála. „Rikisstjórnin hefur fjallaö mikiö um stööu atvinnuveg- anna undanfarið. Það eru miklar breytingar að gerast í efnahagslífinu, markaöir i Bandaríkjunum viröast vera mjög ótryggir og afurðaverö að falla og ef þessi þróun heldur áfram þá skapast hér alveg nýjar aöstæöur sem viö verðum að horfast i augu viö,“ segir Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra. Aðspuröur um hvort for- sendur gengisstefnu ríkis- stjórnarinnar séu brostnar svarar forsætisráðherra því að gengið verði ekki fellt í fjölmiðlunum. „Það hefur enginn ágreiningur komið upp innan ríkisstjórnarinnar um efnahagsmálin," segir hann en bætir því viö að að- stæður hafi breyst mjög til hins verra frá þvi að ríkis- stjórnin greip til efnahags- aðgerða i febrúar. Ummæli iðnaðarráðherra á þingi Landssambands iðn- verkafólks um helgina á þá lund að fyrr en siðar verði stjórnvöld að taka á gengis- málunum hafa vakið mikla at- hygli. í samtali við Alþýðu- blaðið bar forsætisráðherra það af meðráðherra sínum að hann hefði óbeint verið að boða gengisfellingu. „Friðrik Sophusson var fyrst og fremst að ræða það hvað gengisfelling felur í sér og skýra það út fyrir mönnum. Það er eins og sumir geri sér ekki fyllilega grein fyrir því hvaða afleiðinar gengisfelling hefði,“ segir Þorsteinn Páls- son. Að sögn forsætisráðherra er nú unnið að úttekt á stöðu atvinnu- og efnahagsmál- anna. „Byggðastofnun hefur þegar verið falið að gera viða- miklaúttekt, Þjóðhagstofnun er líka að gera úttekt á stöðu Útvegsbankinn h.f: HALLGRÍMUR FORMAÐUR RANKARÁÐS atvinnuveganna og við höfum óskað eftir upplýsingum frá Seðlabankanum. Þetta er nauðsynlegt til að meta þær breytingar sem eru að verða i þjóðarbúskapnum og menn verða að gera sér grein fyrir því að þær eru alvarlegar. Ef kaupmáttur útflutningstekn- anna heldur áfram að hrapa og við drögum ekki saman eyósluna þá myndast hér við- skiptahalli og erlend skulda- söfnun sem ekki verður unað við.“ Forsætisráðherra var spurður að þvi hvort beðið væri eftir niðurstöðu af mið- stjórnarfundi Framsóknar til að grípa til efnahagsaðgerða. „Ég fæ ekki séð að hann breyti einu eða neinu um framgang þessara mála. Við .höfum vitað hvað er að ger- ast og höfum lagt mikla vinnu í að afla upplýsinga og til undirbúnings því að meta þær breytingar sem eru að gerast. Eg vona hins vegar að fundurinn verði til að styrkja nkisstjórnarsamstarfið því nú þurfa menn á samstöðu að halda ef þeir ætla að gera það sem þarf að gera við þessar breyttu aðstæður," sagði Þorsteinn Pálsson for- sætisráðherra. Þorsteinn Pálsson: „þaö hefur enginn ágreiningur komið upp innan rik- isstjórnarinnar um efnahagsmálin." Gísli Ólafsson fráfarandi formaður segir sig úr bankaráði. Hallgrímur Snorrason hag- stofustjóri var í gær kjörinn formaður bankaráös Utvegs- bankans h.f. á fundi banka- ráös. Fyrrverandi formaöur bankaráðsins Gísli Ólafsson sagði sig ur bankaráði á fundinum og kemur Baldur Guölaugsson varamaöur i hans stað. Kristján Ragnarsson fram- kvæmdastjóri Landssam- bands islenskra útvegs- manna sem var kjörinn vara- formaður staðfesti þetta i samtali við Alþýðublaðið í gær. Þá var Kristján spurður hvort fráfarandi formaður hafi sagt af sér í mótmælaskyni vegna formannaskiptanna? „Það er hans að svara því,“ sagði Kristján Ragnarssson. Bjórfrumvarpið til efri deildar: EKKI TRYGGUR MEIRIHLUTI Af viötölum viö nokkra þingmenn efri deildar i gær viröist helst mega draga þá ályktun aö meirihlutastuön- ingur viö bjórfrumvarpiö sé ekki eins öruggur og hingað til hefur verið talið. Þegar bjórinn var sam- þykktur i neðri deild á mánu- dag kom í Ijós að afstaða nokkurra þingmanna með eða á móti bjórnum fór ekki eins og talið hafði verið fyrr í vetur. Þannig kom t.d. í Ijós aö Þórhildur Þorleifsdóttir sem var talin jákvæð gagn- vart bjórnum greiddi atkvæði gegn frumvarpinu. Það sama virðist nú eiga sér stað í efri deild. „Afstaða sumra þing- manna hefur svolítið verið að breytast," sagði þingmaður í samtali við Alþýðublaðið. Það er fyrst og fremst umræða síðustu vikna um bjórmálið sem er talin hafa snúið ein- hverjum þingmönnum í and- stöðu við bjórinn. Þar vegur þyngst álit Alþjóða heil- brigðismálastofnunarinnar um áfegnismál. Guðrún Agnarsdóttir Kvennalista og forseti efri deildar i fjarveru Karls Stein- ars Guðnasonar hefur lýst yf- ir því að bjórmálið muni lík- lega ekki komast á dagskrá deildarinnar i þessari viku en reiknað hafði verið með því að málið kæmist á dagskrá deildarinnar í dag. RÁÐHÚSIÐ SEKKUR EÐA LYFTIST UPP „Þetta er einn óbyggileg- asti staðurinn í borginni fyrir svona hús. Rannsóknir Orku- stofnunar hafa leitt í Ijós að lóðin, eða grunnstæðið, er mjög vafasamt vegna þess að það fæst ekki bergfesta. Ráðhúsið mun því sökkva niður eða lyftast upp,“ segir Gissur Símonarson fulltrúi í Byggingarnefnd Reykjavikur- borgar í viðtali við Alþýðu- blaðið, sem birtist á blaðsíðu 4 í blaðinu í dag. H mmmm

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.