Alþýðublaðið - 17.05.1988, Blaðsíða 1
10% gengisfelling og viðrœður ríkisstjórnarinnar við aðila vinnumarkaðarins:
„BJÖRGUDUM í HORH“
— segir Jón Baldvin Hannibalsson um þátt Alþýðuflokksins í ákvörðun ríkisstjórnarinnar
„Þaö tókst aö koma í veg
fyrir ítrustu kröfur hagsmuna-
aöila um gengisfellingu,"
segir Jón Baldvin Hannibals-
son fjármálaráðherra og for-
maður Alþýðuflokksins við
Alþýöublaðið um áhrif og
aðild Alþýðuflokksins að
ákvörðun ríkisstjórnarinnar
um lækkun á gengi krónunn-
ar og viðræður við aðila
vinnumarkaðarins. Ríkis-
stjórnin sat á fundum alla
helgina og þingflokkar stjórn-
arflokkanna sömuleiöis. Sam-
staða náðist seint á sunnu-
dagskvöld um aö rikisstjórn-
in samþykkti tillögur Seðla-
bankans um 10% gengis-
lækkun og efnt skyldi til við-
ræðna við aðila vinnumarkað-
arins um verðlagsviðmiöanir í
kjarasamningum og verö-
tryggingu í lánasamningum.
Rikisstjórnin stefnir að þvi að
viðræðum Ijúki fyrir 1. júni
n.k. og að aðrar ákvarðanir í
efnahagsmálum verði teknar
fyrir þann tíma.
Jón Baldvin Hannibalsson
segir ennfremur um hlut Al-
þýðuflokksins í ákvörðun rík-
isstjórnarinnar um gengis-
lækkun: „Það tókst líka að
koma í veg fyrir kröfu um lög-
bindingu launa og afnám
rauðra strika. Þetta þýðir að
bjarga málum í horn. Það
tókst hins vegar ekki að ná
samstöðu þessa löngu helgi
um nauðsynlegar stuðnings-
aðgerðir, en tillögur okkar
jafnaðarmanna í því efni eru
fullmótaðar og liggja fyrir og
það tókst að fá samþykki
fyrir óskum okkar um viðræð-
ur við aðila vinnumarkaðarins
um framhaldið."
Jón Baldvin sagði enn-
fremur við Alþýðublaðið, að
tíminn til stefnu væri hálfur
Guðmundur J. Guðmunds-
son formaður Dagsbrúnar
segir að hliðarráðstafanir
þær sem gerðar verði vegna
gengisfellingarinnar, muni
gera útslagið um áhrif henn-
ar. Segist hann efast um að
25% gengisfelling gæti
bjargaö sjávarútveginum
vegna þeirra fáránlegu fjár-
festinga sem þar hafa átt sér
staö.
Segir Guðmundur að svo
lengi sé búið að halda þann-
ig á málum, að orsaka geng-
isfellingarinnar sé að leita
töluvert aftur í tímann. „Það
þýðir ekki að neita því að það
eru ákveðnir erfiöleikar vegna
mánuður sem væri sami tími
og ríkisstjórnin hafði upphaf-
lega einsett sér. Aðspurður
hvers vegna Alþýðuflokkurinn
hefði lagt áherslu á viðræður
ríkisstjórnar og launþega-
hreyfingar og hvað ríkis-
stjórnin ætlaði að fá út úr
viðræðum við verkalýðshreyf-
inguna, svaraði fjármálaráð-
herra: „Gömlu íhaldsúrræðin
eru þegar allt annað þrýtur;
gengisfelling og lögbinding
launa. Viö viljum fara nýjar
leiðir. Við skulum átta okkur
á þvf, að þessi ríkisstjórn átti
óbeina aðild að kjarasamn-
ingum í vetur til að leiðrétta
„Það hefur reynt að þolrif-
in í þessari rikisstjórn oft
fyrr. Það hefur snúist um ein-
stök mál og rikisstjórnin hef-
ur lifað allt af hingað til og
hrundið i framkvæmda stór-
um umbótamálum, þótt ein-
stakir stjórnarliðar hafi firrt
sig ábyrgð vegna kjósenda-
hræðslu," segir Jón Baldvin
Hannibalsson fjármálaráð-
herra við Alþýðublaðið varð-
andi þær sögusagnir að
gengisbreytingin og viðræð-
urnar framundan um efna-
hagsaðgerðir kunni að kosta
rikisstjórnina lífið.
„Núna er hins vegar uppi
ágreiningur um framgangs-
máta og forsendur efnahags-
mála. Það er borin von að ná-
ist samstaða um efnahagsað-
þess að við höfum búið við
gífurlegt góðæri, góður afli,
og hæsta verð sem nokkru
sinni hefur þekkst. Nú er fall-
andi verð á mörkuðum, það
er ekki hægt að neita því að
það skapar ákveðinn vanda,
en spurningin hér og nú er, á
að leysa með einhverjum við-
tækum þjóðfélagslegum að-
gerðum, eða á að leysa þetta
á kostnað hins almenna
launafólks? Þess vegna eru
það hliðarráðstafanirnar sem
hafa afgerandi áhrif.
Nefndi Guðmundur fárán-
legar fjárfestingar í sjávar-
útvegi, og sem dæmi mætti
nefna að íslendingar og
laun hinna lægstlaunuðu.
Efnahagsaðgerðir ríkisstjórn-
arinnar i febrúarlok/marsbyrj-
un, færðu sjávarútveginum
31/2 milljarð krónatil að
greiða fyrir kjarabótum fisk-
vinnslufólksins og kjara-
samningur Landssambands
iðnverkafólks og verslunar-
fólks byggði á sömu forsend-
um. Ríkisstjórninni ber
skylda til að verja þessa
samninga gegn kaupmáttar-
falli í kjölfar gengisbreyting-
ar. Þess vegna ber okkur
skylda til að ræða við aðila
vinnumarkaðarins.11
Fjármálaráðherra sagði
gerðir á einni helgi í tima-
pressu. Hins vegar er það
ekki vonlaust verk á hálfum
mánuði. Það er misskilningur
að stærsta ágreiningsmálið
sé afnám lánskjaravísitölu
eða ekki,“ segir fjármálaráö-
herra við Alþýðublaðið.
„Yfirlýsingar framsóknar-
manna í því efni eru ekki til-
lögur sem unnt er að
framkvæma. Heimavinnan er
öll óunnin. Starfshópur á veg-
um viðskiptaráðherra vinnur
að þessum málum og skilar
niðurstöðum þ. 15. júni. Það
er ekki ágreinlngur milli
stjórnarflokkanna um að af-
nema beri sjálfvirkar verð-
tryggingar þegar verðbólgan
er komin neðan við 10% og
fer lækkandi. Menn geta
Grænlendingar veiddu svipað
magn af rækju, en á Græn-
landi væri 6 rækjuvinnslur,
en á íslandi væru þær orðnar
yfir 40. „Hver fjárfesti í þeim?
Byggðasjóður, þessir blá-
fátæku og allslausu útgeröar-
menn, og ég efast um að
25% gengislækkun nægi, því
að það er búið að kippa
rekstrargrundvellinum undan
þeim öllum.“ Einnig væru
loðnubræðslur allt of margar,
og vinnsluaðferð óhagstæð.
Guðmundur segir að ekki
só búið að ræða við verka-
lýðshreyfinguna um hliðar-
ráðstafanirnar, en hann eigi
von á að það verði gert.
ennfremur að óskandi væri
að náðst gæti samkomulag
um að falla frá sjálfvirkum
verðmiðunum á laun ef um
leið yrði fallið frá sjálfvirkri
verðtryggingu á lán og aðrar
ráðstafanir gerðar til aö verja
kaupmátt lægstu launa gegn
því að forystumenn hinna
hærri launuðu sýni fram á
samstöðu og þegnskap til að
nýta sér ekki sterkari mark-
aðsaðstöðu til að sprengja
láglaunasamninga: „Með
öðrum orðum ber ríkisstjórn-
inni að reyna til hins ítrasta
hvort verkalýðshreyfingin hafi
til að bera raunsæi og rétt-
spurt sjálfan sig hvort banka-
kerfið lækki nafnvexti úr
9,5% í 6-7% ef verðbólga án
verðtryggingar fer í 40%?
„Eru einhverjir að gera til-
lögu um neikvæða vexti um
tugi prósenta? Væri það að-
haldsaðgerð í kjölfar þenslu-
aðgerða gengisfellingar?
Auðvitað myndi enginn viti
borinn maður framkvæma
slíka tillögu nú. Hins vegar
legg ég á það áherslu að það
er enginn ágreiningur milii
Alþýðuflokksins og Fram-
sóknar um að spretta um
verðtryggingu þegar verð-
bólgan er komin undir stjórn
og fer örugglega lækkandi.
Stóru ágreiningsmálin inn-
an ríkisstjórnarinnar eru á
sviði ríkisfjármála þar sem
girugir sérhagsmunir rekast á
við þjóðarhagsmuni. Það þýð-
ir til að mynda að ríkisstjórn-
in leysi ágreiningsmál sín um
landbúnaðarstefnu. Þar
standa málin þannig að fram
ervísað bakreikningum um
hundrað milljónir króna þeg-
ar fjárlagaheimildir fyrir 1988
eru þegar þrotnar. Gengisfell-
ing kallar á aðhaldsaðgerðir.
Erlendar lántökur vtð þessar
aðstaeður eru óðs manns
æði. Útgjöld skattgreiðenda
Ríkisstjórnin samþykkir til-
lögu Seðlabankans um að
gengi krónunnar lækki um
10% frá 16. mai 1988. Jafn-
framt verði Seðlabankanum
veitt heimild til að skrá dag-
Jón Baldvin: „Þaö tókst aö koma i
veg fyrir kröfu um lögbindingu
launa og afnám rauöra strika.“
sýni að jafna byrðum og
standa að ráðstöfunum sem
bæta ástandið til lengri tima
litið," segir Jón Baldvin
Hannibalsson fjármálaráð-
herra.
vegna offramleiðslustefnu i
landbúnaði samsvara ráð-
herraiaunum á hvert lögbýli í
landinu. Um það er tvennt að
segja: Við höfum ekki efni á
því og það eru ótal leiðir til
að verja þessum fjármunum
betur i þágu bænda og
landsbyggðar en nú er gert.
Spurningin er hins vegar:
Þorir þessi ríkissstjórn og
meirihluti þingsins að horf-
ast í augu við þessar óþægi-
legu staðreyndir? Og draga
af þeim rökréttar álýktanir?
Það eru ágreiningsmál af
þessu tagi sem eru torleyst-
ari en spurningin um verð-
tryggingu og ennþá brýnna
að leysa þau ef menn vilja
forðast nýjar gengisfellingar-
kollsteypur í framtíðinni. Eg
lít svo á, að nú beri forystu-
mönnum stjórnarflokkanna
aö stilla ágreiningsmálunum
í hóf og snúa bökum saman.
Það er ekki trúverðugt ef þeir
sem vilja leita eftir viðtækri
samstöðu í þjóðfélaginu í
heild, geta ekki sett niður sin
eigin deilumál eða staðist
þær freistingar að viðra
óhreina þvottinn sinn í fjöl-
miðlum,“ segir Jón Baldvin
Hannibalsson fjármálaráð-
herra.
legt gengi krónunnar allt aö
þremur prósentum fyrir neö-
an hiö nýja gengi. Ríkis-
stjórnin ætlar aö ræöa við
aöila vinnumarkaðarins og
Ijúka tillögugerö fyrir 1. júni.
Guðmundur J. um orsakir gengisfellingar:
FÁRÁNLEGAR FJÁRFESTINGAR
Er ríkisstjórnin að springa?
NIEST DEILT UM RÍKISFJÁRMÁL
— en ekki hvort aftiema beri lánskjaravísitöluna, segir ráðherra.
Hliðarráðstafanir
ÁKVÖRÐUN FYRIR 1. JÚNÍ