Alþýðublaðið - 01.06.1988, Qupperneq 3
Miövikudagur 1. júní 1988
3
FRÉTTIR
Búvörusamningarnir til 1992:
ÚTFUmilNGSBÆTUR LÆKKI UM MILUARÐ
Framkvœmdanefnd um búvörusamningana telur að jafnvœgi náist fyrr en áœtlað var á
milli framleiðslu mjólkur og kindakjöts og neyslu innanlands. Enginn útflutningur verður
á mjólkurvörum á nœstu árum og útflutningur kindakjöts minnki um helming.
Landbúnaðarráðherra og
framkvæmdanefnd búvöru-
samninga kynntu í gær
skýrslu um framkvæmd
samninga fyrstu tvö árin og
horfur til samningsloka 1992.
Skv. búvörulögum er heimilt
að ráðstafa 3.100 milljónum
króna úr ríkissjóði til útflutn-
ingsbóta árin 1987-1992 en
skv. nýjum áætlunum munu
þær lækka um ríflega
milljarð króna. Áætlað er að
af þessari fjárhæð gangi um
2 milljarðar til greiðslu út-
flutningsbóta og að ráðstaf-
að verði til uppkaupa á ónot-
uðum fullvirðisrétti 400 millj-
ónum. Vegna skuldar frá
fyrst tveim árum samnings-
ins upp á 400 milijónir er
áætlað að óráðstafað sé um
250 milljónum af þeim rétti
til útflutningsbóta sem lögin
kveða á um.
Vegna minni innanlands-
sölu kindakjöts árin 1985-
1987 en ráö var fyrir gert í
BREYT-
INGAR
HJÁ HP
Miklar uppstokkanir áttu
sér stað á Helgapóstinum á
aðalfundi Goðgár hf., útgáfu-
félags HP í fyrradag. Ný
stjórn var kjörin og skipa
hana nú: Róbert Árni
Hreiðarsson formaður, Birgir
Hermannsson og Sigurður
Ragnarsson fyrrv. formaður
stjórnar. Varamenn eru Gísli
Guðmundsson, Ólafur Sigur-
geirsson og Guðmundur Óli
Guðmundsson.
Valdimar Jóhannsson fyrrv.
framkvæmdastjóri Alþýðu-
blaösins hefur tekiö við fram-
kvæmdastjórastöðu HP af
Hákoni Hákonarsyni sem er
nú framkvæmdastjóri Alþýöu-
blaðsins. Fram kom á aöal-
fundinum aö um 7 milljóna
króna tap varö á rekstri
blaðsins á síðasta ári. Haft er
eftir starfsmönnum HP aö
engar breytingar á ritstjórnar-
stefnu sé fyrirhugaðar í
kjölfar þessara breytinga en
þær voru kynntar starfs-
mönnum á fundi í gær.
F0RSÆTIS-
RÁÐHERRA
ÁFERÐ
OG FLUGI
Þorsteinn Pálsson forsæt-
isráðherra er á ferð og flugi
þessa dagana. Þorsteinn er
nú staddur i New York en
mun síðan halda i opinbera
heimsókn til Finnlands.
Forsætisráöherra situr 3.
allsherjarþing Sameinuöu
þjóöanna um afvopnunarmál.
Þorsteinn fór utan til New
York þ. 29. mai s.l. og mun
flytja ræðu á þinginu þ. 2.
júní n.k.
forsendum búvörusamninga
hefur það leitt til tímabund-
ins fjárskorts upp á 356 millj-
ónir kr. en skv. nýjum áætlun-
um myndi þetta endurgreið-
ast af fullvirðisrétti næstu
þriggja ára.
Bendir framkvæmdanefnd-
in m.a. á aö því markmiði
verði náð fyrr en áætlað var
að ná viðunandi jafnvægi á
milli framleiðslu mjólkur og
kindakjöts og neyslu innan-
lands og að koma birgðum
þessara afurða niður í hæfi-
legt magn. Samdráttur í fram-
leiðslu á mjólk og kindakjöti
er fenginn með því að kaupa
tímabundið upp framleiðslu-
rétt hjá hverjum bónda og
fækkun sauðfjár vegna riðu-
veiki. Eru horfur á að þessar
aðgerðir munu leiða til þess
að útflutningur mjólkur verði
óverulegur í lok samnings-
tímabilsins og að útflutning-
ur kindakjöts verði aðeins
um 1.000 tonn á ári.
Bendir nefndin á að við bú-
háttabreytinguna hafi ekki
tekist að ná fram þeirri aukn-
ingu í nýbúgreinum sem
nauðsynleg er til að mæta
samdrætti í framleiðslu á
mjólk og kindakjöti. Náist
ekki meiri árangur i eflingu
nýbúgreina er sá möguleiki
fyrir hendi að í lok samnings-
tímans verði á ný fullvirðis-
réttur virkur sem svari til 5
millj. lítra af mjólk og um
1.200 tonna af kindakjöti.
Framlög ríkisins til land-
búnaðar að meðtöldum nið-
urgreiðslum hefur skv. út-
reikningum nefndarinnar far-
ið lækkandi sem hlutfall af
þjóðarframleiðslu, var 2.5%
árið 1983 en 1.7% á síðasta
ári. Heildarútgjöld rikissjóðs
til landbúnaðar I ár nema alls
5.049 milljónum króna og þar
af eru 2.950 milljónir vegna
niðurgreiðslna. Tekjur ríkis-
sjóðs af innheimtu sölu-
skatts af búvöru ásamt inn-
heimtu grunngjalds og jöfn-
unargjalds nema alls 4.038
milljónum og er því mismun-
urinn hvað útgjöld varðar ríf-
lega milljarður til landbúnað-
ar.
Leggur nefndin til ýmsar
aðgerðir til að draga úr fram-
leiðslu mjólkurog kinda-
kjöts, m.a. að ónotaður fram-
leiðsluréttur flytjist ekki til
annarra framleiðenda. Þar
með leigi rikissjóður ónotað-
an rétt og verð á leigu miðist
við laun og vaxtakostnað á
verðlagsgrundvellinum.
Óheimilt sé að færa fullvirð-
isrétt milli jarða og fram-
leiösluréttur á ríkisjörðum
felldur niður, svo nokkrar
aðgerðirséu nefndar.
I skýrslunni er bent á að
það sem eftir lifir samnings-
timans hafi framleiðnisjóður
landbúnaðarins 1.2 milljarða
til ráðstöfunar til búhátta-
breytinga og hagræðingar I
landbúnaði. Telur nefndin
nauðsynlegt að tryggt verði
með þessum fjármunum að
bændum verði skapaðir nýir
framleiðslumöguleikar I staö
hefðbundinnar búvörufram-
leiðslu þannig að það jafn-
vægi haldist sem nást mun á
samningstimanum milli fram-
leiðslu og neyslu innanlands
á mjólk og kindakjöti. Til
þess þurfi að byggja upp ný
störf í sveitum f stað 228
hefðbundinna búa er svara til
350 ársverka.
Landbúnaðarráðherra kynnti í gær skýrslu framkvæmdanefndar um framkvæmd búvörusamninga og horfurn-
ar út árið 1992. Mjólkurframleiðsla er nú i jafnvægi en staöa sauðfjárbænda er öllu verri. A-mynd Róbert.
Ragnar hœttir sem forstjóri Álversins:
..EKKERT ÓEÐLILEGT
AÐ BREYTA TIL“
„Það er ekkert óeðlilegt
þótt maður vilji breyta til eftir
20 ár i forstjórastarfinu,“
sagði Ragnar Halldórsson
forstjóri ISAL og nýkjörinn
stjórnarformaður við Alþýðu-
blaðið í gær.
Á aðalfundi ÍSAL sem
haldinn var í Zurich f Sviss
voru ákveðnar breytingar á
stjórn félagsins. Halldór H.
Jónsson gaf ekki kost á sér
til stjórnarformennsku og var
Ragnar kosinn f hans stað.
Jafnframt var ákveðið að
Ragnar léti af störfum fljót-
lega.
Magnús Óskarsson var
Ragnar Halldórsson: Reikna með
aö sinna eingöngu stjórnarfor-
mennsku á næstunni
endurskipaður í stjórnina af
iðnaðarráðherra, en í stað
Jóns A. Jónassonar var
Eggert Haukdal skipaður.
Gunnar J. Friðriksson og Sig-
urður Halldórsson voru
endurkjörnir.
Ragnar sagðist reikna með
að sinna eingöngu stjórnar-
formennskunni á næstunni:
„Fyrst um sinn er þetta fram-
hald af mfnum störfum. Síð-
an koma vafalaust önnur
verkefni til. Það er t.d. talað
um nýtt álver eða stækkun á
álveri. Hvað verður ofan á veit
maður auðvitað ekki,“ sagði
Ragnar.
Forsetakjör 1988:
21% FJÖLGUN KJÓSENDA FRÁ1980
Heildarfjöldi kjósenda á
kjörskrárstofninn fyrir for-
setakjöriö 25. júni er um
173.800 og er áætluð fjölgun
kjósenda á kjörskrá frá siö-
asta forsetakjöri 1980, 21%.
Með breytingum á lögum
um kosningar til Alþingis
1984 var lágmarksaldur kjós-
enda lækkaöur úr 20 f 18 ár.
Kosningaréttur var einnig
rýmkaður með þvi að lögræð-
issvipting eða flekkað mann-
orð veldur ekki missi kosn-
ingaréttar og ekki heldur lög-
heimilisflutningur til útlanda
á síðustu 4 árum. Þeir sem
fæddir eru 26. aprfl 1969 til
25. júnf 1970, og geta nú
neytt kosningaréttar í fyrsta
sinn eru um 4.700 segir f frétt
fráHagstofunni.
Á kjörskrá f Reykjavík fyrir
þessar forsetakosningar eru
um 68.500 manns, í Reykja-
nesi eru 40.400, á Vesturlandi
10.100, á Vestfjörðum 6.800, á
Norðurlandi vestra eru 7.300,
á Norðurlandi eystra 18.100, á
Austurlandi 9.100 og á Suður-
landi um 13.600. Þeir eru tald-
ir frá sem verða 18 ára á ár-
inu en eftir kosningar 25. júní
og Ifka þeir sem voru á kjör-
skrá miðað við 1. desember
s.l. en hafa látist á sfðustu 6
mánuðum.
Breytingar hjá Flugleioum:
FORSTÖÐUMENNIRNIR FÆRÐIR TIL
Rúmlega 20 deildarstjórar
og forstööumenn Flugleiöa
voru i gær færðir til í störfum
hjá félaginu. Megintilgangur-
inn með þessu er aö aðlaga
fyrirtækið að nýjum áhersl-
um í rekstrinum.
í tilkynningu frá Flugleið-
um segir að þessar breyting-
ar séu í samræmi við þá
stefnu sem Siguröur Helga-
son forstjóri Flugleiða hefur
markað hjá félaginu, að færa
menn reglulega til f starfi til
að koma f veg fyrir stöðnun
og til að tryggja stöðugan
straum nýrra hugmynda og
endurmat á aðferðum.
Með breytingunum ereinn-
ig skilið betur á milli rekstrar-
eininga sem auðveldar að
leggja sjálfstætt arðsemis-
mat á ýmsa hluti fyrirtækis-
ins, segir f tilkynningunni. Til
dæmis eru hótel- og veitinga-
rekstur félagsins nú skilinn
meira frá flugrekstrinum
sjálfum.