Alþýðublaðið - 01.06.1988, Síða 4
AUK/SlA k110d1-166
4
Miðvikudagur 1. júní 1988
Flug, bíll,
sumarhús!
Viltti njóta lífsins
við fagurt vatn í friðsælu fjallaþorpi þaðan sem stutt er í
stórborgarmenninguna?
Ertu kannski einn þeirra íjallhressu sem alltaf þurfa að
glíma við ný og stærri fjöll og endalaust þurfa að kanna
eitthvað nýtt / gamalt? Dreymir þig e.t.v. um að drífa þig á
seglbrettanámskeið og skora svo á íslandsmeistarann þegar
heim kemur eða liggja á vel völdum vatnsbakka, grilla þig í
sólinni og taka þátt í keppninni „Hver er brúnastur"?
Ertu sælkerinn sem þýðir ekki að bjóða nema það besta
í mat og drykk?
Þá eru Biersdorf í Þýskalandi,
Walchsee, Zell am See og St. Gilgen í
Austurríki staðir fyrir þig
Þú getur haft bílaleigubíl til umráða og ekið hvert sem þú vilt
eða tekið þátt í skipulögðum skoðunarferðum með okkar
traustu og reyndu fararstjórum.
sér að ferðast eftir fýrirfram gefinni áætlun er það að sjálfsögðu
engin spurning hvað þú gerir. Þú hlýtur að velja flug og bíl.
Spumingin er bara: Hvar viltu byrja? í Lux, Frankfurt, París
eða Salzburg? Það er auðvitað þitt mál en staðreyndin er sú
að bílaleigubílarnir í Lux em þeir ódýmstu í Mið-Evrópu.
Leiðsögumappan og Mið-Evrópu
bæklingurinn Flug, bíll og sumarhús
em komin. Komdu við á söluskrifstofum okkar eða ferðaskrif-
stofunum, fáðu þér eintak og lestu þér til um sumardvalar-
staðina okkar í Mið-Evrópu. Dragðu fram gamla landakortið,
ræddu málin við fjölskylduna í ró og næði og hringdu svo í
okkur.
LUXEMBORG:
nug+bill í 2 vikur frá kr. 17.880 á mann.* SUPER-APEX verð.
Bill í B-flokki.
Viltu fara þínar eigin leiðir?
Sértu einn þeirra ferðavönu eða þeirra sem geta ekki hugsað
WALCHSEE:
Flug+íbúð í Ilgerhof í 2 vikur frá kr. 28.640 á mann.*
Flogið til Salzburg. Tímabilið 10. júlí til 28. ágúst.
ZELL AM SEE:
Flug+íbúð í Hagleitner í 2 vikur frá kr. 29.600 á mann.*
Flogið til Salzburg. Tímabilið 3. júli til 21. ágúst.
BiERSDORF:
Flug+íbúð í 2 vikur frá kr. 20.390 á mann.*
Flogið til Luxemborgar. Tímabilið 18. júní til 9. júlí. SUPER-APEX.
ST. GILGEN:
Flug+íbúð í Irlreith í 2 vikur frá kr. 29.440 á mann.*
Flogið til Salzburg. Tímabilið 9. júlí til 27. ágúst.
*MeðaJtalsverð á mann miðað við 2 fullorðna og 2 böm, 2ja-ll ára.
Nánari upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiða, umboðsmenn
um allt land og ferðaskrifstofurnar.
FLUGLEIÐIR
-fyrír þíg-
Söluskrifstofur Flugleiða: Lækjargötu 2, Hótel Esju og Kringlunni. Upplýsingasími 25 100.
SMÁFRÉTTIR
Nýbygging að
Lækjargötu 4
Hiö íslenzka bókmennta-
félag, bókaforlagið Lögberg
og fasteignasalan Eigna-
miölun sf. Þingholtsstræti 3,
sem hafa fengið fyrirheit um
byggingarrétt á lóöinni
Lækjargötu 4, Reykjavik,
efndu til lokaörar samkeppni
um nýbyggingu þar. Eftir-
taldir arkitektar tóku þátt i
samkeppninni:
Hróbjartur Hróbjartsson,
Richard Ó. Briem, Sigríður
Sigþórsdóttir og Sigurður
Björgúlfsson, Skólavöröustíg
12. KnúturJeppesen og
Kristján Ólason, Bergstaöa-
stræti 44. Ormar Þór Guö-
mundsson og Örnólfur Hall,
Borgartúni 17. Vatnar Viðars-
son, Borgartúni 22. Þórarinn
Þórarinsson og Egill Guö-
mundsson, Túngötu 3.
Dómnefnd skipuðu: Til-
nefndir af byggingaraðilum:
Þorvarður Elíasson skóla-
stjóri, Ingimundur Sveinsson
arkitekt, Siguröur Líndal
prófessor. Tilnefndir af Arki-
tektafélagi íslands: Guö-
mundur Gunnarsson arkitekt,
Dr. Maggi Jónsson arkitekt.
Trúnaðarmaður dómnefndar
var Ólafur Jensson fram-
kvæmdastjóri.
Niöurstaða nefndarinnar
var sú að tillaga þeirra Knúts
Jeppesens og Kristjáns Óla-
sonar væri álitlegust til úr-
vinnslu vegna „yfirburða í
uppbyggingu innra fyrirkomu-
lags og samgöngukerfis."
Ytra útlit hússins þarfnaðist
hins vegar nánari skoðunar.
Nefndin lagði því til að geng-
ið yrði til samninga við þá
um gerð uppdráttar.
Tillögurnar eru til sýnis í
húsakynnum Byggingarþjón-
ustunnar, Hallveigarstíg 1, frá
kl. 10.00-18.00.
Hvar keypti
Davíð ölið?
Stjórn Starfsmannafélags
ríkisstofnana samþykkti á
fundi þann 25. mai sl. ályktun
I tilefni nýsettra bráðabirgða-
laga ríkisstjórnar Þorsteins
Pálssonar, um aðgerðir i
efnahagsmálum.
í ályktuninni segir að fund-
urinn mótmæli harðlega að-
för rlkisstjórnarinnar að sjálf-
sögöum lýðréttindum laun-
þega, með afnámi samnings-
réttar þeirra.
„Stjórn félagsins væntir
þess að stjórn BSRB í sam-
starfi við önnur samtök laun-
þega, beiti sér fyrir aðgerð-
um til að endurheimta samn-
ingsréttinn, með undirskrift-
um, útifundum eða öðrum
aðgerðum og láta með þvi
stjórnvöld finna hvar Davíð
keypti ölið“ segir ( ályktun-
inni.
íþróttadagur
aldraðra
Félag áhugafólks um
(þróttir aldraðra efnir til úti-
vistardags miðvikudaginn 1.
júní n.k.
Komið verður sajnan á
gervigrasvellinum T Laugardal
kl. 14.00
Þátttakendum sem þess
þurfa býðst akstur frá félags-
miðstöðvum aldraðra í borg-
inni sem jafnframt veita nán-
ari upplýsingar. Þátttakendur
eru hvattir til þess að klæða
sig eftir aðstæðum, í heppi-
legan skjólfatnað og góðan
skóbúnað.
Tilkynna þarf þátttöku (fé-
lagsmiðstöðvum aldraðra
fyrir 28. maf n.k.