Alþýðublaðið - 01.06.1988, Síða 5
Miðvikudagur 1. júní 1988
5
Guðmundur Árni Síefánsson bæjarstjóri segir Hafnarfjarðarbæ sfanda á traustum fótum fjárhagslega og mikið sé um framkvæmdir í bænum. A mynd Róbert.
Hafnarfjörður 80 ára:
AFMÆLISBARNIÐ HRESST
EFTIR ALDRI
segir Guðmundur Árni Stefánsson bœjarstjóri
Hinn hýri Hafnarfjörður á
afmæli í dag. 80 ár eru liðin
síðan bærinn fékk kaupstað-
arréttindi og verða því hátið-
ardagar í Firðinum út vikuna.
Alþýðublaðið ræddi við
Guðmund Árna Stefánsson
bæjarstjóra Hafnarfjarðar, og
spurði hann fyrst hvernig
ástand afmælisbarnsins
væri?
„Það er í góðu lagi afmæl-
isbarnið, það er hresst eftir
aldri.“
— Hvað búa margir í Hafn-
arfirði?
„Það eru 13.900. Við sjáum
ekki fyrr en 1. desember á
þessu ári hvort Hafnarfjörður
eða Akureyri taka þann sess
að vera þriðji stærsti kaup-
staður á landinu. Það munaði
35 íbúum á siðasta ári Akur-
eyri i vil, okkur sýnist vöxtur-
inn í bænum vera á því stig-
inu að við siglum upp fyrir þá
á þessu ári.“
— Hvernig er fjárhagsleg
staða bæjarins?
„Bærinn stendur mjög
traustum fótum fjárhagslega
og það þykir ekki vera
algengt á þessum síðustu og
verstu timum hjá sveitarfé-
lögum, en það er engu að
síður þannig hjá Hafnarfjarð-
arbæ, að við erum á þessu
ári með umfangsmiklar
framkvæmdir i gangi þrátt
fyrir að lántökur eru i algjöru
lágmarki, og við þær er raun-
ar ekki bætt frá fyrri árum,
þannig að ég held aö óhætt
sé að fullyrða það að bærinn
standi mjög traustum fótum
fjárhagslega.1'
— Hvað er helst að frétta
af framkvæmdamálum?
„Það er mikið í gangi hjá
bænum, og bara á þessum
síðustu mánuðum get ég
nefnt að fyrir tveimur mánuð-
um síðan tókum við i notkun
nýja æskulýðs- og tóm-
stundamiðstöö i hjarta bæj-
arins sem við köllum Vitann,
og fyrir mánuði opnuðum við
nýtt dagvistarheimili sem
sinnir þörfum 100 barna. Fyr-
ir hálfum mánuði opnuðum
við glæsilega menningar- og
listamiðstöð sem ber nafnið
Hafnarborg. í ágúst opnum
við nýja heilsugæslustöð,
Sólvang og það er allt (full-
um gangi við byggingu nýrrar
sundlaugar sem opnar um
mitt næsta ár, úti- og inni-
sundlaug. Á næsta ári verður
ráðist i byggingu nýs iþrótta-
húss.“
— Eruð þið ekki með
ágætis íþróttahús?
„Jú, þetta er íþróttabær og
miklir afreksmenn hér og þeir
þurfa sitt. Afreksíþróttir taka
sinn tíma og sitt pláss og við
viljum g'efa öðrum kost á því
að vera með, það verður þvi
byggt nýtt íþróttahús i fullri
stærö með áhorfendaplássi
og öllu slíku.
í ár verður farið í umfangs-
miklar framkvæmdir við
vatnsveitu bæjarins, það eru
tugmilljónaframkvæmdir og í
skólamálum er rétt að drepa
á það, að þetta árið byggjum
við 600 fermetra viðbyggingu
við Engidalsskóla og einnig
verður hafist handa á næstu
vikum við nýjan skóla i Set-
bergshverfi sem verður 2000
fermetrar að stærð og þeirri
framkvæmd á að Ijúka fyrir
haustið 1989.
í hafnarmálum er mikið að
gerast, það er gífurlegur upp-
gangur í allri hafnarstarfsemi,
og umferð aukist af mörgum
orsökum. Þar erum við að
verða senn landlausir, við
höfum úthlutað það mörgum
lóðum til ýmissa aðila sem
eru þar að hefja rekstur eða
bæta við þann rekstur sem
fyrir er.
Samandregið myndi ég
ætla að það væri u.þ.b. 400
íbúðabyggingar i gangi eða
að fara i gang, fjölbýli og ein-
býli. Rétt fyrir hálfum mánuði
síðan úthlutuðum við 70 lóð-
um og það fengu færri en
vildu. Það voru u.þ.b. 300 um-
sóknir vegna þeirra 150 Ibúða
sem þar voru til skiptanna.
Þótt að lóðaframboð hafi hér
stóraukist og við leggjum
mikla áherslu á að brjóta
land undir byggingar, þá ná-
um við ekki enn sem komið
er að sinna eftirspurninni.
Gatnagerðar- og holræsa-
framkvæmdir eru hér í mikl-
um gangi og hefðbundnar
gatnaframkvæmdir varðandi
varanlegt slitlag og því um
líkt. Við stöndum náttúrlega
vel að vígi hér, hér eru allar
götur nánast malbikaðar. Við
höldum okkar striki f þeim
málum í ár, og malbikum þær
götur sem eftir standa. í
Hafnarfirði hefur um nokkurt
skeið verið lögð áhersla á að
fegra bæinn og prýða og
umtalsverðu fjármagni varið
til þeirra hluta, ekki síst á
þessu afmælisári ætlum við
að standa okkur vel í því
máli.“
— Aö lokum, eru Hafnfirð-
ingar öðruvísi en aðrir, sam-
anber Hafnfirðingabrandar-
arnir?
„Já, þakkaþér fyrir, þeir
eru allt öðru visi en aðrir og
verða það vonandi alltaf.“
— I góðri merkingu þess
orðs?
„í bestu merkingu þess
orðs. Við erum náttúrlega
ekki eins og þessir Hafnar-
fjarðarbrandarar segja til um,
en Hafnfirðingar eru Gaflarar
og eru dálitið sérstakir og
vilja vera sérstakir og ég
hygg i öllu þessu tali um
stór-Hafnarfjarðarsvæðið eða
stór-Reykjavíkursvæðið, eftir
því hver orðar það hverju
sinni, að þrátt fyrir náiægð
við höfuðborgina og ágætt
samstarf viö hana að öllu
leyti, eru Hafnfirðingar mjög
meðvitaðir um bæinn sinn.
Og eitthvað hjal og einhverjir
órar manna um að þetta
svæöi á suðvesturhorninu sé
eitt tökum við ekki undir. Við
erum hér sjálfstæðir og hér
eröll sú grundvallarþjónusta
sem þarf í bæjarfélagi á borð
við þetta, þannig að við erum
sjálfum okkur nóg og verðum
það“, segir Guðmundur Árni
Stefánsson bæjarstjóri Hafn-
arfiarðar.
Á afmælisdagskránni sem
hefst klukkan 14 i dag verður
m.a. brúöuleikhús fyrir börn
og klukkan 17 mun Málfund-
arfélagið Magni afhenda
hafnarfjarðarbæ Hellisgerði
til eignar. Klukkan 20.30 verð-
ur hátíðarfundur fyrir boðs-
gesti ( nýju menningar og
listamiðstöðinni Hafnarborg,
og verður Vigdís Finnboga-
dóttir forseti íslands heiðurs-
gestur.
Á morgun verða skemmt-
anir á sjúkra- og elliheimilum
i Hafnarfirði, afmælisveisla
fyrir aldraða Hafnfirðinga og
ýmsar sýningar opnaðar, þar
á meðal verður sýnd nýupp-
gerð heimildarkvikmynd:
Hafnarfjörður fyrr og nú. Á
föstudaginn verður afhjúpað
listaverk við fiskmarkaðinn,
sem Sigrún Guðjónsdóttir og
Gestur Þorgrimsson hafa
gert. Á laugardaginn verður
bátaleiga við Lækinn og
hestaleiga við iþróttahúsið,
knattspyrna og fallhlífarstökk
og fjölskylduhátið í iþrótta-
húsinu þar sem ýmsir þekktir
tónlistarmenn og skemmti-
kraftar koma fram.