Alþýðublaðið - 25.06.1988, Blaðsíða 12
12
Laugardagur 25. júní 1988
Tíðindi úr
verkalýðssögu
Félagstíöindi áhugafólks
um verkalýössögu, 1. tbl. 2.
árg. er komið út. í heftinu eru
m.a. birtar myndir sem Sig-
urður Guttormsson tók á ár-
unum 1930-1945 og sýna
mannabústaði, einkum kot
fátækra. Þá er í heftinu skrá
yfir rannsóknir, sem snerta líf
og störf launamanna. Kennir
þar ýmissa grasa en á hverju
ári rita háskólanemar fjölda
frásagna og greina frá
rannsóknum á sínu sviði —
einkum í sögu.
Seyðisfjöröur 1897.1 þessu húsi var fyrsta verkamannafélagið á íslandi
stofnað. I þvi bjó Johannes Oddsson einn stofnanda Verkamannafélags
Seyðisfjarðar. (Ljósm.: Sigurður Guttormsson/Sögusafn verkalýðs-
hreyfingarinnar)
Þrjár nýjar
uglubækur
Uglan — íslenski kilju-
klúbburinn sendi nýlega
frá sér nýjan kiljupakka. í
honum eru þrjár bækur:
Vesalingarnir I eftir Victor
Hugo, Brunabíllinn sem
týndist eftir Maj Sjöwall
og Per Wahlöö og þriója
bindi Kvikmyndahandbók-
arinnar eftir Leslie
Halliwell.
Ný útgáfa á Vesalingun-
um sætir nokkrum tíðind-
um. Bókin kom fyrst út á
íslensku á árunum 1925-28
og var þá í fimm bindum,
þýdd af Einari H. Kvaran,
Nýja flugvallarhótelið í Kefla-
vík er hið fyrsta sinnar tegundar
hér á landi; fyrsta flokks hótel í
aðeins 5 mínútna fjarlægð frá
flugstöð Leifs Eiríkssonar. Til
Reykjavíkur er 40 mínútna
akstur.
Á Flughótelinu eru 39 vönduð
og vel búin herbergi og 3 svítur.
í hverju herbergi er sími, útvarp,
sjónvarp með gerfihnattamót-
töku, vídeótæki, míníbar og að
sjálfsögðu bað eða sturta. Allt er
gert til að gestum líði sem best.
Flughótelið býður einnig full-
komna aðstöðu fyrir ráðstefnur
og samkomur.
Við tökum á móti pöntunum
og veitum upplýsingar í
síma 92-15222.
Höfum opnað
nýtt og glæsilegt
hótel í Keflavík
Ragnari E. Kvaran og
Vilhjálmi Þ. Gíslasyni. Sú
útgáfa var nokkuð stytt og
auk þess var ekki þýtt úr
frönsku. Torfi H. Tulinius,
bókmenntafræðingur, hef-
ur farið yfir þýðinguna og
borið saman við frummál,
lagfært og aukið við eftir
ástæðum. Nýja útgáfan
verður því nokkru lengri
en þó prentuð í fjórum
bindum í stað fimm áður.
Leikgerð af Vesalingunum
hefur farið sigurför víða
um lönd undanfarin ár og
var sýnd við góðar undir-
tektir í Þjóðleikhúsinu í
vetur. Vesalingarnir er
merk alþýðleg frásögn,
enda hafði sagan mikil
áhrif á marga höfunda og
hugsuði á síðustu öld.
Fyrsta bindið sem nú
kemur út er 304 bls. að
stærð; Teikn hannaði
kápu, en á henni er hluti
af málverkinu Absint eftir
Edgar Degas. Bókin er
prentuð hjá Nörhaven a/s í
Danmörku.
Brunabíllinn sem týnd-
ist er endurútgáfa á
sænskri spennusögu sem
kom út hjá Máli og menn-
ingu fyrir átta árum.
Þriðja bindi Kvikmynda-
handbókarinnar nær frá I
til N í stafrófinu. Eftir því
sem bætist við þetta verk
verður það nýtilegra. Nú
eru ókomin tvö bindi af
Kvikmyndahandbókinni og
er ráðgert að þau komi út
á árinu.
Nýjr menn
á Árbergi
Fyrir skömmu tóku mat-
reiðslumeistararnir Magnús
Ingi Magnússon og Jakob
Magnússon við rekstri veit-
ingahússins Árbergs að
Ármúla 21.
Nýju veitingamennirnir í
Árbergi muni kappkosta að
halda á lofti merki fyrri eig-
enda og reka þægilegan mat-
sölustað með góðan heimil-
ismat, ásamt því að reyna fyr-
ir sér á nýjum slóðum. Hinir
fjölmörgu viðskiptavinir
Arbergs þurfa því ekki að ótt-
ast að fá ekki soðninguna og
grjónagrautinn í hádeginu, en
þeir mega líka eiga von á
ýmsum spennandi réttum á
matseðlinum.
Myndlistar-
félag Árnes-
sýslu
Sýning á verkum félaga i
Myndlistarfélagi Árnessýslu
var í Tryggvaskála á Selfossi
um þjóðhátíðina. 13 sýndu
verk sín, olíumálverk, krítar-
myndir og hvers kyns mynd-
verk önnur. Viða um land eru
starfandi félög áhugamanna
um myndlist.