Alþýðublaðið - 13.10.1988, Side 5

Alþýðublaðið - 13.10.1988, Side 5
Fimmtudagur 13. október 1988 5 FRE TTA SKYRING Friörik Þór Guðmundsson skrifar kjarnorkuvopna, svo notuð séu orð Gorbatsjovs. í raun er búið að undirrita samning um upprætingu meðaldrægra og skamm- drægra eldflauga og hann er nú í framkvæmd: í Sovét- rfkjunum og Bandarfkjunum er hafin eyðilegging þessara eldflauga. í gangi eru viðræður um 50% fækkun strategískra árásarvopna. Á nýafstöönu Allsherjar- þingi SÞ lögöu Sovétríkin til nákvæma og raunhæfa áætl- un um aukið sameiginlegt átak, sem beinist að því að eyða vopnum, auka lýðræði og efla mannúð á alþjóða- vettvangi, að því að tryggja öryggi rfkja í anda Reykjavík- ur-fundarins. Nýlega var Mikhaíl Sergej- evits Gorbatsjov kjörinn for- seti Forsætisnefndar Æðsta ráðs Sovétríkjanna og sagði hann við þetta tækifæri: „Ég fór ekki í ræðustól til þess að flytja langa ræðu. Eg tel að þess sé ekki þörf. Við höf- um á að skipa mótaðri stefnu, þaulhugsaðri áætlun um perestrojku. Hún er út- færð í samþykktum 27. þings KFS, fundum miöstjórnar þar á eftir og I samþykktum 19. ráðstefnu KFS. Markmið okkar og verkefni eru ákveðin og skýr, svo og meginstefn- an.“ Og hann lagði áherslu á, að aðalatriðið væri núna að vinna vel til að ná sem best- um árangri. Þetta er svarið til starfs- bróður mín og það kemur frá fyrstu hendi, ef svo mætti að orði komast. Við aðgreinum ekki hinn nýja pólitíska hugs- unarhátt og perestrojku og þeim tilheyrir einnig glasnost og lýðræðisþróun og aukin mannúð á sviði utan- og inn- anríkismála. Það er heldur ekki hægt, þar sem eitt er óhugsandi án annars." Og ný tengsl á alþjóðavett- vangi eru óraunhæf án þess að til komi andi Reykjavíkur- fundarins. Um þaö eru allir sovéskir þegnar sannfærðir, svo og forysta þeirra. Og Mikhail Gorbatsjov, hvata- maður Reykjavíkurfundarins og staðfastur talsmaður þess að tillögum hans verði komið í framkvæmd, er þar fremstur Nýskipan Norrœns samstarfs ALÞÝÐUFRÆÐSLA ÚTUNDAN HJÁ NORÐURLANDARÁÐI? Tryggyi Þór Aðalsteinsson, formaður MFA á Norðurlöndunum: Óttumst að embœttis- menn og stjórnmálamenn sýni ekki alþýðu- frœðslu og fullorðinsfrœðslu nœgilegan skilning. I nýskipan Norðurlandaráðs var menningar- og frœðslusamböndum verka- lýðshreyfingarinnar stillt upp með frœðslu- samböndum pólitískra flokka. Menningar- og fræðslu- sambönd alþýðu á Norður- löndunum hafa miklar áhyggjur af endurskipulagn- ingu Norðurlandaráðs á al- þýðufræðslu og fullorðins- fræðslu innan menningar- málaáætlunar ráðsins. Á ný- afstöðnu ársþingi MFA á Norðurlöndunum, sem haldið var hér á landi, var meðal annars samþykkt ályktun í þessa veru, þar sem kvartað er yfir litlum hlut alþýðu- fræðslunnar innan menn- ingarmálastarfs Norðurlanda- ráðs, eins og endurskipu- lagning gerir ráð fyrir. I ályktun MFA á Norður- löndunum kom fram sú krafa, að samtökin ættu beina aðild að undirnefnd þeirri innan Norðurlandaráðs sem fer með málefni alþýðufræðslu og fulloröinsfræðslu, FOVU. MFA samtökin hafa verið öfl- ug við að fá styrki til þessara hluta frá Norræna menning- armálasjóðnum, en nú er stefnt að allsherjar endur- skipulagningu á starfsemi Norðurlandaráös. Ályktun samtakanna var samþykkt þegar sú stefnumörkun lá fyrir að í nýju FOVU nefnd- inni yrði aðeins 1 fulltrúi frá heildarsamtökunum þremur á Norðurlöndum sem láta al- þýðufræðslu og fullorðins- fræðslu sérstaklega til sín taka. Á aðalfundinum var gerð sú krafa að öll samtökin fengju sinn fulltrúa og að nefndin yrði þá 12 manna en ekki 10 manna. Til vara var gerð sú krafa að mynduð yrði undirnefnd með fulltrúum frá heildarsamtökunum, sem hefði tækifæri til að hafa áhrif á fjárveitingar til þess- ara málefna frá Norðurlanda- ráði og áhrif á röðun for- gangsmála. MARKMIÐIÐ ER EINFÖLDUN KERFISINS Ársþing MFA á Norður- löndunum minnti áfyrirliggj- andi stefnumörkun menning- armálasjóðs Norðurlandaráðs þess efnis, aö alþýðufræðsla væri mjög mikilvægt mál og að nauðsynlegt væri að sam- tök á sviði alþýðufræðslu hefðu sterk ítök í nefnd er tæki ákvarðanir um fjárveit- ingar til þessara mála. Minnt var á hversu góðan hljóm- grunn stefnumörkun þessi hefði hlotið innan Norður- landaráðs. Bent var á, að þegar um æskulýðs- og íþróttamál væri að ræða hefðu viðkomandi samtök beina fulltrúa í viðhlítandi jnefndum. Tryggvi Þór Aðalsteinsson framkvæmdastjóri MFA á ís- landi var á ársþinginu kjörinn formaður MFA á Norðurlönd- unum. Hann sagði í samtali við Alþýðublaðið að kerfið utan um þessi mál hefðu hingað til verið mjög flókin og nú væri verið að reyna að gera þessi mál aðgengilegri. „En við erum sammála um að hlutur okkar, sem sjá um al- þýðufræðslu á vegum verka- lýðshreyfinganna til að hafa áhrif á það hvernig fjármun- um er varið í þessari nýskip- an, sé nú mjög veikur. Hér áður var starfandi ráðgjafa- nefnd og hún var skipuð af pólitísku valdi í hverju landi. Gjarnan voru starfandi i henni fólk frá okkar samtök- um, fólk sem þekkti vel til þess sem við vildum leggja áherslu á. Með nýskipaninni eru í raun settar niður nefnd- ir utan um einstaka mála- flokka og aðrar stofnaðar í staðinn, meðal annars FOVU nefndin utan um alþýðu- fræðslu og fullorðins- fræðslu. í henni eiga fyrst og fremst að vera fulltrúar frá viðkomandi ráðuneytum og fleiri fulltrúar, þeirra á meðal aðeins einn fulltrúi sameigin- legur frá hinum þremur stóru heildarsamtökum á Norður- löndum sem láta þessi mál sérstaklega til sín taka.“ SÝNA EMBÆTTISMENN ALÞÝDUFRÆÐSLU SKILNING? Tryggvi sagði þessi heildar- samtök vera MFA á Norður- löndunum, FNV, sem eru fræðslusamtök sem tengjast sérstaklega miðflokkunum á Norðurlöndum og loks NKS, sem er fræðslusamband sem tengjast íhaldsflokkunum sérstaklega. „Við viljum auð- vitað halda okkur utan við slika pólitíska skiptingu, er- um fyrst og fremst tengdir verkalýðshreyfingunni. Fræðsla meðal alþýðunnar er eðlilega öðruvlsi en fræðsla sem tengist starfsmenntun, endurþjálfun og fullorðins- fræðsla sem fellur undir hefðbundið skólakerfi. Við óttumst að alþýðufræðsla á vegum verkalýðshreyfingar- innar kunni að verða meira útundan með þessari nýskip- an en áður. Þessi skipan nú undirstrikar aó þeir sem fjalla nú um þessi mál verða fyrst og fremst embættismenn og stjórnmálamenn, sem hafa síður skilning á gildi þessa starfs sem fram fer á okkar vegum, MFA á Norðurlöndun- um. Með öðrum orðum að þeir muni horfa fyrst og fremst til hins hefðbundna skólakerfis og í öðru lagi til starfsmenntunar og endur- þjálfunar, sem auðvitað er mikilvægt hagsmunamál launafólks, en þjónar að stór- um hluta atvinnufyrirtækjun- um, en líti að mörgu leyti framhjá gildi og mikilvægi þessa frjálsa fræðslustarfs verkalýðssamtakanna. Slíkt fræðslustarf er fyrir margt fólk mjög góður kostur hvaö varðar menntun og félags- lega þátttöku." Tryggvi sagði engin lög hér á landi um fullorðinsfræðslu, heldur hefði slíkt starf sprott- iö upp af þörf án frumkvæðis stjórnvalda. MFA á íslandi hafði á síðasta starfsári um 2.000 nemendur, sem margir hefðu tekið þátt í löngum námskeiðum, fólk sem hefði almennt takmarkaðan rétt til að sækja slík námskeið frá vinnu. Þarna sé fólk að sækja sér menntun af ýmsu tagi sem skilar sér bæði í vinnu og félagsmálum. ÁHERSLA Á ÞÁ SEM STANDA HÖLLUM FÆTI Sem fyrr segir hefur þegar verið ákveðið að FOVU nefndin verði skipuð 10 full- trúum og þar af aðeins ein- um frá heildarsamtökunum þremur sem sérhæfa sig í alþýðu- og fullorðinsfræðslu. Fulltrúar þessara samtaka hafa ekki hist til aö ræða um hvernig velja skuli þennan fulltrúa eða á hvern hátt hægt er að tryggja að sjónar- mið allra samtakanna nái fram að ganga. Tryggvi taldi hugsanlegt að lausnin yrði sú, að samtökin skipuðu sína eigin undirnefnd sem legði grunninn fyrir fulltrúann, þannig að sá hefði ekki fritt spil, heldur tæki tillit til allra. „Við veróum að vona að okk- ur takist að finna leið til að fulltrúarnir í FOVU nefndinni hlusti á þær röksemdir og sjónarmið sem við höfum fram að færa þegar rætt er um hvernig veita beri fé til alþýðufræðslunnar. Starf okk- ar hefur verið stutt af Nor- ræna menningarmálasjóðn- um á umliðnum árum og það hefur verið einn af hornstein- um þessa samstarfs fræðslu- samtakanna á Noröurlöndun- um. Fjárveitingin til þessa starfs ræður enda miklu um það sem gert er.“ MFA á Norðurlöndunum hafa í gegnum árin lagt áherslu á að fjárveitingar Norræna menningarmála- sjóösins færu í viðfangsefni sem ná til fjöldans, sérstak- lega þeirra sem notiö hafa lít- illar skólagöngu. Samtökin hafa ekki síður viljað stuðla að auknu jafnrétti kynjanna, að bættum hlut fólks í dreif- býli og jaðarbyggðum, að aukinni fræðslu og þekkingu um einstök lönd, héruð, þjóð- arbrot, menningu og lífskjör á Norðurlöndunum og enn fremur vilja samtökin veita fé til viðfangsefna sem leiða til samstarfs og kynna fplks i tveimur eða fleiri löndum sem fæst við fræðslu- og menningarmál í sínum heimabyggðum. Þannig leggja samtökin áherslu á að bæta hlut þeirra sem nú standa höllum fæti, alþýð- unnar, óskólagengins fólks, kvenna og landsbyggðafólks. MFA Á ÍSLANDI í 20 ÁR Ársþing MFA á Norður- löndunum sátu 40 þátttak- endur frá Danmörku, Finn- landi, Færeyjum, Álandseyj- um, Noregi, Sviþjóð og ís- landi. Þessi menningar- og fræðslusamtök verkalýðs- hreyfinga landanna hafa verið formleg frá því 1975. í fjöl- mennari löndunum hafa MFA samtök verið starfandi í um 70 ár og gegna veigamiklu hlutverki f alþýðumenntun og fullorðinsfræðslu. MFA á ís- landi var stofnað 1969 og hef- ur stuðningur Norræna menningarmálasjóðsins gert samtökunum hér kleift að sinna vaxandi þörf og kröfum félagsmanna stéttarfélag- anna um fræðslu af ýmsu tagi. Meðal viðfangsefna MFA á Norðurlöndunum á komandi mánuðum er að efna til tveggja mánaða nám- skeiðahalds í Norræna MFA- skólanum, þar sem fjallað er um norrænt samstarf verka- lýðshreyfinga og tekin fyrir ýmis viðfangsefni, meðal annars tæknibreytingar í at- vinnulífi, umhverfismál og málefni innflytjenda og flóttafólks.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.