Alþýðublaðið - 30.11.1988, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 30.11.1988, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 30. nóvember 1988 7 UTLOND Umsjón: Ingibjörg Árnadóttir Hann heitir Hassanal Bolkiah, og ef bandaríska tímaritið Fortune, sem fjallar um fjármál, segir satt, þá er hann auðugasti maður í heimi. Hann er reyndar þekktari sem soldáninn af Brunei. Soldáninn af Brunei er talinn auóugasti madur i heimi. - - - AUÐUGASTUR í HEIHII Bandaríska fjármálatíma- ritið „Fortune", telur að sol- dáninn af Brunei sé 25 millj- arða dollara „v|rði“. Næstur honum er Fahd, konungur i Saudi-Arabiu, sem er „að- eins“ 18 milljarða dollara virði svo sóldáninn er nokkuð öruggur efst á listanum. Hassanal Bolkiah sóldán, er búsettur í höfuðstað Brunei, Bandar Seri Begawan í glæsihöll, sem telur 1788 herbergi. Hvolfþak hallarinn- ar er úr skíra gulli. Reyndar segja skæðar tungur, aö hann hafi ekki stigið fæti sín- um inn í fleiri en 180 her- bergi! Það tekur náttúrlega tímann sinn að ganga um 1788 herbergi! OLÍUAUÐUR Fyrir þá lesendur, sem eru ekki alltof vel að sér í landa- fræði, upplýsist hér með að sóldánsveldið Brunei er í Asíu — nánar tiltekið á eynni Borneo. Stærð rikisins er ekki nema 4.000 ferkílómetrar og fólksfjöldi aðeins 227.000 manns. Hvaðan kemur allur þessi mikli auður soldánsins? Auð- vitað er þetta olíuauður. Frá þeim tíma í kringum árið 1960, þegar fyrstu olíulind- irnar fundust i Brunei, hafa olíupeningarnir streymt stanslaust inn í einkapen- ingaskápa soldánsins. Þegar rignir á prestinn, drýpur á djáknann eins og menn vita. Þessvegna líða ibúar ríkisins engan sjáanlegan skort. Skýrslur um fjármál þar í landi gefa upp, að þjóðar- framleiðslan á hvern íbúa (brúttó) er um 17.000 dollarar. Samanborið við önnur ríki i Asíu, er aðeins Japan fyrir ofan Brunei, sem velferðar- ríki. SOLDÁN FRÁ ÁRINU 1967 Þegar Ferdinard Magellan kom á skipi sinu til Brunei, árið 1521 og lét kasta þar akkerum, var soldánsríkið miðpunktur í voldugu keis- araveldi, sem náði frá Saraw- ak til suðurhluta Filippseyja. Smámsaman minnkaði ríkið vegna ágangs voldugra keppinauta og um aldamótin 1800, stigu Bretar á land og innlimuðu landið í breska heimsveldið. Það var ekki fyrr en árið 1984, sem Brunei öðlaðist algjört sjálfstæði og árið 1986 varð landið hluti af suður-austur-Asíusamtökun- um ASEAN. Hassanal Bolkiah var aðeins 21 árs, árið 1967, þegar hann var settur inn í embættið sem 29. soldán í Brunei. Það var faðir Bolkiah, sem afsalaði sér völdum af fúsum og frjálsum vilja til sonar síns. Faðirinn var Omar Ali Saifuddin 3. og var hann ákaflega vinsæll meðal þegna sinna. Þegar hér var komið sögu, hafði Hassanal Bolkiah lokið menntun sinni við konunglega herskólann í Sandhurst í Englandi. Það var þó í nokkur ár, sem Omar Ali „Pabbi" kippti hér og þar í stjórnartaumana, og það var ekki fyrr en hann fór úr landi árið 1986, sem Hassanal Bolkiah varð raun- verulegur stjórnandi ríkisins. LÉTTÚÐUGUR GLAUMGOSI Árum saman var það tal manna, að Hassanal Bolkiah, væri hálfgerður glaumgosi, sem tæki lífinu létt. Á götu- hornum í Bandar Seri Bega- wan hvísluðu menn um, að hann hefði meiri áhuga á Elisabeth Bretadrottning, er ,,aöeins“ fjóröa i rööinni, yfir auðugasta fólk i heimi! hraðskreiðu sportbílunum sínum og innfluttum bresk- um veðhlaupahestum, en á krefjandi skyldum sem fylgdu því að vera æðsti stjórnandi landsins. I dag heyrist lítið af þess- ari gagnrýni, ekki aðeins af því aö soldáninum er ekki vel við gagnrýni, heldur einnig vegna þess, að með árunum er hann orðinn skyldurækinn stjórnandi. Nú á hann líka eiginkonu og þrjú börn, sem hann er sagður sinna vel. Sem æðsti stjórnandi lands sins, hefur Hassanal Fahd konungur i Saudi-Arabiu er sagður næst auöugasti maður i heimi. Bolkiah algjör völd. Hann þarf ekki að fara eftir neinum duttlungum þingmanna því ekkert þing er í landinu. Margir æðstu stjórnendur landa, sem ekki hafa þjóð- þing, hafa endað sem harð-' stjórar. Því er ekki þannig fariö i Brunei, þar vænir eng- inn Bolkiah um aö vera harð- stjóri. „Hassanal Bolkiah soldán, hefur raunverulegan áhuga á því, að íbúarnir hafi nóg að bíta og brenna“, segja erlend- ir fréttaskýrendur sem dvelja í Brunei. í utanríkismálum hefur soldáninn góð samskipti við nágranna sína, og sambandið við fyrrverandi nýlenduherr- ana í Bretlandi, hefur gengið prýðilega. Eins og viö er að búast, af soldáni sem situr á stærsta peningapoka í heimi, hefur hann af og til látið í Ijós áhyggjur af starfsemi komm- únista, bæði í Asíu spm og öðrum heimsálfum. Árið 1986, gekk hann það langt, að hann gaf Contraliðum í Nicaragua 10 milljónir doll- ara. Af einhverjum grunsam- legum ástæðum gufaði upp- hæðin upp á leiðinni, eftir að hafa farið í gegnum banka- reikning i svissneskan banka. Þegar Hassanal Bolkiah fékk vitneskju um hvarf pen- inganna, yppti hann bara öxl- um. Hvað er líka 10 milljónir dollarar fyrir auðugasta mann í heimi? . (Arbeiderbladet.)

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.