Alþýðublaðið - 03.01.1989, Page 6
6
Þriðjudagur 3. janúar 1989
ANNÁLL FRÉTTA ALÞ
SÍÐARI HLUTI
JÚNÍ
í þessum mánuði sigraði Vig-
dís Finnbogadóttir mótfram-
bjóðanda sinn Sigrúnu Þor-
steinsdóttur með yfirburðum í
fyrstu forsetakosningunum þar
sem boðið er f ram gegn sitjandi
forseta. Vigdís hlaut 117.292
atkvæði eða 92,7% en Sigrún
hlaut 6.712 atkvæði eða 5,3%.
Auðir og ógildir seðlar reyndust
2.531 eða 2% og kjörsókn varð
72,4%, hin dræmasta í almenn-
um kosningum frá 1933.
Miklar deilur voru innan ríkis-
stjórnarinnar, mest þó á milli
fjármálaráöherra og landbúnað-
arráðherra vegna umfram-
greiðslna til landbúnaðarins,
einkum i niðurgreiðslur og út-
flutningsbætur. Ráðherranefnd
var sett í málið og miðaði þá í
samkomulagsátt. Jón Baldvin
varaði við óheillavænlegri þró-
un í ríkisfjármálum, sagði
stefna í hálfs milljarðs halla
ríkissjóðs og að lánsfjárlög
væru komin 3 milljarða fram úr.
Byggðastofnun neitaði að verða
við tilmælum ríkisstjórnarinnar
um 80 milljóna króna lán til loð-
dýrafóðurstöðva nema fá tryggt
framlag á næsta ári. Þá var
áfram ágreiningur um flug-
stöðvarreikningana og náðist
samkomulag um að starfshópur
færi í saumana á þeim. Innan
ríkisstjórnarinnar var einnig
deilt um lögmæti 8% hækkunar
Landsvirkjunar á gjaldskrá
sinni. Rlkið og aðilar vinnu-
markaðarins deildu um lög-
mæti álverssamningsins, sem
talinn var fela í sér meiri hækk-
un en bráðabirgðalögin heimil-
uðu. Rikislögmaður taldi samn-
inginn ólögmætan en samn-
ingsaðilartöldu hann lögmætan
og var deilan sett niöur. Á sama
tíma gerðist það í álverinu að
Ragnar Halldórsson hætti sem
forstjóri er hann var gerður að
stjórnarformanni.
Gróði bankanna vegna
„svarta miðvikudagsins" var
enn til umræðu og vildu sumir
láta þá skila hagnaðinum í ríkis-
sjóð. Hugmyndir um að leggja
niður verðjöfnunarsjóð sjávar-
útvegsins vöktu upp deilur um
1.600 milljón króna innistæðu í
honum. Fiskverð var hækkað að
meðaltali um 5% gegn mót-
atkvæðum seljenda og búvöru-
verð hækkaði um 7-10%. Nýr
grundvöllur framfærsluvísitöl-
unnartók gildi með minnavægi
matvöru en meira vægi hús-
næðis, bíla og fatnaðar. Aðal-
fundur SÍS var haldinn að Bif-
röst, en þótti ekki hreinsa
andrúmsloftið. Þuldar voru upp
talnaraðir um mesta tap SIS-
sögunnar. SÍS-menn hafa þó
vafalaust getað fagnað þegar
Hæstiréttur kvað upp úrskurð í
Kaffibaunamálinu. Erlendur
Einarsson var sýknaður sem
fyrr, 2ja mánaða dómur Arnórs
Valgeirssonar var ógiltur, en
staðfestir 12 mánaða dómur
Hjalta Pálssonar, 7 mánaða
dómur Sigurðar Á. Sigurðarson-
ar og 3ja mánaða dómur Gísla
Theódórssonar, allt skilorðs-
bundnir dómar, en hjá undirrétti
átti Hjalti að sitja inni i 3 mán-
uði. Skömmu síðar upplýsti Al-
þýðublaðið að SÍS og KEA
skulduðu Landsbankanum 2,6
milljarða króna, en þá var rætt
um að Valur Arnþórsson settist
i stól Helga Bergs í bankanum.
Jóhanna Sigurðardóttir stað-
festi byggingarleyfi ráðhússins
í Reykjavík, en átaldi borgaryfir-
völd fyrir fljótfærni og vanvirð-
ingu við skipulags- og bygging-
arlög. Um sama leyti upplýsti Al-
þýðublaðið að borgarstjóri hefði
gert samning við ísfilm um að
festa byggingarsögu ráðhúss-
ins á filmu. Deila Reykjavíkurog
Kópavogs um Fossvogsdalinn
hélt áfram óbeint er samtök um
líf i dalnum komu saman og
gróðursettu 600 tré í dalnum.
Alþýðusambandið sendi
kæru til Alþjóðavinnumála-
stofnunarinnar vegna afnáms
samningaréttarins í bráða-
birgðalögunum. Deilur hófust
vegna ráðningar Sjafnar Sigur-
björnsdóttur í skólastjórastöðu
við Ölduselsskóla. Helgarpóst-
urinn hætti útkomu eftirmiklar
deilur innan stjórnar Goðgár.
Þórarinn Tyrfingsson sigraði
Ingimar Ingimarsson i baráttu
um formennsku hjá S.Á.Á. Ómar
Ragnarsson sagði upp hjá R.Ú.V.
og ákvað að ganga til liðs við
Stöð 2. Leonard Cohen lék og
söng fyrirframan húsfylli í Höll-
inni. Gunnar Björnsson fékk
reisupassann frá stjórn Frí-
kirkjusafnaðarins og upphófust
þámiklardeilursemenn standa
yfir.
JÚLÍ
Pólitiskar embættisveitingar
voru ofarlega á dagskrá í júlí.
Um mánaðamótin var tilkynnt
að menntamálaráðherra hefði
skipað Hannes Hólmstein Giss-
urarson lektor í stjórnmálafræði
við háskólann, gegn mótmæl-
um nánastallraaðilaskólansog
fjölmargra utan hans, enda
Hannes talinn hæfur aðeins að
hlutaog gengiðframhjátveimur
fullhæfum umsækjendum.
Önnur ráðning þótti ekki síður
pólitísk og umdeild. Bankaráð
Landsbankans ákvað að það
yrði Valur Arnþórsson sem
myndi leysa af Helga Bergs sem
bankastjóri, um áramótin
næstu. Valur hlaut 4 atkvæði en
Lúðvik Jósepsson sat hjá.
Skömmu áður höfðu bankarnir
skilað inn tillögum vegna fyrir-
hugaðrar heimildar ríkisstjórn-
arinnar um milljarð króna
erlenda lántöku og vildi Lands-
bankinn að mál SIS yrðu með-
höndluð sérstaklega fyrir utan
téðan milljarð, enda lánþörf SÍS
talin um 500 milljónir. Samband
bankamanna mótmælti ráðn-
ingunni og ýmsum þótti ráðn-
ingin ótæk vegna mikilla skulda
fyrirtækja samvinnuhreyfingar-
innar við bankann. Samband
bankamanna mótmælti einnig
ráðningu sparisjóðsstjóra hjá
Sparisjóði Norðfjarðar, þar sem
karlmaður var tekinn framyfir
hæfari konu.
Landakotsspltalinn var mikið
( fréttum mánaðarins. „Bik-
svört“ skýrsla Rikisendurskoð-
unar þótti sýna fram á aðhalds-
leysi í rekstri og fjárlög höfðu
verið hundsuð gróflega. Rekst-
urinn hljóðaði upp á 300 milljón
króna hallarekstur og Ríkisend-
urskoðun sagði launagreiðslur
til lækna óhemju miklar, sá
launahæsti þeirra, yfirlæknir
rannsóknarstofu, hefði haft 18,1
milljónirí árstekjur. Viðkomandi
ráðherrar ákváðu að skipa eftir-
litssveit yfirspítalann. Flugstöð
Leifs Eiríkssonar var einnig í
fréttum þegar flugstöðvar-
nefndin svo nefnda skilaði af
sér tillögum um úrlausn deil-
unnar um verktakareikningana.
Lagði nefndin til að 56 af 121
milljónum verði greiddaráárinu
og heimilaöar 30 milljón króna
brýnarframkvæmdir, þaraf rúm-
lega 5 milljónir á árinu.
Deilur héldu áfram innan rík-
isstjórnarinnar um aðgerðir i
efnahags- og atvinnumálum og
um einstök mál um leið og
stjórnin hélt upp á 1 árs afmæli
sitt. Ný þjóðhagsspá olli tauga-
titringi, meðal annars taldi fjár-
málaráðherra spána fela í sér
rangfærslur að yfirlögðu ráði
um fjárlagahallann og fleira.
Skýrslur sýndu 10-15% halla
frystingar, deilur hófust um
varaflugvallarmálið og vísitölu-
nefnd lagði til að varlega yrði
farið út i afnám verðtryggingar
og þá aðeins sem hluti af víð-
tækari efnahagsaðgerðum.
Skoðanakönnun sýndi ríkis-
stjórnina með aðeins 35% fylgi
og 53% töldu að hún myndi
springa bráðlega eða um haust-
ið.
Tilkynnt var um að stefnt yrði
að helmingsstækkun álversins
um leið og slitið var hlutafélag-
inu um kisilmálmvinnslu við
Reyðarfjörð. Utanríkisráðuneyt-
ið ákvað að setja hömlur á
gámaútflutning með leyfisveit-
ingum. Brimborg yfirtók rekstur
Veltis. 250 gervihnattardiskar
höfðu verið seldir hér á landi en
leyfi aðeins gefin út fyrir 40.
Meitillinn sendi 190 starfs-
mönnum sínum uppsagnarbréf.
Félagsmálaráðherra staðfesti
aðalskipulag borgarinnar, en (
Fossvogsdal aðeins að mörkum
lögsagnarumdæmisins.
ÁGÚST
Fyrirbæri ágústmánaðar var
án efa „forstjóranefndin" svo
kallaða, ráðgjafarnefnd sem
sett var á laggirnar undir forystu
Einars Odds Kristjánssonar til
að gefa ríkisstjórninni álit um
hvernig bæta mætti rekstrar-
skilyrði útflutnings- og sam-
keppnisgreina og treysta eigin-
fjárstöðu atvinnufyrirtækja. Ás-
mundi Stefánssyni þótti skipan-
in endurspegla tillitsleysi gagn-
vart verkalýðshreyfingunni.
Fljótlega beindist hugur manna
frá gengisfellingarleið til niður-
færsluleiðar á launum, vöxtum
og verðlagi og ríkisstjórnin und-
irbjó efnahagsmálapakka. Upp
úr miðjum mánuði lagði for-
stjóranefndin tillögur sínar
fram. Niðurfærsluleiðin skyldi
farin. Rikisstarfsmönnum
skyldi fækkað um 1.000, hömlur
lagðar á erlendar lántökur, lagt í
erlend skuldbreytingalán upp á
2 milljarða króna, ríkissjóður
rekinn með afgangi 1989, sér-
stakur 10% skattur lagður á há-
tekjumenn, vextir húsnæðis-
lána skyldu hækkaðir, laun og
launatengd gjöld skyldu lækk-
uð um 9% og sömuleiðis verð
vöru og þjónustu og nafnvextir
lækkaðir um 25% í tveimur
áföngum. Stjórnarflokkarnir
tóku að deila um útfærsluna og
nálguðust sjónarmið Alþýðu-
flokks og Framsóknarflokks.
26. ágúst ákvað rikisstjórnin að
fresta gildistöku hækkunar
launa og búvöruverðs 1. sept-
ember og grípa til almennrar
verðstöövunar með hörðum við-
urlögum.
í Landakostsmálinu náðust
sættir eftir nokkrar væringar
um skýrslu Ríkisendurskoðun-
ar. Sættirnar náðust þegar sam-
komulag tókst um að sérstök
eftirlitsstjórn fjármála- og heil-
brigðisráðherra skyldi heita
samstarfsnefnd! Annar spítali
var í kröggum: Kleppsspítalinn
neyddist til að loka endurhæf-
ingardeild vegna rekstrarerfið-
leika. Stjórn KRON ákvað að
hella sér út í allsherjar hagræð-
ingu og að sameina rekstur
þess Miklagarði. Skipaútgerð
ríkisins var undir smásjánni
vegna rekstrartaps, sem á árun-
um 1981-1987 varð 260 milljónir
króna þegar fjárlög gerðu á
sama tima ráð fyrir 125 milljóna
króna afgangi. Heildarskuldir
fyrirtækisins voru taldar 113
milljónir króna umfram eignir.
Viðskiptaráðherra tilkynnti um
frumvarp til laga um „gráa mark-
aðinn“ um sama leyti og Ólafur
Ragnar Grímsson hafði uppi yf-
irlýsingar um að tvö fyrirtæki
markaðarins stæðu tæpt og
gætu ekki staðið við skuldbreyt-
ingar sínar. Þrátt fyrir ítrekaðar
óskir vildi Ólafur ekki upplýsa
um hvaða fyrirtæki væri átt við.
Stærstu tiðindin á sviði sjávar-
útvegsins voru tvímælalaust
ákvörðun borgarinnar um að
selja Sjóvá, Hampiðjunni, Hval
og Venusi 78% eignarhlut sinn i
Granda á 500 milljónir króna
með 20% útborgun.
Upp komu deilur um bygging-
arleyfi vegna lóðarinnar Aðal-
stræti 8, hið fyrirhugaða hús
þótti í hróplegu ósamræmi við
deiliskipulagið hvað varðar nýt-
ingahlutfall og landnotkun. Al-
þýðublaðið sagði frá geigvæn-
legu smáfiskadrápi á miðunum
og að um það ríkti þegjandi
samkomulag. Þrír útlendingar
fórust er ferjuflugvél hrapaði
um 50 metra frá Hringbraut.
Hundruð íslenskra kvenna
flykktust á Nordisk forum í
Osló. Þorsteinn Pálsson hélt í
áður frestaða opinbera heim-
sókn til Reagans í Bandaríkjun-
um. Fjármálaráðuneytið til-
kynnti um reglugerð þar sem
boðið yrði upp á 30% vaxta-
afslátt fyrir 6-8 þúsund manns
með vangoldna tekju- og eigna-
skatta. A Ólafsfirði varð tug-
milljón krónatjón í aurskriðum.
SEPTEMBER
Mál málanna i september var
fall ríkisstjórnar Þorsteins Páls-
sonar og valdataka ríkisstjórnar
Steingríms Hermannssonar.
Mikið var deilt um frekari efna-
hagsaðgerðir og hvernig fylla
ætti upp í 3,5 milljarða fjárlaga-
gatið sem við blasti að óbreyttu.
Snemma tilkynnti Þorsteinn að
niðurfærsluleiðin væri úr sög-
unni og boðaði hann þá e.k.
millifærsluleið. Alþýðuflokkur
og Framsóknarflokkur lögðu
fram gagntillögur og augljóst
var að þessir flokkar áttu sam-
leið í andstöðu gegn leið sjálf-
stæðismanna. Blikur voru á lofti
en búist var við málamiðlun, en
á hinn bóginn bárust fréttir frá
Pressunni um óformlegar þreif-
ingar um nýtt stjórnarmynstur
með þátttöku Stefáns Valgeirs-
sonar á bak við tjöldin. 16. sept-
ember lagöi Þorsteinn Pálsson
síðan fram tillögursem agndofa
Jón Baldvin Hannibalsson kall-
aði hnffsstungu í bakið. í þeim
fólst meðal annars lækkun mat-
arskattsins svo kallaða niður í
10%, 6% gengisfellingog tekju-
skattshækkun. Ríkisstjórnin
flosnaði upp í beinni útsend-
ingu Stöðvar 2.
Steingrími Hermannssyni var
falið stjórnarmyndunarumboð.
Alþýöubandalagið kom fljót-
lega inn í viðræður við Fram-
sókn og Alþýðuflokk, en
Kvennalistinn heltist fljótlega
úr lestinni og Borgaraflokkurinn
síðar. Bakslag kom í viðræðurn-
ar vegna deilna innan Alþýðu-
bandalagsins, sérstaklega
vegna fyrirvara Skúla Alexand-
erssonar og Geirs Gunnarsson-
ar. Þau mál leystust hins vegar
og Stefán Valgeirsson lofaði
stuðningi í báöum deildum
þingsins. Stefán afþakkaði ráð-
herradóm er honum bauðst að
ráðstafa formennskustóli í nýj-
um Atvinnutryggingarsjóði og
eftir talsvert japl, jaml og fuður
var mynduð ríkisstjórn skipuð 3
ráðherrum frá hverjum flokki.
Fyrstu aðgerðir ríkisstjórnar-
innarfólu meðal annarsísér3%
gengisfellingu, óbreytt laun til
28. febrúar, með óbreytt fiskverð
og búvöruverð á sama tíma auk
veröstöðvunar, stofnun
Atvinnutryggingasjóðs með 2
milljarða á 2 árum, 800 milljónir
lagðar í Verðjöfnunarsjóð fisk-
iðnaðarins, hækkun tekjutrygg-
ingar elli- og örorkulífeyrisþega
og heimilisuppbótar um 3%,
hækkun persónuafsláttar og
barnabóta, vaxtalækkanir og
boðuð breyting á lánskjaravísi-
tölunni með helmings vægi
launavísitölu.
Önnur stór bomba sprakk
þegar forráðamenn Ávöxtunar
bað Bankaeftirlitið að loka hjá
sér vegna gíf urlegrar innlausnar
útistandandi verðbréfa. Ákveðið
var að hefja opinbera rannsókn
á meintum lögbrotum fyrirtæk-
isins og var Pétur Björnsson
sviptur leyfi til verðbréfamiðlun-
ar.
Landssamtök sauðfjár-
bænda héldu aðalfund og köll-
uðu á uppstokkun og einföldun
félagskerfis landbúnaðarins.
Ólafur Noregskonungur heim-
sótti landið og færði góðar gjaf-
ir. Byggingaleyfi vegna Aðal-
strætis 8 var afturkallað. Deilur
komu upp um ráðningu for-
stjóra Útgerðarfélags Akureyr-
inga. Gegn mótatkvæðum fram-
sóknarmanna var ákveðið að
ráða Gunnar Ragnars í stólinn.
Aðalfundur Verndar leystist upp
í deilur og var slitið vegna
ágreinings um atkvæðabærni
fundarmanna. í Karlvelsmálinu
svo kallaða náðist samkomulag
um að Borgarspítalinn greiddi
Karvel 3ja milljón króna skaða-
bætur. Olympíuleikar hófust í S
Kóreu, en árangur okkar manna
þótti slakur. í þessum mánuði
kom út fyrsta tölublað Press-
unnar.
OKTOBER
Jón Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra segir að úrslita-
kostir Þorsteins Pálssonar í
efnahagsmálum hafi sprengt
síöustu ríkisstjórn. í Reykjavík-
urblaði Alþýðublaðsins síðar í
mánuðinum gerir formaður Al-
þýðuflokksins upp sakirnar við
síðustu rikisstjórn og ráðherr-
ana „sem aldrei urðu að ríkis-