Alþýðublaðið - 03.01.1989, Side 7
Þriðjudagur 3. janúar 1989
7
ÍÐUBLAÐSINS 1988
stjórn” undir forystu Þorsteins
Pálssonar. Rekstrarhalli ríkis-
sjóös var í byrjun októberorðinn
2 milljöröum meiri en efni stóöu
til og nam þá um 5 milljarða
króna. Þá skýröi blaðið frá því aö
vel kæmi til greinaaðfjármagna
ríkissjóðshallann með beinum
erlendum lántökum í stað yfir-
dráttar hjá Seðlabanka. Guðrún
Helgadóttir þingmaður Alþýðu-
bandalags var kjörin forseti
sameinaðs þings og er hún fyrst
kvenna til að gegna því emb-
ætti.
Mikill styrr stóð um hvalveið-
ar íslendinga í október, og voru
græningjar í Þýskalandi þar
atkvæðamestir, og hvöttu þeir
landa sína til að hætta kauþum
á íslenskum fiski. Al.di-fyrirtæk-
ið ákvað að halda uppi eðlileg-
um viðskiptum við ísland, og var
þar með mikillsigurunninn í því
máli þarsem það erstærsti við-
skiptavinur íslands á þýskum
markaði.
Stálvík fór fram á270 milljóna
ríkisframlag til smíðaá 10 togur-
um fyrir Marokkó. Jón Sigurðs-
son iðnaðarráðherra sagði það
orka mjög tvímælis að fara út í
þetta óvissumál og gangast við
ríkisábyrgð, enda mjög óvíst um
raunverulegan kostnað ríkisins
í þessu dæmi, og talið að hann
gæti numið allt að 400 milljón-
um þegarallt kæmi til alls. í kjöl-
far þess að eiturefnið PCB
fannst í kræklingi við strendur
Austfjarða kom í Ijós að lögum
um innflutning á ýmsum eitur-
efnum væri ekki framfylgt, og
að ekkert eftirlit væri haft með
meö því hvaða efni væru flutt
inn né hvaða aðilar stæðu að
innflutningi. Birgir Þórðarson
náttúrufræðingur hjá Hollustu-
vernd rikisins sagði að eiturefn-
ið PCB væri bannað í öllum þró-
uðum ríkjum, og mætti furðu
sæta að það væri ekki á bann-
lista hér.
Þá tók Alþýðublaðið fyrir
1.200 milljón króna holu tann-
lækna, en þá fjárhæð virðist
vanta upp á að framburður tann-
lækna um tekjur og framburður
viðskiptavina þeirra um aðsókn
til þeirra. Þettavoru niðurstöður
skoðanakönnunar Félagsvís-
indastofnunar sem byggð var á
tölum Tryggingarstofnunar rík-
isins og skattaframtali tann-
lækna. Mikil átök voru á her-
stöðvum BSRB en 35. þing
bandalagsins var haldið í okt-
óber. Kristján Thorlacius for-
maðurgaf ekki kost ásértil end-
urkjörs og hlaut Ögmundur Jón-
asson yfirburðakosningu sem
næsti formaður BSRB.
Vandi SÍS varenn til umræðu,
fyrirtækið seldi sinn hlut í Marel
og Hval hf. og Guðjón B. Ólafs-
spn forstjóri sagði allar eignir
SÍS séu til endurskoðunar.
Heimsbikarmótið í skák vakti
heimsathygli, enda eitt sterk-
asta mót sem haldið hefur verið
á íslandi og var heimsmeistar-
inn Garrí Kasþarov meðal keþþ-
enda. Kjötfjall landsmann var
að sjálfsögðu til umræðu í lok
sláturtíðarinnar, og höfðu birgð-
irnar aukist um tæþ 17% frá ár-
inu áður. Fjölmargir frystihús-
eigendur sögðu upp fastráðn-
ingarsamningum með ákvæð-
um um mánaðaruppsagnarfrest
að sögn Péturs Sigurðssonar
forseta Alþýðusambands Vest-
fjarða. Haukur Gunnarsson
vann til gullverðlauna í 100
metra hlauþi á Ólympíuleikum
fatlaðra, og setti ólympíumet í
þrígang.
NÓVEMBER
Magnús Thoroddsen forseti
Hæstaréttar sagði af sér emb-
ætti eftir að birtar voru opinber-
lega tölur um áfengismagn það
sem hann hafði keypt ákostnað-
arverði í ÁTVR sem einn hand-
hafi forsetavalds. Magnús hafði
keypt 1440 flöskur af sterku víni
það sem af var árinu. Hann skil-
aði svo 1260 flöskum aftur til
Áfengisverslunarinnar. Ólafur
Ragnar Grímsson lagði fram
fjárlagafrumvarp fyrir árið 1989,
og sagði það engan gleðiboð-
skap heldur alvarlega tilraun til
að stöðva útgjaldaþenslu ríkis-
ins. Tókust þeir Ólafur Ragnar
og Ásmundur Stefánsson for-
seti ASÍ á um hver hlutur verka-
mannsins væri í þessu frum-
varpi. Jón Baldvin Hannibals-
son utanríkisráðherra gerði
Alberti Guðmundssyni tilboð
um að geras^sendiherra í París,
en allir stjórnarliðar neituðu að
tilboðið stæöi í nokkru sam-
hengi við stuðmng Borgara-
flokksins við ríkisstjórnina.
Grænfriðungar í Þýskalandi
hlupu upp með átök við verslan-
ir Aldi, og sneri fyirtækið sér því
til íslenskra stjórnvalda að þau
fyndu einhverja lausn á málfnu.
Shultz utanríkisráöherra Banda-
ríkjanna neitaði að hafa haft
nokkra vitneskju um tilraun til
viðskiptaþvingana gagnvart ís-
landi i gegnum Japani, og harm-
aði hann þann misskilning sem
þetta mál leiddi af sér.
Leiðtogar jafnaðarmanna-
flokka í EB og EFTA löndunum
samþykktu yfirlýsingu þess efn-
isaðekki komi til greinaaðfyrir
lönd eins og ísland að hleypa
öðrum ríkjum inn í auðlindalög-
sögu sína' fyrir mikilvæga við-
skipta- og efnahagssamninga.
Jón Baldvin Hannibalsson utan-
ríkisráðherra var fulltrúi íslands
í þessum samningum, en hann
hlaut ekki jafnmikið lof fyrir
atkvæöagreiðslu íslands hjá
Sameinuðu þjóðunum um for-
dæmingu ísraels. Harðar utan-
dagskrárumræður voru um
atkvæðagreiðsluna á Alþingi,
og var mikið ritað og rætt um
þessa breyttu afstöðu utanrikis-
ráðherra íslendinga. Alþýðu-
flokkurinn og Framsóknarflokk-
urinn héldu báðirflokksþing sín
í nóvember, og var mikið rætt
um hugsanlegan samruna A-
flokkanna um það leyti. Mikla
athygli vakti einnig gagnkvæm
heimsókn formanna Framsókn-
ar og Alþýðuflokks á flokks-
þingin þar sem þeir ávörpuðu
þingfulltrúa flokkanna. Ás-
mundur Stefánsson forseti Al-
þýðusambands íslands var end-
urkjörinn forseti ASÍ á 36. þingi
sambandsina, en Ragna Berg-
mann var kjörin varaforseti i
stað Karvels Pálmasonar sem
gaf ekki kost á sér.
Jón Sigurðsson iðnaðarráð-
herra sagðist hafa áhuga á að
tengja úrvinnslu úr áli inn í við-
ræður um stækkun álversins.
Tillaga kom fram um 12% sölu-
skatt á happdrættismiða, inn-
flutningureiturefnisins PCB var
bannaður í kjölfar umræðna um
notkun þeirra, og 2/3 hlutur
Ferðaskrifstofu ríkisins var
seldur starfsmönnum á „gjaf-
verði”eins og Guðmundur Ag-
ústsson komst að orði. Ólymp-
íuliðið ( skák hélt utan á Ólymp-
iuleikana i skák. Ákærur voru
gefnar út í Hafskipsmálinu, og
var Jóhann Einvarðsson sviptur
þinghelgi svo hægt væri að gefa
út ákæru á hendur honum.
Fjórburar litu dagsins Ijós
þann 1. nóvember, en aðeins
einu sinni áður hefur fjórbura-
fæðing átt sér stað á íslandi.
Kim Larsen heiðraði landann
meö komu sinni, og mikill sam-
dráttur fyrirtækja var áberandi í
nóvember; og var jafnvel talað
um gjaldþrot sem jólagjöfina í
ár. Þá gat að líta nokkur einka-
viðtöl Alþýðublaðsins um
stjórnmálaástandið í Eistlandi
þar sem rætt var við nokkra leið-
toga Þjóðfylkingarinnar.
DESEMBER
Fram kom, aö handhafar for-
setavalds hefðu keypt alls tæp-
lega 4.800 flöskur af áfengi á 6
árum, að mestu sterkt vín.
Magnús Thoroddsen keypti
1.440 flöskur áyfirstandandi ári,
en 720 árið áður. Magnús Þ.
Torfason keypti 390 flöskur á
tveimur árum, Þór Vilhjálmsson
834 flöskurátveimurárum, Logi
Einarsson 180 flöskur á einu ári
og Þorvaldur Garðar Kristjáns-
son keypti sem forseti Samein-
aðs Alþingis 1.230 flöskur á ár-
unum 1984-1987. Útlagður
kostnaður nam um tíunda hluta
af söluverði ÁTVR.
Nokkrar erjur ríktu á stjórnar-
heimilinu, sérstaklega um hús-
næðismál, gengismál og um
tekjuskattinn. Á þinginu stefndi
í óefni með fjárlögin og viðkom-
andi tekjufrumvörp og voru
hafnar formlegar viðræður við
stjórnarandstöðuna um að
koma nauðsynlegum málum í
gegn. Óþarfi er að rifja upp gang
mála í þinginu á jólaföstunni í
löngu máli: Aðalheiður Bjarn-
freðsdóttir og Óli Þ. Guðbjarts-
son greiddu stjórnarfrumvörp-
um götuna í gegnum þingiö og
kom þessi staða upp nánast um
leið og Ijóst varð að Albert Guð-
mundsson færi til Parísar og
hafði afhent Júlíusi Sólnes for-
mannsembættið. Borgaraflokk-
urinn virðist nú klofinn, Albert
og Ingi Björn Albertsson horfa
upp á að afgangurinn af þing-
flokknum gangi inn í núverandi
stjórnarmynstur með 2 ráðherra
ef viðræður ganga að óskum.
Snemma í mánuðinum var til-
kynnt um uppstokkun hjá Stöð
2, er Jón Sigurðarson forstjóri
Miklagarðs var ráðinn fram-
kvæmdastjóri og Ómar Valdi-
marsson sagði upp. Siðar hófst
rannsókn skattstjóra á skatta-
málum stöðvarinnar.
Tvær kolsvartar skýrslur voru
birtar í desember. Fyrst kom
alvarleg skýrsla Lögreglufélags
Reykjavíkur um löggæsluna í
borginni semfól í séráfellisdóm
mikinn. Talin voru upp í skýrsl-
unni mýmörg dæmi um vanda-
mál er lutu að mannahaldi,
vinnuaðstöðu og tækjakosti.
Hin skýrslan fól í sér athuga-
semdir Rikisendurskoðunar við
rikisreikning 1987. Þar kom
meðal annars fram dæmi um
1.600 yfirvinnutíma einstakra
starfsmanna og 3,7 milljón
króna viðhaldskostnað vegna
3ja bifreiða hjá embætti Lög-
reglustjórans á Keflavíkurflug-
SÓLVEIG
ÓLAFSDÓTTIR
velli.
Fram kom í byrjun mánaðar-
ins að á þriðja hundrað fyrir-
tækjum hefði verið lokað vegna
vangoldins söluskatts. Hofsós-
hreppur var sviptur fjárforræði
vegna gríðarlegra skulda og
óreiðu í rekstri. Um miðjan mán-
uðinn aflétti ríkisstjórnin banni
bráðabirgðalaganna gegn verk-
föllum — á sama tíma og Jón
FRIÐRIK ÞÓR
GUÐMUNDSSON
Baldvin heimsótti Pólland. Hús-
næðislánanefnd skilaði af sér
og helsta trompið gegn 8 þús-
und manna biðlista felst í út:
færslu svo kallaðra húsbréfa. í
árslok var ákveðið að f resta gild-
istöku boðaðrar lánskjaravisi-
tölu með launavísitölu með
hálft vægi. Sýnt þótti að ríkis-
sjóðuryrði gerðuruppþettaárið
með 6,5 milljarða króna halla.
pxe
XV88St3-
faldur
laugardag
Vinningstölurnar 30. desember 1988
Heildarvinningsupphæð: Kr. 4.016.941,-
Þar sem enginn var með 5 réttar tölur á laugardaginn var, færis
1. vinningur sem var kr. 5.740.695.- yfir á 1. vinning !
laugardaginn kemur.
BÓNUSTALA + fjórar tölur réttar kr. 595.194,- skiptast á (
vinningshafa, kr. 99.199,- á mann.
Fjórar tölur réttar kr. 1.026.571,- skiptast á 203 vinningshafa
kr. 5.057,- á mann.
Þrjár tölur réttar kr. 2.395.176,- skiptast á 6.456 vinningshafa
kr. 371,- á mann.
Sölustaðirnir eru opnir frá mánudegi
til laugardags og loka ekki fyrr en 15
mínútum fyrir útdrátt.
Leikandi og létt! Upplýsingasími: 685111