Alþýðublaðið - 03.01.1989, Qupperneq 9
Þriðjudagur 3. janúar 1989
9
SJONVARP
Ingólfur Margeirsson
skrifar •
Leitin að Laxness
m
STÖÐ 2:
Halldór Laxness
Síðari hluti heimildarmyndar
um skáldið frá Gljúfrasteini.
Leikstjóri og stjórnandi upp-
töku: Þorgeir Gunnarsson.
Handrit: Pétur Gunnarsson.
Síðari hluti myndarinnar
um Halldór Laxness var
sýndur í Stöð 2 á nýársdag.
Fyrri hlutinn heillaði áhorf-
endur með leiknum atriðum
og endursköpun á andblæ
liðinna tlma; sér Magi upp-
tökur í S-Evrópu. I síðari
hluta heimildarsögunnar af
Halldóri Laxness var öllu
slíku sleppt og þess í stað
stuðst við gamla kvikmynda-
búta af Halldóri og rætt við
ýmsa fræðinga og samferðar-
menn hans, þó einkum fræð-
inga. Þess á milli las Arnar
Jónsson leikari samantekt á
ferli Halldórs; flatan texta í
hetjustíl. Myndlausnir voru
fáar og eiginlega var síðari
þátturinn fremur útvarpsefni
en sjónvarpsefni.
Hafi fyrri hluti verið feröa-
lag í ytra umhverfi, var sá síð-
ari sundurlaus ferð á yfir-
borðinu. Áhorfendur, sem
eitthvaö hafa lesið eftir Lax-
ness eða kynnt sér feril
skáldsins, höfðu heyrt flest
allt sem fyrri þátturinn bauð
upp á og gjörsamlega allt
sem sá síðari greindi frá.
Ekkert nýtt kom þar fram og
illa eða stundum ranglega
sagt frá. Það er til að mynda
ekki rétt staðhæfing að Hall-
dór Laxness sé fyrsti íslenski
atvinnurithöfundurinn. Og
ýmsar aðrar staðhæfingar
voru veiklulegar og líkt að að-
standendur myndarinnar
væru á hlaupum undan hinu
og þessu I skáldatíma Hall-
dórs og reyndu að breiða yfir
sem kalla má „óþægilegar
staðreyndir" með einhverjum
væmnum glassúr. Halldór
Laxness á miklu betra og
meira skilið en slík vinnu-
brögð.
Vera má, að erfitt sé að
gera heimildarmynd um lif-
andi goðsögn. Skáld sem
komið er í guðatölu og er I
raun ósnertanlegt í vitund
þjóðarinnar. Kannski varð
Halldór Laxness það þegar á
sjötta áratugnum er hann
hlaut Nóbelsverðlaunin.
Maður sem hlýtur Nóbels-
verðlaun í bókmenntum er
ekki lengur umdeildur eða
umdeilanlegur.
En einhvern veginn hvíslar
einhver púki því að mér, að
fyrst verið er að leggja í
heimildarmynd um Halldór
Laxness, þá sé það skylda
þeirra heimildargerðarmanna
að færa okkur nær skáldinu
og sannleikanum í lífi þess
en feta ekki blindir einstigi
lofgjörðarrullnanna sem
vissulega eiga rétt á sér á
hátíðarstundum en eru meira
og minna marklausar í alvar-
legri rannsóknarvinnu eins
og heimildargeró.
Tökum dæmi: Halldór ger-
ist ungur kaþólikki. Hvers
vegna? Hann yfirgefur síðar
hina kaþólsku trú og leggur
frá dýrlinganafnið Kiljan.
Hvers vegna og af hverju?
Hann er yfirlýstur kommún-
isti en leitar samt hófanna
sem handritahöfundur í
Hollywood, gljáborg kapítal-
ismans. Hvers vegna? Hann
ferðast um Sovétríkin á
fjórða áratugnum þegar skelf-
ingar Stalínismans eru sem
verstar og kjör sovéskar al-
þýðu ólýsanleg. Halldór er þá
ungur maður og næmur.
Samt kýs hann að þegja og
skrifa einhverja lygi í hetju-
stíl um bóndann frá Kreml og
þjóð hans. Hvers vegna?
Halldór opnar síðan skjóð-
una í Skáldatíma og segir
sannleikann. Hann er þá orö-
inn Nóbelskáld og ósnertan-
legur. Hvers vegna snýr hann
þá baki við sósíalismanum
og skilur gamla félaga sína
orðlausa eftir? Halldór Lax-
ness býr yfir yfirnáttúrulegri
breidd í skáldskap sínum.
Hann skrifar skáldsögur, Ijóð,
leikrit, ritgerðir, smásögur,
bregður fyrir sig stíl forn-
sagna, miðaldaog nútlma-
máls. Skapar eigin ritstíl og
stafsetningu. Hver er þessi
maður sem bregður sér úr
einu hlutverki í annað? Sem
allt nemur og allt sér temur?
Spurningarnar eru endalaus-
ar.
Við fengum ekki svör við
þessum spurningum I heim-
ildarmyndinni — né öðrum
sem leita á hugann þegar
hugsað er til hins mikla lífs-
starfs Halldórs Laxness. Leit-
in að Halldóri Laxness hófst
aldrei. Við fáum ekki heldur
svör við þessum spurningum
með því að stilla upp kvik-
myndatökuvélum fyrir framan
hjörð af virðulegum já-
mönnum Laxness, sem velt-
ast hver um annan þveran í
lofgjörð og óttablöndnum
ástarjátningum.
Eftir bolta kemur barn.
Eftir miklu skáldi kemur
alltaf bókmenntafræðingur.
Og fleiri en einn. En heimild-
argerðamenn verða að vara
sig á því að styðjast einungis
við fræðinga og aðdáendur
„Halldór Laxness er maöur og
skáld þversagna. Ein heimildar-
kvikmynd mun aldrei geta< lýst
töframanninum frá Gljúfrasteini
til hlitar. En slik mynd gæti vakið
spurningar — oröiö hvatning til
þess að bækur hans verði lesnar
áfram eða aö saga hans veröi
könnuð nánar. Heimildarmynd
Stöövar 2 er því miður ekki slik
hvatning," segir ingólfur Mar-
geirsson m.a. i umfjöllun sinni um
siðari hluta heimildarmyndar
Stöðvar 2 um Halldór Laxness.
þegar mynd af skáldi er dreg-
in upp. Fyrir utan verk
skáldsins er sannleikann að
finna I samferðarmönnum,
bréfum, blaðagreinum, já, í
hverju bréfsnifsi sem tekst
að grafa upp, hverju orði sem
fellur af vörum þeirra sem til
skáldsins þekkja. Þettaer
mikiö pússluspil og ekki öll-
um gefið að stunda slíka
rannsóknarblaðamennsku
kannski árum saman. Og
fáist myndin heil að lokum,
þarf stundum kjark til að
birta hana.
Halldór Laxness er maður
og skáld þversagna. Ein
heimildarkvikmynd mun
aldrei getað lýst töframannin-
um frá Gljúfrasteini til hlítar.
En slík mynd gæti vakið
spurningar — orðið hvatning
til þess að bækur hans verði
lesnar áfram eða að saga
hans verði könnuð nánar.
Heimildarmynd Stöðvar 2 er
því miður ekki slík hvatning.
íslendingar eru stoltir af
Halldóri Laxness. En við
megum aldrei láta það stolt
blinda okkur sýn; við megum
aldrei einfalda Halldór Lax-
ness í skurógoö. Halldór Lax-
ness er umdeilanlegur. Hann
var og á að vera umdeildur.
Slíkar eru bækur hans og
skrif og slík hefur ævi hans
verið. Mikil skáld halda áfram
að vekja tilfinningar, vekja
viðbrögð, vekja hugsanir og
deilur. Halldór Laxness er
slíkt skáld. Islenska þjóðin
má aldrei gera einhverja
sykurhúðaða goðsögn úr
Halldóri Laxness.
Heimildarmynd Stöðvar 2
teygði sig einum of langt á
þá átt.
Iðnaðarráðuneytið Tæknifræðingafélag íslands
Auglýsing
um mat á umsóknum um leyfi til aö kalla sig
tæknifræöing.
í lögum um rétt manna til aö kalla sig verk-
fræðinga, húsameistara, tæknifræðinga eöa
byggingarfræðinga frá 5. september 1986 segir
svo í 5. og 6. grein:
5. gr.
Rétt til aö kallasig tæknifræöing eðaheiti, sem
felur í séroröiö tæknifræðingur, hafaþeirmenn
einir hér á landi, sem fengiö hafa til þess leyfi
ráóherra.
6. gr.
Engum má veita leyfi þaö er um ræöir í 5. gr.
nema hann hafi lokið fullnaðarprófi í tækni-
fræði frá teknískum æöri skóla sem T.F.Í. viður-
kennir sem fullgildan skóla í þeirri grein. Þeir
menn sem fullnægja skilyrðum þeim, sem sett
eru í 1. mgr. þessarar greinar eiga rétt á, að
þeim sé veitt leyfi til aö kalla sig tæknifræð-
inga.
Iðnaöarráöuneytiö og Tæknifræöingafélag
íslands (T.F.I.) hafa komið sér saman um aö
miða viö eftirfarandi reglur viö mat á um-
sóknum um leyfi til aö kalla sig tæknifræöing:
1. Umsækjandi er hlotið hefur grunn-
menntun í tæknifræði og eina eöa fleiri
þrófgráður því til staöfestingar skal
öðlast leyfi til aö kalla sig tæknifræöing
ef öllum eftírfarandi atriöum er fullnægt:
a)
b)
c)
Námiö skal vera heilsteypt tæknifræöi-
nám, sem T.F.Í. viðurkennir.
Próf sé frá skóla eöa skólum, sem T.F.Í
telur færa um aö veita fullnægjandi
tæknifræðimenntun.
Námslengd sé minnst 107 einingar þar
sem hver námseining (c) svarar til einnar
viku í fullu námi (próftími ekki meó-
talinn). Samsetning námsins uppfylli þar
að auki eftirfarandi skilyröi (lágmörk):
Stæröfræöi
Eölisfræöi
Aörar undirstööugreinar
Tæknilegar
undirstööugreinar
Rekstrargreinar
Tæknigreinar
Valgreinar ______
10 einingar
6 einingar
5 einingar
20 einingar
7 einingar
41 eining
18 einingar
Samtals: 107 einingar
Skilyröi þau sem Tækniskóli íslands
setur hverju sinni um verklega þjálfun og
verkskólun skulu vera uppfyllt. Miöaö er
viö aö þessar kröfur samsvari 35 ein-
ingum.
Reglur þessartaka gildi 1. janúar 1989 og skulu
auglýstar í Lögbirtingablaöi, dagblöðum og sér-
staklega kynntar nemendum í tæknifræöi.
Reglurþessargildaþartil annað verðurákveðið
og auglýst meö sama hætti.
Ákvæöi til bráðabirgða
Umsóknirmanna sem hafa byrjað samfellt nám
í tæknifræði fyrir 1. janúar 1987 og ekki geta
aólagað nám sitt ofangreindum reglum skulu
metnar eftir þeim reglum sem notaðar hafa
verið aö undanförnu.
Reykjavík, 19. desember 1988
Iðnaðarráðuneytið
Tæknifræðingafélag íslands.