Alþýðublaðið - 03.01.1989, Síða 11
Þriðjudagur 3. janúar 1989
11
UTLÖND
Umsjón:
Ingibjörg
Arnadóttir
í september 1987, voru þúsundir
gyðinga sem aðhyllast svokallaða
rétttrúaða gyðingatrú á vaktinni i
erjum sem kallaðar hafa verið
sabbat-striðið. Á myndinni sést
lögreglan leiða burt einn rétt-
trúaðann. í ísrael óttast margir að
erjurnar blossi upp aftur, nú eftir
kosningarnar.
Rétttrúnaðarbylgjan
breiðist út í ísrael.
Aldrei hafa heittrú-
aðir rabbíar haft
eins mikil áhrif og
nú. Margir ísraels-
menn óttast að
framtíðin gœti orðið
jafn gleðisnauð og í
íran undir stjórn
Ayatollah Khomeini.
KROSSFERD RARBÍANNA
í hverfi sem heitir Mea
Shearim í Jerúsalem, búa
gyðingar sem tilheyra strang-
trúuðum, eða rétttrúuðum
eins og þeir sjálfir vilja gjarn-
an kalla það. I hverfinu lifa
menn, eins og fólk gerði i
gyöingahverfum Austur-
Evrópu kringum áriö 1800.
íbúðir eru fátæklegar í
þessu yfirsetna hverfi. Fölar
krúnurakaðar konur með hár-
kollu eða klút yfir skallanum,
hengja föt til þerris. Þær eru
önnum kafnar, því það er
þeirra verk að sjá fyrir fjöl-
skyldunni og gæta sinna fjöl-
mörgu barna.
Veggspjöld aðvara konur,
sem eru „siðlausar i klæöa-
burði“ við þvi að koma inn í
hverfið. Hópar svartklæddra
manna ganga um og ræða
heimspekilegar spurningar
tilverunnar. Þeir vinna ekki,
heldur hafa þeir helgað lif
sitt því að lesa og læra hand-
rit gyðinga.
í Mea Shearim búa þeir
herskáustu, af 170.000 rétt-
trúuðum í Jerúsalem. Hverfið
hefur árum saman verið vin-
sælt í skoðunarferðum ferða-
manna. Mea Shearim er þó
ekki aðeins forvitnilegt fyrir
ferðamenn. Þar gera strang-
trúaðir gyðingar áætlanir um
krossferð gegn því ísrael sem
þeir telja alltof veraldlegt.
Hinir strangtrúuðu unnu sinn
stærsta sigur í koSningunum
á dögunum.
Þar sem ísrael er klofið í
tvær pólitískar fylkingar, geta
hinir rétttrúuðu haft afger-
andi áhrif.
Þar með getur draumur
hinna strangtrúuðu ræst, en
hann er, að hafa jafn mikil
áhrif í ísraelsku samfélagi og
prestarnir í Islamríkinu íran,
undir stjórn Khomeini.
KREDDUR
Árum saman var ímynd
ísrael út á viö, vinnusamur
maður, (kona) með skóflu í
hendi, þetta var einskonar
vörumerki Ísraelsríkis.
„Það var nýi Zionisminn
sem laðaði gyðinganatil
ísrael. Hugmyndafræöin var
tilkomin, vegna þess að ungu
gyðinqarnir í Austur-EvrÓDU.
neituðu að lifa lífinu eins og
hinir einangruðu, heittrúuðu
gyðingar. Zionisminn var bylt-
ing gegn „ghetto'Mífinu í
Austur-Evrópu. Mótmæli
gegn þeirri trú, að guð myndi
sjá um alla hluti. Nú eru hinir
strangtrúuðu á móti Zion-
ismanum, kreddufastir og
vilja engar málamiðlanir.
Hvernig eigum við að geta
búið sarnan?" spurði Yorman
Kaniuk í sjónvarpi nýlega, en
hann er þekktur ísraelskur
höfundur.
Á helgidegi gyðinga,
sabbat, stöðvast næstum allt
líf í ísrael. Strætisvagnar
hins opinbera aka ekki. Flest
kvikmyndahús, íþróttaklúbbar
og veitingahús eru lokuð,
þrátt fyrir að aðeins 20-25
prósent af 3,5 millj. gyðinga i
Israel séu mjög trúaðir.
Hinir rétttrúuðu vilja ganga
ennþá lengra. Eitt aðalmálið
er algjört bann við öllum
opinberum samkomum og
umferð á laugardögum. Einn-
ig bann við heimsóknum á
baðströndina á helgum degi.
Þeir vilja einnig að guð-
fræðistúdentar verði leystir
undan herskyldu og að rikið
auki stuðning við stofnanir,
þar sem menn kynna sér
gyðingleg fræði.
HVERJIR ERU GYÐINGAR?
Sú krafa hinna rétttrúuðu
sem er róttækust, er ný skil-
greining á því hver sé gyðing-
ur. í ísraelskum lögum telst
hver sá gyðingur sem á móð-
ur sem er gyðingur. Eða ef
hann eða hún snýst til hinna
þriggja greina í gyðingdómi:
Þær eru, hinir strangtrúuðu
(orthodox), hinir íhaldssömu
eða þeir sem vilja endurbæt-
ur og breytingar. Þeir strang-
trúuðu vilja breyta lögunum.
Þeir vilja, að i framtíðinni
verði það aðeins afturhvarf
til rétttrúnaðar, sem gildi.
Þessi uppástunga hefur vald-
ið miklum áhyggjum hjá
frjálslyndum gyðingum í
Bandaríkjunum.
GÖTUBARDAGAR
Hinir strangtrúuóu hafa
nokkrum sinnum komiö af
stað götubardögum viö þá
ísraeli sem sýna hvíldardeg-
inum þá óvirðingu að sækja
kvikmyndahús. Síðan erjurnar
við palestínumenn byrjuðu,
hefur róast í kringum hið svo-
kallaða „Sabbat stríð“ en
vegna velgengni hinna
strangtrúuðu í kosningunum
óttast margir ísraelsmenn að
til þeirra komi aftur.
Margir ísraelskir pólitíkus-
ar telja að hinir strangtrúuðu
rabbiar, muni ef þeir fá vilja
sínum framgengt, koma á
þjóðfélagi sem væri álíka
ánægju og gleðisnautt og
íranskt þjóöfélag er undir
stjórn Khomeini.
„Hinir strangtrúuðu munu
. innleiða aukna ritskoðun
bæði í útvarpi og sjónvarpi.
Visindaleg menntun mun
minnka. Trúarleg hugmynda-
fræði mun verða áherslumeiri
og það munu margir vinir
okkar erlendis óttast. Það
sem er þó kviðvænlegast, er
að vantrúaðir yrðu líklega
settir út i horn, einskonar
annarsflokks borgarar. Ef
leiðtogar framtíðarinnar,
verða úr flokki bókstafstrúar-
manna, hvað verður þá um
okkur hina?“ spyr Deddi
Zuzker, sem er þing.maður úr
flokki frjálslyndra.
BARNMARGIR
Sá hluti ísraelsku þjóðar-
innar, sem fjölgar sér hvað
mest, er á trúarsviðinu í hópi
orthodoxa. Þegar þeir sem
eru frjálslyndir í trúnni, eiga
að meðaltali 2,6 börn, þá eiga
frjálslyndir orthodoxar um 4
en strangtrúaðir yfir 8 börn.
„Okkur mun fjölga, því eins
og er, erum við þeir einu sem
flytjum til ísrael og einnig
vegna þess að við leyfum
ekki fjölskylduáætlun eða
fóstureyðingar“, segir
Menachim Porush rabbí, sem
er í hópi þeirra strangtrúuð-
ustu.
Það munu þó líða nokkur
ár, áður en draumur strang-
trúaðra verður að veruleika.
En kosningasigur strangtrú-
aðra, sýnir að Israel virðist
vera að nálgast þá bylgju
ofsa- og strangtrúar, stund-
um allt að því fornaldarlegrar
sem hefur flætt yfir Mið-
austurlönd á síðustu tíu árum.
(Det fri Aktuelt.)