Alþýðublaðið - 15.02.1989, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 15. febrúar 1989
7
ÚTLÖMD
EINMANA BARÁTTA
GEGN MAFÍUNNI
Paö dýrmætasta sem Marianna Rombola Gentile á er
mynd af sér, dótturinni og eiginmanninum, sem heldur ut-
an um axlir hennar. pau eru stödd á baðströnd á Suður-
Ítalíu.
Þetta var ein af síðustu mynd-
unum sem teknar voru af eigin-
manni hehnar. Skömmu síðar var
hann, Iæknir og bæjarstjóri í
Gioia Tauro á S-Italíu, myrtur —
fyrir utan heimili sitt. Hann var
að koma af bæjarráðsfundi.
Núna, átta mánuðum eftir ill-
virkið, berst ekkja hans einmana
og lífshættulegri baráttu við að
sanna að það hafi verið staðar-
mafían — Narangheta — sem
framdi ódæðið.
í þessari eftirgrennslan hefur
hún flett ofan af neti spillingar,
m.a. mútugreiðslna, meðal fyrr-
verandi starfsbræðra eiginmanns
sins, Vincenzo Gentile. Rann-
sóknardómurinn hefur lýst því yf-
ir að margir þessara pólitísku
starfsbræðra Gentile séu í nánu
sambandi við skipulagða glæpa-
starfsemi.
Sakir á hendur 46
Marianna Gentile hefur lagt
fram sannanir gegn 46 mönnum
og hafa þeir komið fyrir dóm.
Þeir eru ásakaðir fyrir ótrúlega
spillingu á ýmsum sviðum; fjár-
kúgun, mútugreiðslur og sjóða-
þurrð. Meðal sakborninga er bæi-
arráðið eins og það leggur sig.
Meintur morðingi Gentiles er
Cermelo Stillitano, frændi mafíu-
guðföður staðarins, Peppinos
Piromalli.
„Piromalli-fjölskyldan réð lög-
um og lofum í Gioia Tauro. mað-
urinn rninn vissi þetta og ég veit
það vegna þess að hann sagði mér
frá því,“ segir Marianna Gentile.
Neitaði að borga
Marianna Gentale telur að eig-
inmaður sinn hafi verið myrtur
vegna þess að hann neitaði að
greiða falsaða reikninga, sem stíl-
aðir voru á bæjarráðið og útgefn-
ir af pappírsfyrirtækjum fyrir
verk sem aldrei höfðu verið unn-
in. Þessi „pappírsfyrirtæki“ voru
öll á vegum glæpasamtakanna.
Upphæð „reikninganna" var 83
milljónir líra.
Nokkrum dögum fyrir morðið
fékk Vincenzo Gentile hótunar-
bréf þar sem sagði: „Ef þú borgar
ekki áttu eftir að iðrast þess.“
„Maðurinn minn var mafíunni
erfiður í skauti, því hann var heið-
arlegur og ófánlegur til að taka
þátt í spillingu. Þegar hann neit-
aði að greiða þessar 83 milljónir
líra var mælirinn fullur — og
ákveðið að myrða hann,“ sagði
frú Gentile.
„Þegar ég sá lík Vincenzo fyrir
utan heimili okkar tók ég strax þá
ákvörðun að finna þá sem sekir
voru um morðið. Ég hafði strax
ákveðnar grunsemdir, því Vin-
cenzo hafði sagt mér að ef eitt-
hvað kæmi fyrir sig væri það
ákveðinn hópur nranna sem ætti
sökina.“
Afgerandi atvik í rannsókn
hennar var þegar henni tókst að
lokka fyrrverandi vin og sam-
starfsmann Giuseppo Cento,
heim til sín og kom honum til að
leysa frá skjóðunni.
„Ég faldi segulbandstæki dótt-
ur minnar bak við bækur, og allt
sem hann sagði staðfesti grun
minn.“
Lögreglunni var afhent upptak-
an, sem var stór þáttur í að sak-
fella Cento sjálfan og pólitíska
samstarfsmenn.
Lögfræðingur frú Gentile segir
hana ó'trúlega hugdjarfa konu.
„Enginn hér um slóðir hefur þor-
að að tala svona opinberlega gegn
mafíunni nema hún.“
MariannaGentile hefur fengið
líflátshótanir og hún hefur lög-
regluvernd allan sólarhringinn.
Hún fer úr húsi einu sinni í viku til
að gera innkaup — í lögreglu-
fylgd. Hún segist vita að hún sé í
stöðugri lífshættu, en að hún sé
ekki hrædd. „ÖU deyjum við ein-
hvern tima, það sem niáli skiptir
er að deyja með virðuleika."
Aðaláhyggjur Maríönnu Gen-
tile eru vegna hinnar 17 ára dóttur
hjónanna, Natalínu. Hún fer 10
kílómetra leið í skóla á hverjum
morgni alltaf í fylgd lögreglu, en
er að öðru leyti eins og mamma
hennar, heldur sig innandyra.
„Eftir morðið á föður sínum
ákvað Natalína að verða dómari
og notar því tímann vel hér heima,
lærir og les sér til alla frítíma,“
Marianna Rombola Gentile á
heimili sínu, þar sem lögregl-
an er henni til verndar. Einka-
barn hennar, Natalina, 17
ára, fer aldrei út fyrir hússins
dyr nema i lögreglufylgd.
segir móðir hennar, og varir henn-
ar titra.
„Það er vissulega mér að kenna
að hún umgengst alltof lítið ann-
að fólk. Við þau fáu tækifæri sem
hún heimsækir ættingja eða vini
er ég svo áhyggjufull og hrædd
um liana að ég hringi og grátbið
hana að koma heim.“
Það er lítið um gestagang á
heimilinu, helst eru það nákomnir
ættingjar.
„Margir hringja og segjast dást
að hugrekki mínu, en fæstir þeirra
hafa hugrekki til að segja til
nafns. Afturá móti eru hinir ungu
vinir dóttur minnar óhræddir við
að styðja við bakið á okkur. Unga
fólkið er kjarkmeira en það eldra,
a.m.k. þar sem mafían á hlut að
máli.“ Mikið berst af bréfum og
símskeytum héðan og þaðan af
Ítalíu og jafnvel erlendis frá. Hót-
eleigandi i Gefn hefur boðið
mæðgunum í frí til Sviss.
„Það gefur augaleið að við get-
um ekki þegið þetta boð,“ segir
Marianna Gentile hrygg á svip.
„Það yrði martröð frá öryggis-
sjónarmiði."
Kona ársins
Þó fór hún eitt sinn I ferðalag
— ásamt kröftugu vopnuðu líf-
varðarliði. Það var til grisku eyj-
■arinnar Rhodos í desember sl. til
að taka á móti viðurkenningu
Evrópubandalagsins á „topp“
fundi þess. Þar var hún útnefnd
„Kona ársins“. Hún var kjörin úr
stórum hópi tilnefndra frá hinum
tólf meðlimaríkjum.
Frú Gentile segir að þegar rétt-
arhöldin yfir morðingjunum séu
afstaðin muni hún og Natalína
flytja frá Gioia Tauro og byrja
nýtt lif annars staðar.
„Það verður ekki auðvelt, hér
er ég fædd og uppalin og allir ætt-
ingjar mínir búa hér. Ég á þó ekki
annars úrkosta. Þessi barátta mín
er aðaltakmarkið í lífi mínu nú.
Þegar allt er afstaðið hef ég ekkert
að gera hér. Hér virðist ekki vera
rúm fyrir heiðarlegt fólk lengur.“
(Del fri Aktuelt. Stytt.)
SJÓNVARP
Frankie boy — sem Tony
Rome reynir hann að lita út
eins og harðjaxl. Stellingin
er á hreinu en andlitið kem-
ur upp um göfugmennsk-
una. Sæmileg afþreyingar-
mynd.
Stöð 2 kl. 23.35
Tony Rome
★ ★
Bandarísk, gerð 1967. Leik-
stjóri Gordon Douglas, aðal-
hlutverk Frank Sinatra, Jill St.
John, Richard Conte o.fl.
Fremur venjuleg einkaspæj-
aramynd sem sækir allt sitt í
Philip Marlowe og Chandler.
Sinatra leikur spæjarann og er
ráðinn af ótrúlega ríkum ná-
unga til að finna út afhverju
dóttir hans fannst haugdrukk-
in og meðvitundarlaus á
þriðja flokks hóteli eftir það
sem átti að vera saklaus kvöld-
skemmtan. Sæmileg flækja en
myndin líður fyrir það að Sin-
atra er tuttugu árum of gamall
í hlutverkið.
Sjónvarp kl. 20.35
Á tali
hjá
Hemma
Gunn
Uppúr hálf níu í kvöld hefst hinn sí-
vinsæli skemmtiþáttur sjónvarps-
ins., Á tali hjá Hemma Gunn. Ál-
þýðublaðið sló á þráðinn til um-
sjónarmanns, sem reyndar heitir
víst Hermann fullu nafni, og for-
vitnaðist um efni þáttarins.
„Ég hef reynt að hafa þetta fjöl-
breytt, það er mjög breiður hópur
sem fylgist með þessum þáttum og
þarf að höfða jafnt til barna sem
fullorðinna. í þættinum í kvöld
verður ekki brugðið út af þessari
venju, ég fæ til mín tvær hljóm-
sveitir, Langa Sela og Skuggana og
svo stráka frá Skagafirði, Jójó heita
þeir. Svo kemur bjöllukór úr Garð-
inum, krakkar sem spila á bjöllur,
hollenskur strákur kenrur og herm-
ir eftir Michael J ackson í miðju æð-
inu öllu. Endapunkturinn verður
svo Valgeir Guðjónsson, hann
frumflytur lag sem hann gerði fyrir
umferðarráð í tilefni af bjórdegin-
Hermann Gunnarsson fyrir ein-
hverjum árum síðan. Hann verð-
urm.a.meðþáttþann i.marsog
þá má búast við ýmsu sem ekki
getur talist venjulegt. Verður
heldur enginn venjulegur dag-
ur.
um mikla og er viðvörun til fólks
um að blanda ekki saman akstri og
áfengi. Að auki er rétt að nefna
brandara — og söngvarakeppni
sem eru mjög vinsælar. Það er
greinilegt að það hefur fallið í mjög
góðan jarðveg hjá fólki að opna
sjónvarpið svolítið — fólk hefur
greinilega mikinn áhuga á að koma
fram. Það rná kannski nefna það að
ég verð með þátt 1. mars — það
verður væntanlega eitthvað mjög
frikað — mikið af erlendum
skemmtikröftum og öðruvísi en
vant er.“ Greinilega nóg um að vera
í Á tali hjá Hemma Gunn. Bara að
setjast fyrir frarnan skjáinn og
fylgjast með.
Sjónvarp kl. 22.10
HÚSID
íslensk, gerð 1983. Leikstjóri Eg-
ill Eðvarðsson, aðalhlutverk Lilja
Þórisdóttir og Jóhann Sigurðar-
son.
Ágætlega heppnuð mynd á okkar
mælikvarða. Öll tæknivinna ör-
ugg og handrit nokkuð þétt. Tekin
meira og minna í stúdíói en ekki
úti við eins og flestar íslenskar
myndir. Að auki gengur drauga-
sagan upp í myndinni — endirinn
hinsvegar hálf snubbóttur. Prýði-
leg skemmtan fyrir þá sem ekki
hafa séð hana áður.
STÖÐ2
16.30 Fræösluvarp. 1. Astekar. 2. Umræð- an. 3. Alles Gute. 4. Entrée Libre. 15.45 Santa Barbara. Bandariskur fram- haldsþáttur. 16.30 Bestur árangur. Personal Best.
1800 18.00 Töfragluggi Bomma. Umsjón Árný Jóhannsdóttir. 18.50 Táknmálsfréttir. 18.35 Maraþondansinn. Verkið er byggt á sögunni „They Shoot Horses, Don't They?“ i þessum þætti er gerð grein fyrir uppruna og bakrunni leiksins.
1900 5 19.00 Poppkorn. Umsjón Stefán Hilmarsson. 19.25 Föðurleifð Franks (18). (Franks Place). 19.54 Ævintýri Tinna. Feröin til tunglsins (22). 20.00 Fréttir og veður. 20.35 Á tali hjá Hemma Gunn. 21.40 íkorni á undanhaldi. (The Case of the Vanishing Squirrel). 22.10 Húsið. islensk bió- mynd frá 1983. Leik- stjóri Egill Eðvarðs- son. Aðalhlutverk Lilja Þórisdóttir og Jóhann Sigurðar- son. Tvær ungar manneskjur fá leigt gamalt hús og þykj- ast hafa himin höndum tekið. 19.19 19.19. 20.30 Heil og sæl. Betri heilsa. í þessum tokaþætti verða sýnd brot úr eldri þáttum og viðtöl við ' ýmsa frammámenn um gildi forvarna. 21.05 Undir fölsku flaggi. (Charmer). 22.00 Dagdraumar. Yest- erday's Dreams. Framhaidsmynd I sjö hlutum. Fimmti þáttur. 22.55 Viðskipti. íslenskur þáttur um viöskipti og efnahagsmál.
2300 23.00 Seinni fréttir. 23.10 Húsiö. Framhaid. 23.55 Dagskrárlok. 23.25 Tony Rome. Tony er ungur og glæsileg- ur piparsveinn sem býr einsamall um borð í lltilli skemmtisnekkju við strendur Flórlda. Ekki við hæfi barna. 01.10 Dagskrárlok.