Alþýðublaðið - 15.02.1989, Qupperneq 8
Miövikudagur 15. febrúar 1989
Afvopnunartillögur NATO lagðar fram í Vín í byrjun nœsta mánaðar:
ROTTÆKAR TILLOGUR UM JAFNVÆGI
BYGGÐAR Á MUN MINNIVÍGBÚNAOI
segir Jón Baldvin utanríkisráðherra. Grundvallaratriði að ekkert ríki á meginlandi Evrópu hafi á að skipa
herliði og herhúnaði sem dugi til skyndiárásar á önnur ríki.
Afvopnunartillögur sem
samþykktar voru á ráö-
herrafundi NATO í byrjun
desember verða lagðar
fram í byrjun næsta mán-
aðar í afvopnunarviðræð-
um í Vin. Jón Baldvin
Hannibalsson utanríkis-
ráðherra segir tillögurnar
þær róttækustu sem hafi
verið settar um stöðugleika
og jafnvægi í álfunni á
grundvelli mun minni víg-
búnaðar en nú er.
Grundvallaratriði til-
lagnanna er, að ekkert ríki
á meginlandi Evrópu megi
hafa her eða vopnabúnaði
á að skipa, umfram það
sem nánar skilgreindir
mælikvarðar kveða á um
að nægi miðað við eðlilega
varnarþörf. Þetta þýðir að
ekkert riki hafi á að skipa
herliði og herbúnaði, sem
dugi til fyrirvaralítillar
skyndiárásar á önnur riki.
Að sögn Jóns Baldvins
fæli þetta t.d. í sér að Sov-
étmenn yrðu að fækka
skriðdrekasveitum sínum
úr 50 þúsund i u.þ.b. 12
þúsund og að ekkert ríki
hafi herliði á að skipa inn-
an landamæra annars rík-
is, umfram það sem
samræmist eðlilegum
skuldbindingum um varn-
arþörf og eftirlit af örygg-
isástæðum.
„Grunvallaratriði í þess-
um tillögum er, að ekkert
riki hafi á að skipa herliði
og herbúnaði sem dygði til
fyrirvaralítillar skyndi-
árásar á önnur ríki, “ segir
Jón Baldvin. „Þessar til-
lögur gagna mun lengra en
frumkvæði Gorbastjovs
gerði í lok fyrra árs, þegar
hann ákvað einhliða að
fækka í herliði Austur-Evr-
ópu og skriðdreka-
sveitum."
Jón Baldvin segir að Atl-
antshafsbandalagið hafi
metið þetta skref mjög
mikils, en það breytti engu
um að yfirburðir Sovét-
manna á sviði hefðbund-
inna vopna væri gríðarlega
miklir.
Utanríkisráðherrra sagði
að bjartsýnustu menn
gerðu sér jafnvel vonir um
að árangur næðist í þessum
afvopnunarviðræðum á
þessu ári. Sovétmenn hafa
ekki gert heyrum kunnugt
um sínar tillögur. Þeir hafa
hins vegar í fyrsta sinn birt
samanburð af hálfu Var-
sjárbandalagsins á vopna-
búnaði og hernaðarstyrk
Atlantshafsbandalags og
Varsjárbandalags, sem þeir
tóku þó fram að væri ekki
grundvöllur að þeirra til-
lögusmíð í Vín.
Þegar Jón Baldvin
ræddi við James A. Baker í
Leifsstöð s.l. laugardag,
gerði hann honum grein
fyrir viðræðum sínum við
leiðtoga kommúnista-
flokksins í Póllandi, sem
og andstöðuöfl þar í landi
og hverjar vonir bundnar
eru við áframhaldandi
bætt samskipti austurs og
vesturs. „Um nýja og stóra
áfanga til að losa þessi ríki
í Mið-og Austur-Evrópu úr
spennitreyju þeirra úreltu
stjórnarhátta sem þröngv-
að var upp á þau í lok
stríðsins," sagði Jón Bald-
vin Hannibalsson utanrík-
isráðherra.
Utanríkisnefndir SUJ 09 SUS taka höndum saman um
fund um ,,varaflugvallarmélið“. Ari Edwald, i stjórn utan-
ríkisnefndar SUS, og Magnús Á. Magnússon formaður ut-
anríkisnefndar SUJ segja tiiganginn ekki að túlka sjón-
armið samtakanna, heldur skapa umræðu um málið. A-
mynd/E.ÓI.
Úðabrúsar:
Innflutningsbann frá
og með næstu áramótum
Vonast til að íslendingar verði lausir við
úðabrúsa innan tveggja ára.
B-keppnin í
Frakklandi:
Ekki sýnt beint .
frá undanriðlum
íslenska handbolta-
landsliðið leikur sinn
fyrsta ieik í undankeppni
B-keppninnar í Frakka-
landi í dag.
Sjónvarpið sýnir ekki
beint frá undanriðlum.
Að sögn Bjarna Felixson-
ar íþróttafréttamanns á
Sjónvarpinu er ástæðan
sú, að leikirnir eru ekki
teknir upp ytra. ísland
mætir landsliði Búlgaríu í
dag, Með íslendingum í
riðli eru auk Búlgara,
landslið Rúmena og Kú-
vaít. A fimmtudag leika
ísiendingar við Kúvaít, en
á laugardag við Rúmena.
Leikir íslenska landsliðs-
ins fara fram í Cherbourg
í Frakklandi. Sjónvarpið
sýnir beint frá milliriðl-
um, sem hefjast á mánu-
dag. Að sögn Bjarna Fel-
ixsonar hefur þegar verið
gert ráð fyrir fjórum út-
sendingum. Áætlanir
Sjónvarpsins ganga út
frá, að Island lendi í öðru
sæti í undanriðli.
VEÐRIÐ
í DAG
Norðanátt um allt
land. Hvassviðri fyrst,
en lægir smém saman
vestan til þegar liður á
daginn. Éljagangur um
allt norðanvert landið,
en léttskýjað syðra.
Kólnandi veður. Frost
7—12 stig.
„ Varaflugvallarmálið“
Ungkratar og
ungir
sjálfstæðismenn
halda sameigin-
legan fund
Ungir jafnarmcnn og ung-
ir sjálfstæðismenn halda
sameiginlegan fund um vara-
flugvallarinálið á laugardag,
í Holiday Inn klukkan 15.00
Það eru utanríkisnefndir
SUJ og SUS sem hafa veg og
vanda að fundinum.
Að sögn Magnúsar Árna
Magnússonar formanns ut-
anríkisnefndar SUJ komu
fulltrúar SUS að máli við
SUJ um fundarhaldið.Magn-
ús sagði að fundurinn væri
ekki til þess fallinn að túlka
sjónarmið þessara samtaka,
heldur væri tilgangurinn
fyrst og fremst að fá fram
upplýsingar og umræðu um
málið.
Ari Edwald stjórnarmað-
ur í utanríkisnefnd SUS tók í
sama streng. „Það er kominn
tími til að fá málið á dagskrá
í þjóðfélagsumræðunni.“
Ari sagði að leitað hefði ver-
ið til SUJ vegna þess, að Al-
þýðuflokkurinn hefði átt
mesta samleið með sjálf-
stæðismönnum í utanríkis-
málum svo og varöandi
sjónarmið um þátttöku
Mannvirkjasjóðs NATO við
byggingu varaflugvallar.
Framsögumenn á fundin-
um eru: Jóhann Helgi Jóns-
son framkvæmdastjóri flug-
valladeildar Flugmálastjórn-
ar, sem ræðir spurninguna;
„Hvað er varaflugvöllur og
hverju á hann að þjóna“.
Árni Gunnarsson alþingis-
maður fjallar um þýðingu
varaflugvallar sem útflutn-
ingshafnar og fyrir sam-
göngur á landsbyggðinni.
Karl Steinar Guðnason al-
þingismaður fjallar um
byggingu varaflugvallar með
þátttöku Mannvirkjasjóðs
Atlantshafsbandalagsins og
viðhorf Alþýðuflokksins.
Matthías Á. Mathiesen al-
þingismaður fjallar um þátt-
töku Mannvirkjasjóðs og
viðhorf Sjálfstæðisflokks-
ins.
Hver framsögumaður hef-
ur 10-15 mínútur til umráða,
en síðan taka við pallborð-
sumræður. Geir H. Haarde
alþingismaður stjórnar pall-
borðsumræðum, en ráð-
stefnustjóri er Magnús Árni
Magnússon formaður utan-
ríkisnefndar SUJ.
Heilbrigðis- og tryggingar-
málaráðuneytiö hefur í sam-
ræmi við ákvörðun rikis-
stjórnarinnar og að fengnum
tillögum Eiturefnanefndar
og Hollustuverndar ríkisins
gefið út reglugerð um bann
við innflutningi og sölu úða-
brúsa, sem innihalda tiltekin
drifefni (ósoneyðandi efni).
Samkvæmt reglugerðinni
tekur innflutningsbann gildi
um næstu áramót en sala
verður leyfð fram til 31. maí
1990. Menn hafa því háift ár
til að losa sig við þær birgðir
sem þeir kunna að hafa á lag-
er. Ingimar Sigurðsson,
skrifstofustjóri í Hejlbrigðis-
ráðuneytinu segir að menn
geri sér vonir um að um ára-
mótin 1990- 91 verði íslend-
ingar lausir við þessa skað-
legu úðabrúsa.
Þegar reglugerðin um inn-
flutningsbann tekur gildi um
næstu áramót verður heimilt
að selja úðabrúsana í sex
mánuði, eða fram til 31. maí
1990. Frá og með 1. júní í ár
verður hinsvegar aðeins leyfi-
legt að selja brúsana ef á
þeim er álímdur miði eða
önnur aðvörun þar sem
greinilega er tekið fram að
þeir eyði ósónlaginu. Heil-
brigðiseftirlit sveitarfélag-
anna, undir yfirumsjón
Hollustuverndar, er falið að
hafaeftirlit með framkvæmd
laganna. Sömuleiðis er þeim
falið að annast förgun á úða-
brúsum, einnig í samráði við
Hollustuvernd.
Ingimar Sigurðsson í Heil-
brigðismálaráðuneytinu
sagði í samtali við Alþýðu-
blaðið að þetta legði ákveðn-
ar skyldur á herðar heilbrigð-
iseftirlit á hverjum stað. Því
væri skylt að leiðbeina fólki
um förgun og myndi fólk
eiga möguleika á að snúa sér
til heilbrigðisfulltrúa og fá
þar leiðbeiningar um hvernig
það ætti að bera sig að, elleg-
ar þá að heilbrigðisfulltrúar
myndu saf na brúsunum sam-
an og sjá sjálfir um eyðitig-
una.
Varðandi spurninguna um
það hvenær íslendingar yrðu
lausir við úðabrúsana að
fullu sagði Ingimar að erfitt
væri að fullyrða nokkuð í
þessu sambandi. Menn von-
uðust þó til að ná þessu
marki um áramót 1990-91.
Ingimar sagði íslendinga
ætla sér að taka rösklega á
þessu máli. í norrænum sam-
þykktum sem tekið er mið af
kemur fram að stefnt er að
því að minnka notkun á óson
eyðandi efnum um fjórð-
ung fyrir árið 1990. Þegar
baráttunni við úðabrúsana
lýkur verður næsta skref að
takasta á við ýmis önnur efni
sem eyða ósónlaginu, t.d. fre-
on sem mikið er notað í
frystiiðnaði. Ingimar sagði
að það væri stærra vanda-
mál, að vísu væru önnur efni
til sem ekki eyða ósónlaginu
en spurning væri hve langan
tíma tæki að koma þeim í
gagnið.