Alþýðublaðið - 07.04.1989, Qupperneq 8
Pólarsíld á
Fáskrúðsfirði:
Föstudagur 7. apríl 1989
Siglt með
allan afla
til Færeyja
Svipað verð og á
íslensku mörkuð-
unum, en mun
minni kostnaður.
Bátar Pólarsíldar á Fá-
skrúrtsfirði hafa frá áramót-
um selt allan sinn afla í
Færeyjum. Hallgrímur
Bergsson hjá Pólarsíld segir
verðið svipað og á mörkuð-
um á Reykjavikursvæðinu,
en kostnaðinn mun minni.
Töluvert atvinnuleysi hef-
ur verið á Fáskrúðsfirði síð-
ustu mánuði, en eftir að
annar togari kaupfélagsins
kom til landsins eftir endur-
byggingu er vonast til að úr
rætist á næstunni.
Hallgrímur segir að ekki
þurfi að greiða neinn lönd-
unarkostnað í Færeyjum auk
þess sem ís sé settur ókeypis
um borð. Eini kostnaðurinn
sem Pólarsíld þarf að greiða
er IVo þóknun til þess aðila
sem skipuleggur þjónustu
fyrir bátana í Þórshöfn.
Hallgrímur bendir á að sigl-
ing til Færeyja sé um 8 tímum
styttri en til Hafnarfjarðar.
Þetta spari stórfé, ekki síst i
olíu.
Bátarnir tveir, Guðmund-
ur Kristinn SU 404 og Þorri
SU 402, eru báðir um 200
tonn.
Miðstjórnarfundur
A Ibýðubandalags:
Gagnrýnis-
tillögur
felldar
Miðstjórn Alþýðubanda-
lagsins fjallaði um launa-
stefnu formannsins,
fjármálaráðherra, á löngum
fundi í fyrrakvöld. Tillögur
sem fólu i sér harða gagnrýni
á formanninn voru felldar
með yfirgnæfandi meiri-
hluta i atkvæðagreiðslum.
í ályktun fundarins er vís-
að til þingsályktunartillögu
Alþýðubandalagsins frá því
vor, þar sem m.a. er lagt til að
lögbundin lágmarkslaun fyr-
ir dagvinnu verði 45-50 þús-
und krónur á mánuði. Þá er
lýst stuðningi við samþykkt
verkalýðsmálaráðs flokksins
um að kaupmáttur síðustu
samninga verði endurheimt-
ur, fullar verðbætur á laun
og trygga atvinnu um allt
land. Að auki er minnt á
stefnu ríkisstjórnarinnar um
verulega lækkun raunvaxta.
Til fundarins var boðað
vegna skriflegrar óskar frá
hópi miðstjórnarmanna,
sem vildi kryfja launastefnu
fjármálaráðherrans til
mergjar.
Kröfuspjöldum var haldlö á lofftl á fundl Ki I Tompl-
arahttllinnl. A-mynd/E.OI.
500 kennarar
á baráttufundi
Kennarar í Kennarasambandi íslands fengu
sér frí frá vinnu í gær til að sýna félögum
í HÍK stuðning í verkfalli. Fundir voru
haldnir í skólum víða á þéttbýlisstöðum og
í Reykjavík komu 500 kennarar saman til
fundar í Templarahöllinni við Eiríksgötu.
Þaðan var gengið á fund Ólafs Ragnars
Grímssonar fjármálaráðherra og honum
afhentar ályktanir og áskoranir kennara
um allt land.
Biðstaða h já ASI og VSI
VSÍ VILL RÆDA SKATTALÆKKUN
Qunnar J. Frlttrlkason, VSi 09 HJttrtur Eiriksson,
Vlnnumálasambandlnu, bara aaman bsakur alnar
fyrlr fund matt róðhorrum. A-mynd/E.ÓI.
ASÍ biður eftir því sem
kemur út úr samningum
BSRB og ríkisins. VSÍ óttast
hinsvegar þá niðurstöðu, tel-
ur sig alls ekki geta greitt
sömu kauphækkanir og rjk-
ið virðist tilbúið að gera. Ás-
mundur Stefánsson, forseti
ASÍ, sagði í viðtali við Al-
þýðublaðið i gær að engin
hreyfing fengist á málin fyrr
en sæist fyrir endann á samn-
ingum BSRB og rikisins.
Guðmundur J. Guðmunds-
son, sagöi hinsvegar að stað-
an væri þannig að tala mætti
um nokkurskonar einskins-
mannsland. Hann sagði og
Ijóst að frumkvæðið væri>
ekki hjá ASÍ, hvar svo sem
það væri.
Þórarinn V. Þórarinsson,
framkvæmdastjóri VSÍ, var
svartsýnn þegar Alþýðublað-
ið ræddi við hann í gær.
Hann sagði stöðuna ó -
breytta.beðið væri eftir rík-
inu: „Af okkar hálfu sjáum
við reyndar ekki hvernig á að
standa undir þeim launa-
hækkunum sem ríkið virðist
tilbúið að greiða. Ríkið er
engin sjálfsaflastofnun og
getur aðeins tekið þessa pen-
inga með því að hækka
skatta.“
Varðandi framtíðina sagði
Guðmundur J. að ASÍ væri
ekki stætt á að semja um
minna heldur en BSRB
semdi um fyrir sína umbjóð-
endur. Þórarinn V. og aðrir
forsvarsmenn vinnuveitenda
hafa hinsvegar marglýst því
yfir að engir fjármunir séu til
í fyrirtækjum landsmanna til
að greiða slíkar launahækk-
anir. Framámenn í sjávarút-
vegi hafa sömuieiðis marg-
lýst því yfir að þær kaup-
hækkanir sem ríkið hefur
talað um við BSRB væri
dauðadómur yfir sjávarút-
veginum. Þar á bæ hafa
menn, sem og oft áður farið
fram á gengisfellingar en þær
eru eitur í beinum Iauna-
manna, enda var það eitt
skilyrða BSRB að gengið
yrði ekki fellt á samningstím-
anum. ögmundur Jónasson,
formaður BSRB, sagði við
Alþýðublaðið að BSRB teldi
sig hafa fullvissu fyrir því að
gengið yrði ekki fellt á samn-
ingstímanum.
Þórarinn sagði ennfremur
að VSÍ hefði áhuga á að
ræða skattalækkanir á fyrir-
tæki við ríkisvaldið, engar
viðræður um slíkt hafa þó
enn farið fram: „Ríkisvaldið
hefur boðið þessa samninga
og enn höfum við ekkert séð
frá þeim annað en skatta-
hækkanir. Það er því Ijóst að
það verður, þegar launa-
hækkanir streyma til fólks,
að gera eitthvað fyrir fyrir-
tæki i landinu svo þau geti
borið þessar hækkanir
uppi.“
Itttiaðarmenn voru I geer att stttrfum á veantanlegrl skrlfstofu Quðjóns B. Ólafssonar
forstjóra. Quðjón flytur Inn I nmstu vlku. A-mynd/E.ÓL.
SÍS FLYTUR
Höfuðstöðvar SÍS skipta
nú um stað eftir að hafa verið
í tæp 70 ár á Sölvhólsgötu.
Nýju húsakynnin eru á
Kirkjusandi, þar scm áður
var frystihús í eigu Sam-
hundsins.
Sjávarafurðadeildin er
flutt og í dag verður lokið við
að flytja, búvöru- og fjár-
hagsdeiídina. í næstu viku
verður flutningum lokið frá
Sölvhólsgötunni, en eftir
mánuð flytur skipadeildin
frá Lindargötu.