Alþýðublaðið - 12.04.1989, Page 1
BHMR og ríkið
Rætt um launalið
til skamms tíma
Staðan í kjaradeilu
BHMR og ríkisins er óljós
sem stendur. Fyrir u.þ.b. viku
bauð BHMR upp á þriggja
ára samning þar sem inn i
voru faldar miklar kaup-
kröfur. Samningarnir núna
snúast um langtímasamning
varðandi ýmis réttindamál,
hinsvegar vill ríkið ekki
semja um launamálin nema
til skamms tima.
Eitthvað hefur miðað í
þeim málum sem rædd hafa
verið eftir því sem Alþýðu-
blaðið kemst næst. Samn-
inganefndir deiluaðila hafa
ræðst við undanfarna daga,
mestan part óformlegir
vinnufundir. Rætt hefur ver-
ið um þau atriði sem ríkið er
tilbúið að semja um til lengri
tíma og jafnframt um launa-
málin en ríkið vill aðeins
semja um laun til skamms
tíma. Einnig hafa önnur mál
verið rædd en þau sem bein-
línis heyra undir kjarasamn-
inga.
A Iþýðuflokksfélag Reykjavíkur:
FORYSTAN RÆDIR
FLOKKSSTARFIÐ
Flokksstarfið í Reykjavík
verður til umfjöllunar á
fundi sem Alþýðuflokks-
félag Reykjavíkur heldur í
kvöld í félagsmiðstöð flokks-
ins við Hverfisgötu. Forystu-
menn flokksins, Jón
Baldvin Hannibalsson, for-
maður og utanríkisráðherra,
Jóhanna Sigurðardóttir
varaformaður og félagsmála-
ráðherra, Jón Sigurðsson
viðskipta- og iðnaðarráð-
herra og Birgir Árnason for-
maður SUJ mæta. Fundur-
inn hefst klukkan 20.30.
Grásleppuvertíð hafin.
Vertíöin hefur farið mjög vel af stað, sérstaklega hefur veiöin
verið góð á NA-iandi, allt að 11 tunnur í vitjun.
A mynd/E.ÓI.
Fimm stjórnarmenn í Húsnœðisstjórn
gefa neikvœða umsögn um húsbréfafrumvarpið
„Undarleg vinnubrögö“
segir Rannveig Guðmundsdóttir formaður húsnœðisstjórnar.
„Þetta eru afskaplega
undarleg vinnubrögð,“
segir Rannveig Guð-
mundsdóttir formaður
stjórnar Húsnæðisstofn-
unar ríkisins um umsögn
sem 5 stjórnarmenn af 10
sendu frá sér í gær um hús-
bréfafrumvarpið. Rann-
veig segir að húsnæðis-
málastjórn hafi verið ein-
huga um að gefa ekki um-
sögn um frumvarpið og
hafi bókun þess efnis verið
samþykkt samhljóða þegar
málið var tekið fyrir á dög-
unuin.
„í stjórninni eru sterkir
talsmenn þeirra skoðana
sem uppi eru um húsbréfa-
frumvarpið. Það var Ijóst
að það yrði mjög sundur-
leit umsögn sem frá stjórn-
inni kæmi. Spurningin var
hvort stjórnin ætti að fara
að sitjast niður í starfs-
hópa til að gera umsögn,
eða umsagnir, sem yrðu
hvorki fugl né fiskur vegna
mjög skiptra skoðana. En í
ljósi þess sem síðan gerðist
spyr maður sig hvort það
hafi verið viturlegt,“ sagði
Rannveig þegar blaðið
spurði hana hvort ekki
hefði verið eðlilegt að hús-
næðisstjórn gæfi umsögn
um frumvarpið.
„Það var einhuga niður-
staða að vegna mjög
skiptra skoðana gæfi hús-
næðismálastjórn ekki um-
sögn. Mig óraði því ekki
fyrir þvi að 5 fulltrúar í
stjórn tækju sig saman eft-
ir á og sendu frá sér um-
sögn,“ sagði Rannveig.
Hún vildi ekki svara ein-
staka gagnrýni sem fram
kemur í umsögninni, því
þegar blaðið náði tali af
henni i gærkvöldi hafði
hún ekki séð plaggið að-
eins heyrt fréttir í útvarpi.
Nánar er fjallað um um-
sögn fimmmenninganna á
bls 3
Ögmundur Jónasson um gengisfellingartal
99
ERUNI SALLAROLEG
ii
Halldór Ásgrímsson, sjáv-
arútvegsráöherra, lýsti því
yfir á Alþingi í fyrradag, að
óhjákvæmilegt væri að fella
gengið á þessu ári. Sjávarút-
vegurinn mvndi ekki lifa án
þess. í nýgerðum kjarasamn-
ingi BSRB fólst vilyrði ríkis-
stjórnarinnar um að gengið
yrði ekki fellt á samningstím-
anum nema í brýnustu nauð-
ir ræki. Ögmundur Jónas-
son, formaður BSRB, segir
þá stund ekki komna og
sagði samtökin sallaróleg
þrátt fyrir að menn blésu á
þennan hátt, eins og hann
oröaði það.
Ögmundur sagðist telja
gengisfellingu úrelta aðferð,
hugsaða fyrst og fremst sem
skattlagningu á almenning.
„Ég hélt að menn væru búnir
að fá sig fullsadda af þessum
gengisfellingahrossalækn-
ingum sem engu hafa skilað
og miða aðeins að því að
færa peninga frá launafólki
til allra fyrirtækja, óháð
stöðu þeirra. Ég hefði haldið
að menn myndu fremur vilja
skoða einstök fyrirtæki og
meta stöðuna út frá því.“
Um viðbrögð við samning-
unum sagði Ögmundur að
sér þættu þau undarleg, eig-
inlega kleyfhuga. Annars-
vegar fordæmdu menn
samninginn fyrir að vera á of
háum nótum, hinsvegar fyrir
að vera á of lágum nótum.
„Þetta bendir til þess að við
höfum fetað það einstigi sem
veitt var til í þessari stöðu."
Um orðróm þess efnis að
samningurinn hefði gengið
svo hratt sem raun bar vitni
vegna sérstakrar vináttu eða
samkomulags fjármálaráð-
herra og formanns BSRB
sagði Ögmundur: „Mér þyk-
ir þetta afar undarleg sögu-
skýring og eiginlega verið að
vanmeta og vanvirða allt það
starf sem samninganefndir
unnu með því að eigna þetta
allt einstökum mönnum.
Þessi kenning er af einhverj-
um undarlegum toga spunn-
in.“
Þingmenn vilja afnema
eigin sérréttindi
„Afsali þingmaður sér
þingmennsku og hverfi til
annarra starfa fellur réttur
hans til biðlauna niöur".
Þannig hljóðar frumvarp til
laga um breytingu á lögum
um þingfararkaup, sem þing-
menn fimm stjórnarmála-
flokka liafa mælt fyrir á Al-
þingi. Með þessu vilja þing-
mennirnir afnema sérréttindi
sem þingmenn hafa notið
hingað til.
í vetur greindi PRESSAN
frá því að Sverrir Hermanns-
son hefði þegið 6 mánaða
biðlaun, þótt hann hefði þeg-
ar tekið við embætti banka-
stjóra í Landsbankanum.
Samkvæmt núgildandi
lögum um þingfararkaup al-
þingismanna nýtur alþingis-
maður biðlauna er hann
hættir þingmennsku, í þrjá
mánuði eftir eins kjörtíma-
bils setu, en í sex mánuði eftir
tíu ára eða lengri. Lögin.
kveða hins vegar ekki sér-
staklega á um að það hvort
alþingismaður skuli njóta
biðlauna ef hann afsalar sér
þingmennsku og tekur við
öðru starfi.
í greinargerð með frum-
varpinu segja flutnings-
menn, að eftir upphaflegum
tilgangi hafi ekki verið ætl-
unin að þingmenn sem segðu
af sér þingmennsku og
hverfa til annarra launaðra
starfa, nytu biðlauna. „Tíðk-
ast hvorki á almennum
vinnumarkaði né hjá ríkinu
að sá er segir upp störfum
njóti launa eftir að hætt er
störfum. í frumvarpi þessu
er því lagt til að kveðið sé
skýrt á um að réttur til bið-
launa falli niður afsali þing-
maður sér þingmennsku fyr-
ir lok kjörtimabils og taki við
öðru starfi. Þessi breyting
hefur hins vegar engin áhrif á
rétt þingmanna til biðlauna
að kjörtímabili loknu, „ seg-
ir í greingargerðinni.
Flutningsmenn eru: Jón
Helgason, Framsóknar-
flokki, Guðrún Agnarsdótt-
Herby Neubaeher, blaða-
niaður við V-Þýska fiski-
fréttatímaritiö Fisch Maga-
zine í Hamborg, segir í við-
tali við Alþýðublaðið að
„Lífsbjörg í norðurhöfum",
heimildarmynd Magnúsar
Guðmundsonar, sé léleg
blaðamennska.
ir, Kvennalista, Karl Steinar
Guðnason Alþýðuflokki,
Salome Þorkelsdóttir, Sjálf-
stæðisfiokki og Margrét Frí-
mannsdóttir Alþýðubanda-
laginu.
Neubacher segir enn frem-
ur að hvalamálið sé mikið til-
finningamál og að það hafi
skaðað hagsmuni islands
mikið hversu íslensk stjórn-
völd voru sein að bregðast
við áróðri og efnahagsþving-
unum grænfriðunga.
Sjá bls. 3.
Blaðamaður þýsks fiskitímarits:
Hvalamynd Magnúsar
léleg blaðamennska