Alþýðublaðið - 19.04.1989, Page 1
Viðrœðunefnd ASI:
Félögin afli sér
verkfallsheimilda
Viðrœður í strand og deilan kom-
in til sáttasemjara
Alþýðusambandið telur
tilgangslaust að ræða lengur
við atvinnurekendur, hefur
vísað kjaradeilu aðilanna til
ríkissáttasemjarar og hvetur
aðildarfélög sín til að afla sér
verkfallsheimilda.
Þessi ákvörðun var tekin
eftir fund viðræðunefndar
ASÍ við atvinnurekendur í
gær, þar sem þeir höfnuðu
alfarið að ganga til samn-
inga. Varð samkomulag um
að vísa deilunni til sáttasemj-
ara og hvetur viðræðunefnd-
in félögin til að bregðast
skjótt við og sýna vilja sinn
til að knýja á um samninga
með því að afla sér nú þegar
verkfallsheimilda.
Albingi:
Albert Guðmundsson
fékk laun arftakans
Samræmdu prófin
verða skólapróf
Prófin lögð fyrir þar sem KI-
kennarar eru í vinnu
Benedikt Bogason fœr engin laun fyrir þing-
inennsku í apríl, þar sem Albert sat þrjá fyrstu
daga mánaðarins. Að óbreyttu færAlbert einn-
ig 810 þúsund krónur í biðlaun.
Albert Guðmundsson
fékk laun fyrir þing-
mennsku í apríl, þótt hann
hætti þingmennsku á
þriðja degi mánaðarins.
Þetta "gerir að verkum að
Benedikt Bogason, sem
tók sæti hans á Alþingi,
fær engin laun fyrir apríl-
mánuð. „Þetta mál hefur
verið i athugun. Lögin eru
ótvíræð um þetta og því
má ekki búast við annarri
afgreiðslu,“ sagði Friðrik
Ólafsson skrifstofustjóri
Alþingis þegar Alþýðu-
blaðið bar þetta undir
hann. Albert Guðmunds-
son fær að óbreyttu greidd
biðlaun um næstu inán-
aðamót og næstu sex mán-
uði, þótt hann liafi þcgar
tekið við starfi sendiherra.
Frumvarp sem lagt var
fram í efri deild af frum-
kvæði forseta þingsins, fel-
ur í sér að biðlaun falli nið-
ur segi þingmaður af sér og
taki annað launað starf.
Nái frumvarpið fram að
ganga fyrir mánaðamót
tekur það gildi strax og
ekkert verður af biðlaun-
um til Alberts Guðmunds-
son. Þegar Sverrir Her-
mannsson afsalaði sér
þingmennsku á sl. ári og
tók við starfi bankastjóra
fékk hann biðlaun í 6 mán-
uði.
Samkvænit lögunum
fær þingmaður sem setið
hefur eitt kjörtímabil
þriggja mánaða biðlaun,
en þeir sem setið hal'a 10 ár
eða lengur fá 6 mánuði. Að
óbreyttu fær Albert Guð-
ntundsson því 810 þúsund
krónur á næstu ntánuðum,
þótt hann hafi þegar tekið
við öðru starfi. Auk þess
hefur hann þegar þegið 135
þúsund króna þingmanns-
laun og 6.700 krónur í
ferðastyrk fyrir aprílmán-
uð, þótt hann hafi ekki á
þingi setið nema þrjá
fyrstu daga mánaðarins.
Albert kvaddi vini og vandamenn áður en hann hélt til
Parísar. Að óbreyttu fær hann bæði laun sendiherra og
biðlaun næstu sex mánuði.
Ef ekki nást samningar í
deilu BHMR og ríkisins ósk-
ar menntamálaráöherra eftir
því við skólastjóra grunn-
skólanna, að þeir leggi próf-
in fyrir sem skólapróf.
„Þetta þýðir að prófin verða
lögð fyrir þar sem KÍ-menn
eru í vinnu, en verða náttúr-
lega ekki lögð fyrir þar sem
HIK-fólk er í verkfalli,“
sagði Svavar Gestsson
mcnntamálaráðhcrra í sam-
tali við Alþýðublaðið í gær.
Menntamálaráðherra
sagði nauðsynlegt að hafa í
huga að prófin verði ekki
lögð fyrir sem samræmd
próf, heldur sem skólapróf.
Um 90% af nemendum
myndu þreyta þessi próf. En
hvernig fer þá með hina?
Svavar sagði ekki hægt að
segja fyrir um það fyrr en
deilan leysist, en væntanlega
yrði farið út í samninga við
viðkomandi kennarafélög.
Samræmdu prófin áttu að
hefjast nk. mánudag og
verða samkvæmt áætlun ef
deilan leysist fyrir þann tíma.
í yfirlýsingu frá mennta-
málaráðuneytinu í gær er
minnt á, að samdræmdu
prófin hafi ekki úrslitaáhrif á
inngöngu nemenda í fram-
haldsskóla né heldur útskrift
úr grunnskóla.
Kennarar í HÍK brugðust
ókvæða við ákvörðun ráð-
herrans og hyggjast koma í
veg fyrir öll hugsanleg verk-
fallsbrot.
„Verði þetta frumvarp aö lögum er búið að finna leiö til fram-
búöar,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir m.a. í framsögn sinni
á borgarafundi sem Alþýðuflokksfélag Reykjavikur hélt um
húsbréfakerfið á Hótel Borg i gærkvöldi. Auk Jóhönnu
höfðu framsögn Kjartan Jóhannsson alþingismaður og
Yngvi Örn Kristinsson hagfræðingur.
Guðrún Helgadóttir forseti sameinaðs þings:
Ósátt við forystumenn
samninganefndar ríkisins
Guðrún Helgadóttir for- ræöum samninganefnda rík-
seti sameinaðs þings segist isins og BHMR. Hún segir
ósátt við framvinduna í við- síst til að liðka fyrir, að
ákveðnir embættismenn hjá
ríkinu sem hafi verið áber-
andi í fyrri deilum virðist
ennþá lciöa viðræðunefnd
ríkisins. Þá segir hún að út í
þjóðfélaginu séu uppi mjög
óréttlát viöhorf í garð há-
skólamenntaðs fólks, sem
ýmsir forystumenn í verka-
lýðshreyfingunni ýti gjarnan
undir.
Guðrún segir aðallega tvö
atriði sem skili sér ekki í um-
ræðunni: „Annars vegar sá
tími sem þetta fólk er búið að
eyða af ævi sinni í að læra,
svo það geti stundað störf sin
svo og sá tími sem fer í að
viðhalda og auka við þá
þekkingu. í öðru lagi vanmat
á gildi vinnu þessa fólks.“
„Menn hafa komist upp
með að setja upp ógeng göng
á milli menntamanna og svo-
kallaðs verkalýðs,“ segir
Guðrún, „Það er haldið á
lofti miklum ósannindum
um svokallaða hálaunamenn
og láglaunamenn. Það vill
svo til í okkar þjóðfélagi, að
i mörgum tilfellum eru svo-
kallaðir láglaunamenn hærri
en hálaunamennirnir.“
Guðrún bendir á að
menntamenn hafi gjarnan
leitt verkalýðsbaráttuna. „Ég
hélt að það væri inntak sósí-
aliskrar baráttu að sem allra
flestir i hverju þjóðfélagi
væru vel menntaðir. Að
menntun væri ekki forrétt-
indi heldur sjálfsögð krafa.
En það fór svo, að þegar við
sjómannabörnin fengum að
fara í menntaskóla og læra
eitthvað i hausinn á okkur,
vorum við orðnir óvinir okk-
ar eigin stétta. Það er afar
hættulegt sjónarmið.“
Forystumenn í HÍK komu
fyrir þingflokk Alþýðu-
bandalagsins sl. mánudag og
skýrðu sín sjónarmið í við-
ræðum við ríkið. Af samtöl-
um sem blaðið átti við
BHMR-menn í gær virtust
sjónarmið þingflokksins
svipuð og komið hafa fram í
máli fjármálaráðherra, for-
manns flokksins.