Alþýðublaðið - 29.04.1989, Blaðsíða 21
Konurnar á vinnumarkaðinn, en...
Launabilið hefur aukist
Launabilið milli karla og
kvenna hefur aukist síðari ár. Það
gerist samtíinis því sem konur
flykkjast í ríkari inæli á launa-
markaðinn. Á sama tíma og þátt-
taka kvenna eykst eru litlar
sveiflur hjá körlum. Ársverkum
fjölgar ár frá ári einkum vegna
meiri vinnu kvenna. Fleiri og fleiri
konur breyta til og fara úr hluta-
Konur flykkjast á /aunamarkaðinn og sigldu
nœr körlum í launum á sjöunda áratugnum.
Nú virðist bilið breikka.
Atvinnuþátttaka karla breytist lítið hin síðari ár en miklar breytingar eiga sér stað meðal kvennanna:
ATVINNA KARLA OG KVENNA 1981 OG 1986
KONUR KARLAR
Vinna samtals 1981 1986 1981 1986
0-13 vikur 21.1 16.0 9.7 8.9
14-26 vikur 24.6 21.2 11.3 11.0
27-39 vikur 18.9 19.5 12.1 11.4
40-52 vikur 35.3 43.2 66.9 68.7
KAUP KVENNA SEM HLUTFALL AF KAUPI KARLA
(Laun karla: 100)
AFGREIÐSLUFÓLK SKRIFSTOFUFÓLK VERKAFÓLK
ÁR KONUR KARLAR KONUR KARLAR KONURKARLAR
1981 79.6 100 76.0 100 97.8 100
1984 78.6 100 73.9 100 96.3 100
1986 73.8 100 73.3 100 95.8 100
1988 76.3 100 72.1 100 95.1 100
X: Tölur fyrir 1988 miðast við 3. ársfjórðung
Konum fækkar hlutfallslega sem vinna hluta úr degi, en að sarna skapi fjölgar þeim konum sem vinna fulla
vinnu.
starfi i fulla vinnu utan heimilis.
Svo virðist sem konur hafi orð-
ið undir í samkeppninni á hinum
almenna vinnumarkaði. Enn í
dag er greitt tímakaup til kvenna
aðeins 3/4 af launurn karla meðal
afgreiðslufólks og á skrifstofum.
Lítill munur er á Iaun'unr verka-
kvenna og verkakarla, en þar eins
og meðal annarra starfsstétta
eykst launabilið.
Á þriðja ársfjórðungi 1989
voru laun skrifstofukvenna 72.1%
af launum karla í sömu stétt og
hafði launabilið breikkað frá 1981
4%.
Á sama tíma hafði svipað gerst
nreðal verkafólks og afgreiðslu-
fólks.
Launamunurer minnstur nreð-
al verkafólks. Greitt tímakaup
verkakvenna er 95.9% af laununt
verkakarla, en laun afgreiðslu-
kvenna 76.3% af iaunum karl-
anna. Á sama tíma og
verkakonan vinnur fyrir 95.90
krónum þénar verkamaður 100
krónur, en á sama tíma og af-
greiðslukonan vinnur fyrir 76.30
krónum fær karl í sömu stétt 100
krónur.
Eins og sést af töflunni eru
sáralitlar breytingar hjá körlum.
Örlitlu fleiri vinna fulla vinnu
(eða næstum fulla) 1986 miðað
við 1981 eða 68.7 af hverjum 100
( en 66.9% árið 1981).
Taflan sýnir hins vegar glöggt
að konur sækja meir á. Meir en
fimmta hver kona hefur fært sig
úr hlutastarfi í fullt starf (eða
næstum fullt) á timabilinu. Ríf-
lega 43 af hverjum 100 konum
sem eru á vinnumarkaði vinna
fulla vinnu eða næstum fulla, en
voru rúmlega 35 1981.
Launamunur er nrinni innbyrð-
is meðal kvenna en karla.
Þorlákur
He/gason
skrifar
RAÐAUGLÝSINGAR
ÁSKORUN
til eigenda og ábyrgöarmanna fasteigna
um greiöslu fasteignagjalda í Reykjavík
Útboð
FÉLAGSMÁLASTOFNUN
REYKJAVIKURBORGAR
Fasteignagjöld í Reykjavík 1989 eru nú öll gjald-
fallin. Gjaldendur sem ekki hafa gert skil innan
30 daga frá birtingu áskorunar þessarar, mega
búast við að óskað verði nauðungaruppboðs á
eignum þeirra í samræmi við I. nr. 49/1951 um
sölu lögveða án undangengins lögtaks.
Reykjavík 27. apríl 1989
Gjaldheimtustjórinn í Reykjavik
i7---------------------------N
Góðar veíslur enáa rel!
Eftir einn
-ei aki neinn
UÉ UMFERÐAR
RÁÐ
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, fyrir hönd
Vatnsveitu Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum í
renniloka (Solid wedge gate valves)
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri Frí-
kirkjuvegi 3 Reykjavík.
Tiulboðin verða opnuð á sama stað miðvikudag-
inn 7. júní 1989 kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Sími 25800
Öldrunarþjónustu-
deild
Laus er staða verkefnastjóra á vistunarsviði
öldrunarþjónustudeildar.
Æskileg er menntun félagsráðgjafa, en starfið
felst í yfirumsjón með húsnæðis- óg vistunar-
málum aldraðra hjá Reykjavíkurborg. Um er að
ræða 100% stöðu sem er laus nú þegar..
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd
gatnamálastjórans í Reykjavík óskareftirtilboð-
um í steyptar gangstéttir og ræktun víðsvegar
um borgina.
Helsltu magntölur eru:
Steyptar gangstéttar 15.000 m2 sáningar
10.00 m2
Verklok eru 15. september n.k.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri Frí-
kirkjuvegi 3 Reykjavík frá midvikudeginum 3 maí
gegn krónum 5.000 skilatryggingu.
Umsóknarfrestur er til 12. maí nk.
Umsóknareyðublöð fást hjá Starfsmannahaldi
Reykjavikurborgar, Pósthússtræti 9, t. hæð.
Nánari upplýsingar veitir Þórir S. Guðbergsson
og Ásta Þórðardóttir í síma 25500.
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd
Vatnsveitu Reykjavíkur óskar eftir tilboðum í
tengi fyrir brunahanastúta (Storz Adaptors).’
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri Frí-
kirkjuvegi 3 Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudag-
inn 10. maí kl. 11.00
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Simi 25800
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudag-
inn 7. júní 1989 kl. 14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Simi 25800