Alþýðublaðið - 29.04.1989, Page 24

Alþýðublaðið - 29.04.1989, Page 24
MÞYBUBMSD) Laugardagur 29. apríl 1989 Flugleiðir: Fyrsta nýja Boeing-vélin afhent í gær Fyrsta Boeing 737-400 flugvél Flugleiða var afhent formlega í Seattle í Banda- ríkjunum í gær. Um leið greiddu Flugleiðir Boeing verksmiðjunum eftirstöðvar 30 milljpn dollara kaupverðs vélarinnar, um 20 milljónir dollara eða sem svarar tæp- lega 1,5 milljarði íslenskra króna. Vélinni verður flogið heim 5. maí og lendir hún á Keflavíkurflugvelli árdegis 6. maí þar sem henni verður gefið nafn. Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra á ársfundi Seðlabankans: HAGKVÆMT AÐ BREYTA RÍK- ISBÖNKUNUM í HLUTAFÉLÖG Á ársfundi Seðlabankans í gær sagði Jón Sigurðsson viðskiptaráðhcrra í ræðu sinni að fullnægjandi sam- keppni i íslensku bankakerfi verði ekki tryggð nema með því að opna það fyrir þátt- töku erlendra fjármmála- stofnana. „í því ljósi er fækkun bankanna forsenda aukinnar samkeppni því hún stuðlar að bættri samkeppnishæfni íslenskra banka gagnvart er- lendum bönkum. Annað at- riði sem stuðlað gæti að bættri samkeppnishæfni ís- lenska bankakerfisins felst í því að breyta ríkisbönkunum i hlutafélagsbanka sem þó væru að minnsta kosti fyrst um sinn að öllu leyti í eigu ríkisins,“ sagði viðskiptaráð- herra. „Tilgangur þessarar breyt- ingar væri að gera þessum bönkum kleift að styrkja eig- infjárstöðu sína með sölu hlutabréfa. Jafnframt er ástæða til að kanna hvort ekki er æskilegt og tímabært að breyta rekstrarformi sparisjóðanna jafnvel í hlutafélög," sagði Jón Sig- urðsson í ávarpi sínu. Ffann sagði ennfremur að fari svo að sameiningarvið- ræður einkabankanna með þátttöku Útvegsbankans skili ekki árangri verði stjórnvöld að ná fram skipu- lagsumbótum í bankakerf- inu í gegnum eignarhald rík- isins á stærstum hluta þess. 1. Maí: Hátíðahöld á Lækjartorgi Fulltrúaráð verkalýðsfé- iaganna í Reykjavík, Banda- lag starfsmanna ríkis og bæjai og Iðnnemasamband ís- lands gangast fyrir hátíðar- höldum 1. Maí í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi verkafólks. í ár verður safnast saman við Hlemm kl.13.30 og geng- ið niður Laugaveginn að Lækjartorgi þar sem fundur verður haldinn. Lúðrasvei! verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur munu leika fyrir göngunni. Ræðumenn dagsins verða Örn Friðriksson annar vara- forseti ASÍ og Ögmundur Jónasson formaöur BSRB. Aak þeirra koma fram á fundinum Sigrún Valgerdur Guðjónsdóttir og Sigur- sveinn Magnússon og munu þau syngja og leika á pianó. Fundarstjóri verður Hildur Kjartansdóttir varaformað- ur Iðju. Áætlað erað fundin- iiiii Ijúki kl. 15.00. Barnaefnið þýtt og talsett: Leikhljóð undanskilin Nemendur kalla á lausn Framhaldsskólanemar söfnuðust saman á Skólavörðuholti í gærdag og fylktu siðan liði niður á Lækjartorg, þar sem fram fór útifundur vegna ástandsins i skólamálum. Nemendurnir skoruðu á stjórnvöld að gera þegar i stað viðeigandi ráðstafanir til að koma í veg fyrir að alvarlegar afleiðingar hljótist af deilu rikisins og kennara. Krafan var: Semjið strax. A-mynd/E.ÓI. Húsbréfafrumvarpið: Seinkun vegna misskilnings í herbúðum stjórnarflokka ASÍ: Samið til 1. feb.? Útvarpsráð hefur sam- þykkt aö framvegis vcröi ís- lenskt tal við allt efni í sjón- varpi sem ætlað er börnum yngri en 10 ára. Er þá midað við að efni verði talsett ann- aðhvort með sögumanni eða leikröddum eftir atvikum. „Myndefni, sem svo til ein- vörðungu byggir á leikhljóð- um er hér undanskilið," scgir í áiyktun útvarpsráðs. Einnig verða leiknir myndaflokkar þar sem sam- an verður að fara fullkomið samræmi raddar og vara- hreyfingar áfram útbúnir með íslenskum texta. Útvarpsráð hefur á undan- förnum misserum lagt áherslu á að setja íslenskt tal við efni sem ætlað er yngri börnum í sjónvarpi með þeim árangri, að því er segir í ályktun útvarpsráðs, að á liðnum vetri náðist að tal- setja að meðaltali um 85% þess efnis. „Útvarpsráð telur nauð- synlegt að auka hlut inn- lendrar framleiðslu á barna- efni Sjónvarpsins og sam- þykkir að með næstu vetrar- dagskrá verði gert sérstakt átak í þessum efnum.“ F’kki var hægt aö afgreiöa frumvarpið um húsbréf úr fé- lagsmálanefnd neðri deildar fyrir helgi eins og útiit var fyrir. Engu að síður eru tald- ar miklar likur á afgreiðslu frumvarpsins á þessu þingi. „Það á eftir að útkljá mis- skilning sem kominn er upp í herbúðum ríkisstjórnarinnar um vaxtamál í gamla kerf- inu. Það er Ijóst að aðilar sem standa utan ríkisstjórn- arinnar vilja að stjórnar- flokkarnir verði sammála um hvað þeir ætli að gera áður en þeir ganga frá samkomulagi við þá,“ sagði Jón Sæmund- ur Sigurjónsson formaður félagsmálanefndar í samtali við Alþýðublaðið. Málið snýst um meðferð vaxta í núverandi kerfi. Tveir þingmenn Alþýðubanda- lagsins, þeir Ragnar Arnalds og Hjörleifur Guttormsson hafa lýst yfir í fjölmiðlum að þeir hafi annan skilning en fram hafi komið. Kvennalist- inn hefur nefnt sín skilyrði fyrir stuðningi við húsbréfa- frumvarpið, en vill jafnframt hafa á hreinu að stjórnar- flokkarnir séu samróma í af- stöðu til einstakra mála sem viðkoma frumvarpinu. Skilyrði Kvennalistaeru að framlög til félagslega hús- næðiskerfisins verði aukin um 600 milljónir króna á næstu fjárlögum. Ríkis- stjórnin er reiðubúin að skoða þetta, en talið er koma til greina að lífeyrissjóðirnir taki þátt í þeirri fjármögnun, þannig að ekki verði um að ræða aukin ríkisútgjöld. Þá vill Kvennalistinn að nefnd verði skipuð til að endur- skipuleggja félagslega kerfið og að vextir á eldri lánum í húsnæðiskerfinu hækki ekki. „Þetta eru allt tillögur sem falla alþýðuflokksmönunt vel í geð, enda í samræmi við stefnu okkar og starf,“ sagði Jón Sæmundur Sigurjóns- son. „Annað hvort veröur sam- ið um helgina eða strax eftir liana, eða ekkert verður úr samningum" sagði Ragna Bergmann formaður F'ram- sóknar í gær þegar Alþýðu- blaðið kynnti sér stöðu mála í viðræðum ASÍ og VSÍ hjá Ríkissáttasemjara. Gærdag- urinn var að mestu notaður í viðræöur sérhópa. í viðræðunum í gær var augljóslega verið að ræða samninga í anda BSRB-samningsins, þótt al- talað sé að samningur há- skólakennara hafi fært meiri hækkanir. Einnig er orðið ofarlega á dagskrá að semja til I. febrúar. Alþýðublaðinu er kunnugt um að fisk- vinnsluhópur ASÍ hafi lagt fram tilboð um taxtahækk- anir, en að VSÍ hafi þvernei- tað og komu upp raddir um að fiskvinnslufólkið drægi sig úr samflotinu.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.