Alþýðublaðið - 29.04.1989, Síða 24
MÞYBUBMSD)
Laugardagur 29. apríl 1989
Flugleiðir:
Fyrsta nýja
Boeing-vélin
afhent í gær
Fyrsta Boeing 737-400
flugvél Flugleiða var afhent
formlega í Seattle í Banda-
ríkjunum í gær. Um leið
greiddu Flugleiðir Boeing
verksmiðjunum eftirstöðvar
30 milljpn dollara kaupverðs
vélarinnar, um 20 milljónir
dollara eða sem svarar tæp-
lega 1,5 milljarði íslenskra
króna. Vélinni verður flogið
heim 5. maí og lendir hún á
Keflavíkurflugvelli árdegis 6.
maí þar sem henni verður
gefið nafn.
Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra á ársfundi Seðlabankans:
HAGKVÆMT AÐ BREYTA RÍK-
ISBÖNKUNUM í HLUTAFÉLÖG
Á ársfundi Seðlabankans í
gær sagði Jón Sigurðsson
viðskiptaráðhcrra í ræðu
sinni að fullnægjandi sam-
keppni i íslensku bankakerfi
verði ekki tryggð nema með
því að opna það fyrir þátt-
töku erlendra fjármmála-
stofnana.
„í því ljósi er fækkun
bankanna forsenda aukinnar
samkeppni því hún stuðlar
að bættri samkeppnishæfni
íslenskra banka gagnvart er-
lendum bönkum. Annað at-
riði sem stuðlað gæti að
bættri samkeppnishæfni ís-
lenska bankakerfisins felst í
því að breyta ríkisbönkunum
i hlutafélagsbanka sem þó
væru að minnsta kosti fyrst
um sinn að öllu leyti í eigu
ríkisins,“ sagði viðskiptaráð-
herra.
„Tilgangur þessarar breyt-
ingar væri að gera þessum
bönkum kleift að styrkja eig-
infjárstöðu sína með sölu
hlutabréfa. Jafnframt er
ástæða til að kanna hvort
ekki er æskilegt og tímabært
að breyta rekstrarformi
sparisjóðanna jafnvel í
hlutafélög," sagði Jón Sig-
urðsson í ávarpi sínu.
Ffann sagði ennfremur að
fari svo að sameiningarvið-
ræður einkabankanna með
þátttöku Útvegsbankans
skili ekki árangri verði
stjórnvöld að ná fram skipu-
lagsumbótum í bankakerf-
inu í gegnum eignarhald rík-
isins á stærstum hluta þess.
1. Maí:
Hátíðahöld á
Lækjartorgi
Fulltrúaráð verkalýðsfé-
iaganna í Reykjavík, Banda-
lag starfsmanna ríkis og bæjai
og Iðnnemasamband ís-
lands gangast fyrir hátíðar-
höldum 1. Maí í tilefni af
alþjóðlegum baráttudegi
verkafólks.
í ár verður safnast saman
við Hlemm kl.13.30 og geng-
ið niður Laugaveginn að
Lækjartorgi þar sem fundur
verður haldinn. Lúðrasvei!
verkalýðsins og Lúðrasveitin
Svanur munu leika fyrir
göngunni.
Ræðumenn dagsins verða
Örn Friðriksson annar vara-
forseti ASÍ og Ögmundur
Jónasson formaöur BSRB.
Aak þeirra koma fram á
fundinum Sigrún Valgerdur
Guðjónsdóttir og Sigur-
sveinn Magnússon og munu
þau syngja og leika á pianó.
Fundarstjóri verður Hildur
Kjartansdóttir varaformað-
ur Iðju. Áætlað erað fundin-
iiiii Ijúki kl. 15.00.
Barnaefnið þýtt og talsett:
Leikhljóð
undanskilin
Nemendur kalla á lausn
Framhaldsskólanemar söfnuðust saman á Skólavörðuholti í gærdag og fylktu siðan liði niður á Lækjartorg, þar sem fram
fór útifundur vegna ástandsins i skólamálum. Nemendurnir skoruðu á stjórnvöld að gera þegar i stað viðeigandi ráðstafanir
til að koma í veg fyrir að alvarlegar afleiðingar hljótist af deilu rikisins og kennara. Krafan var: Semjið strax.
A-mynd/E.ÓI.
Húsbréfafrumvarpið:
Seinkun vegna misskilnings
í herbúðum stjórnarflokka
ASÍ:
Samið til 1. feb.?
Útvarpsráð hefur sam-
þykkt aö framvegis vcröi ís-
lenskt tal við allt efni í sjón-
varpi sem ætlað er börnum
yngri en 10 ára. Er þá midað
við að efni verði talsett ann-
aðhvort með sögumanni eða
leikröddum eftir atvikum.
„Myndefni, sem svo til ein-
vörðungu byggir á leikhljóð-
um er hér undanskilið," scgir
í áiyktun útvarpsráðs.
Einnig verða leiknir
myndaflokkar þar sem sam-
an verður að fara fullkomið
samræmi raddar og vara-
hreyfingar áfram útbúnir
með íslenskum texta.
Útvarpsráð hefur á undan-
förnum misserum lagt
áherslu á að setja íslenskt tal
við efni sem ætlað er yngri
börnum í sjónvarpi með
þeim árangri, að því er segir
í ályktun útvarpsráðs, að á
liðnum vetri náðist að tal-
setja að meðaltali um 85%
þess efnis.
„Útvarpsráð telur nauð-
synlegt að auka hlut inn-
lendrar framleiðslu á barna-
efni Sjónvarpsins og sam-
þykkir að með næstu vetrar-
dagskrá verði gert sérstakt
átak í þessum efnum.“
F’kki var hægt aö afgreiöa
frumvarpið um húsbréf úr fé-
lagsmálanefnd neðri deildar
fyrir helgi eins og útiit var
fyrir. Engu að síður eru tald-
ar miklar likur á afgreiðslu
frumvarpsins á þessu þingi.
„Það á eftir að útkljá mis-
skilning sem kominn er upp í
herbúðum ríkisstjórnarinnar
um vaxtamál í gamla kerf-
inu. Það er Ijóst að aðilar
sem standa utan ríkisstjórn-
arinnar vilja að stjórnar-
flokkarnir verði sammála um
hvað þeir ætli að gera áður en
þeir ganga frá samkomulagi
við þá,“ sagði Jón Sæmund-
ur Sigurjónsson formaður
félagsmálanefndar í samtali
við Alþýðublaðið.
Málið snýst um meðferð
vaxta í núverandi kerfi. Tveir
þingmenn Alþýðubanda-
lagsins, þeir Ragnar Arnalds
og Hjörleifur Guttormsson
hafa lýst yfir í fjölmiðlum að
þeir hafi annan skilning en
fram hafi komið. Kvennalist-
inn hefur nefnt sín skilyrði
fyrir stuðningi við húsbréfa-
frumvarpið, en vill jafnframt
hafa á hreinu að stjórnar-
flokkarnir séu samróma í af-
stöðu til einstakra mála sem
viðkoma frumvarpinu.
Skilyrði Kvennalistaeru að
framlög til félagslega hús-
næðiskerfisins verði aukin
um 600 milljónir króna á
næstu fjárlögum. Ríkis-
stjórnin er reiðubúin að
skoða þetta, en talið er koma
til greina að lífeyrissjóðirnir
taki þátt í þeirri fjármögnun,
þannig að ekki verði um að
ræða aukin ríkisútgjöld. Þá
vill Kvennalistinn að nefnd
verði skipuð til að endur-
skipuleggja félagslega kerfið
og að vextir á eldri lánum í
húsnæðiskerfinu hækki
ekki.
„Þetta eru allt tillögur sem
falla alþýðuflokksmönunt
vel í geð, enda í samræmi við
stefnu okkar og starf,“ sagði
Jón Sæmundur Sigurjóns-
son.
„Annað hvort veröur sam-
ið um helgina eða strax eftir
liana, eða ekkert verður úr
samningum" sagði Ragna
Bergmann formaður F'ram-
sóknar í gær þegar Alþýðu-
blaðið kynnti sér stöðu mála
í viðræðum ASÍ og VSÍ hjá
Ríkissáttasemjara. Gærdag-
urinn var að mestu notaður í
viðræöur sérhópa.
í viðræðunum í gær var
augljóslega verið að ræða
samninga í anda
BSRB-samningsins, þótt al-
talað sé að samningur há-
skólakennara hafi fært meiri
hækkanir. Einnig er orðið
ofarlega á dagskrá að semja
til I. febrúar. Alþýðublaðinu
er kunnugt um að fisk-
vinnsluhópur ASÍ hafi lagt
fram tilboð um taxtahækk-
anir, en að VSÍ hafi þvernei-
tað og komu upp raddir um
að fiskvinnslufólkið drægi
sig úr samflotinu.