Alþýðublaðið - 13.05.1989, Page 14
14
Laugardagur 13. maí 1989
RAÐAUGLÝSINGAR
FRÁ MENNTAMÁLARÁÐUNEYTINU
Lausar stöður
við framhaldsskóla
Viö Menntaskólann við Sund eru lausar til um-
sóknar kennarastöður í félagsgreinum og efna-
fræöi.
Þá vantar stundakennara í eftirtaldar greinar:
Dönsku, latínu, sögu, jarðfræði, efnafræði, eðl-
isfræði, stjörnufræði, tölvufræði, stærðfræði,
heimspeki, listasögu, hagfræði, fjölmiðlafræði,
lögfræði og spænsku.
Við Fjölbrautaskólann I Garðabæ eru lausar
kennarastöður í eftirtöldum greinum:
Stærðfræði, ensku, samfélagsgreinum, við-
skiptagreinum, raungreinum, íslensku, íþróttum
og tölvufræði.
Auk þess vantar stundakennara í ýmsar greinar.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu,
Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík fyrir 9. júní n.k.
Umsóknir um stundakennslu sendist skóla-
meistara.
Menntamálaráðuneytið.
Félagsstarf aldraðra I Reykjavík
Sumarferðir 1989
í sumar eru áætlaðar 16 ferðir innanlands á veg-
um Félagsstarfs aldraðra hjá Reykjavíkurborg.
Upplýsingar eru veittar í Fréttabréfi um málefni
aldraðrasem borið verðurút til allra Reykvíkinga
67 ára og eldri á næstunni og í Hvassaleiti 56-58
í síma 689670 og 689671 frá kl. 9-12, þar sem tek-
ið er á móti pöntunum eftir birtingu þessarar
auglýsingar.
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar.
Félagsstarf aldraðra I Reykjavík
Orlofsdvöl
Eins og undanfarin sumur efnir Félagsmála-
stofnun Reykjavíkur í samstarfi við íslensku
þjóðkirkjuna til orlofsdvalar að Löngumýri í
Skagafirði.
í sumar hafa eftirfarandi tímabil verið ákveðin:
29. maí til 9. júní
26. júní til 7. júlí
10. júlí til 21. júlí
7. ágúst til 18. ágúst
21. ágúst til 1. sept.
Innritun og nánari upplýsingar eru veittar í
Hvassaleiti 56-58 og i síma 689670 og 689671 frá
kl. 9 til 12.
Frá Borgarskipulagi Reykjavíkur
Bólstaöarhlíð
Á Borgarskipulagi er verið að vinna tillögu að
breytingum Bólstaðarhlíðar.
íbúum Bólstaðarhlíðar og öðrum sem áhuga
hafa á bættu umferðaröryggi í götunni er bent á
að kynna sér tillöguna og greinargerð á borgar-
skipulagi Reykjavikur, Borgartúni 3, 105 Reykja-
vík, alla virka daga inilli kl. 8.30-16.00 frá þriðju-
degi 16. maí til miðvikudags 31. maí 1989.
Athugasemdum eða ábendingum skal skila
skriflega á sama stað innan tilskilins frests.
Borgarskipulag Reykjavíkur.
Viltu kenna við
fámennan skóla
í fámennum skólum:
— eru bekkjardeildir færri en árgangar. Því er
samkennsia ríkjandi fyrirkomulag.
— eru nánari tengsl skóla við umhverfi og at-
vinnulíf.
— erhvereinstaklingurstórhluti af skólaheild-
inni.
— eru möguleikar á fjölbreyttu félags- og tóm-
stundastarfi.
— getur frumkvæði kennara notið sín.
— er vaxandi samvinna milli skóla um land allt.
— er hafið sameiginlegt þróunarstarf um
námsefni, kennsluhætti og skólanámskrár-
• Á landinu eru um 100 skólar með nemenda-
fjölda 100 eða færri.
• Stefnt er að því að starf þessara skóla njóti
fullrar virðingar og möguleikar þeirra umfram
stóra skóla nýtist sem best.
• Við viljum hvetja áhugasama kennara til þess
að starfa með okkur að þessum markmiðum
og koma til starfa á landsbyggðinni.
• Nánari upplýsingar má fá hjá undirrituðum.
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar.
Frá starfsþjálfun fatlaðra
Móttaka umsókna fyrir haustönn 1989 er hafin.
Umsóknarfrestur er til 10. júní. Forstöóumaður
veitir nánari upplýsingar og tekur á móti um-
sóknum í síma29380milli kl. 10og 12virkadaga.
Skriflegar umsóknir sendist:
Starfsþjálfun fatlaðra,
Hátúni 10a,
105 Reykjavík.
Útboð
Klæðningar á
Norðurlandi vestra 1989
r Vegagerð ríkisins óskar eftir
*/j r//ÆKw tilboðum i ofangreint verk.
K_____4 Magntölur:
Efra burðarlag 20.500 m3
Klæðning 318.000 m2
Verki skal að fullu lokið 15.
september 1989.
Útboðsgögn verða afhent hjá
Vegagerð ríkisins á Sauðár-
króki og í Reykjavík (aðalgjald-
kera) frá og með 16. þ.m.
Skila skal tilboðum á sömu
stöðum fyrir kl. 14:00 þann 29.
maí 1989.
Vegamálastjóri.
|j| UA«VI»'I' IIAIirVA
Forstöðumaður
Dagheimilið Laugaborg óskar eftir forstöðu-
manni frá og með 1. ágúst nk.
Fræðslustjóri Vesturlandsumdæmis
Fræðslustjóri Vestfjarðarumdæmis
Fræðslustjóri Norðurlands vestra
Fræðslustjóri Norðurlands eystra
Fræðslustjóri Austfjarðaumdæmis
Fræðslustjóri Suðurlandsumdæmis.
Fóstrumenntun áskilin.
Umsóknarfrestur er til 5. júní.
Nánari upplýsingar gefur framkvæmdastjóri
Dagvistar barna í síma 27277.
Útboð
Bæjarsjóður Kópavogs óskar eftir tilboðum í
viðgerðir og ýmsa þætti viðgerða ásamt sílan-
böðun og málun utanhúss á Félagsheimilinu
Fannborg 2.
Útboðsgögn eru afhent átæknideild Fannborg
2,3. hæðfráog með þriðjudeginum 16. maí gegn
15.000,- kr. skilatryggingu.
Tilboðstryggingu kr. 300.000,- þarf að leggja
fram með tilboðum sem opnuð verða miðviku-
daginn 24. maí á tæknideild Fannborg 2, 3. hæð
kl. 11.00 að viðstöadum þeim bjóðendum er
þess óskar.
Bæjarverkfræðingur.
Frá menntamálaráðuneytinu
Vegna áhrifa yfirstandandi verkfalls á skólastarf
og brautskráningu nemenda úr skólum verður
ráðuneytið með upplýsingaþjónustu fyrir nem-
endur og skóla.
Upplýsingaþjónustan verður starfrækt frá og
með 12. maí í Ingólfsstræti 5, 3. hæð, og veitir
Elin Skarphéðinsdóttir henni forstöðu.
Upplýsingarverðaveittarí síma 609000 og 26866
á virkum dögum frá kl. 9.00 til 16.00.
Menntamálaráðuneytið.
Forkönnun vegna útboðs á pökkun
og útkeyrslu dagblaða
Leitað er eftir aðilum sem áhuga hafaá að bjóða
í pökkun og útkeyrslu dagblaða. Útgáfudagar
eru 5 í viku þriðjudag til laugardags.
Pökkun hefst um miðnætti og þarf útkeyrslu að
vera lokið fyrir kl. 8:00 að morgni.
Þeirsem áhugahafaáfrekari upplýsingum leggi
inn upplýsingar um nafn, heimili og símanúmer
í afgreiðslu blaðsins fyrir 25. maí 1989, merkt
Blaðdreifing 1989.
Laus staða
Við Kennaraháskóla íslands er laus til umsóknar
iektorsstaða i handmenntum. Staðan er veitt til
tveggjaára. Meginverkefni eru hönnun, hannyrð-
ir og saumar ásamt kennslu þessara og skyldra
þátta á grunnskólastigi.
Auk framhaldsmenntunar við háskóla eða sér-
skóla skulu umsækjendur hafa viðurkennd
kennsluréttindi eða að öðru leyti nægilegan
kennslufræðilegan undirbúning.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkis-
ins.
Gert er ráð fyrir að staðan verði veitt frá 1. ágúst'
1989.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni
rækilegar upþlýsingar um nám og fyrri störf, svo
og um ritsmíðar og rannsóknir eða listiðnað
sem þeir hafa unnið.
Umsóknir skulu hafa borist menntamálaráðu-
neytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 10.
júní nk.
Menntamálaráðuneytið,
11. maí 1989.