Alþýðublaðið - 31.05.1989, Síða 4
4
Miðvikudagur 31. maí 1989
Styrkir til
kvenna-
rannsókna
Á fjárlögum fyrir yfir-
standandi ár var einnar
milljónar og 140 þúsund
króna fjárveiting færö til
Háskóla íslands til rann-
sókna í kvennafræðum.
Áhugahópur um íslenskar
kvennarannsóknir, sem
hefur starfað undanfarin
fjögur ár tók að sér að
úthluta þessu fé í umboði
Háskóla íslands. Átján
umsóknir bárust og hlutu
eftirfarandi umsækjendur
launastyrk:
Agnes Siggerður
Arnórsdóttir til að rann-
saka líf og starf kvenna,
sem fæddust fyrir tæpri
öld.
Helga Kress til rann-
sókna á karlímynd og
kvenleika í íslenskum
fornbókmenntum út frá
gróteskum atriðum í
myndmáli þeirra og sjón-
arhorni.
Helga M. Ögmunds-
dóttir og Jórunn E. Ey-
fjörð til rannsókna á eðli
brjóstakrabbameins.
Athugun á erfðafræðileg-
um þáttum.
Margrét Guðmunds-
dóttir til framhaldsrann-
sóknar og útgáfu á dag-
bókum Elku Björnsdóttur
verkakonu í Reykjavík frá
árunum 1915-1923.
Ragnhildur Vigfúsdóttir
til framhaldsrannsóknar á
íslenskum konum á er-
lendri grund fram um síð-
ari heimsstyrjöld.
Soffía Auður Birgisdótt-
ir til að rannsaka móður-
ímynd íslenskra bók-
mennta.
HANDBÓK RÆKTUNARMANNSINS
G*«n « o* (rwr*»œ«
Tré og runnar
Út er komin hjá Erni og
Örlygi endurútgáfa bókar-
innarTRÉ OG RUNNAR
— Handbók ræktunar-
mannsins — eftir Ásgeir
Svanbergsson. Bókin kom
fyrst út árið 1982 en er
fyrir löngu uppseld og
ófáanleg. Hin nýja útgáfa
er stóraukin og endur-
bætt. Bókin er gefin út að
frumkvæði Skógræktar-
félags Reykjavíkur en
höfundurinn hefurverið
græðireitsstjóri félagsins
í mörg ár og kynnst vand-
kvæðum garðeigenda.
í bókinni eru 170 lit-
myndir af trjám og runn-
um, allar fengnar úr safni
Skógræktarfélagsins.
Vöruskiptin við
útlönd
í febrúarmánuði voru flutt-
ar út vörur fyrir 5.439 millj. kr.
en inn fyrir 4.335 millj. kr. fob.
Vöruskiptajöfnuðurinn í fe-
brúar var því hagstæður um
1.104 millj. kr. en I febrúar í
fyrra var vöruskiptajöfnuður-
inn óhagstæður um 1.760
millj. kr. á föstu gengi, segir í
fréttatilkynningu frá Hag-
stofu íslands.
Fyrstu tvo mánuði þessa
árs voru fluttar út vörur fyrir
9.811 millj. kr. en inn fyrir
8.072 millj. kr. fob. Vöru-
skiptajöfnuöurinn á þessum
tlma var þvl hagstæður um
1.739 kr. en á sama tlma í
fyrra var hann óhagstæður
um 2.325 millj. kr. á sama
gengi *)
Fyrstu tvo mánuði þessa
árs var verðmæti vöruútflutn-
ings 41% meira á föstu gengi
en á sama tíma í fyrra. Sjávar-
afurðir voru um 69% alls út-
flutningsins og voru 44%
meiri en á sama tima í fyrra.
Útflutningur á áli var 31%
meiri og útflutningur kisil-
járns var þrefalt meiri en á
síðastliðnu ári. Útflutnings-
verðmæti annarrar vöru var
2% minna I janúar-febrúar en
á sama tíma I fyrra, reiknað á
föstu gengi.
Verðmæti vöruinnflutn-
ingsins fyrstu tvo mánuði
ársins var 13% minna en á
sama tíma I fyrra. Verðmæti
innflutnings til stóriðju var
36% minna en I fyrra, en
verðmæti olíuinnflutnings
fyrstu tvo mánuði ársins var
45% mneiri en á sama tíma I
fyrra, reiknað á föstu gengi.
Þessir innflutningsliðir
ásamt innflutningi skipa og
flugvéla eru jafnan breytilegir
frá einu tlmabili til annars, en
séu þeir frátaldir reynist ann-
ar innflutningur (87& af heild-
inni) hafa orðið um 15%
minni en I fyrra, reiknað á
föstu gengi *)
*) Miðað er við meðalgengi á
viðskiptavog; á þann mæli-
kvarða er verð erlends gjaldl-
eyris talið vera 29.4% hærra I
janúar-febrúar 1989 en á
sama tíma árið áður.
Páll P. Pálsson
hlaut
prófessorstitil
Forseti Austurríkis veitti
Páli P. Pálssyni, tónskáldi,
sem er núna staddur I Aust-
urríki, prófessorstitil og voru
honum afhent skjölin viö há-
tíðlega athöfn I menntamála-
ráðuneytinu þann 19. maí
1989.
Alþjóðlegur tóbaksvarnadagur 31. maí
íslenskar konur neyðast til að horfast
í augu við þá staðreynd að þær eru
farnar að reykja jafnmikið og karlar.
Þetta er vafasöm upphefð þegar litið er
til alls þess tjóns og ama sem reykingar
valda. En það rofar til: undanfarin ár
hefur dregið úr reykingum, bæði hjá
konum og körlum.
é
c Krabbameinsfélagið
S
TOBAKSVARNANEFND
( dag, á alþjóðlegum tóbaksvarnadegi
sem sérstaklega er helgaður baráttunni
gegn reykingum kvenna, eru allar konur
sem reykja hvattar til að hugleiða þá
ábyrgð sem þær bera á börnum sínum,
umhverfinu og eigin velferð - og velta
því fyrir sér í alvöru hvort ekki sé
kominn tími til að hætta að reykja.
Alþjóða heilbrigðismálastofnunin