Alþýðublaðið - 31.05.1989, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 31. maí 1989
7
UTLOND
Ólafur Noregskonungur
gaf Hasina nýja von
Bréfiö var hjálparbeiðni, eftir að sjö manna fjölskyldu
Hasina var neitað i annað sinn um innflytjendaleyfi af
mannúðarástæðum.
Konungur gaf sér góðan tíma
til að lesa bréfið og sagði Hasina
síðan á ensku, að hann skyldi gera
hvað hann gæti til þess að fjöl-
skyldan gæti búið í Noregi. Við
þetta elskulega svar fór Hasina að
hágráta af gleði.
Eftir margar og miklar hremm-
ingar sameinaðist fjölskyldan i
Noregi í október í fyrra, eftir 10
ára aðskilnað. Fyrst flúði hún frá
Afghanistan til Pakistan og loks
komst fjölskyldan í flóttamanna-
móttökuna t Vinstra. Fjölskyld-
unni hefur tvívegis verið neitað
um dvalarleyfi og fyrir nokkrum
vikum kom lögreglan öllum að
óvörum til Vinstra til að sækja
fjölskylduna og senda hana úr
landi. Stuðningshópar flótta-
Hasina Samim 15
ára, frá Afghanistan
var stödd, þar sem
konungur œtlaði að
gróðursetja tré við
nýtt safn í Hamar.
Hún gerði sér lítið
fyrir gekk til kon-
ungs og afhenti hon-
um blómvönd og
bréf
Ólafur Noregskonungur les bréf-
ið, þar sem Hasina biður hann
um endurskoöun á neitun yfir-
valda, á innflytjendaleyfi til
handa fjölskyldu Hasina.
manna frá Afghanistan gátu þó
komið í veg fyrir að lögreglan færi
með fjölskylduna og á málið að
koma fyrir rétt í náinni framtíð.
Fimm systkin
í bréfinu til konungs, lýsir
Hasina, sem er yngst systkinanna,
högum þeirra og því sem þau hafa
þurft að ganga i gegnum. Hún
segir frá föður sínum, 'sem er
læknir, en þjáist af sykursýki og
geti ekki fengið lyf í Afghanistan.
Hún segir frá dauðsföllum ætt-
ingja fyrir hendi upreisnarhópa í
Afghanistan. Hún lýsir einnig
þeiin hörntungum sem hún og
fjölskylda hennar hefur gengið í
gegnum síðastliðin 10 ár.
„Ég vona innilega að konung-
urinn vilii og geti hjálpað mér og
okkur öllurn. Hann er síðasta von
mín um að úr rætist," sagði
Hasina grátandi við blaðamann
áður en hún sneri aftur til Vinstra
með norskum hjálparmönnum.
(Arbeiderbladet.)
INGIBJÖRG
ÁRNADÓTTIR
SJÓNVARP
Sjónvarpið kl. 15.00
HEIMSMEISTARA-
KEPPNIN í
KNATTSPYRNU -
BEIN ÚTSENDING
FRÁ MOSKVU
ÍSLAND-SOVÉTRÍKIN
íslendingar mæta þarna einu besta
liði Evrópu, liði sem reyndar er að
öllum líkindum komið yfir toppinn
á sínum ferli. í sovéska liðinu eru
nokkrir frábærir knattspyrnu-
menn, Zavarov, Protasov, Kuztn-
ezov, Rats, Belanov og markvörður-
inn frægi Dasajev. Auðvitað ekki
veikur hlekkur í þessu liði og allir
leikmennirnir toppmenn á evrópsk-
an mælikvarða. Islenska liðið sakn-
ar hinsvegar nokkurra af sínum
bestu mönnum í þessum leik. Ás-
geir Sigurvinsson, Arnór Guðjohn-
sen, Pétur Pétursson, Pétur
Ormslev, Viðar Þorkelsson og Sæv-
ar Jónsson eru allir fjarri góðu
gamni eins og einhver myndi orða
það. Staðan í riðlinum er hinsvegar
óljós, sem stendur hafa íslendingar
tapað fjórum stigum af sex, en eiga
á hinn bóginn eftir þrjá heimaleiki
sem ef til vill geta gefið nokkur stig
ef heppnin verður með okkar
mönnum. Líklegast hafa aldrei ver-
ið jafn miklir möguleikar á góðum
úrslitum í þessari keppni og einmitt
nú því bæði Austur- Þjóðverjar og
Austurríkismenn eru í lægð. Tyrk-
irnir á hinn bóginn óútreiknanlegir.
íslendingar munu leika stífan varn-
arleik í Moskvu- án efa- og reyna
með þeim hætti að krækja í eitt
stig. Annað hvort tekst það eða all-
ar flóðgáttir opnast og sovétmenn-
irnir raða inn mörkum. Að minnsta
kosti er næsta víst að íslenskir
áhorfendur þurfa ekki að eiga von á
kröftugum og fjörugum sóknarleik
af hálfu íslenska liðsins.
Stöð 2 kl. 17.30
ÁSTARSORGIR
Bandarísk kvikmynd, gerð 1981,
leikstjóri Harry Falk, aðalhlutverk
Cloris Leachman, Joe Terry, Kelly
Bishop, Walter Brooke, Melissa Sue
Anderson.
Myndin segir af blaðakonu sem
hefur umsjá með vandamáladálki
þar sem hún leysir vandamál ýmissa
lesenda, oftast i ástalífinu. Henni
ferst þetta vel úr hendi en þegar að
því kemur að leysa eigin vandamál
gengur henni ekki jafn vel. Meðal-
mynd, alls ekki meir.
Sjónvarpið ki. 22.15
HÖRKULÖGGUR***
Bandarísk kvikmynd, gerð 1974,
leikstjóri Gordon Parks, aðalhlut-
verk Ron Leibman, David Selby,
Sheila Frazier.
Myndin segir af tveimur ungum
lögregluþjónum í New York sem of-
býður skeytingarleysi yfirvalda í
baráttunni við eiturlyfjasala og
dreifiaðila. Þeir ákveða að taka til
hendinni og fara á stúfana í frítím-
anum og handtaka glæpamenn og
verður vel ágengt. Af þessum sök-
um fá þeir viðurnefnin Batman og
Robin. Myndin er hressileg, oft
fyndin en nokkuð gróf og ofbeld-
iskend. Hún byggir á sannsöguleg-
um atburðum og er tekin í því hverfi
New York þar sem atburðirnir raun-
verulega gerðust. Fær góða dóma í
kvikmyndahandabókinni.
0 STOÐ2
14.55 Landsleikur i knattspyrnu. Sovétrikin ■ island. Bein útsending. 17.00 Hlé. 16.45 Santa Bar- bara. 17.30 Ástarsorgir (Advice to the Love- lorn). Rómantisk gamanmynd.
1800 18.00 Sumar- glugginn. Endur- sýndur þáttur frá sl. sunnudegi. 18.50 Táknmáls- fréttir. 18.55 Poppkorn. Umsjón Stefán Hilmarsson.
1900 19.20 Svarta naör- an. (Blackadder). Þrióji þáttur. Þýð- andi Gunnar Þor- steinsson. 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Grænir fing- ur. Þáttur um garðrækt i umsjón Hafsteins Hafliða- sonar. 20.45 Frá Póllandi til páfadóms. (Papa Wojtyla). 19.19 19.19. 20.200 Sögur úr Andabæ. 20.30 Falcon Crest. 21.20 Bjargvættur- inn (Equalizer). 22.10 Viðskipti. 22.35 Nánar aug- lýst.
21.35 Sovétrikin • island. 22.15 Hörkulögg- ur. (The Super Cops). Bandarísk biómynd frá 1974. Þýðandi Páll Heió- ar Jónsson.
2300 23.00 Ellefufréttir. 23.10 Hörkulöggur - framh. 23.55 Dagskrár- lok. 23.00 Sólskinseyjan (Island in the Sun). 00.55 Dagskrárlok.