Alþýðublaðið - 31.05.1989, Side 8
Tónvisindahátíð
í Gerðubergi
Dagana 2.-7. júní verður
haldin í Menningarmiðstöð-
inni Gerðubergi tónvísinda-
hátíð. Dagskráin er þríþætt,
sjö innlendir og erlendir fyr-
irlesarar flytja fyrirlestra um
ýmis tónvísindaleg efni,
haldið verður fimm daga
námskeið í „músík-þerapíu“
og loks efnt til málþings og
pallborðsumræðna um mót-
un mcnningarstefnu á Is-
landi. Að auki verður boðað
til slofnfundar Tónvísindafé-
lags íslands.
Að hátíðinni stendur ís-
lenska hljómsveitin en auk
þess sem rætt verður um
menningarstefnu á íslandi
verður hitt aðalumræðuefn-
ið samband og skyldleiki list-
sköpunar og listvísinda.
Fluttir verða fyrirlestrar þar
að lútandi og haldnar pall-
borðsumræður um málið.
Sem fyrr segir verður boðað
til stofnfundar Tónvísindafé-
lags íslands og félaginu er
ætlað að knýja fram þær
breytingar á íslensku tónlist-
arlífi að meiri gaumur verði
gefinn að fræðigreinum sem
varða tónlist, auk þess sem
bent er á að Tónlistarháskóli
geti aldrei starfað sem skyldi
ef ekki eru fyrir i landinu
fræðimenn og -rannsóknir
sem gefa möguleika á um-
ræðum innan viðkomandi
skóla.
Tóbaksvarnardagur
helgaður konum
Áætlað hefur verið að á kemur fram í fréttatilkynn-
annað hundrað islenskar
konur deyi ár hvert af völd-
um reykinga og hlutfallslega
fleiri konur reykja á íslandi
en í flestum öðrum löndum
Evrópu, Heita má að nú
reyki jafnmargar konur og
karlar á íslandi á aldrinum
18-69 ára, eða um 34%. Þetta
Ölduselsskóli:
Ráðherra
setti
Reyni
Daníel
Menntamálaráðherra hef-
ur sett Reyni Daníel Gunn-
arsson yfirkennara í stöðu
skólastjóra Ölduselsskóla til
eins árs frá og með 1. ágúst
að telja. Hann gekk þar með
fram hjá Valgerði Selmu
Guðnadóttur, yfirkennara,
en hún hefur bæði lengri
starfsreynslu í grunnskóla en
Daníel, og meiri framhalds-
mcnntun eftir kennarapróf.
Að auki gcngur setningin
þvert á meirihlutaálit
fræðsluráðs.
ingu frá Tóbaksvarnarnefnd
sem hún sendir frá sér til að
vekja athygli á alþjóðlegum
tóbaksvarnardegi í dag, 31.
maí og er hann helgaður
konum.
HVERNIG
VERSLAR
ÞÚ?
Verðlagsstofnun vinnur nú
aö gerd auglýsingar sem á
að minna neytendur á að
sýna aögæslu og eftirtekt
þegar þeir versla til heimil-
isins. í gær var unnið aö
kvikmyndun augiýsingar-
innar í Kjötmiðstöðinni
Glæsibæ. Með hlutverk
frummannsins, sem er
aðalpersónan, fer Eggert
Guðmundsson, sem þekkt-
astur er fyrir hlutverk sitt í
Skyttum Friðriks Þórs Frið-
rikssonar. A-mynd/E.ÓI.
Átak í landgrœðslu:
INNFLYTJANDI FRÆKORNA
í FORSVARI SÖFNUNAR
Landgrœðsla ríkisins kaupir frœ af Globus. Forstjóri Globus er
formaður framkvœmdanefndar Átaks í landgrœðslu.
Árni Gestsson, forstjóri
Globus, sem er einn stærsti
innflytjandi frækorna í
landinu, er í forsvari fyrir
Átaki í landgræðslu. Sam-
tökin standa fyrir happ-
drætti og fjáröflun sem
stuðla á að þriggja ára
átaki við uppgræðslu
landsins. Happdrættis-
miðar hafa verið sendir til
allra íslendinga, 16-75 ára,
og verða vinningar dregnir
út í stuttum þáttum fyrir
kvöldfréttir í Sjónvarpi.
Söfnunarfé er ætlað að
renna til Landgræðslu rik-
isins, sem kaupir stóran
hluta af sinu fræi af Glob-
us, samkvæmt samningi
sem gerður var fyrir nokkr-
um árum síðan.
Opinber fjárveiting til
Landgræðslunnar er minni
í ár en í fyrra, en Átaki í
landgræðslu er ætlað að
tryggja að jafnmikið ráð-
stöfunarfé verði til upp-
græðslu á svæðum sem
Landgræðslan telur brýna
þörf.
Globus, Sambandið og
Mjólkurfélag Reykjavíkur,
eru stærstu innflytjendur
frækorna. í dag skiptir
Landgræðslan aðallega við
Globus. Sveinn Runólfs-
son, landgræðslustjóri,
sagði að fyrir nokkrum ár-
um hefðu frækaup Land-
græðslunnar verið boðin
út. „En síðan kom upp sú
staða að ekki var fáanlegt
það afbrigði sem hér hafði
hentað best. Þá varð að
ráði að gerður var samn-
ingur í gegnum Globus við
aðila í Kanada um fram-
ræktun á þessu afbrigði.
Þ.að var því gerður samn-
ingur um framtæktun til
nokkurra ára. Sá samning-
ur er í gildi ennþá.“ í sam-
vinnu við Rannsóknar-
stofnun landbúnaðarins
hefur Landgræðslan sett
upp fræræktarstöð í
Gunnarsholti. Sveinn
sagðist vonast til að Land-
græðslan verði fljótlega
sjálfum sér nóg um fræ.
Alls eru um 10 tonn sem
Landgræðslan kaupir af
Globus í ár. „Það er af-
skaplega ósanngjarnt að
nudda Árna upp úr ein-
hverjum hagsmunatengsl-
um,“ sagði Sveinn. „í 30 ár
hefur hann haft mikinn
hug á þessum landgræðslu-
málum og sinnt þeim heil-
mikið á öðrum sviðum.
Það er mjög ósanngjarnt
að væna hann um að þetta
sé eitthvert hagsmunamál
fyrir hann. 10 tonn af fræ-
um hljóta að vera smáaur-
ar í hans viðskiptaheimi.“
Síðastliðið sumar var
átaki hrundið af stað og er
happdrættið liður í því.
„Við eigum enn töluverðan
tíma eftir. Við höfum sett
okkur að safna 20-40 millj-
ónum á þ'essu tímabili,"
sagði Árni Gestsson for-
maður stjórnar Átaks í
landgræðslu. Árni sagðist
vona að enginn tengdi
áhuga hans á uppgræðslu
landsins við viðskipti
Globus og Landgræðsl-
unnar.
Deilurit
Þorgeirs
endurútgefið
Bókaútgáfan Leshús hefur
endurútgefið bók Þorgeirs
Þorgeirssonar, rithöfundar,
Að gefnu tilefni. Bókina ritar
Þorgeir um viðskipti sin við
íslenskt réttarkerfi í kjölfar
þess að höfðað var mál gegn
honum vegna skrifa hans um
lögregluna. Fyrsta útgáfa
bókarinnar er nú fyrir
nokkru uppseld.
Mál Þorgeirs var allt hið
furðulegasta, honum var
m.a. meinað að verja mál sitt
sjálfur fyrir hæstarétti.