Alþýðublaðið - 05.07.1989, Blaðsíða 4
4
Miðvikudagur 5. júlí 1989
Mannlif á hestamannamóti
Austfirskir hestamenn héldu fjórðungsmót
um síðustu helgi. Mikil veðurblíða var á
sunnudaginn og komst hitinn í 19 stig. Mótið
var haldið við Iðavelli á Völlum í landi Valla-
ness þar sem sr. Stefán Ólafsson var prestur á
17. öld, en hann er talinn fyrsta hestaskáld
landsins. í höfuðið á honum er völlurinn
stundum kallaður Stefánsvöllur og fer vel á
því að þjóðmenning Islendinga, skáldskapur-
inn og hestamennskan, sameinist í einu nafni.
Guðlaugur Tryggvi Karlsson var mættur með
myndavélina og tók meðfylgjandi myndir af
mannlífinu á hestamannamótinu í veður-
blíðunni.
„Lone Ranger“ viljum við kalla þessa mynd af hnátunni ungu og kúrekahattinum. Ef til
vill á hún eftir að þeysa á fráum gæðingum seinna.
Halldór Blöndal og Egill á Seljavöllum alþingismenn ræða málin við hestamenn
Austfirðingar lögðu mikla vinnu i að gera alla aðstöðu fyrir gesti mótsins sem besta.
Veglegur veitingaskáli er fyrir ofan brekkuna, þótt auðvitað sé líka freisting að taka bit-
ann með sér út í brekkuna, á milli þess sem myntíað er með vídeóvélunum.
Setið að snæðingi i hinum vistlega skála og voru veiting
arnar ekki af verri endanum, hangikjöt og kartöflustappa
Ljósm.: G.T.K.