Alþýðublaðið - 08.09.1989, Blaðsíða 4
4
Föstudagur 8. sept. 1989
FRÉTTASKÝBING
Þingkosningarnar í Noregi:
BOÐIÐ UPP í DANS
Nordmenn ganga til þingkosninga nk.
mánudag. Alþýdublaðið birti í því tilefni
fyrri hluta greinar um norska flokkakerfið,
stefnumál flokkanna og stöðu þeirra, mið-
vikudaginn 6. september sl. í síðari hluta
greinarinnar sem hér birtist er fjallað um
Miðflokkinn, Kristilega þjóðarflokkinn, Sósí-
alíska vinstriflokkinn, Framfaraflokkinn
og kommúnistaflokkana tvo.
Ekki er ósennilegt að leiðtogar borgaraflokkanna fagni sigri i norsku þing-
kosningunum eftir helgina, líkt og formaður Hægriflokksins Jan P. Syse
gerir á þessari mynd. Allt annað mál er hvort þeim takist að mynda starf-
hæfa ríkisstjórn.
Míðflokkurínn:
Borgaralegur bændaflokkur
Þegar Noregur fékk stjórnarskrá
1814 á Eiðsvelli, voru bændurnir
mikilvægur, pólitískur hópur. Með
auknum iðnaði, tæknivæðingu og
uppbyggingu borgar og bæja dró
úr styrk bænda jafnframt sem
innri klofningur átti sér stað. í upp-
hafi studdu flestir bændur Vinstri
(Venstre) en norsku bændasam-
tökin ákváðu 1919 að bjóða fram
sjálfstætt við þingkosningarnar
það árið. Árið 1922 var samþykkt
að flokkurinn fengi nafnið Bænda-
flokkurinn. Bændaflokkurinn
varð snemma andsósíalískur og
útilokaði alls ekki samvinnu með
Hægriflokknum. Á miðjum fjórða
áratugnum lagði flokkurinn aðrar
áherslur á stefnu sina og hóf sam-
starf með Verkamannaflokknum
sem m.a. varð til þess að Verka-
mannaflokkurinn gat stofnað
stjórn á þeim áratug.
Bændaflokkurinn náði mestu
fylgi í kosningunum 1927 þegar
flokkurinn náði 26 þingsætum.
Síðan hefur vegur flokksins legið
niður á við. Ástæðan: Minnkandi
ítök bænda í norsku þjóðfélagi. I
dag vinna aðeins 6—7% við land-
búnaðarstörf.
í Ijósi breyttra aðstæðna var
ákveðið á sjötta áratugnum að
flokkurinn skyldi breyta um nafn í
því skyni að stefnan mætti höfða
til fleiri en bændastéttarinnar.
Flokkurinn fékk nafnið Miðflokk-
urinn árið 1959. Á eftirstríðsárun-
um hefur flokkurinn skipað sér á
bekk með borgaraiegu flokkunum
og tók þátt í samsteypustjórn
borgaralegu flokkanna 1965—72
og átti fjóra ráðherra í ríkisstjórn,
þ.á.m. forsætisráðherrann Per
Borten. Miðflokkurinn sat eirinig í
ríkisstjórn Kaare Willochs á þess-
um áratug. Hins vegar bjargaði
Miðflokkurinn stjórn Verka-
mannaflokksins undir forsæti
Brundtlands frá falli fyrir nokkr-
um árum með því að styðja ekki
vantrauststillögu á stjórnina á
þingi.
Miðflokkurinn hefur áhuga á
samstarfi við borgaralegu flokk-
ana um myndun ríkisstjórnar að
loknum kosningum, en hefur hins
vegar útilokað stjórnarsamstarf
með Framfaraflokknum. Þessi yf-
irlýsing hefur gert það að verkum,
að menn eru svartsýnir á að borg-
aralegu flokkunum takist að
klambra saman ríkisstjórn þótt
þeir hefðu atkvæðamagn til þess.
Flokkurinn leggur aðaláherslu á
byggðamál, styður þátttöku Nor-
egs í NATO en er andstæðingur
þess að Noregur gerist aðildarríki
í EB, einkum vegna ótta við að
hagur norskrar bændastéttar
verði verri en áður.
Miðflokkurinn á 12 menn á
þingi í dag og síðustu skoðana-
kannanirnir benda til þess að
þingmönnum eigi eftir að fækka
eitthvað í kosningunum eftir
næstu helgi. Formaður Miðflokks-
ins heitir Johan J. Jakobsen.
Kristilegi þjóðarflokkurinn:
Halelúja og
gegn fóstureyöingum
Kristilegi þjóðarflpkkurinn er
upphaflega klofnin'gsarmur út úr
Vinstri líkt ogyBændaflokkurinn
gamli. Kristnúm hópum, einkum í
Hörðalandí, þótti Vinstri svíkja lit
i málefnum kristninnar og stofn-
uðu Kristilega þjóðarflokkinn
1933. Hinn nýi flokkur fékk fljót-
léga hljómgrunn í V-Noregi þar
sem trúarlíf er einkar litríkt og
blómlegt. Flokkurinn náði stöðu
sem þjóðarflokkur í kosningunum
1945 þegar hann fékk 8 menn á
þing. Bestu kosningar Kristilega
þjóðarflokksins voru 1977 þegar
flokkurinn fékk 22 menn á þing.
Eins og nafnið gefur til kynna,
berst Kristilegi þjóðarflokkurinn
fyrir kristilegu verðmætagildi, er
flokkur allra stétta en skipar sér á
sess með borgaralegu flokkunum.
Þar af leiðandi hefur flokkurinn
verðið mikilvægur grunnur í sam-
starfi borgaralegra flokka og sam-
steypustjórnum þeirra allt frá
stríðslokum. Flokkurinn hefur
einu sinni átt forsætisráðherra
landsins, það var 1972—73 þegar
minnihlutastjórn Lars Korvald sat
við völd. Flokkurinn tók þátt í
samsteypustjórn Kaare Willochs
og eftir að sú stjórn féll 1986 hefur
flokkurinn lagt rika áherslu á að
starfa aftur saman með Hægri-
flokknum í ríkisstjórn. Af einstök-
um málefnum flokksins má nefna
baráttuna gegn löggjöfinni um
frjálsar fóstureyðingar og baráttu
fyrir stórauknu framlagi Norð-
manna til þróunaraðstoðar. Flokk-
urinn styður ísrael dyggast allra
flokka í Noregi. Kristilegi þjóðar-
flokkurinn á 16 menn á þingi í dag
en mun sennilega missa einhver
þingsæti ef skoðanakannanir
standast. Formaður flokksins er
Kjell Magne Bondevik.
Sósíalíski vinstriflokkurinn:
Vinstri vængurinn___________
úr verkamannaflokknum
Sósíslíski vinstriflokkurinn er
sprottinn upp úr Sósíalíska þjóðar-
flokknum>em aftur er klofningur
úr Verkamannaflokknum. Stórir
hópar innan Verkamannaflokks-
ins voru ósáttir við þá ákvörðun
flokksforystu Verkamannaflokks-
ins að ganga í Atlantshafsbanda-
lagið að lokinni heimsstyrjöldinni.
Andstöðunni gegn herbandalög-
um og aðild Noregs að NATO var
þó haldið niðri á kalda stríðsárun-
um en í lok sjötta áratugarins var
Sósíalíski þjóðarflokkurinn stofn-
aður af stuðningsmönnum hug-
mynda sem lengi höfðu gerjast í
vinstri væng Verkamannaflokks-
ins. Umræður um kjarnorkuvopn
á norski grund hröðuðuð stofnun
hins nýja flokks. Við þingkosning-
arnar 1961 fékk flokkurinn tvo
þingmenn og lenti í þeirri sér-
kennilegu stöðu að vera með
oddaatkvæði milli 74 þingmanna
Verkamannaflokksins og 74 þing-
manna borgaralegu flokkanna.
Árið 1963 notuðu þingmenn Sós-
íalíska þjóðarflokksins sér at-
kvæðin í pólitískri kreppu sem
upp kom á þinginu og Noregur
lenti í fyrstu þingupplausninni frá
stríðslokum. í kjölfarið tók borg-
araleg stjórn við völdum tveimur
árum síðar.
Sósíalíski þjóðarflokkurinn fékk
byr undir báða vængi í EB-deil-
unni 1972 þar sem hann tók skýra
afstöðu gegn inngöngu Noregs í
Efnahagsbandalagið (Verka-
mannaflokkurinn var á öndverðri
skoðun). í þjóðaratkvæðagreiðsl-
unni sögðu Norðmenn nei við EB
og í þingkosningunum næsta ár
sló Sósíaiíski þjóðarflokkurinn sér
saman við kommúnistana og EB-
andstæðinga Verkamannaflokks-
ins og mynduðu Sósialíska kosn-
ingabandalagið sem náði 16
mönnum á þing. Ekki leið á löngu
áður en kommúnistarnir drógu sig
út úr kosningabandalaginu og af-
gangurinn stofnaði Sósíalíska
vinstriflokkinn 1975. í dag á flokk-
urinn 6 þingmenn á Stórþinginu
og samkvæmt skoðanakönnunum
mun flokkurinn bæta verulega við
sig í kosningunum nk. mánudag.
Stefna flokksins er róttæk sósí-
aldemókratísk pólitík. Flokkurinn
berst fyrir hlutleysi Noregs og út-
göngu úr NATO. í umhverfismál-
um er flokkurinn mjög „grænn."
Flokkurinn er skýr andstæðingur
þess að Noregur gerist aðildarríki
að EB. Formaður Sósíalíska
vinstriflokksins er Erik Solheim.
Framfaraflokkurinn
Menn eru hœttir aö hlæja
Framfaraflokkurinn hét áður
„Flokkur Anders Lange sem berst
fyrir því að stórlækka skatta, út-
gjöld og opinberar árásir." Anders
Lange stofnaði flokkinn 1973 í
kjölfar þeirrar upplausnar sem
einkenndi Noreg eftir þjóðarat-
kvæðagreiðsluna um EB 1972.
Flokkurinn var einkum frægur
fyrir hinn litríka formann sinn,
sjarmerandi eldri mann sem snafs-
aði sig á eggjalíkjör og hélt þrum-
andi ræður gegn skattaveldinu
Noregi. Þessi norski Glistrup-
flokkur var ekki tekinn alvarlega
og eiginlega hlegið að fylgismönn-
um flokksins og þeir sakaðir um
lýðskrum. Þegar Anders Lange
lést 1974 var flokknum spáð hröð-
um dauðdaga.
Varaformaðurinn, hinn ungi og
frísklegi Carl I. Hagen tók við
flokknum og tókst á næstu áratug
eða svo, að breyta ímynd flokksins
úr einhæfum skattasvindlara-
flokki í breiðan frjálshyggju hægri-
flokk sem berst gegn allri ríkis-
hyggju, ríkisforsjá og opinberum
afskiptum. Hugmyndir Hagens
hafa fallið vel í uppakynslóðina og
SEINNI HLUTI
ungt fólk almennt og flokkurinn
ætt upp í skoðanakönnunum. I
kosningu sem haldin var í norsk-
um framhaldsskólum í síðustu
viku (hefðbundin þingkosning fer
alltaf fram í norskum framhalds-
skólum skömmu fyrir hinar raun-
verulegu kosningar og eru skóla-
kosningarnar taldar vitna um hug
yngstu kjósendanna) vann Fram-
faraflokkurinn yfirburðasigur,
hlaut 22.8% fylgi en Hægriflokk-
urinn 20.5% og Verkamanna-
flokkurinn 19.5%. Það vakti enn-
fremur athygli að skólaæskan gaf
Sósíalsíska vinstriflokknum 13.5%
atkvæða, sem er geysilega aukn-
ing.
I skoðanakönnunum í vor og
sumar var Framfaraflokkurinn
orðinn næststærstur (eftir Verka-
mannaflokknum) en sú bylgja stóð
stutt yfir og er hann í þriðja sæti í
dag, sem verður að teljast ótrúleg-
ur árangur. Framfaraflokkurinn
berst eins og fyrr segir fyrir al-
gjöru afnámi ríkisafskipta í at-
vinnulífinu en leggur hins vegar
mikla áherslu á gríðarlega aukn-
ingu ríkisframlaga til lögreglu og
hers. Framfaraflokkurinn hefur
einnig lagst eindregið gegn er-
lendum innflytjendum og hefur
oft verið stimplaður sem flokkur
kynþáttafordóma en afstaða
flokksins í málefnum innflytjenda
er talin hafa aflað flokknum fylgi
frekar en hitt. Hagen hefur sett
fram einfaldar lausnir á refsingu
glæpa eins og betrunarbúðir þar
sem sakamenn eigi að höggva
eldivið og að hver sem gerir sig
sekan um skemmdarverk á al-
mannafæri eigi að dæmast til að
gera sjálfur við skaðann. Þessar
hugmyndir ásamt frjálshyggju-
hugmyndunum í atvinnurekstri
hafa mælst vel fyrir hjá hinum al-
menna Norðmanni en hefðbundn-
ir hægrimenn og miðflokkarnir
hafa illa getað sætt við allt afnám
ríkisstyrkja til atvinnulífsins og
þess vegna er ekki talið að Fram-
faraflokkurinn eigi greiðan að-
gang að stjórnarsamstarfi við
borgaralegu flokkana eftir kosn-
ingarnar á mánudaginn kemur.
I dag á Framfaraflokkurinn 2
menn á þingi. Skoðanakannarnir
benda hins vegar til að flokkurinn
muni stórauka þingmannafjölda
sinn á næsta þingi.
Kommúnistaf lokkarnir:
Ahrrfalausir
Tveir kommúnistaflokkar eru
starfandi í Noregi í dag. Sá eldri,
Kommúnistaflokkur Noregs var
stofnaður 1923 sem klofningur úr
Verkamannaflokknum. Flokkur-
inn hefur alla tíð tekið pólhæðina
út frá Moskvu. Flokkurinn náði
mestum árangri eftir stríð, í þing-
kosningunum 1945 þegar 11
menn komust á þing í kjölfar já-
kvæðra strauma gagnvart Sovét-
mönnum að lokinni styrjöld. Frá
og með 1949 hefur flokkurinn
hvorki verið fugl né fiskur og þótt
hann hafi átt örfáa menn á þingi á
sjötta áratugnum (og engan síðan)
eru áhrif flokksins á þingi ekki
mælanleg. Við síðustu þingkosn-
ingar fékk Kommúnistaflokkur
Noregs 0.2%.
Hinn kommúníski flokkurinn
heitir Kommúnistaflokkur verka-
manna, marx-ienínistarnir. Hreyf-
ingin klauf sig út úr æskulýðsfylk-
ingu Sósíalíska þjóðarflokksins
1973. Kommúnistaflokkur verka-
manna (AKP) var sterkur á átt-
unda áratugnum á einstökum
vinnustöðum og ekki síst meðal
háskólamanna og menntamanna.
Flokkurinn hefur barist gegn stór-
veldastefnu, ekki síst Sovétríkjun-
um en skipað sér hugmyndafræði-
lega á bekk með Kína og Albaníu.
Eftir þjóðfélagsbreytingarnar í
Kína eftir dauða Maós hefur
flokksmönnum þótt erfitt að fóta
sig á stefnunni. Málgagn flokksins
heitir Stéttabaráttan (Klasse-
kampen) og hefur náð töluverðri
útbreiðslu og byggir að mörgu
leyti á söluhugmyndum gulu
pressunnar. Við kosningar hefur
kommúnistaflokkur verkamanna
boðið fram undir heitinu Rautt
kosningabandalag. Það fékk 0.6%
í síðustu kosningum og er ekki tal-
ið auka fylgi sitt í komandi kson-
ingum.
Breytt valdahlutföll á þingi
Stórþingið í Noregi er skipað
157 þingmönnum. í dag er skipt-
ing þingmanna eftir flokkum sem
hér segir:
Verkamannaflokkurinn 71,
Hægriflokkurinn 50, Kristilegi
þjóðarflokkurinn 16, Miðflokkur-
inn 12, Sósíalíski vinstriflokkurinn
6, Framfaraflokkurinn 2.
í kosningunum á mánudaginn
bætast 8 jöfunarþingsæti við og
verður þá tala þingmanna á Stór-
þinginu alis 165. Samkvæmt síð-
ustu skoðanakönnunum er ljóst
að valdahlutföll munu breytast
töluvert á Stórþinginu að loknum
þingkosningum nk. mánudag.
Líklegt þykir að Verkamanna-
flokkurinn tapi einhverju fylgi.i
borgaralegu flokkarnir bæti við
sig, sérstaklega Framfaraflokkur-
inn og Sósíalíski verkamanna-
flokkurinn stórauki fylgi sitt.
En þar sem borgaralegu flokk-
arnir eru mjög upp á kant innbyrð-
is er ljóst að það verður erfitt fyrir
þá að koma saman starfhæfri rík-
isstjórn. Á hinn bóginn virðist
einnig liggja fyrir að Gro Harlem
Brundtland myndar ekki ríkis-
stjórn nema með aðild sósíalista.
Nema Verkamannaflokkurinn sitji
áfram sem minnihlutastjórn.
(Heimildir: Norge Informasjon,
Arbeiderbladet og fl.)
Ingótfur Margeirsson ■
skrifar