Alþýðublaðið - 08.09.1989, Side 5
Föstudagur 8. sept. T989
5
FÖSTUDAGSSPJALL
Borgaraleg vinstri stjórn
Þá er „borgaralega" ríkisstjórnin loks að taka við völdum. Henn-
ar hefur verið beðið með talsverðri eftirvæntingu, aðallega vegna
þess að tilhugalífið var orðið svo ógnarlangt. Borgaraflokkurinn
hefur setið eins og heimasæta í festum frá því í desember sl„ þeg-
ar hringarnir voru settir upp við fjárlagaafgreiösluna.
Þetta var því orðin nokkuð löng
trúlofun. Þær verða víst ekki öllu
lengri. í níu mánuði brydduðu þeir
brúðarskóna.
Ástæðurnar fyrir þessum langa
aðdraganda voru ýmsar. Fyrir ut-
an laxveiði og sumarfrí voru þær
aðallega tvær.
Löng bið
í fyrsta lagi var uppKafstilboð
Steingríms Hermannssonar um
þrjú ráðuneyti og þrjá ráðherra
langt umfram það, sem þurfti.
Samningarnir snerust síðan um
það að athuga hve mikið ríkis-
stjórnin hefði auðvitað átt að vera
í hina áttina. En í þessu birtist
reyndar það sem forsætisráðherr-
anum sást yfir í upphafi. Borgara-
flokkurinn var nefnilega sá aðil-
inn, sem átti meira undir því að
samningar næðust.
Önnur ástæðan fyrir seinagangi
viðræðnanna var sú að stjórnar-
flokkarnir voru ekki almennilega
ákveðnir í því að ná samningum.
Innan flokkanna allra voru menn,
sem töldu stjórnina geta lifað án
borgaralegs stuðnings eða að hún
ætti að láta skeika að sköpuðu.
Áhrif á stjórnarævina
Innganga Borgaraflokksins hef-
ur örugglega þau áhrif að ríkis-
stjórnin mun sitja út kjörtímabilið.
SMÁFRÉTTIR
Skrá yfir ís-
lenskt starfs-
fólk hjá
alþjóða-
samtökum
Út eru komin drög að skrá yfir
íslenskt starfsfólk hjá alþjóða-
samtökum og við alþjóðleg þró-
unar- eða mannúðarverkefni. Rit-
ið er gefið út sem handrit. Höf-
undar eru þeir Guðmundur S.
Alfreðsson og Theodór Lúðvíks-
son.
í inngangi rekja þeir tildrög út-
gáfunnar: „Hugmyndin að þessu
riti fæddist yfir kaffibolla í gömlu
Þjóðabandalagshöllinni í Genf.
Talið barst að íslensku sam-
starfsfólki, sem við höfðum hitt
eða frétt um í tengslum við
vinnu okkar hjá Sameinuðu
þjóðunum. Við héldum fyrst, að
þarna væri um að ræða 60-80
manns, og okkur fannst gaman
og jafnvel gagnlegt að taka sam-
an lista yfir landahópinn." Síðan
kom á daginn, við upphaf verks-
ins á haustdögúm árið 1985, að
umfangið var miklu meira. Eftir
að hafa skoðað opinberar skýrsl-
ur sendu þeir félagar út bréf til
um 100 viðtakenda og svörin
greindu frá snöggtum fleira fólki.
Æviágripin í heftinu eru 109
talsins, en í allsherjarskránni eins
og hún nú stendur eru 284 nöfn,
svo að verkinu er alls ekki lokið.
Handritið er til sölu í Eymunds-
son Austurstræti.
Tveir á ferð
Tveir á ferð nefnist sýning
þeirra feðgina Margrétar Jóns-
dóttur og Jóns Benediktssonar
sem opnuð verður nk. laugardag
9. sept. í FÍM-salnum Garða-
stræti 6 kl. 16 og stendur til
þriðjudagsins 26. september.
Margrét sýnir olíumálverk og
Jón sýnir höggmyndir unnar í
eir.
Margrét hefur verið starfandi
myndlistarmaður í 15 ár og á
þessu ári tók hún þátt í sýning-
unum: Jólasýning-FÍM, Tvíæring-
ur-FÍM á Kjarvalsstöðum, Á Tólf-
æringi í Menningar- og listamið-
stöð Hafnarfjarðar, Hamraborg
og Sumarsýning-FÍM.
Jón Benediktsson hefur verið
starfandi myndlistamaður í yfir
40 ár og var einn af þekktari
myndhöggvurum þjóðarinnar.
Undanfarin ár hefur hann haft
hljótt um sig, en byrjaði að vinna
aftur að fullu þegar FÍM-salurinn
tók til starfa sem gallerí, því það
vakti með honum gamlan eld-
móð, enda gamall FÍM-ari. Sýn-
ingar sem Jón tók þátt í á þessu
ári eru: Jólasýning-FÍM og Sum-
arsýning-FÍM.
Feðginin Margrét og Jón Bene-
diktsson við eitt verkanna á
sýningunni í FÍM-salnum.
„Borgaraflokkurinn hefur ekki
skrifað ný guöspjöll i Bibliu ís-
lenskra stjórnmála, þrátt fyrir að
formaöur flokksins telji sig mann
hugsjóna og nýrra hugmynda. Þær
nýjungar hefur hann þá birt verum
á öðrum plánetum," segir Guð-
mundur Einarsson i Föstudags-
spjalli, sem fjallar að þessu sinni
um inngöngu Júlíusar Sólnes og
borgaraflokksmanna í ríkisstjórn-
ina.
A-flokkarnir munu vilja nota
tímann til að styrkja stöðu sína.
Steingrími Hermannssyni gæti
vel dottið í hug að láta af for-
mennsku í Framsókn um það leyti
er stjórnin færi frá og hann mun
ekki vilja láta það á sig sannast að
undir lokin hefði gliðnað undir
honum ráðherrastóllinn.
Það má spá því að Steingrímur
geri allt til að koma í veg fyrir að
sandur komist í gírkassa stjórnar-
jeppans þessa 18 mánuði sem eftir
eru.
Borgaraflokksmenn munu gera
sitt til að stjórnin sitji til vors 1991.
Hvort sem þeir ætla flokknum
langlífi eða ekki þurfa þeir tíma.
Sem flokkur þurfa þeir tíma til að
réttlæta stjórnarsetuna og nýta
hana til uppbyggingar.
Ef þeir ætla sér framhaldslíf í
pólitík, án flokksins, þurfa þeir
tíma til að byggja undirstöður og
brýr.
Að öllu samanlögðu er líklegast
að stjórnin muni sitja.
Áhrif á stjórnarstefnuna
Það er vandséö að stjórnarstefn-
an breytist að innihaldi. Borgara-
flokkurinn hefur ekki skrifað ný
guðspjöll í Biblíu íslenskra stjórn-
mála, þrátt fyrir að formaður
flokksins telji sig mann hugsjóna
og nýrra hugmynda. Þær nýjung-
ar hefur hann þá birt verum á öðr-
um plánetum en okkar.
Borgaraflokksmenn eru trúir
þeirri meginstefnumörkun allra ís-
lenskra stjórnmálaflokka að vera
aðlúðlegir við börn og sjúka, að
styðja öll góð mál og stugga við
sem fæstum.
t-------------------------------
Af þessu er Ijóst að þótt stjórnin
fái fjórða flokkinn, fær stjórnar-
sáttmálinn ekki fjórðu víddina.
Áhrif á stjórnarstörfin
Mesti munurinn verður líkiega
sá, að stjórnin mun keyra sín mál
áfram af meiri festu en hingað til.
Einstakir þingmenn munu ekki
geta gert henni fyrirsát á sama
hátt og'síðastliðinn vetur. Þeir
mildu vígamenn munu örugglega
bregða bröndum sínum og bíta í
skjaldarrendur af engu minni
vígamóð en áður, en munurinn
verður sá að enginn þeirra verður
ómissandi lengur. Og þótt þeir hafi
átt það sameiginlegt að hrekkja
ráðherrana hver um sig í fyrravet-
ur, er ólíklegt að þeir nái samstöðu
um að gera það sameiginlega sem
hópur í vetur.
Guömundur
Einarsson skrifar
Atvinnu- og orkumál
á Austurlandi
y F"
y
Almennur fundur þriðjudaginn, 12. september 1989,
kl. 20.30, í Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum.
4
'í\
Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráð-
herra, fjallar um horfur í sjávarútvegi
og atvinnumálum. Jón Sigurðsson’ við-
skipta- og iðnaðarráðherra, fjallar um
virkjanaáform og iðnaðaruppbyggingu,
sérstaklega Fljótsdalsvirkjun og
iðnaðaráform tengd henni. Að fram-
söguerindum loknum verða al-
mennar umræður. Með ráðherr-
unum verða sérfræðingar frá
sjávarútvegs- og iðnaðarráðuneyti
og stofnunum sem undir þau heyra.
í tengslum við fundinn verður haldin
sýning í Hótel Valaskjálf á teikn-
ingum sem lýsa hugmyndum um
virkjun Jökulsár í Fljótsdal
og virkjun Fjarðar-
ár. Sýningin verður
opin frá kl. 17.00.
Sérfræðingar frá
Landsvirkjun og Raf-
magnsveitum ríkis-
ins verða á sýning-
unni til áð útskýra
það sem fyrir augu
ber.
...
SJAVARUTVEGSRAÐUNEYTIÐ
IÐNAÐARRÁÐ UNEÝTIÐ