Alþýðublaðið - 08.09.1989, Side 6
6
Föstudagur 8. sept. 1989
SMÁFRÉTTIR
Nýir stjórar
í grunnskól-
ana
Á skólaárínu 1989—90 er
grunnskólum heimilt aö nota
tvær klukkustundir á nemanda í
skyldunámi á ári umfram venju-
legan kennslukvóta til árganga-
stjórnar og/eöa fagstjórnar. Þetta
er samkvæmt reglum sem
menntamálaráðuneytið hefur
* Krossgátan
□ i 2^ 3! 4
5
6 J □ 7
5 9
10 □ 11
□ 12 ■
13 □ □
Lárétt: 1 kjána, 5 kálaði, 6 kveik-
ur, 7 hræðast, 8 stækkuðu, 10
innan, 11 bók, 12staki, 13forföð-
urinn.
Lóðrótt: 1 spónamat, 2 gljáhúð,
3 kall, 4 slurkur, 5 leka, 7 mynnið,
9 eydd, 12 umdæmisstafir.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 brött, 5 eril, 6 les, 7 ha,
8diskur, 10 ið, 11 æla, 12 hrun, 13
gárar.
Lóðrétt: 1 breið, 2 riss, 3 öl, 4
tjaran, 5 elding, 7 hulur, 9 kæra,
12 hr.
gefið út um árganga- og fag-
stjórn í grunnskólum og reglum
um leiðsögukennara í grunnskól-
um.
i reglunum um árganga- og
fagstjórn eru m.a. settar fram
viðmiðanir um verkefni árganga-
stjóra og fagstjóra. Meginhlut-
verk þeirra er að vinna að því að
bæta nám og kennslu undir
stjórn skólastjóra.
Árgangastjórar hafa umsjón
með kennslu, starfsháttum,
námsgögnum og kennslutækjum
í einum, eða fleiri árgöngum.
Þeir velja námsefni í samráði við
viðkomandi kennara og sam-
ræma starfið í þeim árgangi eða
árgöngum sem þeir hafa umsjón
með.
Fagstjórar hafa umsjón með
námsgrein eða námsgreinum.
Þeir ákveöa námsefni og
kennsluaðferðir í samráði við
viðkomandi kennara, fylgjast
með nýjungum og kynna þær
og samræma mat á námi og
starfi nemenda í þeim náms-
greinum sem þeir hafa umsjón
með. Fagstjórar geta einnig haft
umsjón með sérdeildum, sér-
kennslu, skólasafnskennslu og
félagsstörfum nemenda.
SÁÁ með
„íhlutun á
vinnustöðum"
íhlutun á vinnustöðum nefnist
nýr þáttur í starfsemi SÁÁ sem
tekinn var upp fyrir skömmu.
Hér er um að ræða þjónustu
sem einkum er beint til stjórn-
enda og starfsmanna fyrirtækja í
formi fræðslufunda, upplýsinga-
miðlunar og viðtölum við ein-
staklinga.
Þrátt fyrir þann mikla árangur
sem náðst hefur í meðferð
áfengissjúkra hér á landi telur
SÁÁ enn mikið vanta á aðgengi-
legar upplýsingar um eitt
stærsta heilbrigðisvandamál
þjóðarinnar. Spurningar um slíkt
vakni ekki síst inni á vinnustöð-
um og oft séu bæði stjórnendur
og starfsmenn í erfiðri aðstöðu.
„Enginn vafi er á að áfengis-
neysla veldur mörgum fyrirtækj-
um miklum skaða, bæði beinu
fjárhagslegu tjóni og einnig fé-
lagslegum truflunum á vinnu-
stað. Oft er hin raunverulega or-
sök vandans dyggilega falin og
erfitt að komast að rótum hans.
Tjl að bæta úr þessu hefur
SÁÁ tekið upp nýjan þátt í þjón-
ustu sinni, íhlutun á vinnustöð-
um, þar sem forsvarsmönnum
og starfsmönnum fyrirtækja og
stofnana er boðið upp á eins
konar vinnustaða-þjónustu," seg-
ir í fréttatilkynningu.
Allar nánari upplýsingar veitir
Jóhann Örn Héðinsson á skrif-
stofu SÁÁ í Reykjavík, s. 82399.
„Iðnaður og
búseta"
Út er komin bókin „Iðnaður og
búseta — staðarval iðnaðar á ís-
landi og svæðisbundin þróun".
Bók þessi inniheldur niður-
stöður umfangsmikillar rann-
sóknar á svæðisbundinni þróun
iðnaðar hér á landi og má segja
að efni hennar sé tvíþætt. Ann-
ars vegar fjallar hún um þróun
iðnaðar hér á landi undanfarna
áratugi, bæði hvað varðar iðnað-
inn í heild sem og einstakar und-
irgreinar hans. í því sambandi
eru m.a. kynntar áður óbirtar
niðurstöður um fjölda nýstofn-
aðra og lokaðra fyrirtækja hér á
Austfiröingar
Hvernig standa stjórnmálin í dag?
Opinn stjórnmálafundur meö Jóni Baldvin Hannibals-
syni utanríkisráðherra nk. sunnudag kl. 17.00, aö Hótel
Valhöll, Eskifiröi og kl. 21.00 aö Hótel Valaskjálf Egils-
stööum.
Allir velkomnir.
Alþýðuflokkurinn
landi og þátt þeirra í sköpun
nýrra atvinnutækifæra.
Hins vegar fjallar bókin um til-
tekinn hluta af byggðaþróun
landsins, þ.e. þátt iðnaðar í að
jafna byggðaröskun. Störfum í
iðnaði hefur fjölgað mjög mis-
munandi eftir svæðum og hefur
þróunin verið einna jákvæðust á
íandsbyggðinni og í minni sveit-
arfélögum. Neikvæðust hefur
þróunin hins vegar verið á höf-
uðborgarsvæðinu og á það við
um svo til allar iðngreinar. Rekja
má upphaf þessarar þróunar til
stríðsáranna, þegar mikil um-
skipti urðu í íslensku efnahags-
lífi.
Höfundur bókarinnar er Gylfi
Arnbjörnsson svæðahagfræðing-
ur en hann hefur stundaö rann-
sóknir á svæðisbundinni þróun
iðnaðar undanfarin ár, m.a. í
samvinnu við norræna aðila. Við
gerð þessarar rannsóknar hefur
höfundur nctið styrkja frá Vís-
indaráði, Iðnaðarráðherra, Iðn-
lánasjóði og Félagi íslenskra iðn-
rekenda. Höfundur gefur bókina
út og sér um dreifingu hennar
en prentsmiðjan Oddi sá um
prentun hennar (bókin er 164
síður og inniheldur 50 töflur og
36 myndir).
Bókina má panta í síma
91-16703 (h.) eða 91-621470 (v.)
GETRAUNIR
ALÞYÐUBLAÐIÐ TIPPAR A NY
Þá er Alþýðublaðið komið á fullt í getraunakeppnina að nýju, en
eins og dyggir lesendur blaðsins muna efalaust þá sigraði það í fjöl-
miðlakeppninni tímabilið 1985—1986. Nú eru andstæðingarnir
komnir í betri æfingu og treysta sér í okkur aftur.
Alls 11 fjölmiðlar taka þátt í fjölmiðlaspánni. Leikirnir í fyrstu um-
ferð hennar eru allir úr ensku knattspyrnunni, þar af 10 í fyrstu
deildinni. Spámenn eru nokkurn veginn öryggir um að Arsenal sigri
Sheffield Wednesday, að Liverpool sigri Derby og að Luton og Nor-
wich sigri andstæðinga sína. Umdeildustu leikirnir eru Everton
gegn Manchester United, Millwall gegn Coventry og Crystal Palace
gegn Wimbledon. Að vanda getur þó allt gerst, ekki síst í byrjun
leiktímabils.
Aðalspá blaðsins er 1-1 -X/1 -2-1 /1 -1 -1 /1 -X-2. Hófsamlegur kerfis-
seðill fyrir 4.320 krónur gerir ráð fyrir þremur þrítryggðum leikjum
og fjórum tvítryggðum og leggjum við til eftirfarandi: 1-12-X2/1X2-
2-1X2/1-1 -1X2/1 -1X-X2.
FJÖLMIÐLASPÁIN
LEIKIR 9. SEPT. 89 _i m S > o TÍMINN Z Z 3 > s 2 I DAGUR I RlKISÚTVARPK) | I BYLGJAN | I STÖÐ2 STJARNAN S i m 3 5 £L < z < 3 > m s 3 X SAMTALS
1 X 2
Arsenal - Sheff. Wed. 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 11 0 0
Aston Villa - Tottenham 2 X 2 2 2 X 2 2 2 1 1 1 2 8
Chelsea-Nott.For. X X 2 2 1 2 X X 2 X X 1 6 4
C. Palace - Wimbledon X 2 X 2 X 1 1 1 X 1 1 5 4 2
Derby - Liverpool 2 2 X 2 2 2 2 2 2 2 2 0 1 10
Everton - Man. Utd. 1 X 2 X X X 2 2 X 1 1 3 5 3
Luton - Charlton 1 1 X 1 1 1 1 X 1 1 1 9 2 0
Man. City-Q.P.R. X X X 1 1 X 1 X 1 1 X 5 6 0
Miliwall - Coventry 2 X 1 1 X 1 X 2 X 1 2 4 4 3
Norwich-Southampton 1 1 1 1 1 1 1 2 2 1 1 9 0 2
Leeds - Ipswich 1 1 2 1 1 1 2 1 1 X X 7 2 2
Sunderland - Watford 2 1 2 2 2 X 2 1 2 2 X 2 2 7
RAÐAUGLÝSINGAR
Frá Tónlistarskóla Kópavogs
TONUSMRSKOU
KÓPPNOGS
Auglýsing um
fullorðinsfræðslu
Námskeiö fyrir áhugafólk um tónlist hefst 27. sept-
ember og mun standa yfir í 11 vikur. Fjallað verður
um undirstöðuatriði tónlistar. Kennsla ferfram einu
sinni í viku og er í fyrirlestrarformi. Jafnframt hefst
framhaldsnámskeið fyrir þá sem hafa verið áður.
Innritun stendur yfir.
REYKJÞMIKURBORG
JlauMsi átödun,
Borgarminja-
vörður
Reykjavíkurborg auglýsir stöðu borgarminjavarðar
í Reykjavík lausa til umsóknar.
Umsóknum, ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf, skal skila til borgarstjórans í Reykjavík,
eigi síðar en 25. september 1989.
Nánari upplýsingar veitirstarfsmannastjóri Reykja-
víkurborgar í síma 18800.
Skólastjóri
Borgarstjórinn í Reykjavík
Samband ungra
jafnaðarmanna
Opinn stjórnarfundur verður haldinn að Hverfis-
götu 8—10 laugardaginn'9. september kl. 10.
Vegna flokksstjórnarfundar lýkur fundinum kl.
11.00.
Stjórn SUJ