Alþýðublaðið - 08.09.1989, Qupperneq 7
Föstudagur 8. sept. 1989
7
UTLOND
„Dumbos##. Kaupsýslumenn úr efri millistétf
eru taldir hættulegustu ökuþórar i Bretlandi
Þetta eru menn sem haldmr eru of mikiu sjálfsáliti. Þeir hagræða
sér við stýri BMW- og Volvo-bílanna sinna, eftir að hafa drukkið
nokkra tvöfalda vodka og tonic
holuna.
Því næst aka þeir heim, ánægju-
lega sannfærðir um að þeir aki
betur þegar þeir hafa fengið sér í
nokkrar tærnar.
í golfklúbbnum og lokið við 19.
Þeir eru hreint aldeilis ekki fullir
og oftast sleppa þeir fyrir horn, en
ekki alltaf. Stundum komast þeir
ekki heim lifandi og stundum
verða þeir öðrum að bana. Þeir
eru flestir á aldrinum 40—50 ára
og eru eini aldurshópurinn, sem
hefur stækkað og þar af leiðandi
orsakað fleiri slys, á þeim tíu árum
sem áróður gegn drykkju við akst-
ur hefur verið efldur mjög mikið.
Dianne Hayter, framkvæmdastjóri
Alcohol Concern, en það er nafn
samtaka sem berjast gegn drykkju
við akstur, segir að það sé illmögu-
legt að fá þessa menn til að breyta
lífsvenjum sínum.
Eftir að breska ríkisstjórnin hóf
herferð gegn drukknum öku-
mönnum virtust yngri mennirnir
Þeir eru kallaöir
,,Dumbos“ í bresk-
um blööum.
(Dangerous Upper
Middle Class
Businessmen Over
Booze Limit.)
Einn í viðbót getur orsakað (Dumbo)-slys.
fljótir til að breyta lífsvenjum sín-
um ,,en það eru feður þeirra sem
þráast við“, segir Dianne Hayter.
Eldri mennirnir drekka yfirleitt
meira en þeir yngri, kemur fram í
þessari athugun, og þeir eru flestir
vel efnaðir, eiga fín hús og dýra
bíla og ferðast um heiminn.
Hayter segir að unga fólkið fari
meira út að skemmta sér í hópum
og það komi sér saman um, að
einn drekki ekki þetta kvöldið og
að sá hinn sarni sjái um aksturinn.
Breska ríkisstjórnin stendur á
bak við „Alcohol Concern," sem
leitar nú leiða til að fá hina svo-
kölluðu „Dumbos" til að breyta
hegðun sinni.
Mikið hefur verið rætt um að
gera þeim erfiðara fyrir með að fá
aftur ökuskírteinið, sem lent hafa
í óhöppum tengdum drykkju.
Einnig að tryggingafélögin komi
inn í myndina þannig, að þeir sem
valda slysum vegna drykkju verði
þegar og ef þeir fá aftur ökuskír-
teinið að borga talsvert h'ærri ið-
gjöld. Þetta er þó talið verða erfitt,
þar sem mikil samkeppni er með-
al tryggingafélaga.
SJÓNVARP
Sjónvarpið kl. 20.30
BETRIFRAMTÍÐ
Söfnunarsjónvarp Sjálfsbjargar í til-
efni af 30 ára afmæli samtakanna.
Skemmtidagskrá verður í sjónvarp-
inu af þessu tilefni í klukkustund.
Fólki er gefinn Rostur á að hringja
inn og gefa fé til landssöfnunarinnar
sem m.a. á að nýta til að klára Sjálfs-
bjargarhúsið við Hátún 12 í Reykja-
vík. Meðal þeirra sem fram koma
eru Stuðmenn, Sigrún Hjálmtýs-
dóttir, Ríó Tríóið og Spaugstofan.
Athygli er vakin á að á Rás 2 stendur
söfnun yfir allan daginn, frá morgni
til kvölds.
Sjónvarpið kl. 23.00
KAMELÍUFRÚIN
(Camille)
Bresk sjónvarpsmynd, gerd 1984,
leikstjóri Derek Desmnod, adalhlut-
verk Greta Scacci, Colin Firth, John
Gielgud, Denholm Elliott, Ben
Kingsley.
Endurgerð hinnar frægu kvikmynd-
ar um Kamelíufrúna frá 1936,
reyndar eru til þrjár aðrar útgáfur
enn eldri. Þessi frá ’36 var með
Gretu Garbo í aðalhlutverki og það
er erfitt fyrir allar leikkonur að feta
í hennar fótspor. Myndin er byggð á
sögu Alexandre Dumas og segir af
ungri stúlku sem verður ástfangin af
manni af góðum ættum. Föður
mannsins líkar ekki ráðahagurinn
og reynir að beita sér gegn honum
með öllum ráðum tiltækum. Mynd-
in þykir ekki nema í meðallagi en
þarna ætti samt að vera hægt að
berja augum góðan leik því allir að-
alleikararnir standa í fremstu röð
breskra leikara. Gott ef Gielgud
verður ekki að teljast kóngurinn nú
þegar Sir Laurence Olivier er fallinn
frá.
Stöð 2 kl. 23.25
EDDIE MURPHY
SJÁLFUR
(Eddie Murphy Raw)
Mynd sem tekin er á skemmtan
með Eddie Murphy þar sem hann
segir brandara stanslaust i einn og
hálfan tíma án þess að draga af sér.
Þetta eru mestan part klámbrandar-
ar og fæstir þeirra fyndnir. Svo gerir
hann líka grín að Michael Jackson,
Bill Cosby og Brooke Shields og
reynir að setja sjálfan sig í hlutverk
kyntákns sem fer honum illa því
hann er álíka kynæsandi og Barbí-
dúkka. Aðdáendur Murphys ættu þó
að geta hlegið við og við og svo þeir
sem hafa gaman af sóðakjafti og
klámbröndurum. Það verður a.m.k.
seint sagt um Murphy að gaman-
semi hans byggist á kunnáttu í með-
ferð talaðs máls.
Stöð 2 kl. 01.00
ATTICA FANGELSIÐ
(Attica)
Bandarísk sjónvarpsmynd, gerd
1980, leikstjóri Marvin J. Chomsky,
adalhlutverk Charles Durning,
George Grizzard, Anhony Zerbe,
Morgan Freeman.
Myndin segir af blóðugri fangaupp-
reisn í Attica fangelsinu í Bandaríkj-
unum, en þar var hundruðum harð-
svíraðra fanga haldið inni. Þeir gistu
þar hver um annan þveran og höfðu
ekki neitt til neins sem kallast getur
mannréttindi eða aðbúnaður. Þeir
gera kröfur um úrbætur en þegar
þeim er ekki sinnt láta þeir hendur
skipta og gera einhverja blóðugustu
fangauppreisn sem sögur fara af.
Þeir taka yfir fangelsið, taka verðina
í gíslingu og nauðsynlegt verður að
kalla herinn til aðstoðar. Myndin er
byggð á metsölubók blaðamannsins
Tom Wicker, A Time to Die og þykir
vera fyrir ofan meðallag.
0 STÖD 2
17.50 Gosi. Teikni- myndaflokkur 16.45 Santa Barbara 17.30 Bleiku náttföt- in Kvikmynd meÖ Anthony Higgins og Julie Walters í aöal- hlutverkum
1800 18.25 Antilópan snýr aftur. Nýr flokkur. 1. þáttur. Breskur myndaflokkur fyrir börn og unglinga um tvö börn og vini þeirra, hina smávöxnu putalinga 18.50 Táknmólsfréttir 18.55 Austurbœingar. Breskur framhalds- myndaflokkur
1900 19.20 Benny Hill. Breskur gaman- myndaflokkur 20.00 Fréttir og veö- ur 20.30 Betri framtíð. Söfnunarsjónvarp Sjálfsbjargar. Skemmtidagskrá í sjónvarpssal í tilefni landssöfnunar á veg- um Sjálfsbjargar 21.30 Peter Strohm. Nýr þýskur sakamála- myndaflokkur 19.00 Myndrokk 19.19 19.19 20.00 Kalli kanina 20.10 Ljáðu mér eyra ... Glóðvolgar fréttir úr tónlistar- heiminum. Nýjustu kvikmyndirnar kynnt- ar. Fróm viðtöl 20.40 Geimálfurinn Alf 21.10 Strokuböm Runners — Hjól ellefu ára gamallar stúlku finnst yfirgefið úti á götu. Aöalhlutverk: James Fox, Kate Hardie, Jane Asher og Eileen O'Brien 22.55 Alfred Hiteh- cock Vinsaelir banda- riskir sakamálaþættir sem geröir eru i anda þessa meistara hroll- vekjunnar.
2300 23.00 Kamelíufrúin. (Camille) Ný bresk sjónvarpsmynd byggö á sögu eftir Alexandre Dumas. 00.30 Útvarpsfréttir og dagskrárlok 23.25 Eddie Murphy sjálfur 01.00 Attica-fangels- ið — Kvikmynd byggð á metsölubók blaðamannsins Tom Wicker „A Time To Die". 02.40 Dagskrárlok