Tíminn - 27.01.1968, Blaðsíða 1
CÓLFTEPPI
FASTEIGNASALAN
HÚS&EiGNIR
1 ANKASTRÆTI f,
Símar 16637 — 18828.
WILTON
TEPPADRECLAR
TEPPALAGNIR
EFTIR MÁLI
Laugavcgi 31 - Simi 11822.
Auður salur
Vinnusalurinn í frysti
húsi BÚR í Reykjavík var
auður í gær, væntanlega
sökum fiskleysis. Umbúða
bannið á frystihúsið var
áfram í gildi, og verður
a. m. k. fram á mánudag.
(Tímamynd-GE).
Viöræður frystihúsaeigenda og ríkisstjórnarinnar:
LOKATILBOD RÆTT Á
FUNDUM Á MÁNUDAG
»ÍÍ!S!ÍS:i
Björgunarbátur úr St. Romarcus fannst 13. janúar
Ekki skylda aö tilkynna
neyöarkall erlendis frá?
FB-Reykjavík, NTB-Osló, föstu
dag.
íslenzkur fiskibátur heyrði
neyðarkall frá brezka togaran
um St. Romanus frá Hull 11.
janúar s. 1. 13- janúar finnst
gúmbátur, sem fluttur er til
Noregs og þar talinn vera af
norsku skipi, en reyndist nú
hafa verið af áðurnefndum tog
ara. Eftir það hefur ekkert um
skipið frétzt, en sennilegt talið
að það hafi farizt.
Lögreglan í Stavangri skýrði
NTB frá því í dag, að Blavand
loftskeytastöðin hefði 13. jan.
síðastliðinn tilkynnt Joglands.
stöðinni, að gúmbátur hefði
fundizt 57 gráður 57 mínútur
norður og 1 gráðu 34 mínútur
austur. Töldu menn, að bátur
þessi tilheyrði norsku fiskiskipi
en síðar kom í Ijós, að það skip
lá inni í Eigersundi.
Þegar fréttist um hinn týnda
togara SL Romanus, voru ein-
kennisstafirnir á gúmbátnum
athugaðir á ný, og í dag var
staðfest, að báturinn hefði til-
heyrt togaranum. Björgunar-
stöðvar í Noregi hafa verið að-
varaðar, og leit stendur yfir,
en mikið hvassviðri hefur verið
á þessum slóðum síðustu dag-
ana, og er talin lítil von til
þess, að einhverjir af þeim 18
mönnum, sem á togaranum
voru, kunni enn að vera á lífi.
Eins og frá segir í blaðinu
í dag, kom í ljós í gærkvöldi
að 11. janúar hafði íslenzkur
bátur, Víikingur III., sem var
að veiðum út af ísafjarðar-
djúpi, heyrt togarann senda út
neyðarkall á neyðarbylgju. Mun
togarinn þá hafa verið staddur
miðja vegu milli fslands og
Noregs djúpt norður af Fær
eyjum.
Ekki skýrðu Víkingsmenn
frá þessu neyðarkalli fyrr en
FramhaJd á bls. 14
EJ-Reykjavík, föstudag.
í dag var fundur fulltrúa Wað
frystihúsanna og fulltrúa ríkis
stjórnarinnar. og lögðu hinir
síSarnefndu þar fram svonefnt
lokatilboð ríkisstjórnarinnar.
Bæði Sölumiðstöð hraðfrystihús
anna og framkvæmdastjórar
frystihúsa á vegum SÍS halda
aukafund á mánudaginn til þess
að fjalla um þetta lokatiiboð.
Þangað til a. m. k. gildir stöðvun
á móttöku fisks til frystingar.
Samkvæm.t þeim upplýsingum,
sem TÍMINN hefur aflað sér,
m-un lokatilboð ríkisstjómarinnar
væntanlega fela í sér eftirtaliin
atriði.
f fyrsta lagi 130 milljóniir króna
i uppbætur til frystiihúsanna.
f öðru lagi hugsanlega myndun
verðjöfniunarsjóðs. Skuli hann
hafa bað hlutverk, að bæta
frystihúsunum 50% af hugsan-
Framhald á bls. 14
bún-
ingur"
— segir einkaritari Jean
Dixson um ímyndaðan
spádóm um náttúruham-
farir á fslandi
FB-Reykjavík, föstudag.
f dag barst út sú frétt, að í
Keflavíkurútvarpinu í gær, hefðj
verið sagt frá miklum hörmung
um, sem gangr ættu yfir. fs-
land í apríl-mánuði næstkom-
andi, ef spádómur Jeane nokkurr
ar DixSon miðils í Washington,
rætist.
Seint í kvöld náSum við sam
bandi viS einkaritara Jeane
Framhald á bls. 14
Reynt aö fækka útlendingum
sem eru í atvinnu hérlendis
EJ-Reykjavík, föstudag.
Undanfarin ár hefur alltaf
verið verulegur fjöldi útlend
inga i atvinnu hér á landi. Síð
ustu mánuðina hefur þeim þó
verulega fækkað vegna versn
andi atvinnuástands. Aftur á
móti telja verkalýðsfélögin. að
enn megi fækka útlendingum,
og vinna að þvi m. a. að
■fækka útlendum starfsmönn
um við Búrfell um nokkra tugi.
Einnig er reynt að fækka er
lendum starfsmönnum i
Straumsvík og víðar.
Blaðið hafði i dag samband
við Verkalýsðfélagið Dags-
brún vegna þessa mál,s og
sagði Guðmundur J. Guðmunds
soin, varaformaður félagsins,
að á mánudaginn nefði full
trúar verkalýðsfélaganna far
ið austur að Búrfelli að kanna
ástandið
Guðmundu.r sagði, að það
hefðj verið áberandi, er Búr
fellsvirkjun hófst, hversu
verktakarnir vanmátu tslenzkt
viinnuafl. og hafi verið sterk
tilhneiging hjá verktökunum
að hafa fleiri útlendinga í
vinnu en þörf var á. Einnig
hafi verið erfitt að fá ís-
lenzka verkamenn til vineu,
einkum í göngin.
Þetta ástand hafi nú breytzt
mjög til batnaðar. Jafnframt
hafi margir íslendingar nú
um nokkuð langan tíma unnið
Framhald á bls. 14