Alþýðublaðið - 20.10.1989, Side 6

Alþýðublaðið - 20.10.1989, Side 6
6 Föstudagur 20. okt. 1989 Vika helgud börnum hjá Amnesty International: Börn fangelsuð i Júgóslavíu Stúlkurnar Nafije Zendeli, 18 ára, og Valdeta Fejzullai, 17 ára, og dregnirnir Dashm- ir Osmani og Nuredin Aliu, báðir 17 ára, eru frá lýðveld- inu Makedóníu í suður Júg- óslavíu en af albönsku þjóð- arbroti. Ungmennin voru öll nemend- ur við gagnfræðaskólann í bæn- um Gostivar er þau voru hand- tekin í október 1988 í kjölfar frið- samlegra mótmæla gegn þvi að bekkir þar sem kennt hafði verið á albönsku höfðu verið lagðir niður. Til framkvæmda höfðu komið ný lög um gagnfræða- skóla og framhaldsskóla í Makedóníu þar sem m.a. er kveðið á um að kennsla skuli fara fram á albönsku ef í bekk eru fleiri en 30 albanskir nem- endur og ef til kennslunnar fáist hæfir kennarar. Skólinn í Gostiv- ar uppfyllti ekki skilyrði laganna og þurftu albanskir nemendur því að stunda nám sitt á tungu- máli Makedóníu. Fólk af alb- önskum uppruna hefur lýst yfir óánægju sinni með þetta fyrir- komulag og hefur jafnframt bent á að skort á hæfum kennurum megi rekja til þess að fjölda kennara hefur verið sagt upp störfum fyrir að innræta nem- endum sinum albanska þjóð- rækni. Ungmennin voru leidd fyrir rétt 30. desember 1988ogsökuð um „stofnun félagsskapar í fjandsamlegum tilgangi" og „að grafa undan félagslegum stöðug- leika“ samkvæmt 114. og 136. grein júgóslavneskra hegningar- laga. Við réttarhöidin kom fram að öll voru þau duglegir náms- menn og höfðu ekki fram að Hugheilar þakkir færum við öllum þeim sem auðsýndu samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns mins, föður okkar, tengdaföður og afa Sigfúsar Bjarnasonar sjómanns fyrrv. skrifst.stj. Sjómannafélags Reykjavíkur, og heiðr- uðu minningu hans. Sérstakar þakkir til Sjómannafélags Reykjavíkur, fyrir virðingu auðsýnda hinum látna. Sveinborg Lárusdóttir Bjarni Sigfússon Guðrún Ásbjörg Magnúsdóttir Kristján Sigfússon Guðfinna Inga Guðmundsdóttir Ingvar Alfróð Sigfússon Ingibjörg Bjartmarz og barnabörn. NafijeZendeli, 18 ára, eitt fjogurra barna sem talin eru í haldi í fang- elsi nærri Skopje. þessu sýnt andfélagslega hegð- un. Nafije og Valdeta voru hvor um sig dæmdar í 4 ára fangelsi. Dashmir var dæmdur í 6 ára fangelsi og Nuredin í 5 ára fang- elsi. Þau áfrýjuðu dómnum og eru því enn i varðhaldi. Þau munu öll afplána dóm sinn í fangelsum fyrir fólk undir lög- aldri. Fregnir herma að þau séu í haldi í Idrizovo fangelsinu nærri Skopje. Amnesty Internat- ional hefur samþykkt þau öll sem samviskufanga. Vinsamlegast skrifið og farið fram á að þau verði látin laus taf- arlaust og án nokkurra skilyrða. Skrifið til: Janez Drnovsek President of the SRFJ Presid- ency Buievar Leninja 2 Beograd Jugoslavia SMÁFRÉTTIR Næstsíðasta sýningarhelgi á Oliver! Söngleikurinn Oliver! er nú sýndur öll kvöld nema mánu- dagskvöld og síðdegissýningar að auki um helgar. Er þá búið að bæta inn í öllum sýningardögum sem mögulegt er þar til sýning- um lýkur 28. október. Um helg- ina verða kvöldsýningar kl. 20 , föstudags- og laugardags- og sunnudagskvöld og dagsýningar kl. 15 á laugardag og sunnudag. Sýningar verða einnig þriðju- dags- og miðvikudags- og fimmtudagskvöld í næstu viku. Faraldsfræði og heilsuvernd Út er komin á vegum Háskóla- útgáfunnar bókin Faraldsfræði og heilsuvernd, eftir Hrafn Tulin- ius prófessor í heilbrigðisfræði við læknadeild Háskóla íslands. Faraldsfræðin fjallar um orsakir sjúkdóma og heilsuvernd miðar að því að koma í veg fyrir sjúk- legt ástand og byggir á þekkingu á orsökum sjúkdóma. Bókin er 178 blaðsíður í 16 köflum og fæst í Bóksölu stúdenta í Félags- stofnun stúdenta við Hringbraut í Reykjavík. Bækur sem nýlega hafa komið út hjá Háskólaútgáfunni eru Há- skólamálið og lagaskólamálið, úrval heimilda um aðdraganda að stofnun háskóla á íslandi, eftir Pál Sigurðsson, lagaprófess- or; Formgerðir vitsmunalífsins. Kenningar Jean Piagets um vitsmunaþroskann, eftir Sigur- jón Björnsson, prófessor í sálar- fræði; Ársrit Norðuriandabók- mennta, undir ritstjórn Óskars Vistdal, lektors í norsku, en þar er að finna 16 ritgerðir eftir 12 höfunda; Frumatriði takmörk- uðu afstæðiskenningarinnar, eftir Þorstein Vilhjálmsson, dós- ent í raunvísindadeild; Litterær analyse, novelle og roman, eftir Keld Gall Jörgensen, lektor í dönsku og Félagsráðgjöf: Rann- sóknir og fagþróun, eftir Sig- rúnu Júlíusdóttur, stundakennara í félagsvísindadeild. Allar þessar bækur fást í Bóksölu stúdenta sem umsjón hefur með dreif- ingu. Væntanlegar eru m.a. bækurn- ar íslensk félagsrit, tímarit fé- lagsvísindadeildar, 1. tbl. 1. árg., gefið út í samvinnu við félags- vísindadeild undir ritstjórn Sig- urðar J. Grétarssonar, lektors; Credo, Kristin trúfræði, eftir Ein- ar Sigurbjörnsson, guðfræðipró- fessor; Islenskt-finnskt orða- safn, eftir Timo Karlsson, lektor í finnsku, en engin slík bók mun vera til; Staðtölur um Háskóla íslands, undir ritstjórn Þóris Ein- arssonar, prófessors í viðskipta- og hagfræðideild; Röntgengrein- ing og aðrar myndgreiningar- rannsóknir, eftir Ásmund Brekk- an, prófessor í læknadeild; Folk- lore og Folkkultur, safn 20 rit- gerða um þjóðháttafræði, undir ritstjórn Jons Hnefisl Aðalsteins- sonar, dósents í félagsvísinda- deild; Greiningarviðtal fyrir geð- hvörf og geðklofa-æviyfirlit SADS-LB, íslensk útgáfa þýdd og staðfærð af geðlæknunum Helga Kristbjarnarsyni, Tómasi Zoega og Ómari ívarssyni, verð- ur gefin út í samvinnu við geð- deild Landspítalans. Bindindis- fræðsla Sam- taka skóla- manna Aðalfundur Samtaka skóla- manna um bindindisfræðslu haldinn 11. október 1989 fagnar aukinni áherslu á fíknivarnir í skólum. Þá er lofsvert að þetta viðfangsefni skuli viðurkennt og skilgreint með jafnskýlausum hætti og gert er í nýrri aðalnám- skrá grunnskóla. Fundurinn hvet- ur yfirvöld menntamála, stjórn- endur skóla og kennara til að hraða sem mest uppbyggingu fræðslu um vímuefni í skólum og að leggja aukna áherslu á áfengisvarnir enda mun ekki af veita vegna þeirrar gífurlegu aukningar sem orðið hefur á áfengisneyslu á þessu ári með tilkomu bjórsins. Sérstök ástæða er til að stuðla að því að skólar og aðrir aðilar, s.s. sveitarstjórnir, löggæsla og félagasamtök á hverjum stað, vinni saman að forvörnum. Fundurinn leggur áherslu á nauðsyn þróunar í fíknivörnum og bendir á að til að nýta sem best fjármagn og þann tíma sem varið er í fíknivarnir í skólum er nauðsynlegt að velja árangurs- ríkustu leiðir á hverjum tíma. Til þess þarf skipulegt tilraunastarf og mat á áhrifum fræðslu- og uppeldisstarfs skóla. Kjörin var stjórn SSB til næstu tveggja ára en í henni sitja: Árni Einarsson, Björn G. Eiríksson, Ingólfur Guðmundsson, Lárus Ingólfsson og Þorvarður Örnólfs- son. Þingvalla- myndir í Safni Ásgríms Jóns- sonar í safni Ásgríms Jónssonar við Bergstaðastræti hefur verið opn- uð sýning á myndum Ásgríms frá Þingvöllum. Á sýningunni eru 25 verk, aðallega vatnslitamynd- ir, en einnig nokkur olíumálverk. Eru nær öll verkin úr listaverka- gjöf Ásgríms sem nú er samein- uð Listasafni íslands. Ásgrímur fór snemma að mála á Þingvöllum og er ásamt Kjar- val sá listamaður sem sterkast hefur túlkað náttúru þess staðar. Á sýningunni eru margar hinna stóru vatnslitamynda sem Ás- grímur málaði eftir 1940. Þar túlkar hann áhrif birtunnar á land og vatn, einkum á haustin og vorin þegar litirnir í náttúrunni eru síbreytilegir. í þessum vatns- litamyndum fer listamaðurinn á kostum í túlkun sinni, enda nátt- úruinnlifun hans sterk og tæknin einstök. Sýningin á Þingvallamyndum Ásgríms stendur fram í febrúar á næsta ári og er opin um helgar og á þriðjudögum og fimmtu- dögum frá kl. 13.30 til 16.00. * Krossgátan □ 1 2 3 r 4 5 1 í p i □ 7 5 I 9 10 □ 11 □ 12 " , 1 13 — • r— □ Lárétt; 1 hrædd, 5 hristi, 6 trylli, 7 samstæðir, 8 nærri, 10 um- dæmisstafir, 11 fæddu, 12 skjót- ur, 13 leiðann. Lóðrétt: 1 mjóróma, 2 laupur, 3 keyri, 4 bragð, 5 tungumál, 7 leyndin, 9 hljómur, 12 átt. Lausn á síðustu krossgátu. Lárétt: 1 slóra, 5 Hlín, 6 rek, 7 ós, 8 einatt, 10 pp, 11 kær, 12 auki, 13 aftra. Lóðrétt: 1 sleip, 2 líkn, 3 ón, 4 Austri, 5 hreppa, 7 ótæka, 9 akur, 12 at. RAÐAUGLÝSINGAR Flokksstarfið 30 ára afmælishátíö Þrjátíu ára afmælishátíð Alþýðuflokksfélags Garða- bæjar og Bessastaðahrepps verður haldin í Gaflin- um, Hafnarfirði, laugardaginn 21. október næst- komandi. Húsið opnar kl. 20.00. Matur, skemmtiatriði og dans. Upplýsingar og miðapantanir hja Maríu í síma 42133 og Hilmari í síma 657187. Stjórnin Landsf undur SA Samband Alþýðuflokkskvenna heldur landsfund sinn 3. og 4. nóvember nk. á Hótel KEA, Akureyri, og hefst fundurinn með setningu, föstudaginn 3. nóvember kl. 20.00. Dagskrá fundarins verður nánar auglýst síðar, en aðalumræðuefni verða Sveitarstjórnarkosningarnar 1990 Lífskjör á landsbyggðinni Fundurinn er opinn öllum alþýðuflokkskonum og eru þær hvattar til að mæta. Stjórn SA

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.