Alþýðublaðið - 20.10.1989, Qupperneq 6
6
Föstudagur 20. okt. 1989
Vika helgud börnum hjá Amnesty International:
Börn fangelsuð
i Júgóslavíu
Stúlkurnar Nafije Zendeli,
18 ára, og Valdeta Fejzullai,
17 ára, og dregnirnir Dashm-
ir Osmani og Nuredin Aliu,
báðir 17 ára, eru frá lýðveld-
inu Makedóníu í suður Júg-
óslavíu en af albönsku þjóð-
arbroti.
Ungmennin voru öll nemend-
ur við gagnfræðaskólann í bæn-
um Gostivar er þau voru hand-
tekin í október 1988 í kjölfar frið-
samlegra mótmæla gegn þvi að
bekkir þar sem kennt hafði verið
á albönsku höfðu verið lagðir
niður. Til framkvæmda höfðu
komið ný lög um gagnfræða-
skóla og framhaldsskóla í
Makedóníu þar sem m.a. er
kveðið á um að kennsla skuli
fara fram á albönsku ef í bekk
eru fleiri en 30 albanskir nem-
endur og ef til kennslunnar fáist
hæfir kennarar. Skólinn í Gostiv-
ar uppfyllti ekki skilyrði laganna
og þurftu albanskir nemendur
því að stunda nám sitt á tungu-
máli Makedóníu. Fólk af alb-
önskum uppruna hefur lýst yfir
óánægju sinni með þetta fyrir-
komulag og hefur jafnframt bent
á að skort á hæfum kennurum
megi rekja til þess að fjölda
kennara hefur verið sagt upp
störfum fyrir að innræta nem-
endum sinum albanska þjóð-
rækni.
Ungmennin voru leidd fyrir
rétt 30. desember 1988ogsökuð
um „stofnun félagsskapar í
fjandsamlegum tilgangi" og „að
grafa undan félagslegum stöðug-
leika“ samkvæmt 114. og 136.
grein júgóslavneskra hegningar-
laga. Við réttarhöidin kom fram
að öll voru þau duglegir náms-
menn og höfðu ekki fram að
Hugheilar þakkir færum við öllum þeim sem auðsýndu
samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns mins,
föður okkar, tengdaföður og afa
Sigfúsar Bjarnasonar
sjómanns
fyrrv. skrifst.stj. Sjómannafélags Reykjavíkur, og heiðr-
uðu minningu hans.
Sérstakar þakkir til Sjómannafélags Reykjavíkur, fyrir
virðingu auðsýnda hinum látna.
Sveinborg Lárusdóttir
Bjarni Sigfússon Guðrún Ásbjörg Magnúsdóttir
Kristján Sigfússon Guðfinna Inga Guðmundsdóttir
Ingvar Alfróð Sigfússon Ingibjörg Bjartmarz
og barnabörn.
NafijeZendeli, 18 ára, eitt fjogurra
barna sem talin eru í haldi í fang-
elsi nærri Skopje.
þessu sýnt andfélagslega hegð-
un.
Nafije og Valdeta voru hvor
um sig dæmdar í 4 ára fangelsi.
Dashmir var dæmdur í 6 ára
fangelsi og Nuredin í 5 ára fang-
elsi. Þau áfrýjuðu dómnum og
eru því enn i varðhaldi. Þau
munu öll afplána dóm sinn í
fangelsum fyrir fólk undir lög-
aldri. Fregnir herma að þau séu
í haldi í Idrizovo fangelsinu
nærri Skopje. Amnesty Internat-
ional hefur samþykkt þau öll
sem samviskufanga.
Vinsamlegast skrifið og farið
fram á að þau verði látin laus taf-
arlaust og án nokkurra skilyrða.
Skrifið til:
Janez Drnovsek
President of the SRFJ Presid-
ency
Buievar Leninja 2
Beograd
Jugoslavia
SMÁFRÉTTIR
Næstsíðasta
sýningarhelgi
á Oliver!
Söngleikurinn Oliver! er nú
sýndur öll kvöld nema mánu-
dagskvöld og síðdegissýningar
að auki um helgar. Er þá búið að
bæta inn í öllum sýningardögum
sem mögulegt er þar til sýning-
um lýkur 28. október. Um helg-
ina verða kvöldsýningar kl. 20 ,
föstudags- og laugardags- og
sunnudagskvöld og dagsýningar
kl. 15 á laugardag og sunnudag.
Sýningar verða einnig þriðju-
dags- og miðvikudags- og
fimmtudagskvöld í næstu viku.
Faraldsfræði
og heilsuvernd
Út er komin á vegum Háskóla-
útgáfunnar bókin Faraldsfræði
og heilsuvernd, eftir Hrafn Tulin-
ius prófessor í heilbrigðisfræði
við læknadeild Háskóla íslands.
Faraldsfræðin fjallar um orsakir
sjúkdóma og heilsuvernd miðar
að því að koma í veg fyrir sjúk-
legt ástand og byggir á þekkingu
á orsökum sjúkdóma. Bókin er
178 blaðsíður í 16 köflum og
fæst í Bóksölu stúdenta í Félags-
stofnun stúdenta við Hringbraut
í Reykjavík.
Bækur sem nýlega hafa komið
út hjá Háskólaútgáfunni eru Há-
skólamálið og lagaskólamálið,
úrval heimilda um aðdraganda
að stofnun háskóla á íslandi,
eftir Pál Sigurðsson, lagaprófess-
or; Formgerðir vitsmunalífsins.
Kenningar Jean Piagets um
vitsmunaþroskann, eftir Sigur-
jón Björnsson, prófessor í sálar-
fræði; Ársrit Norðuriandabók-
mennta, undir ritstjórn Óskars
Vistdal, lektors í norsku, en þar
er að finna 16 ritgerðir eftir 12
höfunda; Frumatriði takmörk-
uðu afstæðiskenningarinnar,
eftir Þorstein Vilhjálmsson, dós-
ent í raunvísindadeild; Litterær
analyse, novelle og roman, eftir
Keld Gall Jörgensen, lektor í
dönsku og Félagsráðgjöf: Rann-
sóknir og fagþróun, eftir Sig-
rúnu Júlíusdóttur, stundakennara
í félagsvísindadeild. Allar þessar
bækur fást í Bóksölu stúdenta
sem umsjón hefur með dreif-
ingu.
Væntanlegar eru m.a. bækurn-
ar íslensk félagsrit, tímarit fé-
lagsvísindadeildar, 1. tbl. 1. árg.,
gefið út í samvinnu við félags-
vísindadeild undir ritstjórn Sig-
urðar J. Grétarssonar, lektors;
Credo, Kristin trúfræði, eftir Ein-
ar Sigurbjörnsson, guðfræðipró-
fessor; Islenskt-finnskt orða-
safn, eftir Timo Karlsson, lektor í
finnsku, en engin slík bók mun
vera til; Staðtölur um Háskóla
íslands, undir ritstjórn Þóris Ein-
arssonar, prófessors í viðskipta-
og hagfræðideild; Röntgengrein-
ing og aðrar myndgreiningar-
rannsóknir, eftir Ásmund Brekk-
an, prófessor í læknadeild; Folk-
lore og Folkkultur, safn 20 rit-
gerða um þjóðháttafræði, undir
ritstjórn Jons Hnefisl Aðalsteins-
sonar, dósents í félagsvísinda-
deild; Greiningarviðtal fyrir geð-
hvörf og geðklofa-æviyfirlit
SADS-LB, íslensk útgáfa þýdd
og staðfærð af geðlæknunum
Helga Kristbjarnarsyni, Tómasi
Zoega og Ómari ívarssyni, verð-
ur gefin út í samvinnu við geð-
deild Landspítalans.
Bindindis-
fræðsla Sam-
taka skóla-
manna
Aðalfundur Samtaka skóla-
manna um bindindisfræðslu
haldinn 11. október 1989 fagnar
aukinni áherslu á fíknivarnir í
skólum. Þá er lofsvert að þetta
viðfangsefni skuli viðurkennt og
skilgreint með jafnskýlausum
hætti og gert er í nýrri aðalnám-
skrá grunnskóla. Fundurinn hvet-
ur yfirvöld menntamála, stjórn-
endur skóla og kennara til að
hraða sem mest uppbyggingu
fræðslu um vímuefni í skólum
og að leggja aukna áherslu á
áfengisvarnir enda mun ekki af
veita vegna þeirrar gífurlegu
aukningar sem orðið hefur á
áfengisneyslu á þessu ári með
tilkomu bjórsins.
Sérstök ástæða er til að stuðla
að því að skólar og aðrir aðilar,
s.s. sveitarstjórnir, löggæsla og
félagasamtök á hverjum stað,
vinni saman að forvörnum.
Fundurinn leggur áherslu á
nauðsyn þróunar í fíknivörnum
og bendir á að til að nýta sem
best fjármagn og þann tíma sem
varið er í fíknivarnir í skólum er
nauðsynlegt að velja árangurs-
ríkustu leiðir á hverjum tíma. Til
þess þarf skipulegt tilraunastarf
og mat á áhrifum fræðslu- og
uppeldisstarfs skóla.
Kjörin var stjórn SSB til næstu
tveggja ára en í henni sitja: Árni
Einarsson, Björn G. Eiríksson,
Ingólfur Guðmundsson, Lárus
Ingólfsson og Þorvarður Örnólfs-
son.
Þingvalla-
myndir í Safni
Ásgríms Jóns-
sonar
í safni Ásgríms Jónssonar við
Bergstaðastræti hefur verið opn-
uð sýning á myndum Ásgríms
frá Þingvöllum. Á sýningunni eru
25 verk, aðallega vatnslitamynd-
ir, en einnig nokkur olíumálverk.
Eru nær öll verkin úr listaverka-
gjöf Ásgríms sem nú er samein-
uð Listasafni íslands.
Ásgrímur fór snemma að mála
á Þingvöllum og er ásamt Kjar-
val sá listamaður sem sterkast
hefur túlkað náttúru þess staðar.
Á sýningunni eru margar hinna
stóru vatnslitamynda sem Ás-
grímur málaði eftir 1940. Þar
túlkar hann áhrif birtunnar á land
og vatn, einkum á haustin og
vorin þegar litirnir í náttúrunni
eru síbreytilegir. í þessum vatns-
litamyndum fer listamaðurinn á
kostum í túlkun sinni, enda nátt-
úruinnlifun hans sterk og tæknin
einstök.
Sýningin á Þingvallamyndum
Ásgríms stendur fram í febrúar á
næsta ári og er opin um helgar
og á þriðjudögum og fimmtu-
dögum frá kl. 13.30 til 16.00.
* Krossgátan
□ 1 2 3 r 4
5 1 í
p i □ 7
5 I 9
10 □ 11
□ 12 " , 1
13 — • r— □
Lárétt; 1 hrædd, 5 hristi, 6 trylli,
7 samstæðir, 8 nærri, 10 um-
dæmisstafir, 11 fæddu, 12 skjót-
ur, 13 leiðann.
Lóðrétt: 1 mjóróma, 2 laupur, 3
keyri, 4 bragð, 5 tungumál, 7
leyndin, 9 hljómur, 12 átt.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 slóra, 5 Hlín, 6 rek, 7 ós,
8 einatt, 10 pp, 11 kær, 12 auki,
13 aftra.
Lóðrétt: 1 sleip, 2 líkn, 3 ón, 4
Austri, 5 hreppa, 7 ótæka, 9 akur,
12 at.
RAÐAUGLÝSINGAR
Flokksstarfið
30 ára afmælishátíö
Þrjátíu ára afmælishátíð Alþýðuflokksfélags Garða-
bæjar og Bessastaðahrepps verður haldin í Gaflin-
um, Hafnarfirði, laugardaginn 21. október næst-
komandi.
Húsið opnar kl. 20.00. Matur, skemmtiatriði og dans.
Upplýsingar og miðapantanir hja Maríu í síma
42133 og Hilmari í síma 657187.
Stjórnin
Landsf undur SA
Samband Alþýðuflokkskvenna heldur landsfund sinn 3. og 4. nóvember
nk. á Hótel KEA, Akureyri, og hefst fundurinn með setningu, föstudaginn
3. nóvember kl. 20.00.
Dagskrá fundarins verður nánar auglýst síðar, en aðalumræðuefni verða
Sveitarstjórnarkosningarnar 1990
Lífskjör á landsbyggðinni
Fundurinn er opinn öllum alþýðuflokkskonum og eru þær hvattar til að
mæta.
Stjórn SA