Alþýðublaðið - 20.10.1989, Síða 7
Föstudagur 20. ok.t. 1989
7
UTLÖND
Við erum í
sama björg-
unarbátnum
Fyrir hvert tré sem er gróðursett i Afríku eru 39 felld. Þette
gerist æ hreöer svo ekki er mögulegt eö endurnýje þeu. Fólki
fjölger stööugt og því fleiri sem veröe eð life ef auðlindum
sem síminnke.
„í Kenya margfaldast fólksfjöld-
inn á hverjum tuttugu árum og
fólksfjölgunin er miklu hraðari en
vöxtur efnahagslífsins" segir
Mansfield við blaðamann Arbeid-
erbladet, en hann hefur höfuð-
stöðvar sínar í Nairobi.
„Vatnið er mengað, jarðvegur-
inn blæs upp og það versta er að
landbúnaðurinn gengur út á að
græða peninga ekki að framleiða
mat,“ heldur hann áfram.
William H. Mansfield, adstodarframkvœmdar-
stjóri umhvefisverndar-úœtlunar Sameinudu
þjódanna segir: ,,Asamt veröurfarsbreytingun-
um er eyöilegging núttúruauölinda í þróunar-
löndunum mesta umhverfisógnin ú þessari jörö
okkar. Ríku þjóöirnar eru svo uppteknar af eig-
in umhverfismúlum aö þœr sjú ekki hina ógn-
vœnlegu eyöingu í núttúru fútæku þjóöanna.“
Auðlindaeyðilegging: Það sem áður var beitiland á Mali — er nú algjör eyðimörk.
„Sem dæmi má nefna ræktun á
hnetum og bómull tii útflutnings.
Uppskeran er ekki ætluð til matar-
gerðar heldur til þess að borga
skuldir erlendis, og á mörgum
stöðum ekki einu sinni það. Nátt-
úrueyðileggingin gerir fólkinu
ekki einu sinni kleift að rækta mat
fyrir sjálft sig."
„Þessi umhverfisvandamál eru
enn meiri en þau sem hinn iðn-
væddi heimur glímir við. Auðugu
ríkin hafa þó í það minnsta pen-
inga til þess að reyna að bæta úr
ástandinu. Auk þess eru þær flest-
ar meðvitaðar um vandann og
vilja bæta úr. Þessu er ekki þannig
varið í þróunarlöndunum" segir
Mansfield.
Hjálparstarf_________________
Hann segir að auðugu ríkin
verði að leggja til efnahagsaðstoð
vegna umhverfisverndar í þróun-
arlöndunum, — og framlög séu
alltof lág.
„Við vitum og höfum vitað að
við verðum að hjálpa þróunar-
löndunum með hluti sem ekki eru
til staðar í löndum þeirra. Verður
ekki erfitt að fá skilning á því, að
nú þurfa þau á peningahjálp okkar
að halda til þess að vinna úr því
sem þau í rauninni hafa haft en fer
síminnkandi?"
„Við skulum hafa það í huga, að
þegar við ræðum umhverfi jarðar-
innar erum við öll á sama báti."
„Iðnvæddu ríkin eiga sjálf sök á
gróðurhúsaáhrifunum og bera
fulla ábyrgð á þeim og það er mál
sem við verðum að leysa. Til þess
verðum við að fá þróunarlöndin í
lið með okkur því að öðrum kosti
gætu þau eyðilagt það sem við
reyndum að bæta úr.“
(Arbeiderbladet, stytt.)
SJÓNVARP
Sjónvarp kl. 20.30
OPNUN
BORGARLEIKHÚSSINS
Bein útsending frá opnunarhátíð
Borgarleikhússins þar sem hátíðar-
dagskrá verður flutt. Leikfélagsfóik
mun að sjálfsögðu sjá um þann
flutning og bjóða upp á skemmti-
dagskrá sem Jón Hjartarson hefur
tekið saman.
Stöð 2 kl. 21.50
BARÁTTA
NAUTGRIPA-
BÆNDANNA ★★1/2
(Comes a Horseman)
Bandarísk bíómynd, gerd 1978, leik-
stjóri Alan J. Pakula, aöalhlutuerk
James Caan, Jane Fonda, Jason Ro-
bards.
Þetta er vestri, eins og nafnið gefur
til kynna, frekar af rómantískara
taginu, einfaldur í allri uppbygg-
ingu, gerist reyndar á þessari öld-
nánar tiltekið á fimmta áratugnum,
þannig að þetta er ekki hefðbund-
inn vestri. Segir af baráttu tveggja
landeigenda sem eru jafn rótgrónir
og grasið sem vex á jörðum þeirra.
Ósvífnir olíuleitar og -borunarmenn
vilja komast yfir jarðir þeirra til að
vinna úr þeim olíu en nautgripa-
bændurnir láta hart mæta hörðu.
Myndin er frekar á lágu nótunum
framan af og uppbyggingin hæg,
sviðsmyndir hinsvegar oft glæsileg-
ar og nokkur atriði eiga eftir að
koma við hjartað í fólki ef að líkum
lætur. Spennan hinsvegar ekkert
óskapleg.
Sjónvarpið kl. 22.20
NEÐANJARÐAR-
BRAUTIN **
(Subway)
Frönsk bíómynd, gerd 1984, leik-
stjóri Luc Besson, adalhlutuerk
Christopher Lambert, Isabella Adj-
ani, Richard Bohringer, Michel
Galabru.
Afar þekkt mynd á íslandi, lengi
sýnd í Stjörnubíói og hefur verið þar
margsinnis endursýnd. Gerist ein-
göngu neðanjarðar, eða svo gott
sem, ekki einasta á þeirri hæð þar
sem neðanjarðarbrautirnar ganga
heldur líka á hæðinni fyrir neðan og
í allskyns skúmaskotum þar út frá.
Sagan hefst á því að ungur dularfull-
ur maður kemur í afmælisveislu til
ungrar stúlku af betra fólki. Hún
hrífst af honum án þess að vita að
heimili hans er neðanjarðar með
frekar ófínum. Myndin er ruglings-
leg í þræði, hefur í raun engan, vakti
aðallega athygli fyrir merkilega
kvikmyndatöku og sviðsmynd.
Þekktir leikarar fara með aðalhlut-
verkin, Isabella Adjani þar auðvitað
fremst í flokki, oft titluð bæði feg-
ursta og besta leikkona Frakka og
hún sýnir að minnsta kosti það fyrr-
nefnda í þessari mynd. Myndin er
skemmtileg til að byrja með en
rennur svo út í tóma vitleysu. Leik-
stjórinn, Luc Besson, á meðal ann-
ars að baki myndirnar Björninn sem
sýnd var í Regnboganum fyrir
skemmstu og Lokaorrustuna sem
sýnd er á Kvikmyndahátíð sem lýk-
ur í dag. Besson var aðeins 23 ára
þegar hann gerði Lokaorrustuna og
litlu eldri þegar hann gerði Subway.
Stöð 2 kl. 02.05
HERBERGI
MEÐ ÚTSÝNI ★★★
(A Room with a View)
Bresk bíómynd, gerd 1985, leikstjóri
James luory, aöalhlutuerk Maggie
Smith, Helena Bonham-Carter, Juli-
an Sands, Denholm Elliott, Daniel
Day Lewis.
Frábær bresk mynd, gerð eftir sögu
E.M. Forster um unga stúlku sem fer
til Flórens, ásamt gæslukonu, og þar
ýtir sérlyndur ungur maður undir
hvatir sem búa innra með henni.
Myndin fjallar einkum og sér í lagi
um breska siði, hátterni og venjur
og gerir að þeim dágott grín. Þetta
er róleg mynd í anda aðstandend-
anna (Merchant, framleiðandi, Iv-
ory, leikstjórinn, Jhabvala, handrits-
höfundurinn), þar sem líkt og í raun
var á Viktoríutímanum í Englandi,
ólgar undir siðfáguðu yfirborðinu.
Persónurnar mega, ef menn vilja
fara út í táknsæi, lesast sem tákn um
tímana, stúlkan brýtur af sér viðj-
arnar eins og fólkið gerði á endan-
um þegar Viktoría drottning gat
ekki lengur haldið því niðri með
ströngum siðaboðskap. Annað gott
dæmi um þetta, bæði í kvikmynd og
bók er Ástkona Franska Lautinants-
ins eftir John Fowles sem hefur
komið út í íslenskri þýðingu.
ff STÖD 2
17.50 Gosi 15.35 Aulinn The Jerk 17.05 Santa Barbara 17.50 Dvergurinn Daviö
1800 18.25 Antilópan snýr aftur 18.50 Táknmálsfréttir 18.55 Yngismær (15) Brasilískur framhalds- myndaflokkur 18.15 Sumo-glima 18.40 Heiti potturinn
1900 19.50 Tommi og Jenni 20.00 Fréttir og veö- ur 20.30 Opnun Borgar- leikhússins Bein útsending frá opnunarhátíöardag- skrá í Borgarleikhús- inu. 21.30 Peter Strohm (Peter Strohm) Þýskur sakamálamyndaflokk- ur meö Klaus Löw- itsch í titilhlutverki. 22.20 Neðanjarðar- brautin (Subway) Frönsk bíó- mynd frá 1985. 19.19 19.19 20.30 Geimátfurinn 2100 Sitt iitiö af hverju A Bit ol a Do Frábær breskur gam- anmyndafiokkur i sex þáttum. Fimmti þátt- ur. Aöalhlutverk: David Jason. Gwen Taylor ofl. 21.55 Barátta naut- gripabændanna Comes a Horseman Rómantiskur vestri.
2300 00.00 Útvarpsfréttir í dagskrárlok 23.55 Alfred Hitch- cock 00.20 Freistingin 02.05 Herbergi með útsýni A Room with a View 03.55 Dagskrárlok