Alþýðublaðið - 31.10.1989, Qupperneq 2
2
Þriðjudagur 31. okt. 1989
f
f
MMÐUBUIDIÐ
Útgefandi: Blaö hf.
Framkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson
Ritstjóri: Ingólfur Margeirsson
Fréttastjóri: Kristján Þorvaldsson
Dreifingarstjóri: Siguröur Jónsson
Setning og umbrot: Leturval, Ármúla 36
Prentun: Blaðaprent hf.
Áskriftarsíminn er 681866
Áskriftargjald 1000 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 75 kr. eintakið.
EVRÓPA OG VILJI
ÞJÓÐARINNAR
Félagsvísindastofnun Háskólans hefur birt skoðanakönnun
sem stofnunin gerði á viðhorfum og þekkingu á málefnum er
tengjast V-Evrópu. Helstu niðurstöður þeirrar könnunar eru þær,
að þjóðin lýsir mjög jákvæðri afstöðu til samstarfs við þjóðir V-
Evrópu. í könnuninni kemur hins vegarfram, að mikil vanþekking
ríkir meðal þjóðarinnar um málefni Evrópu og þá sérstaklega um
EFTA og EB. í könnuninni kemur einnig fram, að yfirgnæfandi
meirihluti þjóðarinnar vill ekki leyfa veiðar EB-ríkjanna innan ís-
lenskrar veiðilögsögu þótt á móti kæmi bættur aðgangur íslend-
ingíSað Evrópumörkuðum. Þessi afstaða íslensku þjóðarinnar til
eigin lögsögu er bæði réttmæt og skiljanleg. íslendingar háðu
erfið þorskastríð og börðust áratugum saman fyrir stækkun land-
helginnar í áföngum í 200 mílur. Undirstaða íslensks efnahagslífs
og þar með lífskjara á íslandi er sjávarútvegurinn. íslenska þjóðin
er ekki reiðubúin að deila með öðrum þessu fjöreggi þjóðarinnar
sem veiðilögsagan er. Hins vegar verður okkur að vera Ijós sú
hætta sem stafar af einhæfri atvinnuuppbyggingu. Hugmyndir
Jóns Sigurðssonar iðnaðarráðherra um stækkun álversins og
uppbyggingu orkufreks iðnaðar á íslandi eru fyrstu raunhæfu
áformin um endurskipulagningu atvinnuveganna á íslandi. Með
fjölþættri atvinnuuppbyggingu minnkar hættan á síendurtekn-
um hagsveiflum og fjöreggjum þjóðarinnar fjölgar.
A sama tíma og við búum við sjávarútveginn sem aðalatvinnu-
grein og stöndum þar af leiðandi vörð um fiskimið okkar, er
hætta á að íslendingar einangrist frá þeirri víðfeðmu þróun sem
nú á sér stað í V-Evrópu. Það er því mikilvægt þegar við lítum til
framtíðar, að við byggjum upp fjölþættar uppistöðuatvinnu-
greinar og hefjum þegar undirbúning að víðtæku samstarfi við
Evrópuþjóðirnar. Niðurstöður skoðanakönnunar Félagsvísinda-
stofnunar gefa berlega í skyn vilja íslendinga til að auka tenglsin
við V-Evrópu. Yfirgnæfandi meirihluti aðspurðra er því fylgjandi
að Islendingum verði gert auðveldara að starfa í Evrópuríkjum,
að íslensk fyrirtæki geti í auknum mæli nýtt sér þjónustu
evrópskra fyrirtækja, bankastofnana og tryggingarfélaga og að
dregið verði úr tollum og innflutningshöftum á evrópskum vör-
um gegn niðurfellingu tolla á íslenskum útflutningi til V-Evrópu.
Vilji íslensku þjóðarinnar er því skýr: íslendingar nútímans vilja út
úr hinu lokaða hagkerfi, opna landið fyrir auknum tengslum við
erlendar þjóðir og rjúfa þá einangrun sem landið hefur búið við
t áratugi og aldir; menningarlega, félagslega og efnahagslega.
Pað er mikilvægt að þeir sem við völd sitja á íslandi skilji þessi
skilaboð frá íslensku þjóðinni. Að hagsmunum heildarinnar og
vilja meirihluta þjóðarinnar sé ekki fórnað fyrir verndarpólitík og
pólitíska hagsmunagæslu í þágu fárra. Evrópa öll stendur nú á
tímamótum. ísland stendureinnig á tímamótum. 'nmar hins lok-
aða hagkerfis eru að líða undir lok, þar sem óhagstæðum at-
vinnurekstri hefur verið haldið uppi af ríkisfé og pólitískum fyrir-
greiðslustofnunum. Þetta verða ráðamenn þjóðarinnarog stjórn-
málamenn allra flokka að skilja.
Sökinni á fáfræði íslendinga um málefni V-Evrópu sem fram
kemur í niðurstöðum umgetinnar skoðanakönnunar, hefyr verið
að stórum hluta skellt á fjölmiðla. Að þeir hafi brugðist úpplýs-
ingaskyldu sinni. Það er rétt, að fjölmiðlar, einkum þeirstærstu
og sterkustu, hafa sýnt þessum veigamiklu málaflokkum
V-Evrópu allt of lítinn áhuga. Kannski er það eitt dæmi um ein-
angrun íslands. En ástæðurnar eru fleiri. Jón Baldvin Hannibals-
son utanríkisráðherra hefurgert skilvíslega grein fyrir þróun mála
í V-Evrópu í ítarlegum viðtölum sem birst hafa í fjölmiðlum og
einnig hefur ráðherrann skrifað fjölda greina um sömu mála-
flokka sem birst hafa víða í dagblöðum, m.a. hér í Alþýðublaðinu.
Hins vegar hefur mikið skort á, að aðrir ráðherrar ríkisstjórnarinn-
ar hafi fjallað um málefni EFTA og EB í víðu samhengi og að hin
mikilvægu málefni V-Evrópu hafi verið í opinberri umræðu hjá al-
þingismönnum eða embættismönnum þjóðarinnar. Hér þurfa
allir að leggja hönd á plóginn.
ÖNNUR SJONARMID
TIMINN átti viðtal við Jón Baldvin
Hannibalsson utanríkisráðherra
sem birtist s.l. laugardag þar sem
ráðherrann var m.a. spurður um
niðurstöður skoðanakönnunar Fé-
lagsvísindastofnunar. í niðurstöðun-
um kom fram, að fáfræði um mál-
efni V-Evrópu væru geysilega mikil.
Jón Baldvin taldi sökina liggja að
stórum hiuta hjá fjölmiðlum, sér í
lagi sjónvarpsstöðvunum, sem virð-
ast vera mun uppteknari við að
velta sér upp úr smásköndulum á ís-
landi en að fjalla af þekkingu um
stóra málaflokka sem skipta ís-
lensku þjóðina miklu máli.
Utanríkisráðherra segir orðrétt í
viðtalinu við Tímann:
„ „Hverjir eru nú áhrifamestu
miðlar í fjölmiðlabyltingu sam-
tímans — ef hún hefur ekki étið
bðrnin sín? Það eru sjónvarps-
stöðvarnar. En á hverju hafa þær
haft áhuga? Hver hefur verið
fréttastefna þeirra? Hafa þær
haft mikinn áhuga á að miðla
einhverjum upplýsingum um
svona veigamikið og stórt mál?
Nei. Þær höfðu hins vegar
óskaplega mikinn áhuga á öðr-
um málum, og get ég þar talað af
eigin reynslu. Eg upplifði það á
íslandi um daginn — eftir hálfs
mánaðar umfjöllum á Stöð 2, þar
sem reynt var að koma því inn
hjá þjóðinni að ég væri bæði
þjófur og alkóhólisti — að þá
höfðu þeir skoðanakönnun þar
sem í Ijós kom að 85% af svar-
endum töldu að þetta hlytu að
vera réttar fréttir. Nú mætti
kannski beina því til þessarar
stöðvar hvort þeir vildu nú ekki
reyna að upplýsa þjóðina um hin
meiri mál og hafa svo vandaðar
skoðanakannanir á eftir,“ sagði
Jón.“
MEIRA um fjölmiðla. Nú er fræði-
maðurinn Hannes Hólmsteinn Giss-
urarson háskólalektor búinn að
skrifa bók um íslenska fjölmiðla. Og
það eru ekki óhlutdræg vísindi ef
marka má orð höfundar í viðtali við
DV í gær.
Ónei. Höfundur segir um þessa
bók sína: „Það er aftökustíll á henni
en ekki jarðarfarar."
Það sem vekur hins vegar athygli
er að Hannes Hólmsteinn sem ráð-
inn hefur verið lektor skuli hafa
tíma til að senda frá sér aðra bókina
í ár. Hin fyrri var, eins og menn
muna, saga Sjálfstæðisflokksins í 60
ár og fékk dreifingu á landsfundi
flokksins.
En lektorinn hefur skýringu á
þessari athafnasemi einnig:
„Ég færi samkennurum mín-
um í stjórnmálafræði sérstakar
þakkir í formálanum fyrir að
hafa stillt kennslubyrði minni
svo í hóf að ég hef nægan tíma til
rannsókna og ritstarfa," segir
hann.“
Það er ekki amalegt. Að skrifa
bækur um Sjálfstæðisflokkinn og
frjálsa fjölmiðla og ríkið borgar
vinnulaunin.
Það eru bara útvaldir sem geta
hugsað á kostnað skattgreiðenda.
Hannes Hólmsteinn: Tvær bæk-
ur á ári. Á kostnað skattgreið-
enda.
Einn með kaffinu
— Gulrætur eru mjög góðar fyrir
sjónina.
— Ég trúi því ekki. ..
— Jæja, hefurðu nokkurn tím-
ann séð kanínu með gleraugu?
DAGATAL
Viötöl um miðjan dag
t*essir fréttamenn eru alltaf á
ferðinni og farnir að vera talsvert
áberandi í bæjarlífinu. Hérna áður
fyrr voru það einna helst Hafnar-
strætisrónar og skringilegir per-
sónuleikar sem settu svip sinn á
miðbæinn. Nú eru það fréttamenn
með sjónvarpsvélar og hljóð-
nema.
Ég verð nú að segja að ég sakna
dálítið gömlu tímanna.
*
Eg var staddur niður í Austur-
stræti fyrir nokkru þegar einhver
fréttamaður á gallabuxum með
skegg og úfið hár, klæddur í snjáð-
an ullarfrakka, stakk hljóðnema
undir hökuna á mér og spurði:
— Hvað veistu um EFTA?
Mér brá svo mikið að ég sagði
bara:
— Ég held að það sé í ágætu
standi.
Svo forðaði ég mér inn í næstu
sjoppu, því ég segi það alveg eins
og er, að mér er meiniila við þessa
blóðhunda fjölmiðlanna. Þeir
gætu alveg eins grafið upp að
gamla lögheimilið mitt er í Kópa-
vogi.
En út um sjoppudyrnar fylgdist
ég hins vegar með fréttamannin-
um sem hélt áfram að spyrja veg-
farendur. Nú var skeggjaði frétta-
haukurinn búinn að króa af ungl-
ingsstelpu með skólatösku.
— Hvað veistu um EB? heyrði ég
að fréttamaðurinn spurði.
— Ha? Um hvað? spurði stúlkan
brosandi á móti.
— Hvað veistu um Evrópu-
bandalagið? spurði fréttahaukur-
inn óþolinmóður.
— Ér það einhver ný hljómsveit?
spurði stúlkan broshýra og fliss-
aði.
— Veistu eitthvað um EFTA?
sagði fréttamaðurinn.
— Nei, Guð nei, á maður að
þekkja það? spurði stúlkan með
brosleitu augun.
— Veistu hver er utanríkisráð-
herra íslands? spurði fréttamaður-
inn hálfuppgefinn á svipinn.
— Ja, er það ekki hann þarna
Jón Óttar, eða hvað hann heitir,
sagði stúlkan.
— Klippa! sagði fréttamaðurinn.
Næsta fórnarlamb fréttamanns-
ins var öldruð kona sem gekk
beygð við staf.
— Hvað veistu um EB? spurði
fréttamaðurinn og stakk míkró-
fóninum niður á við að andliti
gömlu konunnar.
— Hvað segirðu, góði minn?
spurði konan.
Fréttamaðurinn endurtók
spurninguna.
— Hérna í gamla daga var nú
vaninn að segja góðan daginn
þegar maður ávarpaði fólk, sagði
konan og gretti munnvikin í eins
konar brosi.
— Klippa! Við byrjum aftur,
sagði fréttamaðurinn og endurtók
spurninguna.
— Ebé? hváði konan. Er það
eitthvert nýtt tannkrem? Er þetta
sjónvarpsauglýsing?
— EB er stytting á Evrópu-
bandalaginu, útskýrði fréttamað-
urinn.
— Já, Evrópubandaiagið, það er
von að þú spyrjir, blessaður dreng-
urinn. Nú komst fréttamaðurinn
greinilega í bobba. Hann bjargaði
sér með að spyrja næstu spurning-
ar:
— Veistu hver er utanríkisráð-
herra?
Konan dæsti og svaraði:
— Já, það veit ég vel. En það er
von að þú vitir það ekki. Hvernig
ættuð þið fréttamennirnir að vita
hvaða ráðherra gerir hvað. Þið
fjölmiðlamennirnir hafið bersýni-
lega enga hugmy nd um hvað þess-
ir ágætu menn eru að gera í sínum
störfum fyrir þjóðina. Þið fjallið
um þá eins og þeir væru bara
Mafíuforingjar og glæpahyski. En
væri ekki nær að þið settuð ykkur
inn í málin áðúr en þið vaðið með
vanþekkinguna yfir alþjóð? Og
finnst þér ekki niðurlægjandi að
vera að spyrja gamlar kerlingar
eins og mig um hluti sem þið eigið
að vita?
Svo haltraði gamla konan í
burtu. Fréttamaöurinn stóð í smá-
tíma og horfði á eftir henni. Svo
sagði hann við tæknimanninn:
— Pökkum saman. Það er ekki
hægt að nota neitt af þessu.