Alþýðublaðið - 31.10.1989, Qupperneq 3
Þriðjudagur 31. okt. 1989
3
FRÉTTASKÝRING
Vinnuálag fœlir konur frá sveitar-
stjórnarstörfum. Kvennalistakon ur
ekki ánœgdar med árangurinn á Al-
þingi en ánœgdar meö sín óbeinu
áhrif. Hafa ákveðið að taka sœti í
bankaráðum ríkisbankanna: Þar er
leyndardóma að finna sem vert er að
kanna.
Landsfundur Kvennalistans:
Frá blaðamannafundi Kvennalistans í gær. l-ylgi listans hefur minnkað á ný eftir ævintýralega sókn. Þær viðurkenna að mikið
fylgi á sínum tíma hafi að hluta til verið yfirlýsing um óónægju með aðra, en að öðru leyti segjast þær eiga erfitt með að ná
eyrum fólks. A-mynd/E.ÓI.
Afturkippur í sókn kvenna
Kvennalistinn hélt sjöunda landsfund sinn í Ölfusi
um síðustu helgi. Á fundinum komu fram nokkrar
áhyggjur yfir versnandi stöðu kvenna í launamálum og
svo virðist vera sem sökn kvenna í sveitarstjórnum sé
í rénum og jafnvel að fjara út. „Það er umhugsunar- og
áhyggjuefni, hversu margar konur, sem nú sitja í sveit-
arstjórnum, hyggjast ekki gefa kost á sér til áframhald-
andi starfa á þeim vettvangi samkvæmt nýlegri könn-
un Jafnréttisráðs", segir í ályktun frá fundinum.
Ástæðurnar eru skýrar
að mati Kvennalistans:
Vinnuálag þessara kvenna
er of mikið, þær séu gjarn-
an í þremur störfum í einu,
fullri launaðri vinnu, sveit-
arstjórnarstörfum og heim-
ilisstörfum. Þessi afturkipp-
ur, sígandi lukka í skoðana-
könnunum og nokkur ein-
angrun í stjórnarandstöðu
vekja upp ýmsar spurning-
ar.
Ólík hlutskipti
sigurvegaranna
I sínum fyrstu alþingis-
kosningum í apríl 1983
bauð Kvennalistinn sig
fram í ,,aðeins“ 3 kjördæm-
um af 8, en hann hlaut þó
7.125 atkvæði eða 5,5% at-
kvæða af heildinni og þrjá
þingmenn kjörna. Sigríður
Dúna Kristmundsdóttir í
Reykjavík náði beinu kjöri
sem dugði til uppbótar-
þingsæta fyrir Guðrúnu
Agnarsdóttur í Reykjavík
og Kristínu Halldórsdóttur í
Reykjanesi.
Við tók „helmingaskipta-
stjórn" Framsóknar- og
Sjálfstæðisflokka næstu 4
árin. Á þeim tíma sýndu
skoðanakannanir eilítið
aukið fylgi kvennanna, en
þó yfirleitt á bilinu 7—10%
af þeim sem afstöðu tóku.
Þetta breyttist þó undir það
síðasta þegar kosningarnar
1987 nálguðust og fylgið
tók að sveiflast í þeirra átt.
í kosningunum síðustu
hlaut Kvennalistinn síðan
15.470 atkvæði (aukning
um 117%) eða 10,1% at-
kvæða í heild — bauð sig
fram að þessu sinni í öllum
kjördæmum. Kosningalög
höfðu breyst og nú náðu
beinu kjöri í Reykjavík þær
Guðrún Agnarsdóttir, Krist-
ín Einarsdóttir og Þórhildur
Þorleifsdóttir, í Reykjanesi
Kristín Halldórsdóttir, í
Norðurlandskjördæmi
eystra Málmfríður Sigurð-
ardóttir og síðasta sæti allra
þingmanna, „flakkarann"
svo kallaða, hlaut Danfríð-
ur Skarphéðinsdóttir í Vest-
urlandi.
Kosningarnar 1987 voru
mikill sigur fyrir ,,nýju“
flokkana, Borgaraflokkinn
og Kvennalistann. Miðað
við mælikvarða skoðana-
kannana hafa hlutskipti
þessara flokka orðið ærið
misjöfn. Borgaraflokkurinn
hefur þar misst mest allt sitt
fylgi, hefur klofnað og
gengið inn í ríkisstjórnina.
Kvennalistinn hefur á
stundum mælst með ótrú-
lega mikið fylgi og getað í
skjóli þess gert réttmætt til-
kall til valda, en heldur sér
í stjórnarandstöðu.
Enginn einhlítur
mælikvarði á árangur
Sagt er að fylgi við
Kvennalistann sveiflist
vegna þess að hann telst
heppilegur vettvangur fyr-
ir óánægjuöflin. Að ef
hegna eigi eigin flokki þá
sé kjörið að varpa því tíma-
bundið yfir á Kvennalist-
ann.
Kvennalistinn var á tíma-
bili, fyrir 1—2 árum, í skoð-
anakönnunum með
28—30% fylgi af þeim sem
tóku afstöðu. Síðar dalaði
fylgið all verulega og er nú
komið nálægt kosninga-
fylgi hans fyrir tveimur ár-
um. Betra er að átta sig á
stöðunni ef fylgið er talið í
kjósendum: Þeir voru
15.470 í kosningunum, fóru
upp í nálægt 45 þúsund
samkvæmt skoðanakönn-
unum, en eru nú komnir í
15—16 þúsund á ný. Fylgið
þrefaldaðist, en er nú þriðj-
ungur af því er best lét. En
eru Kvennalistakonur
ánægðar eða óánægðar
með uppskeruna af 6—7
ára setu á þingi?
„Auðvitað hefðum við
viljað mikið meira, en með
tilliti til ýmissa þátta erum
við samt nokkuð ánægðar,"
segir Kristín Halldórssóttir,
starfsmaður Kvennalistans
og fyrrum þingmaður.
'Þetta fer eftir því hvaða
mælikvarða þú leggur á
hlutina," segir Þórhildur
Þorleifsdóttir þingmaður.
„Ef þú spyrð hvort við sé-
um ánægðar með hvað við
höfum fengið margt sam-
þykkt á Alþingi er svarið að
við erum ekki ánægðar. Og
hið sama má t.d. segja um
borgarstjórn. En þetta er
bara brot af starfinu, við
höfum vonandi haft okkar
áhrif í nefndum og stjórn-
um og við höldum því fram
að við höfum haft einhver
áhrif á vinnubrögð í þing-
inu. En aðaláhrifin eru ann-
ars staðar. Það er afskap-
lega mikilvægt fyrir konur
að vera einhvers staðar þar
sem það heyrist í þeim, þótt
það gangi reyndar ansi illa
á Alþingi núorðið."
Stjórnarþátttaka
veröur aö vera
eftirminnileg
Um óbein áhrif Kvenna-
listans nefndi Kristín Hall-
dórsdóttir dæmi af fisk-
veiðistefnunni: Hann lagði
fyrir tveimur árum fram til-
lögur þar sem mikil áhersla
var lögð á rannsóknarþátt-
inn og „það er þó eitt lítið
dæmi sem við finnum í
þeim drögum að fiskveiði-
stefnu sem nú eru að sjást,
sem er ættað frá okkur —
áhrifin leyna sér ekki."
Þrátt fyrir sterka stöðu á
stundum hefur Kvennalist-
inn ekki enn fengist við
framkvæmdavaldið — tek-
ið þátt í ríkisstjórn. Þó var
mikið biðlað til þeirra og
sjálfar viðurkenna þær að
margir stuðningsmenn list-
ans hefðu viljað sjá konurn-
ar í ráðherrastólum til að
hafa bein áhrif á ýmsar
mikilvægar ákvarðanir.
„Auðvitað viljum við fara
í ríkisstjórn", segir Þórhild-
ur. „Við bíðum eftir því með
óþreyju að fá nægilegt fylgi
og nægilegan styrk til að
fara í ríkisstjórn á þeim for-
sendum að við getum skilið
eftir okkur veruleg spor.
Við höfum engan áhuga á
því að fara í ríkisstjórn þar
sem við erum aðeins eitt
hjól undir vagni en megna
ekkert — það yrði okkur
ekki til framdráttar þegar
til lengri tíma er litið.
Skammtímasjónarmiðið
væri auðvitað að rjúka inn
í ríkisstjórn, en langtíma-
sjónarmiðið hlýtur að segja
okkur að það hefði ekki
verið rétt ákvörðun af því
við hefðum ekki getað gert
það með nógu afgerandi
hætti. Við verðum að bíða
þangað til við metum það
svo að það verði svo eftir-
minnilegt að það fari ekki
framhjá neinum að það
muni um það að hafa
Kvennalistann í ríkis-
stjórn."
„Við erum enn að plægja
og sá. Uppskerutíminn er
ekki kominn" bætir Kristín
Halldórsdóttir við.
Boriö saman viö
Valhallarbákniö...
Aðspurð um mikla fylgis-
sveiflu til Kvennalistans á
tímabili, en síðan „hrap" á
síðustu mánuðum, allt und-
ir kosningafylgi listans
sagði Þórhildur að það
væri skiljanlegt þegar sagt
væri sem svo, að þegar
Kvennalistinn ryki svo mik-
ið upp í skoðanakönnunum
væri hluti skýringarinnar
yfirlýsing um óánægju með
aðra, en ekki endilega
ánægju með Kvennalist-
ann. „Við erum klárar á því
að það eru mjög margir
sem urðu fyrir vonbrigðum
með að við skyldum ekki
fara í ríkisstjórn. Það viss-
um við þegar við tókum þá
ákvörðun. Svo eigum við
hins vegar í miklum vanda
með að koma okkar mál-
stað í gegn, sem í raun er
vandi kvenna í gegnum
aldirnar, að vera ekki nógu
sýnilegar. Við eigum af-
skaplega erfitt með að ná
eyrum þjóðarinnar í sama
mæli og aðrir."
„Ekki má gleyma því að
við erum í stjórnarand-
stöðu við hliðina á mjög
stóru bákni sem Sjálfstæð-
isflokkurinn er,“ segir Krist-
ín Halldórsdóttir. „Þjóðin’
virðist vera fljót að gleyma
og nú baðar sá flokkur sig í
því sem þeir telja til vin-
sælda fallið, eins og að af-
nema nánast alla skatta að
manni skilst, og þeir koma
mjög sterkir fram. Það er
mjög táknrænt að stilla
saman okkar litla leiguhús-
næði og síðan Valhallar-
bákni Sjáifstæðisflokksins,
sem sýnir okkar mismun-
andi stöðu í stjórnarand-
stöðunni. Þeir hafa stóran
flokk, mikið fjármagn, stórt
blað og svo framvegis."
„Að öðru leyti sýna fjöl-
mörg dæmi hversu skoð-
anakannanir taka mikið
mið af stund og stað. Eftir
landsfund Sjálfstæðis-
flokksins rauk Davíð Odds-
son skyndilega á toppinn,
en komst varla á blað yfir
vinsælustu stjórnmála-
mennina áður. Annað
dæmi er af Jóni Baldvin og
vínmálum hans — allt í
einu var hann orðinn sið-
spilltasti stjórnmálamaður
landsins, en viku áður hefði
það sjálfsagt verið einhver
annar."
í bankaráöum er
leyndardóma aö finna
Á landsfundinum voru
samþykktar ýmsar álykt-
anir. Meðal annarra um
versnandi stöðu kvenna á
vinnumarkaðinum, um sér-
staka Kvennadeild innan
Byggðastofnunar er fái
a.m.k. 20% af framlagi rík-
isins til stofnunarinnar, um
mótmæli gegn fyrirhugaðri
endurvinnslustöð fyrir
kjarnorkuúrgang í Doun-
reay og fleira. Hitt hefur
vakið meiri athygli að
Kvennalistinn hefur ákveð-
ið þá stefnubreytingu að
taka sæti í bankaráðum rik-
isbankanna, í Seðlabanka,
Landsbanka og Búnaðar-
banka. Hvers vegna er
þessu breytt nú?
„Við fetum okkur af stað
inn í þetta kerfi. Fyrir rúm-
um 6 árum var það Alþingi.
Auðvitað var fjöldamargt
sem við áttum þá eftir að
skoða og þetta er eitt af því.
Með aukinni reynslu höfum
við hreinlega komist að því
að það sé nauðsynlegt fyrir
okkur að vera inni í banka-
ráðunum," segir Þórhildur.
„Andstaða okkar var
fyrst og fremst gegn pólit-
ískt kjörnum nefndum og
ráðum á öllum sviðum,"
segir Kristín. „Við erum nú
að skoða afkimana," segir
Þórhildur. „Við sögðum
fyrst að við ætluðum ekki í
þennan tiltekna afkima, en
höfum komist að því að þar
er líklega að finna leyndar-
dóma sem vert er að
kanna. Konur þurfa að fá
stærri hlutdeild í fjármagni
landsins og það streymir að
hluta til í gegnum bankana.
Á móti þessu getum við
bent á, sem við teljum áhrif
frá okkur, að það er orðið
mjög útbreidd skoðun að
það eigi ekki að vera pólit-
ísk ráð t.d. á menningar-
sviðinu. Það er nýbúið að
samþykkja lög um Lista-
safn lslands, þar sem ekki
er lengur pólitískt ráð, hið
sama má segja um Þjóð-
minjasafnið og mér skilst
að álíka sé í uppsiglingu í
frumvarpi til útvarpslaga."
„Ég held að karlarnir í
bankaráðunum hafi ekki af
mjög miklu að státa og ég
hygg að við getum lagt þar
eitthvað til,“ bætti Kristín
við.
Að lokum kafli úr álykt-
un, sem lýsir erfiðleikum
kvenna sem koma út á
vinnumarkaðinn: „Konur
koma inn á vinnumarkað-
inn á allt öðrum forsendum
en karlar. Þeim er þó ætlað
að lúta sömu lögmálum og
leikreglum og körlum sem
hafa ákveðið allt eftir sínu
höfði og þörfum, en það er
í rauninni líkt og að api segi
fiski að þeir skuli klifra upp
í tré á jafnréttisgrundvelli."