Alþýðublaðið - 31.10.1989, Síða 4
4
Þriðjudagur 31. okt. 1989
Heildarupphæð vinninga
28.1 Ovar 4.750.573
3 höfðu 5 rétta og fær hver
kr. 729.071
Bónusvinninginn fengu 2
og fær hvor kr. 189.884
Fyrir 4 tölur réttar fær hver
7.444 og fyri r 3 réttar tölu r
fær hver um sig 530
Sölustaðir loka 15 mínútum fyrir út-
drátt í Sjónvarpinu
Jón Sœmundur Sigurjónsson alþingismaður:
Athugasemdir
við launafréttir
Föstudaginn 27. október sl. birti DV fréttir af kauphækk-
unum þingmanna skv. niðurstöðum kjaradóms og síðan
hvaða kostnað landsbyggðarþingmenn fá sérstaklega
greiddan. í tilefni af því sér blaðamaðurinn sérstaka ástæðu
til þess að fjalla á afar ónákvæman hátt um búsetumál mín
öðrum fremur.
Laugardaginn 28. október birt-
ast síðan ummæli sem ég mun
hafa viðhaft um þessi mál, þar
sem sömu ónákvæmni gætir og
atriðum sleppt, sem breytt hefðu
hinni upphaflegu „hasarfrétt", þar
sem viðtalið var tekið áður en hún
birtist. En það hefði sennilega
dregið úr púðri fréttarinnar. Eg
vildi því fá að gera eftirfarandi at-
hugasemdir við þessa frétta-
mennsku.
Lögheimili mitt
Þegar maður er kosinn á þing er
oftast ætlast til að hann komi úr
viðkomandi kjördæmi eða að
hann samsami sig því með því að
eiga þar búsetu. Þannig rennur
m.a. afrakstur opinberra gjalda af
launum hans til viðkomandi sveit-
arfélags, sem er minnsta viðleitni
þingmannsins til að standa vörð
um þá hagsmuni sem hann er
kjörinn til að sinna. Landsbyggð-
arþingmenn ættu því að eiga lög-
heimili í kjördæmum sínum.
Ég hef átt lögheimili að Suður-
götu 16 á Siglufirði í yfir 40 ár. Ég
átti þar lögheimili er ég var kosinn
á þing fyrir tveimur árum. Mér
fannst sá viðburður síst gefa tilefni
til að breyta um heimilisfang.
Allir landsbyggðarþingmenn,
nema Sunnlendingar og Suður-
nesjamenn að ég hygg, eiga sitt
„Ég hefátt lögheimili aö
Suöurgötu 16 á Siglufiröi
íyfir 40 ár. Ég átti þar
lögheimili er ég var
kosinn á þing fyrir
tveimur árum. Mér
fannst sá viöburöur síst
gefa tilefni til aö breyta
um heimilisfangsegir
Jón Sœmundur
Sigurjónsson m.a. í
athugasemdum sínum.
eigið húsnæði eða leigja á höfuð-
borgarsvæðinu. Þannig á ég og
fjölskylda mín raðhús í Hafnar-
firði. Af því greiddum við kr.
51.350 í fasteignagjöid á þessu ári.
Margir landsbyggðarþingmenn
halda síðan einnig húsnæði í
heimabyggð. Ég og kona mín eig-
um einnig fasteignir á Siglufirði,
þ.á m. stórt íbúðarhús með tveim-
ur íbúðum sem engar tekjur eru
af. Af þessum eignum greiddum
við kr. 98.770 í fasteignagjöld á
þessu ári.
Ég hef ekki séð ástæðu til að
flytja lögheimili mitt í eigið hús-
næði á Siglufirði. Ég hef þægilega
íbúðaraðstöðu í stóru húsnæði for-
eldra minna sem kemur mér að
fullum notum, þar eru allir mínir
pappírar frá fornu fari og þar vita
menn á Siglufirði og í kjördæminu
hvar mig er að finna.
Það er sjálfsagt allur gangur á
því hjá landsbyggðarþingmönn-
um hvort hús þeirra standa auð á
þingtímanum, eða hvort einhver
úr fjölskyldunni býr þar að stað-
aldri. Alla vega fellur til rekstrar-
kostnaður. Það er ekki öðru vísi
hjá mér.
Léleg blaðamennska
Greinar blaðamanns DV eru
óvenju ónákvæmar, bæði að formi
og innihaldi. Fyrirsögnin á föstu-
dagsgreininni var: „Tæpar 800
þúsund vegna lögheimilis hjá
pabba". Síðan var sagt í iaugar-
dagsfréttinni að ég finni ekkert at-
hugavert við þessar aukagreiðslur.
í hinu stutta og snubbótta viðtali
við blaðamanninn að morgni
föstudags vissi ég ekki, hvaða hug-
myndir hann gerði sér um þessar
tölur. Ég hef aldrei séð viðlíka upp-
hæðir vegna þessa kostnaðar og
mun ekki sjá þrátt fyrir síðustu
hækkun kjaradóms. Ég skora á
blaðamanninn að greiða mér per-
sónulega mismuninn á þessum
tæpu 800 þúsundum, sem hann
segir mig fá umfram Reykjavíkur-
landsbyggðarmenn, og því sem ég
raunverulega fæ eins og AÐRIR
landsbyggðarþingmenn, sem hafa
kostnað af húsum og heimilum á
landsbyggðinni. Þetta verða nokk-
ur hundruð þúsund krónur sem
blaðamaðurinn verður að punga
út með, sóma síns vegna, til að
standa við fleiprið. Síðan finnum
við verðugan viðtakanda fjárins á
Norðurlandi vestra til að njóta
góðs af. Ég sting t.d. upp á sambýli
fatlaðra, sem væntanlegt er að
Gauksmýri í Vestur-Húnavatns-
sýslu. Ef blaðamaður treystir sér
ekki til þessa setur hann niður fyr-
ir ómerkilega blaðamennsku.
Eftirfarandi eru þessar stað-
reyndir: 1. Kostnaður minn við
hús og heimiii í heimabyggð og
nálægt þingstað stenst alian sam-
anburð við aðra þingmenn. 2.
Samanburður á mínum högum
sérstaklega með þessum hætti og
svo þeirra sem eingöngu halda
heimili í Reykjavík eru vægast
sagt ósanngjarn. 3. Þær tölur sem
blaðamaðurinn nefnir eru skelfi-
lega illa unnar og fjarri lagi og
fréttin öll til þess eins að kasta rýrð
á mig persónulega.
Utanríkisráðherra er eini ráð-
herrann sem hefur haldið kostn-
aði ráðuneytis síns innan ramma
fjárlaga. Það forðaði honum þó
ekki frá því að lenda í Geirska æv-
intýrinu vegna brots þeirrar upp-
hæðar, sem blaðamaður DV kast-
ar hér um sig. Ráðherrann spurði:
„Af hverju ég einn? Hvar eru hinir
níu?“ Mér datt það svona líka í
hug. Er andlegt haardlífi ungra
íhaldsdrengja virkilega svo fram
gengið, að þeir hnjóta nú hver um
annan þveran við að leggja krata í
einelti, nú, þegar allir almennileg-
ir skyttuliðar eru löngu farnir til
rjúpna?
Vidskiptaráduneytið:
Gjaldeyrisreglur rýmkaðar
777 ad auka samkeppnisstööuna segir idnaðarrádherra
Frá og með 1. nóvember verða
rýmkaðar reglur um gjaldeyris-
mál mvegna innflutnings með
greiðslufresti og erlendrar lán-
töku vegna innflutnings, inn-
lendrar framleiðsiu og eignar-
leigu á vélum, tækjum og búnaði
til atvinnurekstrar og skipavið-
gerða.
Að sögn Jóns Sigurðssonar við-
skiptaráðherra eru þessar breyting-
ar gerðar til að bæta samkeppnis-
stöðu atvinnurekstrarhér á landi, en
þær eru og þáttur í fyrirhuguðu af-
námi hafta á sviði fjármagnsvið-
skipta milli íslands og annarra ríkja.
í kjölfarið fylgja ýmsar fleiri breyt-
ingar í áföngum á sömu lund. Þetta
er í samræmi við ákvæði málefna-
samnings ríkisstjórnarinnar um að
íslenski fjármagnsmarkaðurinn
verði aðlagaður breyttum aðstæð-
um í Evrópu.
Eftir þessar tilteknu breytingar
verður heimilt að fiytja inn einstak-
ar vörusendingar með allt að 360
daga greiðslufresti, ef ekki kemur til
ábyrgðar eða endurláns viðskipta-
banka, sparisjóðs, tryggingafélags,
fjárfestingalánasjóðs eða annarra
fjármálastofnana.
Þá verður innlendum framleið-
endum véla, tækja og búnaðar
heimilt að taka erlend lán til að fjár-
magna allt að 80% í stað 60% af inn-
lendu verði framleiðslu sinnar eða
allt að 70% í stað 50%, ef til kemur
ábyrgð eða endurlán innlendrar
fjármálastofnunar.
Áfengisdrykkja
á Noröurlöndum:
Íslend-
ingar
drekka
minnst
Islendingar eru bindindissam-
astir Norðurlandabúa, sam-
kvæmt töflu sem Áfengisvarnar-
ráð hefur sent frá sér. í töflunni
koma fram upplýsingar um
áfengisneyslu á mann, 15 ára og
eldri miðað við hreinan vínanda
á árunum 1970—1985. Græn-
Iendingar drekka langmest.
Áfengisneysla hefur aukist örlítið
á íslandi á þessum eina og hálfa ára-
tugi, ársneysla meðal-íslendingsins
hefur verið um 4 lítrar af hreinum
vínanda. Grænlendingar hafa hins-
vegar náð að drekka á sama tíma
allt að 19 lítrum á mann á ári.
Iöntœknistofnun:
Villandi skýrsla
Ríkisendurskoðunar
Iðntæknistofnun fór ríflega
9% fram úr fjárveitingu á síð-
asta ári en ekki 31% eins og
segir í skýrslu ríkisendurskoð-
unar. Ýmislegt sem fram kem-
ur um stofnunina í skýrslu rík-
isendurskoðunar er villandi,
segir Páll Kr. Pálsson, forstjóri
stofnunarinnar í sérstakri
fréttatilkynningu sem hann
sendi fjölmiðlum í gær.
Á fjárlögum ársins 1988 voru
Iðntæknistofnun ætlaðar 65 millj-
ónir króna, sem var verulegur nið-
urskurður frá árinu áður. Iðn-
tæknistofnun fékk hins vegar leið-
réttingu upp á 18 milljónir á árinu
og sértekjur vegna verkefna sem
stofnunin vann fyrir ýmis fyrir-
tæki urðu yfir 100 milljónir, eða
um 13% hærri en gert var ráð fyrir
í fjárlögum.
Rekstrargjöld urðu hins vegar
2,3 milljónum hærri en heildar-
tekjur og samtals nam skuld stofn-
unarinnar við ríkissjóð 7,7 millj-
ónum um síðustu áramót og í
fréttatilkynningu Páls segir að
þessi skuld hafi verið gerð upp.
Reiknað á föstu verðlagi hefur
framlag ríkisins til Iðntæknistofn-
unar staðið nokkurn veginn í stað
síðustu ár en sértekjur þær sem
stofnunin aflar með ýmsum verk-
efnum, hafa hækkað úr ríflega 50
milljónum árið 1985 í ríflega 100
milljónir á síðasta ári.