Alþýðublaðið - 31.10.1989, Blaðsíða 8
Skoöanakönnun
um EB/EFTA-mál
íslend-
ingar
fáfróðir
en vilia
samti EB
íslendingar eru næsta
fáfróðir um bæði EFTA
(Fríverslunarbandalag
Evrópu) og EB (Evrópu-
bandalagið), samkvæmt
kðnnun sem Félagsvís-
indastofnun hefur gert
fyrir Samstarfsnefnd at-
vinnulífsins um evrópska
samvinnu. Aðeins 3%
þeirra sem spurðir voru
gátu nefnt öll aðildarríki
EFTA, aðeins 2% öll aðild-
arríki EB. Samt sem áður
voru rúmlega 35% lands-
manna á því að það væri
æskilegt að ísland sækti
um aðild að EB. f þeim hópi
eru kjósendur Alþýðu-
flokksins lang flestir, um 6
af hverjum 10 alþýðu-
flokksmönnum telja æski-
legt að íslendingar sæki
um aðild að Evrópubanda-
laginu.
Aðeins um 20% þjóðarinn-
ar virðist telja það beinlínis
óæskilegt að íslendingar
sæki um aðild að EB. Meira
en helmingur aðspurðra sem
afstöðu tóku voru hlynntir
því að evrópsk fyrirtæki gætu
tekið þátt í íslenskum at-
vinnurekstri en rúmlega 36%
því andvíg. Aðeins rúmlega
10% telja að til greina komi
að leyfa Evrópubandalags-
ríkjum veiðar innan íslenskr-
ar landhelgi gegn bættum að-
gangi íslendinga að mörkuð-
um ríkjanna sem tilheyra EB.
Yfir 60% þjóðarinnar veit
ekki hvort einhver munur er
á EFTA og EB, önnur 13%
telja að munurinn sé ekki um-
talsverður.
Þess má geta að utanríkis-
ráðherra telur ekki tímabært
að ræða inngöngu íslands í
EB, telur vænlegra að taka
þátt í þeim samningaviðræð-
um sem í gangi eru milli EB
og EFTA. Sömuieiðis má geta
þess að það tekur mörg ár að
ganga í EB og verður ekki
fyrr en í fyrsta lagi árið 1995
sem slíkt verður hægt.
VEÐRIÐ
ÍDAG
Suðaustan og sunnanatt,
stinningskaldi eða all-
hvasst. Skúrir eða
slydduél sunnan og
vestanlands en úrkomu-
litið í öðrum lands-
Jhlutum. Hiti 2—8 stig.
Þriðjudagur 31. okt. 1989
Kaupsýslumenn í Hong Kong:
Reiðubúnir að greiða vel
fyrir íslenskt ríkisfang
íslenska vlðsklptaráðu-
neytinu hafa að undan-
förnu borist nokkrar fyr-
irspurnir frá Kínverskum
kaupsýslumönnum í Hong
Kong þar sem þeir spyrj-
ast fyrir um möguleika á
því að setjast að á íslandi
gegn því að þeir fjárfesti í
íslensku atvinnulífi. Að
sögn Björns Friðfinnsson-
ar ráðuneytisstjóra hefur
ráðuneytið svarað þessum
fyrirspurnum og gert
grein fyrir því hvaða regl-
ur gilda um fjárfestingar
útlendinga hér á landi.
Kaupsýslumenn í Hong
Kong eru margir hverjir ugg-
andi um sinn hag þegar þeir
hafa í huga yfirtöku Kínverja
á borgríkinu árið 1999. Sér-
staklega eftir að atburðirnir á
Torgi hins himneska friðar sl.
sumar áttu sér stað. í kjölfar
þeirra atburða hafa kínversk
stjórnvöld lýst því yfir að hert
verði á boðun sósíalismans
og breytingar í átt til vest-
rænna viðskiptahátta séu
ekki æskilegar.
Björn Friðfinnsson sagði
við Alþýðublaðið að honum
væri kunnugt um að Kanada-
menn tækju við kaupsýslu-
mönnum frá Hong Kong og
veittu þeim kanadiskt ríkis-
fang með því skilyrði að þeir
fjárfestu fyrir ákveðnar upp-
hæðir í atvinnulífi þar. Hann
sagði einnig að ráðuneytið
hér myndi ekkert gera varð-
andi fyrirspurnirnar sem bor-
ist hafa frá Hong Kong annað
en að svara þeim og gera
grein fyrir þeim reglum sem
hér eru í gildi um fjárfesting-
ar erlendra aðila og eignar-
hald þeirra á íslenskum fyrir-
tækjum.
Þróunarnefnd Háskólans:
„Aðför að
sjálfstæðinu"
Takmörkun nýskrán-
inga og skólagjöld gætu
orðið afleiðingar af þeirri
„aðför að sjálfstæði Há-
skólans” sem fram kemur
í fjárlagafrumvarpinu.
Þetta er álit Þróunar-
nefndar Háskólans, að því
er fram kemur í yfirlýs-
ingu sem nefndin sendi frá
sér í gær.
í fjárlagafrumvarpinu er
samtals 87 milljónum af
happdrættisfé Háskólans ráð-
stafað til Þjóðarbókhlöðu,
bókakaupa Háskólabóka-
safns og tækjakaupa til
stofnana á vegum Háskólans.
Fram að þessu hefur Háskól-
inn ráðstafað þessu fé sjálfur.
í yfirlýsingu Þróunarnefnd-
ar Háskólans segir að með
þ.essu sé vegið að rótum Há-
skólans og sjálfstæði hans
ógnað. Svo gæti farið að tak-
marka þyrfti nýskráningar,
þannig að Háskólinn yrði í
raun ekki opinn öllum stúd-
entum og til að afla fjár gæti
þurft að taka upp skólagjöld.
Þróunarnefndin skorar því á
ríkisstjórn og Alþingi að láta
Háskólann ráða sjálfan yfir
happdrættisfénu óskiptu.
Starfsfólk dagvistarheimila:
Islenskir dagar i
BYKO og Byggt og búið
Hátt í 50 íslenskir framleiðendur á sviði byggingarvöru taka þátt í sölu- og kynningarátaki
á íslenskri byggingarvöru sem fram fer í verslununum BYKO og Byggt og búið dagana 30.
október til 4. nóvember. Kjörorð átaksins er Veljum íslenskt líkt og var í matvælakynningu
sem haldin var á vegum Félags íslenskra iðnrekenda og Miklagarðs fyrr á þessu hausti. Iðn-
aöarráðherra, Jón Sigurðsson, opnaði hina fslensku daga með því aö saga sig i gegnum fjöi
síðdegis í gær. A-mynd E.ÓI.
1.782 undir-
skriftir færð-
ar Steingrími
Hitastig í nokkrum landshlutum kl. 12 í dag
vistarheimila og foreldrar
söf nuðust í gær saman fyr-
ir utan Alþingi til að mót-
mæla fyrirhuguðum flutn-
ingi dagvistarmála úr
menntamálaráðuneytinu í
félagsmálaráðuneytið.
Steingrími Hermannssyni
var við það tækifæri fengnar
í hendur undirskriftir 1.782
starfsmanna dagvistunar-
heimila um land allt gegn
breytingu þessari. Þess fyrir
utan bárust fjöldi undirskrifta
frá foreldrum og öðrum aðil-
um. Á útifundinum flutti
Selma Dóra Þorsteinsdóttir
formaður Fóstrufélagsins
ávarp og sömuleiðis Svan-
hildur Kaaber formaður KÍ.
Þá barst fjöldi stuðningsyfir-
lýsinga á fundinn.
Forsætisráðherra tók við
undirskriftalistunum og taldi
málalok möguleg sem starfs-
fólkið gæti sætt sig við.
ÍSLAND
Nokkur hundruð fóstr-
ur, aðrir starfsmenn dag-
Hitastig
iborgum
Evrópu
kl. 12
i gær
að islenskum
tima.