Alþýðublaðið - 08.11.1989, Síða 1
Árni Johnsen:
Vill
forkanna
jarðgöng
milli lands
og eyja
Arni Johnsen varaþing-
maður Sjálfstæðisflokks-
ins hefur lagt fram þings-
ályktunartillögu um að
fram fari fo rkönnun á gerð
tveggja akreina jarð-
gangna milli lands og Vest-
mannaeyja.
í greinargerö með tillög-
unni kemur meðal annars
fram að á síðustu árum láti
nærri að um 120.000 manns
hafi feröast milli lands og eyja
i flugvélum og skipum. Þarna
á milli eru 10 kílómetrar milli
stranda þar sem styst er og
mest sjávardýpi um 90 metr-
ar. Telur Árni vert að skoða
þennan möguleika nú, þegar
stendur yfir forkönnun vegna
jarðgangna í Hvalfirði, þar
sem væntanlega fæst reynsla
sem má nýta við önnur neð-
ansjávargöng.
Árni kom inn á þing í fyrra-
dag fyrir Þorstein Pálsson og
hefur þegar flutt 2 frumvörp
og 6 tillögur.
Skipasmíða-
iðnaður
að hruni
kominn?
Francois Mitterrand Frakklandsforseti:
Lýsti yfir skilningi
á sérstöðu Islendinga
Ómetanlegt, segir Jón Baldvin Hanni-
balsson
Mitterrand á blaöamannafundinum á Hótel Sögu í gær. Þar lýsti hann þvi m.a. yfir að hann
hefði fullan skilning á sérstöðu íslendinga sem væru eina Evrópuríkið sem byggöi svo til alla
afkomu sína á fiskveiðum. Mitterrand var annars frekar varkár i orðum á fundinum og vildi
engu spá um þróun mála í Evrópu, sagði aðeins að hann vonaðist eftir að allt gengi eins og
áætlaö heföi verið.
Francois Mitterrand
lýsti yfir afar jákvæðri
afstöðu gagnvart mál-
stað Islendinga á fundi
sínum með þeim Stein-
grími Hermannssyni og
Jóni Baldvin Hannibals-
syni í Ráðherrabústaðn-
um í gær. Jón Baldvin
sagði eftir blaðamanna-
fundinn í gær að fundur-
inn hefði verið afar
gagnlegur og franski
forsætisráðherrann
hefði viðurkennt að fullu
sérstöðu Islendinga.
Hann mun síðan stað-
festa þá viðurkenningu
sína í bréfi sem hann
sendir hingað síðar.
„Þetta er stórmál,“ sagði
Jón Baldvin.
Efni fundarins var þróun
mála í Evrópu, samruni EB
landanna og samningar
þeirra við EFTA-ríkin. Sem
fyrr segir viðurkenndi Mitt-
errand sérstöðu lslendinga
í þeim viðræðum, þ.e. að Is-
lendingar yrðu að hafa fyr-
irvara á frjálsu fjármagns-
streymi milli landa og að ís-
lendingar gætu aldrei fallist
á að erlend ríki fengju
veiðileyfi í íslenskri fisk-
veiðilögsögu.
Jón Baldvin sagði að eftir
fundinn með Mitterrand
væru menn enn bjartsýnni
en áður á að þau tímamörk
sem sett hefðu verið
myndu halda. Þau eru að
samruni EB-ríkjanna verði
að veruleika með einum
innri markaði árið 1992 og
um leið verði gengið frá
samningum milli EB og
EFTA.
Jón Baldvin sagði að það
væri ómetanlegt þegar for-
seti Frakklands lýsti því yfir
að sérstaða íslands væri
auðskilin og hún væri raun-
veruleiki. „Þetta þýðir það
að áhyggjur manna af því
að þessi sérstaða myndi
hugsanlega tálma samn-
ingaviðræður eru miklu
minni en áður. Það getur
beinlínis skipt sköpun í
þessu máli að Frakklands-
forseti skuli taka þessa af-
stöðu, ef hann hefur í eigin
persónu fengið ýtarlegar
og greinargóðar upplýsing-
ar um sérstöðu íslands og
tekið þær gildar, og hefur
skilning á því hvaða vanda-
mál þurfi að leysa til að Is-
lendingar geti með góðu
móti verið aðilar að sam-
runa Evrópuríkjanna, þá
hefur það stórpólitíska þýð-
ingu." — Sjá nánar bls. 3
Er algjört hrun framundan
í íslenskum skipasmíðaiðn-
aði? Þessi atvinnugrein hefur
átt afar erfitt uppdráttar í
samkeppni við erlendar
skipasmíðastövar á undan-
förnum árum og horfur á
næstu árum eru ekki sérlega
uppörvandi. Jafnvel þótt all-
ar þær nýsmíðar sem reiknað
er með að verði framkvæmd-
ar á næstu árum, væru færð-
ar inn í landið, myndi það
tæpast duga til að viðhalda
svipaðri starsfsemi og rekin
hefur verið í innlendum
skipasmíðastöðvum undan-
farin ár. Sjá bls. 5.
Skipan stjórnar LÍN breytt?
Fulltrúar ríkisins víki með róðherrum
Þetta er bara flutt til að
losa stjórnina við Sigur-
björn Magnússon, sagði
Birgir ísleifur Gunnarsson
fyrrverandi menntamála-
ráðherra í neðri deild AI-
þingis í gær, þar sem
fyrsta umræða fór fram
um frumvarp um breytta
skipan stjórnar Lánasjóðs
íslenskra námsmanna.
Umræðuefnið var sú tillaga
í frumvarpinu að 2 fulltrúar
menntamálaráðherra og full-
trúi fjármálaráðherra séu
ekki skipaðir til tveggja ára í
senn, heldur sitji þeir einung-
is jafn lengi og sá ráðherra
sem hefur skipað þá í stjórn-
ina, þ.e. skipunartímann á að
takmarka við embættistíma
viðkomandi ráðherra.
Jón Baldvin um stööu Islands í EFTA/EB viörœöunum:
Tvíhliða samningar koma
ekki til greina af hálfu EB
Tvíhliðasamningar við
einstakar ríkisstjórnir
innan EB koma ekki til
greina segir Jón Baldvin
Hannibalsson utanríkis-
ráðherra. „Við eigum ekki
aðra leið en að vera í sam-
floti við EFTA í þessum
samningum. Evrópu-
bandalagið býður hrein-
lega ekki upp á annað.“
Einstaka þingmenn hafa
haldið því fram að það væri
vænlegri leið fyrir fslendinga
að eiga tvíhliða viðræður við
einstök aðildarríki EB en að
vera i samfloti við EFTA-ríkin
í samningum EFTA og ER
Jón Baldvin segir einfaldlega
að sá möguleiki sé ekki á
borðinu. „Þetta er ósk-'
hyggja", segir Jón Baldvin,
„það er eitt að vilja eitthvað,
annað að fá samninga."
Sigurbjörn Magnússon er
starfsmaður þingflokks sjálf-
stæðismanna og formaður
stjórnar Lánasjóðsins frá tíð
Birgis og hefur ítrekað lent í
deilum við menntamálaráð-
herra og fjármálaráðherra og
neitað að víkja úr stjórninni.
Af máli Kristínar Einars-
dóttur Kvennalista að dæma
er listinn fylgjandi þessu efni
frumvarpsins.
Sementsverksmiöja ríkisins:
Iðnaðarráðherra sammála
um stofnun hlutafélags
Jón Sigurðsson iðnaðar-
ráðherra lýsti því yfir á
þingi í gær að hann væri í
megindráttum sammála
frumvarpi sem Friðrik
Sophusson Sjálfstæðis-
flokki var að mæla fyrir,
um að Sementsverksmiðju
ríkisins yrði breytt í hluta-
félag.
Friðrik er hér að koma á
framfæri frumvarpi sem
smíðað var í tíð ríkisstjórnar
Þorsteins Pálssonar, en varð
ekki að lögum. Þá var Al-
þýðuflokkurinn hlynntur
málinu, en Framsóknarflokk-
urinn því andsnúinn. iðnaö-
arráðherra kvaðst málinu
hlynntur, en taldi erfitt að
koma því í gegn í ríkisstjórn-
inni.
Gert er ráð fyrir því að
hlutafélagið verði í eigu ríkis-
ins og að fá þurfi samþykki
Alþingis fyrir sölu hlutabréfa
til annarra aðila. Ráðherra
benti á í umræðunni að eðli-
legt væri að gera ráð fyrir að
starfsfólk félagsins hefði full-
trúa í stjórn þess, en frum-
varp Friðriks gerir ekki ráð
fyrir því. Á sínum tíma vildu
Sjálfstæðismenn með Sverri
Hermannsson í fararbroddi
selja verksmiðjuna, en sam-
flokksmaðurinn Valdimar
lndriðason úr kjördæminu
kom í veg fyrir það.