Alþýðublaðið - 08.11.1989, Page 6
6
Miðvikudagur 8. nóv. 1989
SMÁFRÉTTIR
næstunni öðlast sjálfstæði. Um
þessar mundir eru nefnilega
haldnar fyrstu frjálsu kosningarn-
ar í landinu og er þá stórt skref
stigið í átt til sjálfstæðis. í efninu
er leitast við að gefa nemendum
innsýn í hvað er að gerast í
Namibíu núna og hver sé bak-
grunnurinn.
Efni Hjálparstofnunar kirkjunn-
ar um Namibíu er að hluta til
þýtt og endursamið úr dönsku
og að hluta til er það afrakstur
ferðar starfsmanns stofnunarinn-
ar til Namibíu í september síð-
astliðnum. Efnið er sent endur-
gjaldslaust til skóla og annarra
sem áhuga kunna að hafa á þvi.
Allmargir skólar hafa nú pantað
efnið og fengið það í hendur.
Undirtektir þeirra hafa verið
mjög góöar og er ekki annað að
heyra en að kennarar og nem-
endur kunni að meta framtakið.
Almenn lög-
fræði Ár-
manns
Bókaútgáfa Orators hefur gef-
ið út Almenna lögfræði eftir Ár-
mann Snævarr.
Þetta er í fyrsta sinn sem Al-
menn lögfræði kemur út í prent-
aðri útgáfu, en áður hafa verið
gefin út handrit ætluð til kennslu
Svavar opnar
sýningu í Hull
Laugardaginn 29. október sl.
opnaði menntamálaráðherra
myndlistarsýninguna „Landscap-
es from á High Latitude — lce-
landic Art 1909—1989 i Ferens-
listasafninu í Hull.
Myndin, sem tekin er við opn-
unina, er af (f.v.) Svavari Gests-
syni menntamálaráðherra, sendi-
herrahjónunum Rögnu Ragnars
og Ólafi Egilssyni, Trevor Larsen
formanni menningarráðs Hull-
borgar og Ann Bukantas, einn af
stjórnendum Ferens-listasafns-
ins, en hún var ein þeirra sem
völdu verk á sýninguna. Lista-
verkið sem þau virða fyrir sér er
„Höfuðlausn" Ásmundar Sveins-
sonar. Á bakvið sést málverk
Einars Hákonarsonar „í fjalladal".
Fræðsluefni
um Namibíu
Hjálparstofnun kirkjunnar hef-
ur nýlega gefið út fræðsluefni
um Namibíu. Efnið er ætlað
framhaldsskólum og elstu bekkj-
um grunnskóla.
Tilgangurinn með þessu efni
er að vekja athygli á málefnum
Namibíu en landið stendur nú á
tímamótum, þar sem það mun á
við lagadeild Háskóla Islands.
Almenn lögfræði fjallar um
helstu grundvallaratriði lögfræði,
svo sem hlutverk laga og réttar,
tengsl ríkis og réttar, réttarheim-
ildir, lögskýringar o.fl. í bókinni
eru ítarlegar skrár og dómareif-
anir.
Bókin er 651 blaðsíður í vönd-
uðu bandi, og kostar 7.500 kr.
Höfundurinn, Ármann Snæv-
arr, var um árabil prófessor við
lagadeild Háskóla íslands og var
síðar skipaður dómari við
Hæstarétt íslands. Ármann hefur
skrifað mörg rit á ýmsum svið-
um lögfræðinnar og staðið fyrir
útgáfu lagasafna og dómaskráa.
Þroskahjálp
fjallar um
hrörnun hjá
börnum
Timaritiö Þroskahjálp 5. tölu-
blað 1989 er komið út. Útgefandi
er Landssamtökin Þroskahjálp.
í þessu tölublaði kynnumst
við leiklistar- og tónlistarstarfi
fatlaðra og því hve miklum ár-
angri er hægt að ná þegar sam-
an fer einlægni og agi. Tónstofa
Valgerðar er heimsótt og fylgst
með Gísla Björnssyni, þriggja ára
snáða, í tónmeðferð (músik-
þerapíu) og spjallað við Valgerði
Jónsdóttur sem rekur stofuna.
Einnig er rætt við Sigríði Eyþórs-
dóttur um starf leikhópsins Perl-
unnar. Hópurinn hefur getið sér
gott orð og hróður hans borist
víða sem sést best á því að
hann fékk boð um að fara til
Bandaríkjanna síðastliðið sumar.
En stærsti hluti þessa tölu-
blaðs er þó umfjöllun um sjald-
gæfan hrörnunarsjúkdóm (Batt-
en). Tvær mæður barna með
þannig sjúkdóm segja opinskátt
frá reynslu sinni og skýra frá því
sem fyrir augu og eyru bar í Hol-
landsferð sem þær fóru til að
kynna sér aðbúnað og fleira þar.
Þá ritar Þorbjörn Bjarnason,
blindrakennari grein um börn
með þennan sjúkdóm.
Fastir þættir eru á sínum stað
s.s. Bókakynning, Af starfi sam-
takanna og fleira.
Mildsýrð
þykkmjólk á
markaðinn
Mildsýrðar mjólkurafurðir með
ríkulegum skammti af ávöxtum
eða blöndu af ávöxtum og trefja-
korni hafa farið sigurför um Mið-
Evrópu á liðnum árum. Nú kem-
ur á markað hérlendis svonefnd
þykkmjólk í þremur afþrigðum: 6
korna með ferskjum, með eplum
og perum í stórum bitum og
með hreinum jarðarberjasafa
handa þeim sem ekki vilja bita
eða korn í þykkmjólkina. Þykk-
mjólkin er framleidd í Mjólkur-
samlagi Borgfirðinga Borgarnesi.
Sprellibókin
fyrir 3—106
ára!
Sprellibókin er komin út, á
vegum Nathan & Olsen hf. í
henni má finna skemmtilega
leiki, föndur, ráðgátur, fróðleiks-
mola, litla sögu um hafragraut,
gómsætar uppskriftir og síðast
en ekki síst spennandi verð-
launasamkeppni þar sem fyrstu
verðlaun eru hvorki meira né
minna en Floridaferð fyrir tvo.
Bókin er ætluð fyrir börn á
aldrinum 3 til 106 ára, eins og
segir á forsíðu, og veröur seld í
matvöruverslunum á 50 krónur.
Ekki er að efa að Sprellibókin á
eftir að stytta ýmsum stundirnar
í skammdeginu.
Auglýsingastofa Kristínar sá
um ritstjórn, hönnun og setn-
ingu bókarinnar.
RAÐAUGLÝSINGAR
Opið hús í kvöld í Félagsmiðstöð Alþýðuflokksins
að Hverfisgötu 8—10 kl. 20.30. Spjöllum og spáum
í pólitíkina.
Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur
Bæjarmálaráð
Alþýðuflokksins í Hafnarfirði
Fundur verður haldinn mánudaginn 13. nóvember
kl. 20.30. Fundarefni: Málefni aldraðra.
Bæjarmálaráö Hafnarfjarðar
Stefnuskrárvinna fyrir
komandi borgarstjórnar-
kosningar í Reykjavík
Fundur verður um eftirtalda málaflokka sem hér
segir:
Miðvikudaginn 8. nóv.
kl. 12.00: Menningarmál
kl. 17.00: íþrótta- og æskulýðsmál
Skipulags- og umhverfismál
Fimmtudaginn 9. nóv.
kl.17.00: Skólamál
Veitustofnanir
Fundarstaður er að Hverfisgötu 8—10 í húsakynn-
um Alþýöuflokksins.
Þeir sem áhuga hafa á að taka þátt í stefnumótun-
inni hafi samband við Arnór Benónýsson í síma
29244.
Skrifstofa Alþýðuflokksins
Utanríkismálanefnd S.U.J
Formaður utanríkismálanefndar S.U.J., Magnús
Árni Magnússon, boðar til áríðandi „morgunverðar-
nefndarfundar" með tilheyrandi veitingum, nk.
laugardag 11. nóv. kl. 10.00 árdegis.
Fundurinn verður haldinn að Hverfisgötu 8—10,
Reykjavík.
Mætið stundvíslega
Rauður:
þríhymingur
= Viðvörun
Gera aukaverkanir lyfsins
sem þú tekur þig hættulegan
í umferóinm?
1185"“