Alþýðublaðið - 08.11.1989, Side 8
4
Miðvikudagur 8. nóv. 1989
Sendinefnd
VMSÍ:
Með
stefnuna
til
Steingríms
Sérstök sendinefnd frá
Verkamannasambandi ís-
lands fer í dag á fund Stein-
gríms Hermannssonar
forsætisráðherra til að
kynna honum stefnu og
stöðu sambandsins í kjöi-
far nýafstaðins þings.
í sendinefndinni verða þau
Karl Steinar Guðnason, for-
maður Verkalýðs- og sjó-
mannafélags Keflavíkur og
nágrennis, Snær Karlsson,
formaður Verkalýðsfélags
Húsavíkur, Ragna Bergmann,
formaður Verkalýðsfélagsins
Framsóknar og Sigurður T.
Sigurðsson, formaður Hlífar í
Hafnarfirði. Má búast við því
að þau útskýri sérstaklega
stefnu VMSI í kjaramálum,
málefnum fiskveiða og
vinnslu og síðan afstöðuna til
orkufreks iðnaðar, en sem
kunnugt er hefur sambandið
mælt með stækkun álvers
eða byggingu nýs álvers.
Alpan á Eyrarbakka:
Framleiðslan hefur
tvöfaldast á árinu
Starfsmönnum hefur fjölgad úr 20 í 45 og í ár verda framleiddar um 300.000
álpönnur og pottar.
Mikill uppgangur ríkir
um þessar mundir hjá
fyrirtækinu Alpan, sem
framleiðir álpönnur og
potta á Eyrarbakka. Hef-
ur framleiðslan tvöfald-
ast á milli ára og fer í ár
upp í nálægt 300.000
stykki.
Að sögn Andrésar Sig-
urðssonar framkvæmda-
stjóra var fyrirtækið með
rekstur í Danmörku, en
verksmiðjan þar brann í
fyrra. Var starfsemin þá al-
farið flutt til Islands með
mjög góðum árangri. ,,Við
höfum tvöfaldað fram-
leiðsluna auk þess sem að á
bak við reksturinn hér
stendur lítið breyttur fasta-
kostnaður. Framleiðslan er
í toppi núna og við seljum
nánast alla framleiðsluna'
Markaðssvæði Alpan er
öll Evrópa, en þó einkum
V-Þýskaland. Tap var á
rekstrinum í fyrra, en búist
við smávægiiegum hagn-
aði á þessu ári og vænting-
ar um enn betri árangur á
næsta ári. A einu ári hefur
starfsmönnum fyrirtækis-
ins á Eyrarbakka fjölgað úr
um 20 í um 45 og er það
orðið stærsta fyrirtæki
staðarins á meðan Bakka-
fiskur hf er lokað.
Sveitarfélögin á sudvesturhorninu:
Samræmdar aðgerðir
gegn vargfuglinum
Stjórn Samtaka sveitar-
féiaga á höfuðborgar-
svæðinu (SSH) hefur verið
falið af aðalfundi samtak-
Uwe Beckmeyer, sem hér sést á mynd með Jóni Baldvin Hannibalssyni utanríkisráð-
herra, var formaður sérstakrar sendinefndar frá Bremen og Bremerhaven sem kom til íslands
til viðræðna um síöustu helgi við Jón og Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra. Þar var
meðal annars rætt um takmarkanir á siglingum íslenskra skipa með óunnin afla og að von-
um féll slfkt ekki í of góðan jarðveg hjá Þjóðverjunum. Beckmeyer er jafnaðarmaður og við-
skiptaráðherra sins fylkis. A-mynd/GTK.
anna að móta tillögur um
samræmdar aðgerðir til
fækkunar vargfugls á
svæðinu og leita stuðnings
ríkis og annarra aðila við
þær aðgerðir.
Vargfugli hefur fjölgað gíf-
urlega á svæðinu á undan-
förnum árum. Aætlað er að
fjöldi sílamáva sé um 37 þús-
und á suðvesturhorni lands-
ins. Af þessum fjölda hefur
skapast talsvert ónæði fyrir
einstaklinga jafnt sem fyrir-
tæki, að mati samtakanna.
Að auki er hætta á því að
smitsjúkdómar geti borist
með þessum fuglum.
Samband sveitarfélaga á
Suðurnesjum og Samtök
sveitarfélaga á Suðurlandi
hafa lýst áhuga á að vinna
með SSH og Veiðistjóri hefur
lagt fram hugmyndir um
fækkun vargfugls.
Flugleiöir:
Nýtt flugfélag
Stjórn Flugleiða ákvað á
fundi í gær að stefna að
stofnun nýs flugfélags sem
hefði með höndum flug á
innanlandsflugleiðum,
hugsanlega í samstarfi við
flugfélög á landsbyggð-
inni.
Þessi ákvörðun var tekin í
ljósi þeirrar breyttu stefnu
sem birtist í úthlutun Flug-
ráðs á flugleyfum. Telja Flug-
leiðir að umrót skapist vegna
þessara breytinga og að
stofnun nýs flugfélags styrki
samgöngunetið í sessi, tryggi
betur hlut landsbyggðarinnar
í flugrekstri og muni leiða til
hagræðingar.
VEÐRID
í DAG
Austan og norðaustan
átt sums staðar all hvasst
norðan til á Vestfjöröum,
en annars kaldi. Skúrir um
sunnanvert landið en rign-
ing og slydda við norður-
ströndina. Hiti 0—5 stig.
Hitastig
iborgum
Evrópu
kl. 12
i gær
að islenskum
tima.
ÍSLAND
Hitastig í nokkrum landshlutum kl. 12 í dag
Útvarpsmaðurinn Stef-
án Jón Hafstein er skel-
eggur umræðustýrandi
eins og menn vita. Næst-
komandi laugardag verð-
ur haldið málþing á veg-
um Trésmíðafélags
Reykjavíkur (í tilefni af 90
ára afmæli þess) um
„verkalýðshreyfingu á
nýrri öld“ og stýrir Stefán
Jón umræðunum. Á und-
an pallborðsumræðum
flytja 7 einstaklingar stutt
erindi um efnið, þeirra á
meðal Asmundur Stef-
ánsson, Guömundur J.
Gudmundsson og Ög-
mundur ■ Jónasson.
Greinilega lokkandi mál-
þing hér á ferð.
★
Félagsmálaráðherra til-
nefndi nýlega nýjan að-
stoðarmann svo sem
blaðið greindi frá nýverið.
Nú hefur ráðherra skipað
nýjan forstöðumann hús-
bréfadeildar Húsnæðis-
stofnunar, Sigurd Geirs-
son viðskiptafræðing.
Sigurður útskrifaðist frá
HÍ árið 1979, starfaði um
skeið á endurskoðunar-
skrifstofu, en hefur verið
hjá Útvegsbankanum frá
1982, þar sem hann er
umsjónarmaður ráðgjafa-
þjónustu bankans. Sig-
urður er 34 ára, kvæntur
Steinunni Olafsdóttur og
eiga þau tvær dætur. í
stuttu spjalli við fóikdálk-
inn sagði Sigurður að
nýja starfið legðist vel i
sig. ‘Með húsbréfunum er
verið að fara nýjar leiðir,
þótt reyndar hafi verið
svipað kerfi við lýði fyrir
áll mörgum árum. Ná-
grannalönd hafa reynt
þessa leið með ágætum
árangri og það verður
spennandi að sjá hvernig
gengur hér á landi" sagði
Sigurður.
★
Landsnefnd Alþjóða
verslunarráðsins hefur
ákveðið að skipa að nýju
siðanefnd til að annast
framkvæmd siðareglna
um markaðsstarfsemi. Til
siðanefndarinnar er hægt
að leita ef fólk telur siða-
reglur brotnar í viðskipt-
um. Formaður siðanefnd-
arinnar verður Pórdur S.
Gunnarsson lögfræðing-
ur, en með honum eru í
nefndinni María E. Ingua-
dóttir, tilnefnd af Neyt-
endasamtökunum og
Brynjólfur Sigurdsson, til-
nefndur af viðskipta- og
hagfræðideild Háskólans.
Ritari nefndarinnar er
Sigrídur Finsen skrif-
stofustjóri Landsnefndar-
innar.