Alþýðublaðið - 18.11.1989, Side 1
INN ÚR KULDANUM
Sjá einkaviðtal við
dr. Voslensky á bls. 5
Steingrímur gefur kost
á sér i varaformanninn
Steingrímur J. Sigfússon landbúnaöarréöherra mun gefa kost é
sér í varaformannsembætti Alþýöubandalagsins. Það stefnir því
allt í aö kosið veröi milli hans og Svanfríðar Jónasdóttur sem
gegnt hefur varaformannsembættinu. Má búast viö haröri bar-
áttu á landsfundinum um varaformannsembættið því úrslit
þykja eflaust gefa vísbendingu um styrkleika höfuðfylkinganna
í Alþýðubandalaginu; „flokkseigendafélaginu" svokallaða og
„lýðræðisfylkingarinnar", stuðningsmanna Óiafs Ragnars.
Aðalfundur Landssambands útvegsmanna:
Stefnu Halldórs
varpað útbyrðis
Loðdýraræktin þarf björgun:
Rándýr Rándýr
Sjé bls. 3.
Mánuður í lifi
utanrikisráðherra
Sjá bls. 6—7.
Aðalfundur Landssambands
íslenskra útvegsmanna sam-
þykkti í gær ályktun um stjórn
fiskveiða sem gengur að flestu
leyti gegn kvótafrumvarpi rík-
isstjórnarinnar og tillögum
sjávarútvegsráðherra. LÍU er
sammála því að taka alfarið
upp aflamark og leggja niður
sóknarmark, en að öðru leyti
vilja ráðherra og útvegsmenn
fara ólíkar leiðir.
LÍÚ hafnar alfarið sölu veiði-
leyfa og auðlindaskatti, hafnar
sérstöku tilliti til einstakra byggða-
laga, vill frjálst framsal kvóta, vill
frystingu á hlutdeild smábáta, er á
móti frumvarpi um Úreldingarsjóð
fiskiskipa og því að slíkur sjóður
ráðstafi kvótum, vill segja upp nú-
gildandi veiðiheimildum útlend-
inga og vill taka upp hrefnuveiðar
og taka upp hvalarannsóknir.
Þá er LÍÚ mótfallið sérstöku
kvótaálagi á útfluttan ferskan fisk.
Álagið var 25%, en var lækkað í
15% og vill sjávarútvegsráðherra
hækka hlutfallið í 25% á ný. LÍÚ
segir hins vegar að „með tilliti til
allra aðstæða" geti aðalfundurinn
fallist á að 15% álag verði áfram.
Kristján Ragnarsson var á aðal-
fundinum endurkjörinn formaður
LÍÚ.