Alþýðublaðið - 21.11.1989, Blaðsíða 1
Frú Irmgard Adam-Schwaetzer aðstoðarutanrfkisráðherra Vestur-Þýskalands er nú stödd hér á landi í boði
Jóns Baldvins Hannibalssonar utanríkisráðherra. Hún hefur þegar átt viðræður við utanríkisráðherra en
mun einnig ræða við fleiri ráðherra þann tíma sem hún dvelur hér. Til umræðu verða fjölmörg mál sem
tengja ríkin saman en einnig og ekki síður þróun mála í Evrópu, könnunarviðræður EFTA og EB og stjórn-
málaástandið í Mið- og Austur-Evrópu. Frú Adam-Schwaetzer fer með málefni sem varða Evrópubanda-
lagið í heimalandi sínu, en hún er þekktur stjórnmálamaður í landi sínu og áhrifamaður {flokki Frjálslyndra
demókrata.
Magnús Magnússon
hinn góðkunni sjón-
íslensk fyrir-
tæki í Kenýa
íslenskt ráðgjtifafyrir-
tæki, Path á íslandi hf,
vann verkefnisútboð
vegna könnunar á raf-
magns- og rafvæðinga-
þjónustu fyrir rafmagns-
veitur ríkisins í Kenya.
Samningar voru undirrit-
aðir í Nairobi fyrir skömmu,
fyrir íslands hönd Ingi Þor-
steinsson aðalræðismaður,
stjórnarformaður Path. Um
fyrri hluta sérstaks verkefnis
er að ræða.
varpsmaður í Bretlandi
var í gær sæmdur ridd-
araorðu breska heims-
veldisins. Magnús mun þó
ekki hafa leyfi til að nota
titilinn sem heiðrinum er
samfara, þ.e. sir, þar sem
hann er Islendingur. Það
var kvöldblaðið Evening
Standard sem greindi frá
þessu í gær og tók blaðið
forsíðuna undir frétt og
mynd af Magnúsi.
Magnús var sæmdur ridd-
araorðunni fyrir störf sín að
varðveislu bresks þjóðar-
arfs, einkum í Skotlandi þar
sem hann býr. Samkvæmt
því sem Evening Standard
hefur eftir Magnúsi kom
þetta honum mjög á óvart og
hann átti ekki orð til að lýsa
gleði sinni.
Frú Adams-Sthwaetzer í heimsókn
Gudmundur Oddsson um fjármál Kópavogs:
Vönumst til að áætlanir standist
Guðmundur Oddsson
forseti bæjarstjórnar
Kópavogs segir að bæjar-
stjórnarmenn í Kópavogi
geri sér vonir um að þær
fjárhagsáætlanir standist
sem meirihlutinn gerði
fyrir 1989. í sunnudags-
blaði Morgunblaðsins
gagnrýnir bæjarfulltrúi
sjálfstæðismanna og odd-
viti minnihlutans, Ri-
chard Björgvinsson, fjár-
hagsstjórn meirihluta
bæjarstjórnarinhar og
segir að skuldirnar hafi
hækkað á árinu um 200
milljónir en meiningin
hafi verið að þær lækk-
uðu.
Tölur þessar eru teknar úr
9 mánaða uppgjöri bæjar-
sjóðs Kópavogs og Guð-
mundur Oddsson segir að
þær séu réttar. Hann bendir
hinsvegar á að það sé
smekksatriði hvað menn
vilja draga fram. Eignaaukn-
ing bæjarsjóðs hafi orðið
margfalt meiri en skulda-
aukningin og inn í þeim
auknu skuldum sem talað er
um sé m.a. bókfærð skuld
vegna Smárahvammslands
þar sem Kópavogur er í
ábyrgð vegna samnings sem
bærinn tók yfir frá SÍS. Guð-
mundur taldi að þar gæti ver-
ið um tæpar 100 milljónir að
ræða en segir jafnframt að
þetta þurfi bæjarsjóður aldr-
ei að borga.
Guðmundur bendir einnig
á að tekjur hafi komið hægar
inn en gert var ráð fyrir enda
sé kreppa hjá almenningi og
fyrirtækjum. Það hafi hins-
vegar gengið betur undir
það síðasta að innheimta
gjöld til bæjarins.
Guðmundur segir að bær-
inn sé búinn með allar fyrir-
hugaðar framkvæmdir á ár-
inu og geti því ekki dregið
neitt úr þeim. Hann segir
það ef til vill hægt að reikna
það út að þær byggingar
sem bærinn sé með í bygg-
ingu kosti stórar upphæðir
ef klára á þær allar á einu
ári. Það sé hinsvegar ekki
meiningin og slíkir útreikn-
ingar því ekki til neins.
Ögmundur Jónasson formaöur BSRB:
Kaupmátturinn kominn
allt of langt niður
Samningar aö renna út og höfuökröfurnar eru kjarajöfnun,
aukinn kaupmáttur og rœkileg trygging hans.
„Kaupmátturinn er
kominn allt of langt nið-
ur og það fer ekki á milli
mála að að fólk á orðið
mjög erfitt með að reka
heimili sín. Og það er
auðvitað mjög alvarleg-
ur hlutur. Fólk sættir
sig ekki lengur við að
axla byrðar kreppunn-
ar og lykilorðið nú er
kjarajöfnun. Fólk er bú-
ið að fá nóg af því að búa
við ólík kjör á vinnustað
og sættir sig ekki leng-
ur við að hafa lakari
kjör en ýmsir hópar í
nákvæmlega sömu
störfum.*
Þetta sagði Ögmundur
Jónasson formaður Banda-
lags starfsmanna ríkis og
bæja i samtali við Alþýðu-
blaðið í gær. Ögmundur
var þá nýkominn af könn-
unarfundi með samninga-
nefnd ríkisins, en samning-
ar allflestra félaga hjá rík-
inu og Reykjavíkurborg
renna út um næstu mán-
aðamót.
Ögmundur sagði að höf-
uðkrafan í komandi samn-
ingum væri aukinn kaup-
máttur og rækileg trygg-
ing hans. ,,En áður en að
formlegum samningavið-
ræðum kemur þarf að
ganga í ákveðna vinnu.
Hún gengur út á að lag-
færa innan bandalagsins
þannig að laun fólks verði
hin sömu fyrir sömu vinnu
hjá sama vinnuveitanda.
Ymis önnur mál eru að
koma til uppstokkunar, t.d.
í tengslum við verkaskipt-
ingu ríkis og sveitarféiaga
og þetta þarf að ræða,”
sagði Ögmundur.
Ólga á landsfundi:
Klofnar
Alþýðu-
banda-
lagið?
Steingrímur
kosinn
varaformaöur
Andstæðurnar innan
Alþýðubandalagsins eru
skarpari en nokkru sinni
fyrr eftir landsfundinn
um helgina. Klofningur
gæti orðið að veruleika
innan skainnis. Aðild
flokksins að ríkisstjórn
virðist heldur ekki tryggð
til lengri tíma eftir þenn-
an landsfund, sem veikti
stöðu formannsins veru-
lega.
Landsfundi Alþýðubanda-
lagsins lauk í Reykjvavík á
sunnudagskvöld. Sigurveg-
arar síðasta landsfundar fyr-
ir tveim árum, stuðnings-
menn Ólafs Ragnars Gríms-
sonar, máttu nú bíta í það
súra epli að verða undir í
veigamiklum málum, svo
sem varaformannskjöri.
Steingrímur J. Sigfússon var
kjörinn varaformaður og lík-
ur benda til að honum sé fyr-
irhugað að fara í framboð
gegn Ólafi Ragnari Grims-
syni á næsta landsfundi.
Innan flokksins eru nú
margir þeirrar skoðunar að
klofningur sé nánast óum-
ílýjanlegur. í fréttaskýringu
á bls. 5 er fjallað um ástandið
í Alþýðubandalaginu að
loknum landsfundi og yfir-
vofandi klofning í flokknum.
Magnús Magnús-
son aðlaður