Alþýðublaðið - 22.11.1989, Side 6
6
Miðvikudagur 22. nóv. 1989
Flokksstiórn, formenn félaga
og sveitarstjórnarmenn
Jón Baldvin
Sameiginlegur fundur ofangreindra aðila verður haldinn laugar-
daginn 25. nóvember nk. og hefst kl. 10.00 í Borgartúni 6.
Dagskrá:
1. Ný viðhorf í utanríkismálum
Breytingar í Evrópu — EFTA-EBE viðræðurnar — Viðbrögð ís-
lendinga.
Framsögu hefur Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra og
formaður Alþýðuflokksins.
2. Efling flokksstarfsins
Útgáfa flokkstíðinda — Söfnun styrktarmanna — Málstofan.
Framsögu hefur Guðmundur Einarsson formaður framkvæmda-
stjórnar flokksins.
3. Önnur mál
Alþýðuflokkurinn
Guömundur
• Krossgátan
□ 1 2 3 4
5
6 n 7
8 9
10 □ 11
□ 12
13 u □
Lárétt: 1 ónytjung, 5 björt, 6
elskar, 7 þyngd, 8 snúnar, 10
íþróttafélag, 11 kerald, 12 vit-
skertar, 13 blóm.
Lóðrétt: 1 deila, 2 uppspretta, 3
kvæöi, 4 hrellir, 5 fugl, 7 náöhús,
9 handsamaöi, 12 mynni.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 skelk, 5 smái, 6 kál, 7 ha,
8 jafnir, 10 an, 11 ask, 12 suss, 13
rauma.
Lóðrétt: 1 smáan, 2 kálf, 3 ei, 4
kjarks, 5 skjarr, 7 hissa, 9 naum,
12 SU.
RAÐAUGLÝSINGAR
Bæjarmálaráð
Alþýðuflokksins
í Hafnarfirði
heldur fund í Alþýðuhúsinu mánudaginn 27. nóv. kl.
20.30.
Fundarstjóri: Valgerður Guðmundsdóttir
Fundarefni: Skólamál
Framsaga: Árni Hjörleifsson og
Guðfinna Vigfúsdóttir
Allir nefndarmenn og stuðningsmenn hvattir til að
mæta.
Bæjarmálaráö
Kratakaffi
miðvikudaginn 22. nóvember kl. 20.30 í Félags-
heimili jafnaðarmanna, Hverfisgötu 8—10.
Gestur fundarins:
Ingólfur Margeirsson, ritstjóri Alþýðublaðsins.
Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur
Keflavík — Njarðvík
Svæðisstjórn málefna fatlaðra á Reykjanessvæði
leitar eftir hentugu húsnæði fyrir sambýli í Keflavík
eða Njarðvík. Um er að ræða raðhús og/eða einbýl-
ishús á einni hæð með 5—6 rúmgóðum herbergj-
um.
Tilboð óskast send eignadeild fjármálaráðuneytis-
ins, Arnarhvoli, 150 Reykjavík, fyrir 1. desember
1989.
Fjármálaráðuneytið, 21. nóvember 1989
Aðalfundur
Hamraborgar hf.
verður haldinn í húsakynnum Alþýðuflokksfélaganna í
Kópavogi, að Hamraborg 14A, Kópavogi, mánudag-
inn 27. nóvember 1989 kl. 20.00, stundvíslega.
Stjórnin
»*f HEILSUVERNDARSTÖÐ
REYKJAVÍKUR
BARÓNSSTÍG 47
Heilbrigðisráð Reykjavíkur
óskar eftir að ráða:
Sjúkraliða í 50% starf — vegna heimahjúkrunar,
við Heilsugæslustöðina í Árbæ — Hraunbæ 102,
Reykjavík. Starfið verður veitt frá og með 1. janúar
1990.
Upplýsingar um starfið veitir hjúkrunarforstjóri
Heilsugæslustöðvarinnar í Árbæ í síma 671500.
Umsóknum skal skila til skrifstofu framkvæmda-
stjóra heilsugæslustöðva, Barónsstíg 47, Reykjavík,
fyrir kl. 16.00 mánudaginn 4. desember 1989.
?f! Frá Borgarskipulagi
Reykjavíkur
Breyting á Skúlagötusvæði
í samræmi við samþykkt Skipulagsstjórnar ríkisins
frá 8. nóv. 1989 er hér með auglýst samkv. 17. gr.
laga nr. 19/1964 tillaga að breytingu á staðfestu
deiliskipulagi Skúlagötusvæðis. Tillagan gerir ráð
fyrir hótelbyggingu ásamt íbúðabyggð á staðgr.r. 1.
1523 og hluta staðgr.r. 1.1522 sem markast af Lind-
argötu, Skúlagötu og Frakkastíg.
Þessi tillaga hefur í för með sér breytingu á land-
notkun aðalskipulags Reykjavíkur þannig að íbúð-
arsvæði á staögr.r. 1.1522 og 1.1523 verði með
blandaðri landnotkun, íbúðar- og miðbæjarsvæði.
Uppdrættir, líkan og greinargerð verða til sýnis frá
fimmtudegi 23. nóv. 1989 til fimmtudags 4. janúar
1990 hjá Borgarskipulagi Reykjavíkur, Borgartúni 3,
frá kl. 8.30 til 16.00 alla virka daga.
Athugasemdum, ef einhverjar eru, skal skila skrif-
lega á sama stað eigi síðar en fimmtudaginn 18. jan.
1990.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins
frests teljast samþykkir tillögunni.
Borgarskipulag Reykjavíkur
Borgartúni 3, 105 Reykjavík
Utboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. borgar-
verkfræðingsins í Reykjavík og Borgarskipulags
Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum í vinnustöðvar fyr-
ir væntanlegt kortaupplýsingakerfi fyrir Reykjavík.
Um er að ræða 8 vinnustöðvar (workstations) fyrir
UNIX-fjölnotendastýrikerfi, með öllum tilheyrandi
fylgibúnaði.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík, frá og með fimmtudeginum
23. nóvember 1989, gegn kr. 1.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn
20. desember, kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGÁR
Frikirkjuvegi 3 — Sími 25800
Búnaðar-
námskeið
18 8 S
18S8
endurmenntun^~ntt^
Bændaskólinn á Hvanneyri býður upp á ýmis
búnaðarnámskeið við skólann. Nú á haustmisseri
verða m.a. eftirtalin námskeið í boði:
1. Málmsuða 23.—25. nóvember. Námskeiðið er
ætlað bændum og markmiðið er að þátttakend-
ur kynnist notagildi raf- og logsuðutækja.
2. Kanínurækt 4.—6. desember. Byrjendanám-
skeið ætlað þeim, sem hafa hug á að fara út í
kanínurækt. Kennslan er bæði bókleg og verk-
leg.
3. Skattskil 7.—9. desember. Fjallað er m.a. um
undirstöðuatriði í færslu landbúnaðarskýrslu og
persónuframtals auk umfjöllunar um virðisauka-
skatt.
4. Tölvunotkun 11.—13. desember. Byrjendanám-
skeið, þar sem farið verður í grundvallaratriði
svo sem stýrikerfi, ritvinnslu og töflureikna.
Framleiðnisjóður landbúnaðarins styrkir þau
námskeið, sem ætluð eru bændum. Nánari upp-
lýsingar um námskeiðin eru veittar á skrifstofu
skólans kl. 8:20—17:00 mánudaga-föstudaga í
síma 93-70000 og þar fer skráning þátttakenda
einnig fram.
Skólastjóri