Alþýðublaðið - 24.11.1989, Page 1
Loðdýrarækt lögð niður?
Þingflokkur Alþýduflokksins leggur til ad adgerdir ríkisins
takmarkist við að varðveita þekkingu og stofn í landinu.
Kvennabarátta:
Tveir fundir
um mólefni
kvenna í dag
Framkvæmdanefnd um
launamál kvenna stendur
fyrir fundi í Sóknarsalnum
við Skipholt í dag um kon-
ur og kjarasamninga. A
sama tíma heldur Kven-
réttindafélag Islands opna
ráðstefnu að Hótel Borg
vegna væntanlegra sveit-
arstjórnarkosninga næsta
vor.
A kjaramálafundinum
verður leitað svara um hlut-
deild kvenna í kjarasamning-
um, árangur hingað til, kröf-
ur í komandi samningalotum
og því hvernig konur eiga að
vinna í samningagerð. Fram-
sögumenn eru helstu verka-
lýðsforkólfar landsins, 4 karl-
ar og 1 kona.
Þingflokkur Alþýðu-
flokksins mun væntan-
lega leggja til við ríkis-
stjórnina að aðgerðir
varðandi loðdýrarækt
takmarkist við það sem
þarf til að viðhalda
þeirri þekkingu og þeim
stofni dýra sem búið er
að koma upp í landinu.
Auk þess munu alþýðu-
flokksmenn vera reiðu-
búnir að skoða á hvern
hátt ríkið geti komið inn
í skuldaskil greinarinn-
ar vegna þeirra skulda
sem hlaðist hafa á hana á
undanförnum árum.
Innan þingflokks Alþýðu-
flokksins ríkir hörð and-
staða gegn tillögum land-
búnaðarráðherra til lausn-
ar á vanda loðdýraræktar-
innar. Alþýðuflokksmenn
munu telja þessar tillögur
kosta um milljarð á ári, auk
þess sem framtíðarstaða
loðdýraræktarinnar sé afar
hæpin. Sighvatur Björg-
vinsson, alþingismaður,
sagði í samtali við Alþýðu-
blaðið að afstaða þing-
flokksins til þessa máls
væri þegar mótuð í stórum
dráttum. Sighvatur kvaðst
vilja gera skýran greinar-
mun á framtíð atvinnu-
greinarinnar og stuðningi
ríkisins við hana, annars
vegar og hins vegar hins
vegar skuldaskilum vegna
þeirra skulda sem loðdýra-
ræktin væri þegar komin í.
„Loðdýraræktin stendur
í heild mjög illa og framtíð-
armöguleikar hennar eru
ekki mjög miklir", sagði
Sighvatur. Hann kvaðst því
telja hæpið að ríkið styrkti
greinina í framtíðinni að
öðru leyti en því að tryggja
með iágmarkskostnaði að
sú þekking og sá stofn, sem
búið er að koma upp í land-
inu, verði varðveitt.
Heildarskuldir loðdýra-
ræktarinnar eru nú taldar
vera riflega 2,3 milljarðar
króna. „Menn verða að
gera sér grein fyrir því að
þetta er allt tapað fé“, sagði
Sighvatur. Hann kvaðst
ekki telja rétt að ríkið tæki
á sig meiri ábyrgðir í þessu
sambandi en á því hvíldu
nú þegar. Sighvatur sagði
þingflokk Alþýðuflokksins
þó reiðubúinn að ræða það,
hvort ríkið gæti komið inn
í skuldaskil greinarinnar á
einhvern hátt, en það yrði
hins vegar að takmarkast
af því hve mikið væri hægt
að taka af fé skattborgar-
anna í þeim tilgagni.
í frumvarpi sem landbún-
aðarráðherra hefur lagt
fyrir þingflokka ríkisstjórn-
arflokkanna er gert ráð fyr-
ir að fóðurstyrkur á næsta
ári nemi um 70 milljónum,
ríkissjóður ábyrgist skuld-
breytingarlán til loðdýra-
bænda að 60 hundraðshlut-
um og Stofnlánadeild land-
búnaðarins verði heimilað
að gefa eftir allt að 40% af
höfuðstól lána sinna til loð-
dýrabænda, þegar nauða-
samningar eru gerðir.
Jón Baldvin um aðildíslendinga að samningum EFTA ogEB:
Tækifærið er núna
„Sumir hafa varpað
fram þeirri spurningu ad
undanförnu, hvort ekki sé
verið að rasa um ráð fram,
hvort við eigum ekki að
bíða og sjá hvað setur. Við
þeirri spurningu á ég eitt
svar og eitt svar aðeins.
Tækifærið er núna. Hvort
það kemur aftur getur
enginn verið viss um“,
Tilboðs-
verð á
sfldinni!
Sovétmönnum tókst að
ná síldarverðinu niður um
ríflega 30 milljónir króna.
Þegar loksins var skrifað
undir síldarsölusamninga
í gær hafði íslenska samn-
inganefndin fallist á að
veita 3% afslátt „til frekari
kynningar á íslenskri salt-
síld í Sovétríkjunum" eins
og það er orðað í fréttatil-
kynningu frá Síldarút-
vegsnefnd.
Söluverð síldarinnar er í
dollurum talið hið sama og í
fyrra, sem í raun þýðir
nokkra lækkun. Samningur-
inn sem undirritaður var í
gær, gefur rúman milljarð í
aðra hönd, að því tilskildu að
takist að veiða söltunarhæfa
síld í þær 150 þúsund tunnur
sem samningurinn kveður á
um.
Samningur þessi var tilbú-
inn til undirskriftar í Moskvu
fyrir nærri þremur vikum, en
aðstoðarsjávarútvegsráð-
herra Sovétríkjanna treysti
sér ekki til að staðfesta hann,
vegna þess hve verðið var
hátt. Um síldarsölumál er
nánar fjallað í fréttaskýringu
á bls. 3.
sagði Jón Baldvin Hanni-
balsson utanríkisráð-
herra m.a. í framsögu-
ræðu sinni um könnunar-
viðræður EFTA og EB á Al-
þingi í gær.
Utanríkisráðherra sagði að
EB hefði marglýst því yfir að
bandalagið væri ekki til við-
ræðu um tollfrelsi með fisk
nema gegn veiðiheimildum.
Með öðrum orðum væri
bandalagið ekki reiðubúið í
tvíhliða viðræður um undan-
þágur við einstök ríki. íslend-
ingar yrðu því að fara samn-
ingaleiðina í gegnum EFTA,
enda hefur það komið fram
hjá ráðherranum að hann tel-
ur þá leið fljótvirkari.
Þorsteinn Pálsson tók undir
með utanríkisráðherra að ís-
lendingar ættu óhikað að
taka þátt í þeim samningavið-
ræðum sem í hönd fara hjá
EB og EFTA. Hann gagn-
rýndi ríkisstjórnina fyrir
stefnuleysi í málinu og sagð-
ist ekki sjá það að utanríkis-
ráðherra hefði meirihluta Al-
þingis á bak við skoðun sína.
Þorsteinn gagnrýndi einnig
stjórnina fyrir að hafa ekki
gengið nógu vasklega fram í
tvíhliða viðræðum við EB um
tollfrjálsan og hindrunarlaus-
an aðgang Islands með fisk
að mörkuðum EB,
Þorsteinn krafðist þess fyrir
hönd Sjálfstæðisflokksins að
ákveðnar tvíhliða viðræður
yrðu þegar teknar upp á
formlegan hátt. Þorsteinn
sagði að íslendingar ættu
enga fyrirvara að gera við
frelsin fjögur nema þá að
hindra möguieika útlendinga
á að nýta íslenskar auðlindir
og setti einnig fyrirvara við
frjálsan tilflutning á vinnu-
afli.
Steingrímur Hermannsson
lýsti þeirri samþykkt Fram-
sóknarflokksins að íslending-
um bæri að taka þátt í samn-
ingaviðræðum EFTA og EB,
en hann hafði hinsvegar
mikla fyrirvara við frjálsan
fjármagnsflutning milli landa
svo og frjálsan atvinnurétt.
Steingrímur hafnaði því að
stjórnin hefði ekki staðið sig
nógu vel við tvíhliða viðræð-
ur við einstök ríki EB og
minnti á viðræður sínar við
Thatcher og Kohl í því sam-
bandi.
Bæði Hjörleifur Guttorms-
son og Kristín Einarsdóttir
slógu varnagla við frjálsu
fjármagnsflæði, óttuðust
bæði að það gæti orðið til
þess að útlendingar gætu
eignast íslensk sjávarútvegs-
fyrirtæki án þess að íslend-
ingar gætu nokkuð að gert.
Kristín sagði aldrei koma til
greina að ganga í EB, enda
væri það ólýðræðislegt stór-
veldi. Hjörleifur taldi ekki
liggja á að taka ákvörðun um
það hvort íslendingar yrðu
með í samningum EFTA og
EB.
Drungalegur blær yfír borginni
íbúar höfuðborgarsvaeðisins vöknuðu upp við óvenjulega þétta þoku i g»r og hvíldi yfir
drungalegur og annarlegur blær. Óhœtt er að fullyrða að hún hafi haft talsverð áhrif á umferð
manna, jafnt gangandi, akandi og fljúgandi. Flug gekk brösuglega, bílaumferð seinlega og
eins og meðfylgjandi mynd E.ÓI. ber með sér var jafnvel hætta á ógönguml
Fjármálaráðherra um launalœkkanir vegna verkaskiptingalaga:
Vonlaust að bjóða upp á betri
kjör en hjá þeim sem fyrir eru
í fyrirspurnartíma á Al-
þingi í gær lýsti Ólafur
Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra því yfir að
það væri gjörsamlega von-
laust að ráða fólk frá stofn-
unum sveitarfélaga til
stofnana ríkisins á öðrum
kjörum en hjá þeim sem
starfað hafa þar fyrir um
árabil og jafnvel áratugi.
Fjármálaráðherra var þar
að svara fyrirspurn Guðrúnar
Helgadóttur af því tilefni að
vegna verkaskiptingar ríkis
og sveitarfélaga myndu ýms-
ir opinberir starfsmenn
lækka í launum um 1—5
launaflokka. Þetta hefur
meðal annars komið fram
vegna niðurlagningar á
sjúkrasamlögunum, en starfs-
fólki Sjúkrasamlags Reykja-
víkur býðst starf hjá Trygg-
ingastofnun, en þá lækka
launin.
Ólafur sagði að þar sem rík-
ið yfirtekur stofnanir sveitar-
félaga muni fólk halda sínum
kjörum, en þegar stofnanir
eru lagðar niður verði við-
komandi fólki boðið sam-
bærileg störf hjá ríkinu, en þá
verði það að gangast undir
gildandi kjarasamninga.
Karvel Pálmason og Aðal-
heiður Bjarnfreðsdóttir tóku
til máls og töldu að fólk ætti
að halda sínum kjörum. Kar-
vel sagðist mundu mótmæla
því ef einhverjir lækka í laun-
um og sagðist hafa haldið að
slíkt tilheyrði liðinni tíð. Aðal-
heiður sagðist vona að mál
þetta leiddi til þess að sett
yrðu lög um samræmd kjör
fyrir fólk í sambærilegum
störfum.