Alþýðublaðið - 28.11.1989, Page 4
4
Minning
Njáll Mýrdal
ylirmatsmaður
Fœddur 4. júlí 1921. — Dáinn 19. nóuember 1989.
Ég vil með nokkrum orðum
minnast félaga okkar hjá Ríkis-
mati sjávarafurða, Njáls Mýrdals
yfirmatsmanns, sem féll frá 19.
nóvember sl. eftir að hafa verið frá
vinnu um nokkurt skeið vegna
veikinda. Hann var fæddur 4. júlí
1921 og var því 68 ára þegar hann
lést.
Njáll starfaði við sjávarútveg frá
því að hann fór ungur á sjó með
föður sínum um 15 ára aldur.
Hann átti því um ævina ófá hand-
tök, fyrst sem háseti og stýrimað-
ur, síðar í landi við fiskvinnslu og
aflaði sér þá réttinda til mats-
starfa. Eftir að hafa starfað um ára-
bil sem saltfiskmatsmaður, fastréð
Njáll sig hjá Fiskmati ríkisins árið
1973, sem síðar varð Ríkismat
sjávarafurða. í fyrstu starfaði Njáll
við ferskfiskmat, en 1979 var hann
skipaður yfirmatsmaður í ferskum
og frystum fiski auk þess sem
hann sinnti búnaðareftirliti fiski-
skipa á Suðvesturlandi. 1982 var
hann skipaður deildarstjóri salt-
fiskdeildar. Á þessum starfsferli
aflaði hann sér víðtækrar þekk-
ingar á fiski og sjávarafurðum, en
var auk þess nákvæmur í vinnu-
brögðum og mjög fær skrifstofu-
maður. Hann átti því auðvelt með
að ganga í eða aðstoða við nánast
öll þau störf sem til féllu. Til marks
um það traust sem Njáll naut, þá
var hann sendur sem fulltrúi stofn-
unarinnar til Portúgal í ferð sem
farin var á vegum Sölusambands
íslenskra fiskframleiðenda til að
samræma mat á saltfiski á íslandi
og í Portúgal í febrúar 1983. Njáll
var traustur og góður starfsfélagi
sem bjó yfir mikilli þekkingu, til
hans var því gott að leita varðandi
úrlausn mála.
Njáll kvæntist Theodóru Jónu
Aradóttur og áttu þau þrjú börn,
en barnabörnin eru orðin fimm.
Fyrir hönd Rikismats sjávaraf-
urða og samstarfsmanna, vil ég
með þessum fáu línum, þakka
Njáli Mýrdal fyrir samfylgdina svo
og störf hana s vegum stofnunar-
innar, sem hann rækti af trú-
mennsku. Einnig vottum við eftir-
iifandi eiginkonu hans og börnum
samúð okkar.
Halldór Árnason
MOTUN
ATVINNUSTEFNU
REYKJANESKJÖRDÆMI NORÐAN STRAUMS
■ Ríkisstjórnin hefur ákveðið að beita
Þórður Friðjónsson Óskar Maríusson
Grímur Þ. Valdimarsson Logi Kristjánsson
Kristján Guðmundsson
sér fyrir mótun atvinnustefnu og hef-
ur Júlíusi Sólnes, ráöherra verið falin
framkvæmd þess verks. í vetur verða
haldnir fundir í öllum kjördæmum þar
sem þessi mál verða reifuð og leitað
eftir skoðunum og hugmyndum
heimamanna.
Fyrsti fundurinn verður fyrir Reykja-
neskjördæmi norðan Straums mið-
vikudaginn 29. nóvember klukkan
20:30 í FÉLAGSHEIMILI KÓPAVOGS,
FANNBORG 2, í Kópavogi.
Stuttar ræður flytja: Steingrímur Her-
mannsson, forsætisráðherra, Júlíus
Sólnes, ráðherra Hagstofu, Þórður
Friðjónsson, forstjóri Þjóðhagsstofn-
unar og Óskar Maríusson, fram-
kvæmdastjóri Málningar hf.
Að loknum ræðum verða pall-
borðsumræður. Þátttakendur auk
frummælenda verða: Grímur Þ. Valdi-
marsson, forstjóri Rannsóknastofnun-
ar fiskiðnaðarins, Logi Kristjánsson,
formaður atvinnumálanefndar Kópa-
vogs, Sigurður T. Sigurðsson, for-
maður Verkamannafélagsins Hlífar í
Hafnarfirði og Jón Þórðarson, verk-
smiðjustjóri, Reykjalundi.
Fundarstjóri verður Kristján Guð-
mundsson, bæjarstjóri í Kópavogi.
Reyknesingar: Fjölmennið á fundinn
og takið þátt í mótun atvinnustefnu
framtíðarinnar!
Ef þið eigið góða hugmynd, þá látið
hana koma fram á fundinum!
SAMEINAÐA/SlA
Þriöjudagur 28. nóv. 1989
JÓLABÆKUR '89
Fay Weldon
Út er komin bókin bókin Sveita-
sæla eftir Fay Weldon.
Sveitasæla, segir frá ungri konu,
Natalíu, sem þarf að standa á eigin
fótum eftir að eiginmaðurinn lætur
sig skyndilega hverfa með fegurð-
ardrottningu staðarins. Natalía
stendur eftir slypp og snauð, á ekk-
ert nema börnin sín tvö, sísvangan
hund, síþyrstan Volvo og fjallháar
skuldir.
Út er komin hjá bókaútgáfu Máls
og menningar skáldsagan Þögla
herbergið eftir Herbjörgu Was-
smo, í þýðingu Hannesar Sigfússon-
ar. Bókin er sjálfstætt framhald sög-
unnar Húsið með blindu gier-
svölunum, og um leið önnur bókin
í sagnabálkinum um stúlkuna
Þóru, sem færði höfundinum bók-
menntaverðlaun Norðurlandaráðs
árið 1987. Hannes Sigfússon skáld
þýddi einnig fyrra verkið.
Sögusviðið er eyja við strendur
Norður-Noregs, þar sem Þóra er að
alast upp í litlu fiskiþorpi á eftir-
stríðsárunum. Lífsbarátta fólks og
draumum og óskum Þóru er lýst á
sérlega fallegan og nærfærinn hátt
í þessum bókum.
Út er komin hjá Máli og menningu
bókin íslensk ritsnilld sem Guð-
mundur Andri Thorsson hefur rit-
stýrt. Bókin, sem sver sig í ætt við
hina vinsælu bók íslensk orð-
snilid, hefur að geyma fleyga kafla
úr íslenskum bókmenntum að fornu
og nýju eftir marga ástsælustu höf-
unda þjóðarinnar. Hún skiptist í
kaflana Ástin, Bernskan, Dauðinn,
ísland, Mannlífið, Mannlýsingar og
Skáldskapurinn.